„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kjóla- og kökusjúkur bakari, blaðmaður og rithöfundur

Lilja Katrín Gunn­ars­dóttir, leik­kona og blaða­maður DV, og nú líka rit­höf­undur og bóka­út­gef­andi því á síð­asta­ári gaf hún út köku­bók­ina Minn syk­ur­sæti lífs­stíll sem hún hefur selt eins og heitar lummur. Við heyrðum í Lilju og fengum að kynn­ast henni á nýjan hátt.

Kjóla- og kökusjúkur bakari, blaðmaður og rithöfundur

Hver ertu? „Rokk­stjarna. Alla vega þegar ég tala við speg­il­inn inni á baði á kvöldin.“

Hvaðan kemur þú? „Úr 111. Fellunum. Breið­holti. Ekki Selja­hverf­inu.“

Hvar og hvenær líður þér best? „Heima, seint um kvöld, bara ég og eig­in­mað­ur­inn, börnin sofnuð, slökkt á tölvum, kveikt á tón­list, spil í hönd og góður drykkur.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Eig­in­hand­ar­á­ritun frá öllum leik­ur­unum í Neighbours. Það hlýtur að koma að því …“

Hvað trónir á toppi óska­list­ans fyrir fata­skáp­inn? „Mig dauð­langar í skó frá Irreg­ular Choice, en ég gifti mig í skóm frá þeim. Helst ein­hverja brjál­æða bolla­köku­skó með glimmeri sem gæti kæft ein­hyrn­ing.“

Ef þú ættir millj­arð í einn dag hvað myndir þú gera? „Ég myndi kaupa mér eld­hús og opna bak­arí. Svo myndi ég bjóða mann­inum mínum á epíska rokktón­leika í útlöndum og kaupa alvöru­ein­hyrn­inga fyrir börnin mín.“

„Picasso. Hann nær að kveikja í þessu kalda lista­hjarta. Kay Pollock nær að snerta alla mína strengi og ég trúi því stundum ekki hve fagra tón­list Nick Cave getur smíðað.“

Besta kaka í geimi? „Þetta er eins og að velja á milli barn­anna sinna! Ókei, þá. Ég er ofboðs­lega svag fyrir osta­köku. Helst ein­faldri með dassi af hvítu súkkulaði og kara­mellusósu.“

Upp­á­halds­konfekt­mol­inn? „Aftur bara einn; heima­gert Twix. Ég finn kransæð­arnar stífl­ast!“

Hvert myndir þú fara í ferða­lag ef þú værir á leið í drauma­ferð­ina? „Besta frí sem ég hef farið í var til Taílands. Þannig að ætli ég myndi ekki fara til Bangkok, heim­sækja alla upp­á­halds­stað­ina mína. Ferðast síðan til nálægra landa, eins og Kambódíu, og fljúga svo til Japan og njóta kirsu­berjatrjáa í blóma, sushi og Kit Kat með saki-bragði.“

Hvaða bíll lýsir þínum karakter best? „Ætli það sé ekki bara Hummer. Blóðheit og ástríðu­full. Get stundum farið aðeins fram úr mér og er ömur­leg að leggja í stæði.“

Hvaða lista­menn heilla þig upp úr skónum? „Picasso. Hann nær að kveikja í þessu kalda lista­hjarta. Kay Pollock nær að snerta alla mína strengi og ég trúi því stundum ekki hve fagra tón­list Nick Cave getur smíðað.“

Ef eld­húsið þitt ætti eina ósk? „Að eign­ast fag­ur­bleika Kitchen Aid-hræri­vél. Ég veit ekki hve mikið meira upp­hand­leggirnir á mér þola.“

Ef þú ættir bara eina ósk? „Að kökur og nammi væru ofur­fæða eins og chia-fræ og möndlu­mjólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður