„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gott í matinn gefur góðar hugmyndir fyrir brúðkaupsveisluna

Vefsíðan gottimat­inn.is er upp­skrifta­síða Mjólk­ur­sam­söl­unnar en hún er góður staður til að byrja á þegar kemur að því að huga að veit­ingum fyrir brúð­kaups­veisl­una.

Gott í matinn gefur góðar hugmyndir fyrir brúðkaupsveisluna

Á síð­unni eru alls kyns flokkar á borð við köku-, kjöt- og osta­flokka en jafn­framt er þar að finna sér­stakan flokk til­eink­aðan veislum þar sem finna má margs­konar upp­skriftir sem henta full­kom­lega fyrir stóra dag­inn. Brúð­kaups­veislur nú til dags eru af ýmsum stærðum og gerðum og eru eins ólíkar og þær eru margar – rétt eins og brúð­hjónin hverju sinni.
„Að mörgu er að huga fyrir stóra dag­inn og í flestum til­fellum skiptir mat­ur­inn miklu máli en þá er líka gott að hafa í huga að það er engin ein rétt upp­skrift að full­kominni brúð­kaups­veislu heldur skiptir mestu máli að brúð­hjónin hafi hlut­ina eins og þau vilja,“ segir Gréta Björg Jak­obs­dóttir, mark­aðs­full­trúi MS.

Mögulega er mexíkóskur matur, ostar og osta­kökur í miklu upp­á­haldi hjá verð­andi brúð­hjónum. Hví ekki að ganga út frá því og bjóða upp á mexíkóska kjúklinga­súpu, ljúf­fenga osta­köku og girni­legan osta­bakka í veisl­unni. „Hvort sem brúð­hjónin langar að bjóða upp á smá­rétti og ljúf­fenga osta, súpu og snittur, heitt mat­ar­hlað­borð eða dýr­indis köku­veislu er valið þeirra og heima­síða Gott í mat­inn getur án nokk­urs efa aðstoðað við und­ir­bún­ing­inn,“ segir Gréta og deilir hér með les­endum nokkrum vel völdum upp­skriftum af síð­unni.

Mexíkósk kjúklinga­súpa
400 g kjúklinga­kjöt
1 msk. olía
1 laukur
6 plómu­tómatar, skornir í bita
100 g blað­laukur smátt saxaður
1 rauð paprika smátt söxuð
1 grænt chili, fínt saxað
2 tsk. papriku­duft
3 msk. tómat­púrra
1½ l kjúklinga­soð (vatn og ten­ingur)
2 dl salsa-sósa
100 g rjóma­ostur til mat­ar­gerðar frá Gott í mat­inn

Meðlæti í súp­una
sýrður rjómi frá Gott í mat­inn
nachos-flögur
rif­inn ostur frá Gott í mat­inn

Aðferð:

1. Steikið saman í olíu kjúklinga­kjötið, lauk­inn, blað­l­auk­inn, paprik­una, grænt chili og plómu­tómatana.
2. Bætið í papriku­dufti og tómat­púrru, blandið vel saman. Hellið saman við kjúklinga­soðið og látið sjóða í 15-20 mín. við vægan hita.
3. Bætið salsa-sósu í súp­una ásamt klípum af rjóma­ost­inum. Látið sjóða í 3-5 mín. við vægan hita.
4. Berið súp­una fram með sýrðum rjóma, nachos-flögum og rifnum osti.

Ofn­bak­aðar brauð­snittur með Dala-Camembert
1 snittu­brauð
Dala-Camembert
mangó-chutney
stein­selja
pistasíur

Aðferð:
1. Skerið snittu­brauðið í jafn­stórar sneiðar.
2. Leggið eina til tvær sneiðar af Dala-Camembert yfir hverja brauð­sneið.
3. Setjið góða mat­skeið af mangó-chutney yfir ost­inn.
4. Bakið við 180°C í 5-7 mín­útur eða þar til ost­ur­inn verður gull­in­brúnn.
5. Skreytið snitt­urnar með stein­selju og pistasíum og berið strax fram.

Osta­salat
1 Mexík­óostur
1 Hvít­lauksostur
180 g sýrður rjómi frá Gott í mat­inn 18% (1 dós)
1½ msk. grísk jógúrt frá Gott í mat­inn
1 rauð paprika, smátt söxuð
¼ blað­laukur, smátt saxaður
rauð vín­ber, magn eftir smekk

Aðferð:
1. Hrærið sýrðan rjóma og gríska jógúrt saman.
2. Skerið ostana í litla bita og blandið saman við sós­una.
3. Skerið papriku og blað­lauk smátt og blandið saman við.
4. Skerið að lokum nokkur vín­ber, magn fer eftir smekk.
5. Blandið þeim saman við og hrærið vel í sal­at­inu.
6. Salatið er betra ef það fær að standa í nokkrar klukku­stundir í ísskápnum áður en það er borið fram.

Osta­bakki með ítölsku ívafi
1 stk. Dala-Camembert
1 stk. Ljótur
1 stk. Gull­ostur

Meðlæti:
parma­skinka eða önnur hrá­skinka
grænar ólífur
salami, krydd­pylsa eða annað kjöt­á­legg
fersk jarð­ar­ber sett ofan á Gull­ost­inn
fersk blá­ber
kex

Oreo-osta­kaka
Botn:
320 g Oreo-kex­kökur
100 g smjör

Fylling:
600 g hreinn rjóma­ostur til mat­ar­gerðar frá Gott í mat­inn, við stofu­hita
3 msk. flór­sykur
200 g hvítt súkkulaði, brætt yfir vatns­baði
300 ml rjómi
1 tsk. vanilla
Oreo-kex­kökur

Aðferð:
1. Myljið kexið í mat­vinnslu­vél. Blandið smjör­inu saman við og þrýstið kex­blönd­unni í botn­inn á böku­formi og upp með börmum. Kælið á meðan þið útbúið fyll­ing­una.
2. Þeytið rjóma­ost­inn í smá­stund, bætið flór­sykrinum, rjóm­anum og vanillu saman við og hrærið.
3. Bræðið súkkulaðið yfir vatns­baði, kælið aðeins og hellið út í osta­blönd­una í mjórri bunu.
4. Hellið blönd­unni ofan á kex­botn­inn og setjið inn í kæli. Geymið kök­una í kæli í nokkrar klukku­stundir eða yfir nótt.
5. Myljið að lokum nokkrar kex­kökur og sáldrið yfir kök­una. Einnig er fal­legt að skreyta kök­una með berjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

brúðkaup

Íslandsvinurinn Rebel Wilson giftist unnustunni: „Ég hélt að ég væri að leita að Disney prins“
Menning

Íslands­vin­ur­inn Rebel Wilson gift­ist unnust­unni: „Ég hélt að ég væri að leita að Disney prins“

Leik­konan og Íslands­vin­ur­inn Rebel Wilson gekk að eiga Ramonu Agruma í Sardiníu á laug­ar­dag­inn. Á ljós­myndum sem teknar voru í brúð­kaupi þeirra sjást þær hald­ast í hendur í hvítum kjólum með blóm í hár­inu og blik í augum. Brúðkaup Rebel og Ramonu hefur haft langan aðdrag­anda en Rebel opin­ber­aði sam­band þeirra árið 2022 þegar hún birti ljós­mynd með yfir­skrift­inni: „Ég...
Eftirlýstur stríðsglæpamaður giftir sig í Moskvu eftir meint framhjáhald
Heimurbrúðkaup

Eft­ir­lýstur stríðs­glæpa­maður giftir sig í Moskvu eftir meint fram­hjá­hald

Rúss­neski barna­rétt­inda­full­trú­inn Maria Lvova-Belova, sem er eft­ir­lýst af Alþjóða­glæpa­dóm­stólnum vegna stríðs­glæpa­á­kæru fyrir þátt sinn í rán­inu á úkra­ínskum börnum, og rétt­trún­aðar auð­kýf­ing­ur­inn Kon­stantin Malofeev, sem lýsir sér sem ein­veld­is­mann, sem rekur sjón­varps­stöð­ina Tsargrad TV, gengu í hjóna­band á sunnu­dag, sam­kvæmt Verstka Media og Telegram rásinni Baza. Fyrst var sagt frá sam­bandi hjón­anna, sem eru tals­menn „hefð­bund­inna gilda“, fyrr í sumar,...
Brynja Scheving og Þorsteinn landsliðsþjálfari giftur sig í Las Vegas – Sjáðu myndirnar
Menning

Brynja Scheving og Þor­steinn lands­liðs­þjálf­ari giftur sig í Las Vegas – Sjáðu mynd­irnar

Þau Brynja Scheving, skóla­stjóri í Ball­et­skóla Eddu Scheving, og Þor­steinn Hall­dórs­son, þjálf­ari kvenna­lands­liðs Íslands í knatt­spyrnu, eru ekki lengur kærustupar. Þau eru orðin hjón. Parið gifti sig í sól og sum­ar­yli í eyði­merk­ur­borg­inni Las Vegas í Banda­ríkj­unum í gær. Brynja til­kynnti gleði­tíð­indin á Facebook og birti nokkrar fal­legar ljós­myndir frá brúð­kaup­inu, sem var lát­laust en fal­legt. Hér má sjá nokkrar...
Bað um leyfi fyrir umdeilda kjólnum: „Hún var glæsileg og ég elskaði þetta!“
Menning

Bað um leyfi fyrir umdeilda kjólnum: „Hún var glæsi­leg og ég elskaði þetta!“

Fyr­ir­sætan og hálf­systir Kar­dashian systr­anna, Kendall Jenner(26) svarar þeim sem gagrýndu fata­val hennar í brúð­kaupi í lok síð­asta árs. Kendall í kjólnum umdeilda Margir hafa sagt kjól stjörn­unnar óvið­eig­andi og jafn­vel skandal í slíkan við­burð en var það besta vin­kona stjörn­unnar, Lauren Perez sem gifti sig í Miami í nóv­em­ber. Lauren tekur upp hansk­ann fyrir vin­konu sína í kommenta­kerfi á...
Söngdívan Heiða Ólafsdóttir og Helgi Páll gengu í það heila í kvöld
Innlentbrúðkaup

Söngdívan Heiða Ólafs­dóttir og Helgi Páll gengu í það heila í kvöld

Söngdívan Heiða Ólafs­dóttir og Helgi Páll Helgason gengu í það heilaga í kvöld. Brúðurin var stór­glæsi­leg á að líta, enda fal­leg kona þar á ferð. Heiða kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið í Idol Stjörnu­leit og hefur hún aldeilis unnið hug og hjörtu Íslend­inga enda ekki bara góð söng­kona heldur hefur hún frá­bæran per­sónu­leika. Heiða er stranda­maður í húð og hár,...
Friðrik Ómar flottur veislustjóri í brúðkaupi Margrétar Eir og Jökuls
Innlentbrúðkaup

Friðrik Ómar flottur veislu­stjóri í brúð­kaupi Mar­grétar Eir og Jökuls

Friðrik Ómar stjórn­aði veislu í dragi þegar Margrét Eir og Jökull gengu í hjóna­band Hin frá­bæra og eld­hressa söng­kon­a, Mar­grét Eir Hönnu­dótt­ir, gekk að eiga unn­usta sinn, Jök­ul Jörg­en­sen hár­skera í Frí­kirkj­unni í Hafnar­f­irði. Smekk­fullt var af þekktu lista­fólki sem var við­statt athöfn­ina og var mikið sungið í at­höfn­inni, eins og gefur að skilja. Tón­listar­fólkið Selma Björns­dótt­ir, Regína Ósk Óskars­dótt­ir,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Kynning

Kynning

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum

Kynning

Brakandi ferskt grænmeti á matardiskinn sama dag og það er uppskorið

Kynning

Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Kynning

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

Kynning

Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum

Kynning

Meiri litagleði að færast í baðherbergistískuna