„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Umhverfisvæn og nýta allt

Ágústa Magn­ús­dóttir og Gustav Jóhanns­son voru á meðal þeirra hönn­uða sem komu fram á Hönn­un­ar­Mars í ár. Þau sýndu nýja hús­gagna­línu sem byggð er á spgegl­uðum formum, bæði í versl­un­inni Akkúrat og sýn­ing­ar­rými þeirra að Funa­höfða 3.

Umhverfisvæn og nýta allt

Nafn: Ágústa Magnúsdóttir / Gústav Jóhannsson

Aldur: 38 / 44

Menntun: Msc í Medialogy / Húsgagnasmiður

Var nýja línan lengi í þróun og vinnslu?

Þessi lína varð eig­in­lega til í kjöl­far Hönn­un­ar­Mars í fyrra. Þá bjuggum við til ógrynni af nýjum vörum og þar á meðal boga­stóla. Við höfum svo verið að fram­leiða þá síð­ast­liðið ár og þeir gátu af sér afskurði af bogum sem okkur þótti spenn­andi að reyna að vinna með. Við reynum eftir bestu getu að nýta allt efni sem kemur inn á verk­stæðið til fulls.

Hvernig var hönnunarferlið?

Hjá okkur er það yfir­leitt nokkuð handa­hófs­kennt og er und­ir­staðan und­an­tekn­ing­ar­laust í efn­inu. Í þessu til­felli stóðum við með hálf­hring í hönd­unum og út frá því veltum við fyrir okkur hvernig við gætum sett þessa boga saman til að mynda form sem við gætum nýtt. Í masters­nám­inu mínu mundi ég eftir að hafa lesið um það hvernig mynstur hafa áhrif á hug­ann, hvernig þau geta leitt til þess að við löð­umst að ein­hverju en hvernig þau geta líka gert það að verkum að við fáum leið á ein­hverju ef þau eru ekki brotin upp.
Þessi hús­gögn eru unnin með þetta í huga, við ákváðum að spegla formin og mynda úr þeim spegla. Hönnunin hjá okkur er mikið ítr­un­ar­ferli og við höfum verið að hanna þennan boga­stól í mörg ár. Beina­grindin af honum stóð lengi vel inni á verk­stæði hjá okkur, þvinguð saman sem ein­hvers­konar hug­mynd en það tók okkur fjögur ár að ná loka­út­gáf­unni sem við teljum okkur vera komin niður á núna.

Eru þið umhverfisvæn í ykkar hönnun?

Hjá AGUSTAV leggjum við sér­stak­lega mikið upp úr því að vera umhverf­is­væn. Við notum ein­göngu umhverf­is­vænan efni­við og eit­ur­efna­fríar olíur. Við nýtum allt efni sem fellur til á verk­stæð­inu allt frá afskurði sem verður að nýjum vörum að sagi úr vél­unum sem hefur nýst í hest­húsum. Þar að auki þá gróð­ur­setjum við tré fyrir hverja vöru sem við seljum.

Hefur hönnun, smíði og sköpun alltaf verið ykkur hugleikin?

Smíðin er í æðunum á Gústa má segja og hús­gagna­smíðin hafði blundað í honum.
Ég var svo sjálf farin að teikna hús­gögn sem ung­lingur og hef alla tíð haft mikla þörf fyrir að skapa í ein­hverju formi og vinna með hluti mynd­rænt.

Í sam­ein­ingu náum við svo ein­hverjum fall­krafti, hug­myndir kvikna og form­ast á milli okkar, jafn­vel verða að ein­hverju nýju í sam­tal­inu, mót­ast svo í hönd­unum og verða að lokum að full­mót­uðum hlut.

Á hvaða tíma sólarhringsins vinni þið best?

Hvenær sem er þegar það fæst friður fyrir börn­unum … ann­ars sinnum við yfir­leitt hug­mynda­vinnu á kvöldin og vinnum úr henni á dag­inn.

Hvað finnst þér um íslenska hönnun?

Það er margt áhuga­vert að ger­ast á Íslandi en ég held að það sem hamli íslenskri hönnun kannski mest séu fram­leiðslu­mögu­leik­arnir. Hönn­un­ar­sagan er ekki eins fast­mótuð hér og hún er á hinum Norð­ur­lönd­unum en við við sjáum það sem einn helsta kost hönn­unar á Íslandi; það að hún er í mótun og hún getur orðið það sem við viljum.

Hvernig er að markaðssetja sig sem hönnuður í dag?

Það er erfitt. Við sköpum allan dag­inn og hugsum í lausnum en erum ómögu­legir sölu­menn og finnst erfitt að bera okkar eigin kyndil.

Eftirlætishönnuður?

Maðurinn á ekki séns í nátt­úr­una.

Hvar fást húsgögnin frá AGUSTAV?

Á síð­unni okkar AGUSTAV.is og svo erum við með opið sýn­ing­ar­rými á Funa­höfða 3 þar sem hægt er að koma og skoða og versla. Bráðlega má einnig finna úrval af vörum frá okkur í hönn­un­ar­versl­un­inni Akkúrat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsgögn

Nýr stóll eftir gamalli teikningu Nönnu Ditzel
Mannlífið

Nýr stóll eftir gam­alli teikn­ingu Nönnu Ditzel

Nýverið var borð­stofu­stóll­inn, Arkade Chair, frum­sýndur en það var Nanna Ditzel sem teikn­aði hann upp­haf­lega árið 1983 í sam­starfi við Brdr. Krüger. Nanna Ditzel. Nanna sótti sér inn­blástur í danska hönnun sem átti í senn að vera klass­ísk og nútíma­leg, stóll­inn var þó ekki settur í fram­leiðslu á þeim tíma. Ditzel var heilluð af skrauti og litum og bera efni­við­ur­inn...
Mikilvægustu húsgögn heimilisins
Mannlífið

Mik­il­væg­ustu hús­gögn heim­il­is­ins

Þekking sem kemur að góðum notum þegar inn­rétta á heim­ilið. Stólar eru vafa­laust ein mik­il­væg­ustu hús­gögn heim­il­is­ins en þekkt­ustu hönn­uðir og arki­tektar heims hafa margir hverjir hannað stóla eða ein­hvers konar sæti á starfsævi sinni. Þegar velja á stóla fyrir heim­ilið er gott að hafa í huga hvaða þarfir þeir þurfa að upp­fylla. Fag­ur­fræði og nota­gildi þurfa því að tvinn­ast...
Hrátt og nútímalegt
Mannlífið

Hrátt og nútíma­legt

Androg­yne-sófa­borðið er nýtt úr smiðju danska fyr­ir­tæk­is­ins Menu, hannað af norska arki­tekt­inum og hönn­uð­inum Danielle Siggerud. Borðið var upp­haf­lega gert fyrir Menu Space-kaffi­húsið en fór fljót­lega á almennan markað. Borðið er með marm­ara­plötu og stálfótum og ein­stak­lega fag­urt á að líta. Það stendur sem skúlp­túr og hentar í hinum ýmsu rýmum og varpar fal­legum skugga­myndum. Nútíma­legt, hrátt og fágað.
Fyrsta tölublað ársins – Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi og trendin fyrir árið 2020 krufin
Mannlífið

Fyrsta tölu­blað árs­ins – Fjöl­breyti­leik­inn í fyr­ir­rúmi og trendin fyrir árið 2020 krufin

For­síðu­myndin er af nýja veit­inga­staðnum Dill sem við heim­sóttum ásamt fjöl­breyttum híbýlum. Arki­tektúr og tísku­straum­arnir fyrir árið 2020 eru áber­andi og virki­lega áhuga­vert að sjá hvað er fram undan. Ein­stak­lega áhuga­verður arki­tektúr á Kala­stöðum sem danski arki­tekt­inn Ole Jakobsen teikn­aði en hann hann­aði húsið út frá nátt­úr­unni í Hval­firði. Fallegt hús hjá Hönnu Þóru í Garðabæ, með skemmti­legum arki­tektúr, sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður