„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ekkert mátti klikka“

„Ekkert mátti klikka“
|||

Eilífur Örn Þrast­ar­son, með­eig­andi og leik­stjóri hjá fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu SNARK fékk krefj­andi verk­efni fyrir stuttu – að leik­stýra mynd­bandi með banda­rísku sveit­inni Fleet Foxes við lagið Crack-Up þegar hljóm­sveitin tróð upp á tón­list­ar­há­tíð­inni Iceland Airwaves í fyrra.

Fleet Foxes hefur notið mik­illa vin­sælda síð­ustu ár og hefur sveitin meðal ann­ars verið til­nefnd til Grammy-verð­laun­anna fyrir tón­list sína. Þá hefur sveitin hlotið lof gagn­rýnenda fyrir tón­list­ar­sköpun sína og vakti það mikla lukku á sínum tíma þegar til­kynnt var um komu sveit­ar­innar til Íslands. Mér leikur því for­vitni á að vita hvernig það kom til að Eilífur land­aði verk­efni með þeim.

Ekkert mátti klikka á sjálfan töku­dag­inn í Hörpu.

„Það var haft sam­band við fram­leiðslu­fyr­ir­tækið okkar, SNARK, í gegnum fyr­ir­tækið Consequence of Sound, sem er ein stærsta tón­list­ar­síða í heim­inum. Þeir höfðu séð mynd­band sem ég gerði með Ólafi Arnalds við lagið hans 0952. Þeir sendu lagið og ég byrj­aði að hugsa um ein­falda og skemmti­lega útfærslu sem væri hægt að gera með þeim á meðan þeir væru hérna yfir Airwaves hátíð­ina,“ segir Eilífur. Í fram­hald­inu ákváð hann og teymið hans hjá SNARK að taka mynd­bandið upp í einni töku, sem reynir mikið á hæfi­leika leik­stjór­ans.

„Það var vitað að við yrðum í Hörpu, en mig lang­aði að færa þetta frá því að vera hefð­bundið tón­leika­mynd­band, og lang­aði að gera þetta per­sónu­legra, með per­sónu­legri frá­sögn. Við komumst niður á þá hug­mynd að gera þetta í einni töku og láta þá flytja lagið á sama tíma. Það er mun meiri áhætta, heldur en að taka margar tökur sem er hægt að klippa saman. Allt verður að ger­ast á sama tíma, bæði mynda­taka og tón­list­ar­flutn­ingur. Þannig verður þetta við­kvæmara, allir verða sam­stil­t­ari fyrir vikið og meiri nánd mynd­ast.

Áhorf­and­inn finnur fyrir því, og þannig náum við að gera þetta per­sónu­legra, eng­inn leikur, bara hreinn flutn­ingur.“

Tökumaður með tugi kílóa á sér

Meðlimum Fleet Foxes leist afar vel á hug­mynd Eilífs og þar sem mynd­banda­gerð af þessu tagi snýst mikið um nákvæmni og tíma­setn­ingu, hófst Eilífur strax handa við að und­ir­búa sjálfan töku­dag­inn.

„Við í íslenska teym­inu fórum í Hörpu og tíma­settum eins mikið og við gátum áður en með­limir Fleet Foxes komu sjálfir til lands­ins. Lagið sjálft er í lengri kant­inum. Kvik­mynda­töku­mað­ur­inn þarf að vera með sér­stakan stöð­ug­leika­búnað og með öllu vegur bún­að­ur­inn tugi kílóa, þannig að það var útséð að þetta yrði lík­am­lega erfitt fyrir töku­mann­inn.  Í ofaná­lag er lítið pláss, snúrur liggj­andi úti um allt og dimmt svið. En allt gekk vonum framar, og þarf vart að taka það fram að Tómas Marshall, töku­maður, stóð sig eins og hetja,“ segir Eilífur er hann rifjar upp und­ir­bún­ings­tíma­bilið. Á sjálfum töku­deg­inum var síðan allt undir og ekk­ert mátti klikka.

Fleet Foxes og Snark-liðar áttu fal­lega stund í Hörpu.

„Á töku­deg­inum settum við allt upp og lýstum í sam­starfi við ljósa­menn Fleet Foxes og starfs­fólk Hörpu og ræddum um hvernig þetta gæti gengið sem best fyrir sig. Við heyrðum æfingu af lag­inu dag­inn áður, þannig að við vissum aðeins betur hvernig þetta myndi verða á töku­deg­inum. Meðlimir hljóm­sveit­ar­innar voru auð­vitað líka mjög fag­legir og allir vildu að þetta myndi ganga vel, og það er smá pressa því ekk­ert mátti klikka. Það má segja að það hafi verði smá spenna fólgin í því að gera svona. Per­formans­inn, kameru­vinnan, kór­inn, ljósin og annað þurfti að passa vel tíma­lega, því ann­ars yrði öll takan ónýt,“ segir Eilífur en kvenna­kór­inn Graduale nobili tók einnig þátt í tök­unum.

„Allt gekk eftir á end­anum og hljóm­sveitin var ánægð með sinn per­formans og kór­inn líka. Við kláruðum dag­inn, spjöll­uðum aðeins við hljóm­sveit­ina og það voru bara allir mjög sáttir og létt að þetta skuli hafa tek­ist vel.“

Besta myndband Fleet Foxes?

Eilífur segir það hafa verið gef­andi að vinna með hljóm­sveit­inni, þó hann hafi átt í mestum sam­skiptum við for­söngv­ar­ann, Robin Pecknoid.

„Hljóm­sveit­ar­með­lim­irnir voru heilt yfir mjög hressir, en það getur verið smá þreyta í mönnum á svona tón­leika­ferða­lagi eins og þeir voru á. Söngv­ar­inn var sá sem við áttum í mestum sam­skiptum við og hann var gíf­ur­lega við­kunn­an­legur og rosa­lega spenntur fyrir þessu. Það var gaman að vinna með honum í að spá í smá­at­rið­unum á staðnum.“

Mynd­bandið við lagið Crack-Up var frum­sýnt fyrir stuttu á fyrr­nefndri tón­list­ar­síðu, Consequence of Sound. Eilífur segir hljóm­sveit­ina hafa verið hæstá­nægða með afrakst­ur­inn.

Hér er Eilífur lengst til hægri. Í miðj­unni er Robin, söngv­ari Fleet Foxes, og lengst til vinstri er Ólafur Páll Torfason, fram­kvæmda­stjóri SNARK.

„Allir eru mjög ánægðir með loka­út­gáf­una af þessu mynd­bandi og við náðum að fanga fal­legt augna­blik og góða minn­ingu. Það fór ferli í gang þar sem allir skoða og hafa sitt að segja. Í raun­inni þá var okkur bara tjáð það að ef þeir í Fleet Foxes yrðu ekki sáttir, yrði þetta ekki gefið út, en þegar þeir sáu þetta, þá sáum við þó fljótt að þeir væru sáttir,“ segir Eilífur en þess má geta að söngv­ari Fleet Foxes lét þau orð falla á sam­fé­lags­miðlum á dög­unum að þetta væri besta mynd­band sem hefði komið úr her­búðum hljóm­sveit­ar­innar.

Ánægður með útkomuna og viðtökurnar

SNARK fram­leiðir mikið af íslenskum aug­lýs­ingum fyrir net og sjón­varp og eins er Eilífur að vinna að hand­riti að bíó­mynd og þróa hug­myndir að leiknu efni. En opnar gerð Fleet Foxes-mynd­bands­ins ein­hverjar dyr fyrir hann?

„Fleet Foxes-mynd­bandið er svo það nýkomið út, en hvaða áhrif það hefur á mitt líf eða tæki­færi er í raun ómögu­legt að segja og ég á svo sem ekki von á því að þetta breyti lífi mínu mikið. En þetta fer í mikla dreif­ingu og margir sem munu sjá þetta, þannig að það er aldrei að vita hvað ger­ist í fram­tíð­inni, von­andi auð­vitað sjá ein­hverjir skemmti­legir það þarna úti og fleiri skemmti­leg verk­efni gætu fæðst í kjöl­farið. En í raun­inni er ég ekk­ert að hugsa um það. Ég er bara ánægður með útkom­una og við­tök­urnar.“

Mynd­bandið umtal­aða má sjá hér fyrir neðan:

Texti / Lilja Katrín
[email protected]
Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

grammy

Víkingur Heiðar vann sín fyrstu Grammy-verðlaun í nótt
Menning

Víkingur Heiðar vann sín fyrstu Grammy-verð­laun í nótt

Víkingur Heiðar Ólafsson vann til Grammy-verð­laun­anna í gær­kvöld fyrir plötu sína J.S.Back: Goldberg Variations. Píanó­snill­ing­ur­inn var til­nefndur í flokki klass­ískra ein­leiks­hljóð­færa­leik­ara en þetta er í fyrsta sinn sem hann fær Grammy-verð­laun. Auk Víkings Heiðars voru til­nefnd eft­ir­far­andi lista­menn: Andy Akiho, Curtis J Stewart, James Blachly & Experiential Orchestra, Mak Grgić & Ensemble Dissonance og Seth Parker Woods. Það var þýska...
Innlentgrammy

Nýstár­legur kjóll Hildar frá Iris van Herpen

Tón­skáldið Hildur Guðna­dóttir hlaut í gær Grammy-verð­laun í flokknum besta tón­list fyrir mynd­ræna miðla fyrir tón­list sína þátt­unum Chernobyl. Hildur var glæsi­leg þegar hún tók við verð­laun­unum. Förð­un­ar­fræð­ing­ur­inn Karim Sattar sá um förð­un­ina og not­aði vörur frá Dr. Hauschka. Hildur klædd­ist svo ein­stökum kjól frá hol­lenska hönn­uð­inum Iris van Herpen en kjól­arnir hennar eru afar nýstár­legir og minna helst á...
Hildur tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir tónlistina í Chernobyl
Innlent

Hildur til­nefnd til Grammy-verð­launa fyrir tón­list­ina í Chernobyl

Tón­skáldið Hildur Guðna­dóttir er til­nefnd til Grammy-verð­laun­anna 2020 fyrir tón­list sína við þætt­ina Chernobyl. Til­nefn­ing­arn­anr voru kynntar í gær. Hildur hefur þegar hlotið eft­ir­sótt verð­laun fyrir tón­list­ina í Chernobyl, meðal ann­ars Emmy-verð­laun. Hild­ur er til­nefnd fyr­ir bestu tón­list í sjón­ræn­um miðlum (Best Score Soundtrack For Visual Media) en sá flokk­ur nær yfir kvik­mynd­ir, sjón­varps­þætti, tölvu­leiki og aðra sjón­ræna miðla. Aðrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins