„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sökk djúpt í þunglyndi í kjölfar systurmissis

Sökk djúpt í þunglyndi í kjölfar systurmissis

Sam­fé­lags­miðla­stjarnan og leik­list­ar­nem­inn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola, er einn af þeim sem taka þátt í her­ferð­inni #HUGUÐ á vegum geð­fræðslu­fé­lags­ins Hugrún.

Í við­tali á vef­síðu verk­efn­is­ins segir Aron á ein­lægan hátt frá glímu sinni við þung­lyndi og kvíða.

„Ég er þessi hefð­bundni kvíða­sjúk­lingur, sem ég held að við Íslend­ingar séum upp til hópa. Á sumrin erum við í þriggja mán­aða gleði­vímu og svo dettum við í sex mán­aða skamm­deg­is­þung­lyndi. Þetta er svona íslenska rútínan, myndi ég segja. Æska mín ein­kennd­ist af stöð­ugum flutn­ingum sem varð til þess að ég setti upp grímu og var því alltaf í hlut­verki glaum­gos­ans. Það var auð­veld­ara að fitta inn þannig. Það kemur manni langt að vera opinn og hress en til lengri tíma litið gerir það engum gott,“ segir Aron í við­tal­inu.

Líkaminn setti upp varnarvegg

Aron var átján ára þegar hann missti litlu systur sína, en hún varð undir bíl í fjöl­skyldu­ferð. Hann segir að syst­ur­miss­ir­inn hafi haft mikil áhrif á sig og sitt and­lega ástand.

„Ég hef alltaf fundið fyrir þung­lyndi en eftir að ég missti systur mína þá sökk ég djúpt. Fyrst hafði ég ekki hug­mynd um hvað var að ger­ast. Líkaminn setti upp einn helj­ar­innar varn­ar­vegg. Ég var alveg tómur og ég vissi ekki hvernig ég átti að bregð­ast við umhverfi mínu,” segir Aron, sem greip til ýmissa leiða til að deyfa sárs­auk­ann.

„Mér leið svo rosa­lega illa að ég fór að skaða sjálfan mig með eit­ur­lyfjum, drykkju og klámi. Það var ekki fyrr en ég algjör­lega frík­aði út að fólkið í kringum mig sagði að ég þyrfti að gera eitt­hvað í mínum málum. Ég leit­aði til sál­fræð­ings sem hjálp­aði mér að skilja hvað það væri sem ég var að upp­lifa. Ég var í tvö ár hjá honum og nýti mér þau verk­færi sem hann kenndi mér enn í dag, þau hjálpa mér mikið.“

Hætti að drekka, reykja gras og horfa á klám

Hann segir að námið í lista­há­skól­anum hafi neytt sig til að opna sig og láta grímuna falla.

„Leik­listin neyddi mig til þess að opna mig. Þú þarft að vera sam­kvæmur sjálfum þér ef þú ætlar að taka þátt í þessu námi. Það þarf að vera 100% traust á milli ein­stak­linga í bekknum. Á þeim tíma var ég ekki til­bú­inn til þess, sem varð til þess að ég féll um eitt ár. Ég fann að ég þurfti veru­lega að breyta ein­hverju. Ég sneri blað­inu algjör­lega við og hætti að drekka, reykja gras og horfa á klám, sem var allt orðið vanda­mál á þessum tíma­punkti.“

Í fram­hald­inu flutti Aron á Flúðir og vann við lið­veislu, og síðar fór hann í hálfs árs ferða­lag til Suður-Ameríku. Hann seg­ist hafa snúið til baka sem nýr maður en að hann finni enn fyrir kvíða.

„Í dag ein­kenn­ist kvíð­inn minn af þess­ari hugsun að ég sé ekki nógu góður. Að ég sé ekki að gera nóg til að ná árangri í líf­inu. Ég bý mér til fullt af verk­efnum og er mjög upp­tek­inn. Um leið og ég er ekki á fullu að vinna fer ég í lægð. Ég hugsa: „Vá, ég er ekki að gera neitt við líf mitt.“ Ég held alltaf að ég eigi að vera að gera eitt­hvað. Þegar ég er undir mik­illi pressu þá er ég ekk­ert kvíð­inn en þegar eng­inn ætl­ast til neins af mér þá finn ég fyrir þessum kvíða. Það er ótrú­lega skrítið. Ég er búinn að vera að æfa mig að vera heima og slaka á, sem er mjög erfitt fyrir mig.“

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

missir

Gary Barlow er enn reiður vegna andláts dóttur hans: „Ég hef ekki fundið frið með það ennþá“
Menning

Gary Barlow er enn reiður vegna and­láts dóttur hans: „Ég hef ekki fundið frið með það ennþá“

Gary Barlow er enn „reiður“ vegna and­láts dóttur hans Poppy og við­ur­kennir að eiga enn erfitt með að finna „frið“, 12 árum síðar. Hinn 53 ára söngv­ari og eig­in­kona hans Dawn eign­uð­ust stitt fjórða barn þegar Poppy kom í heim­inn í ágúst 2012 en því miður fædd­ist hún and­vana. Aðeins örfáum dögum síðar átti Gary að koma fram með Take...
Stewart grét er hann tilkynnti andlát fjölskylduhundsins: „Hann var tilbúinn. En ég var það ekki“
Menning

Stewart grét er hann til­kynnti and­lát fjöl­skyldu­hunds­ins: „Hann var til­bú­inn. En ég var það ekki“

Jon Stewart brotn­aði niður við upp­tökur á þætti sínum The Daily Show í fyrra­dag en þar til­kynnti hann að fjöl­skyldu­hund­ur­inn Dipper, væri dáinn. Grínist­inn Jon Stewart, sem snéri nýlega til baka sem stjórn­andi The Daily Show, eftir að hafa stigið til hliðar árið 2015, hélt til­finn­inga­þrungna ræðu um hund­inn sinn Dipper, sem lést á sunnu­dag­inn. Sagði hann frá and­lát­inu í...
Missti fimm mánaða son sinn
Innlentmissir

Missti fimm mán­aða son sinn

Banda­ríski leik­ar­inn, rapp­ar­inn og þátta­stjórn­and­inn Nick Cannon greindi frá því í sjón­varps­þætt­inum The Nick Cannon Show í gær að yngsti sonur hans hafi látið lífið aðeins fimm mán­aða gam­all. Dreng­ur­inn greind­ist með krabba­mein í heila um tveggja mán­aða aldur. Hann sagði frá því að hann hafi, ásamt barns­móður sinni náð að eyða síð­asta degi sonar þeirra saman á strönd­inni. Nick...
Fólk

Ástin breytti öllu

Þegar Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir missti eig­in­mann sinn úr krabba­meini árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að þurfa að end­ur­skipu­leggja allt líf sitt og for­gangs­röðin breytt­ist. Í fram­haldi af því stofn­aði hún Heilsu­fé­lagið, ráð­gjaf­ar­þjón­ustu um aukin lífs­gæði, og hefur síðan unnið ötul­lega að því að hjálpa fólki á vinnu­mark­aði, einkum konum, að vinna að betra starfs­um­hverfi og bættum lífs­gæðum. Hún...
Lýsir reynslu sinni af því að missa barn vegna mistaka heilbrigðisstarfsfólks í nýrri bók
Innlentmissir

Lýsir reynslu sinni af því að missa barn vegna mis­taka heil­brigð­is­starfs­fólks í nýrri bók

Auðbjörg Reyn­is­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur hefur opnað vef­síðu í tengslum við útgáfu raf­bókar sem ber tit­il­inn Stærri en ban­væn mis­tök. „Hún fjallar um líf og dauða yngri sonar míns Jóels, sem lést eftir víta­vert gáleysi starfs­manna (röð atvika) á barna­spít­ala Hrings­ins í febr­úar 2001,“ skrifar Auðbjörg um bók­ina á nýjum vef sínum. Hún segir bók­ina einnig fjalla um lífið eftir son­ar­miss­inn. Auðbjörg...
„Ekki líkt mér að bera tilfinningar mínar á torg“
Innlentmissir

„Ekki líkt mér að bera til­finn­ingar mínar á torg“

Haukur Örn Birg­is­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og for­seti Golf­sam­bands Íslands, og Guðríður Magndís Guð­munds­dóttir, sam­býl­is­kona hans, eign­uð­ust and­vana tví­bura í lok októ­ber eftir rúm­lega tutt­ugu og tveggja vikna með­göngu. Ekkert hafði bent til þess að eitt­hvað væri að og áfallið því enn meira en ella. Haukur lýsti upp­lifun­inni af því að missa dreng­ina í Bak­þönkum Frétta­blaðs­ins og seg­ist aldrei hafa órað fyrir þeim við­brögðum sem pistill­inn fékk.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins