„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ef eitthvað glitrar í búðarglugganum er ég mætt inn“

Hanna Rún Bazev Óla­dóttir lærði ung að meta glimmer og glamúr en hún hefur stundað dans og starfað sem dans­ari í tutt­ugu og fjögur ár. Við fengum að skyggn­ast inn í glæsi­legan fata­skáp Hönnur Rúnar

„Ef eitthvað glitrar í búðarglugganum er ég mætt inn“

Hanna Rún er gift  Nikita Bazev og saman eiga þau son­inn Vladimir Óla Bazev, 4 ára, en Hanna Rún var einmitt 4 ára þegar hún mætti á sína fyrstu dansæf­ingu.

„Dansinum fylgir mikið glimmer og glamúr, svo ég var mjög ung farin að elska allt sem glitr­aði og glans­aði. For­eldrar mínir eiga einnig skart­gripa­versl­un­ina Gull­smiðju Óla sem ég var mikið í þegar ég var lítil stelpa og er mikið í enn þá í dag. Ég ólst því upp í mjög fal­legu umhverfi og elska allt sem glitrar. Mig dreymir til að mynda um að eign­ast krist­als­sófa en ég er að vísu byrjuð að steina bekk með kristölum svo sú ósk er hægt og rólega að ræt­ast.“

Hanna Rún seg­ist sækja inn­blástur hvar sem hún er þá stund­ina þó að hún sé mest í því að skapa sitt eigið.

„Mér finnst gaman að skoða Pinter­est en ég bý líka mikið til sjálf. Mér finnst gaman að vera pínu­lítið öðru­vísi og þá kemur sér vel að búa til sitt eigið hvort sem það eru skór eða eitt­hvað fyrir heim­ilið. Ég fell langoft­ast fyrir öllu sem glitrar og ef eitt­hvað glitrar í búð­ar­glugg­anum fer ég inn. Það er ann­ars mis­jafnt hvað ég heill­ast af, það fer eftir skap­inu og getur flakkað frá því að vera svartur elegant þröngur rúllu­kraga­kjóll einn dag­inn yfir í rifnar ljósar galla­buxur.

Annars finnst mér mjög gott að ganga á hælum svo ég yrði alltaf að eiga hæla­skó líka.

Annars finnst mér lang­skemmti­leg­ast að kaupa peysur og eyrna­lokka, en auð­vitað er ekk­ert leið­in­legt heldur að kaupa skó, kjóla og töskur. Að mínu mati er stór kósí peysa skyldu­eign í alla fata­s­kápa, þær klikka ekki. Annars finnst mér mjög gott að ganga á hælum svo ég yrði alltaf að eiga hæla­skó líka. Ég á mér enga upp­á­halds búð en finnst alltaf gaman að kíkja í Zara. Ég finn mjög oft eitt­hvað fal­legt þar en ég er líka dug­leg að kíkja inn í alls­konar versl­anir og kaupi það sem heillar mig, sama hvað búðin heitir.“

Þegar talið berst að furðu­leg­ustu kaup­unum segir Hanna Rún þau hafa verið fjölda­mörg.

„Ég gæti eflaust skrifað margar blað­síður um furðu­leg­ustu kaupin því ég á það til að kaupa föt sem ég veit að ég mun aldrei nota en kaupi þau bara af því þau eru svo fal­leg. Svo á ég þau bara. Ég keypti mér einu sinni alveg hrika­lega ljótan pall­í­ettu­jakka í London, hann var svo ljótur að hann varð eig­in­lega flottur. Ég mun senni­lega aldrei nota hann en ég varð samt að eign­ast hann. Það sama á við um pall­í­ettunær­bux­urnar sem ég keypti í Kaup­manna­höfn, við skulum ekk­ert fara nánar út í þann hryll­ing. Svo keypti ég barna­bol handa sjálfri mér, hann var auð­vitað allt of lít­ill en hann var svo fal­legur að ég varð að eign­ast hann. Ég held það sé best að stoppa bara hér,“ segir Hanna Rún að lokum og hlær.

„Upp­á­halds­fylgi­hlut­ur­inn minn er þessi gull­hringur. Pabbi smíð­aði þennan 14 karata gull­hring með þremur demöntum en þeir tákna mig, mann­inn minn og son okkar. Pabbi bank­aði upp einn sunnu­dags­morg­un­inn með rósir, morg­un­mat og þennan hring og færði mér að gjöf. Ég hef ekki tekið hring­inn af mér síðan ég fékk hann. Þessi hringur er mjög tákn­rænn fyrir mig og mér þykir mjög vænt um hann.“
„Mér þykir mjög vænt um þessa swarovksi-krist­als­skó, því þetta eru með fyrstu skónum sem ég stein­aði. Ég hef síðan ekki töl­una hvað ég hef steinað marga skó í dag en þessa stein­aði ég með Eygló Mjöll, litlu systur minni, við eld­hús­borðið í Danmörku þegar ég bjó þar 17 ára gömul. Við sátum í marga klukku­tíma að steina skóna.“
„Ég elska svarta pels­inn minn, ég nota hann mjög mikið en fjöl­skylda manns­ins mína gaf mér hann í nýárs­gjöf þegar ég gekk með son okkar.“

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dans

Donald Trump steig „dans“ með Village People – MYNDBAND
Heimurdans

Donald Trump steig „dans“ með Village People – MYNDBAND

Donald Trump, nýr for­seti Banda­ríkj­anna, sýndi sína bestu danstakta á sig­ur­há­tíð sinni í gær, á meðan Village People tók slag­ara sinn Y.M.C.A. Eftir að Trump hélt ræðu um allt frá TikTok til inn­flytj­enda­mál og fleira, bauð hann diskó­stuð­bolt­unum úr Village People á sviðið. Á meðan strák­arnir tóku Y.M.C.A. tók Trump sinn fræga „Trump dans“ á miðju svið­inu þó eflaust séu...
Bjarni steig trylltan dans með frumbyggjum Malaví: „Ég leyfi mér að láta afraksturinn fylgja“
Innlentdans

Bjarni steig trylltan dans með frum­byggjum Malaví: „Ég leyfi mér að láta afrakst­ur­inn fylgja“

For­sæt­is­ráð­herr­ann Bjarni Bene­dikts­son er kom­inn heim eftir opin­bera heim­sókn til Afr­íku­lands­ins Malaví. Á loka­kvöld­inu steig hann dans með frum­byggjum af Ngoni-þjóð­flokknum. Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra Íslands sótti Malaví heim á dög­unum, í til­efni 35 ára afmælis þró­un­ar­sam­vinnu ríkj­anna. Þar flutti hann meðal ann­ars opn­un­ar­ræðu á mann­fjölda­ráð­stefnu Afríku í Lilongwe, höf­uð­borg Malaví, heim­sótti fæð­ing­ar­deild í hér­aðs­sjúkra­hús­inu í Mangochi hér­aði og fleira. Á...
Edda Björgvins vill stofna „danspartý-gengi“: „Og skoppa dansandi heim í ENDORFÍN-vímu!“
Menning

Edda Björg­vins vill stofna „danspartý-gengi“: „Og skoppa dans­andi heim í ENDORFÍN-vímu!“

Edda Björg­vins­dóttir vill stofna „danspartý-gengi“. Hin ást­sæla leik­kona Edda Björg­vins­dóttir skrif­aði stutta en bráð­skemmti­lega færslu á Facebook í dag. Þar seg­ist hún hafa verið boðið í danspartý í gær og skemmt sér ólýs­an­lega vel. Edda spyr svo Facebook-vini sína hvort ekki þurfi að stofna „danspartý-gengi“ en að hún myndi velja diskó­tek­ara sem spil­aði lög frá sjötta og sjö­unda ára­tugnum. Hér...
Britney Spears með óvenjulegan dans: „Ok, ég var svolítið brjáluð þennan dag“
Menning

Britney Spears með óvenju­legan dans: „Ok, ég var svo­lítið brjáluð þennan dag“

Poppí­konið Britney Spears birti mynd­skeið á Instagram þar sem hún dansar ein­hvers konar reiði­dans þar sem hún meðal ann­ars gefur milli­fing­ur­inn. Fylgj­endur Britney Spears á Instagram þekkja dans­mynd­bönd hennar en ansi reglu­lega birtir hún áþekk mynd­bönd þar sem hún dansar og snýr sér í hring eftir hring en í gær birti hún öðru­vísi dans, reiði­dans. „Ok, ég var svo­lítið brjáluð...
Hanna Rún og Nikita náðu frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu: „RISA knús til ykkar allra!!!“
Innlentdans

Hanna Rún og Nikita náðu frá­bærum árangri á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu: „RISA knús til ykkar allra!!!“

Hanna Rún Bazev Óla­dóttir og eig­in­maður hennar Nikita kepptu í gær á Evr­ópu­meist­ara­móti í dansi og náðu frá­bærum árangri. Hanna Rún og Nikita end­uðu í 4. sæti á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í dansi í flokki pro­fessional í gær. Hanna birti fal­lega ljós­mynd af þeim hjónum á Instagram eftir keppn­ina og eft­ir­far­andi texta: „4.sæti á Evr­ópu­meist­ara­móti í flokki pro­fessional í dag!!!👏🏻🇮🇸 Takk æðis­lega...
Innlentdans

Munu ekki klæða sig eftir veðri

„Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, en við lista­menn­irnir munum samt alls ekki gera það,“ segir fjöl­lista­konan Margrét Erla Maack um við­burð­inn Port­konu­ka­bar­ett sem hald­inn verður í port­inu fyrir aftan Vín­stúk­una Tíu Sopa á morgun, föstu­dag. Spurð nánar út í við­burð­inn lofar Margrét góðri skemmtun og fjöl­breyttum atriðum. Þau sem koma fram ásamt Margréti eru þau Nadia...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu