„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eintóm sýra

Orðið sýra er í hugum margra eitt­hvað sem er hættu­legt og ætti alls ekki að vera borið á húð­ina. Það er mesti mis­skiln­ingur því sýrur geta verið gagn­legar í húð­um­hirð­unni, en hér eru nokkrar góðar sem hreinsa, næra og fleira.

Eintóm sýra

Glycolic-sýra

Margir þekkja glycolic-sýru sem ávaxta­sýru, enda er hún mest­megnis unnin úr ávöxtum og er ein af svoköll­uðu alpha hydroxy-sýrum. Um er að ræða vatns­leys­an­lega sýru sem vinnur á yfir­borði húðar við að leysa upp dauðar húð­frumur. Hún gagn­ast vel í bar­átt­unni gegn öldrun því hún dregur úr fínum línum, eykur þéttni og ljóma og gerir áferð húðar fal­legri. Glycolic-sýra hentar sér­stak­lega þeim sem eru með þurra húð því hún fjar­lægir sjá­an­leg ummerki þurrks­ins, svo sem stökka og dauða húð, án þess þó að þurrka húð­ina enn frekar. Þvert á móti hjálpar hún húð­inni að binda betur raka með því að fjar­lægja dauðu húð­frum­urnar af yfir­borð­inu.

Salisylic-sýra

Fleiri sýrur hafa djúp­hreins­andi áhrif, þar á meðal salisylic-sýra sem er einnig þekkt sem BHA, eða beta hydroxy acid. Það sem hún hefur fram yfir glycolic-sýru er að hún er fitu­leys­an­leg og vinnur því dýpra en bara á yfir­borð­inu. Hún hentar vel þeim sem eru með feita húð eða bólu­húð því hún kemst í gegnum olí­una og hreinsar dauðar húð­frumur eða stíflur sem sitja fastar í svita­hol­unum. Þannig dregur hún úr myndun fíla­pensla og svo hefur hún einnig bólgu­eyð­andi og bakt­er­íu­drep­andi eig­in­leika sem nýt­ast vel ef bólur eru til staðar.

Retinoic-sýra

Til eru ýmsar afleiður A-vítamíns sem allar gera nokkurn veg­inn það sama og ein sú öfl­ug­asta er retinoic-sýra. Hana er þó ekki hægt að fá nema í lyf­seð­il­skyldum húð­lyfjum. Retinól er önnur afleiða sem breyt­ist í retinoic-sýru þegar það er tekið upp í húð­inni. Það er algengt inni­halds­efni í snyrti­vörum sem eiga að sporna gegn öldrun húð­ar­innar því það er mjög áhrifa­ríkt andox­un­ar­efni og hvetur húð­ina til þess að end­ur­nýja sig hraðar og fram­leiða meira kollagen. Þannig eykur það þéttni húð­ar­innar og dregur úr hrukkum og öðrum öldr­un­ar­merkjum. Retinól getur líka gagn­ast þeim sem eiga í vand­ræðum með bólur eða óhreina húð því hrað­ari end­ur­nýjun dregur fyrr fram hreina og heil­brigða húð.

Hyaluronic-sýra

Ekki allar sýrur hafa eyð­andi áhrif, en hyaluronic-sýra er til dæmis ein raka­dræg­asta sam­eind nátt­úr­unnar og getur haldið allt að þús­und­faldri þyngd sinni af vatni. Þess vegna er hún nátt­úru­legur raka­gjafi og heldur húð­inni vel nærðri og þéttri. Magn hyaluronic-sýru í húð­inni minnkar með aldr­inum og þannig nær­ing­ar­upp­töku húð­ar­innar. Það er ein af ástæðum þess að við eld­umst, fáum hrukkur, elli­bletti og slappa húð. Vörur sem inni­halda hyaluronic-sýru geta því spornað gegn þess­ari þróun og einnig veitt yngri húð smá­skot af raka þegar hún þarf á því að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

förðun

Þetta er hyljarinn sem Pamela Anderson og hinar stjörnurnar elska
Menning

Þetta er hylj­ar­inn sem Pamela Anderson og hinar stjörn­u­rnar elska

Pamela Anderson tal­aði um förðun í nýlegum podcast þætti Dax Shepard’s Armchair Expert. Þar sagð­ist hún ekki nota förðun eins mikið og hún gerði en þegar hún málar sig segir hún mik­il­væg­asta skrefið vera góðan hylj­ara. Pamela sagði sína upp­á­halds vöru vera Ilia Skin Serum hylj­ar­ann en er hann með C-vítamíni. Hylj­ar­inn sem stjörn­u­rnar elska Formúlan er hönnuð til þess...
Leitin endalausa að rétta maskaranum – Þessir eru bestir
Menning

Leitin enda­lausa að rétta mask­ar­anum – Þessir eru bestir

Rit­stjórar tísku­tíma­rits­ins ELLE setti saman lista af möskurum sem þykja hvað bestir árið 2022. Úrval af möskurum er orðið gríð­ar­lega mikið og væri hægt að prófa sig áfram með nýja mar­skara mán­uðum saman. Mask­ar­arnir hafa allir til­gang, hvort sem það er að lengja augn­hárin, end­ur­byggja þau eftir augn­hára­leng­ingar eða ein­fald­lega þykkja. Hér að neðan er listi ELLE sem getur von­andi...
Förðunartrendin í sumar – Kinnalitur og glansandi varir
Menning

Förð­un­ar­trendin í sumar – Kinna­litur og glans­andi varir

Lífstíls­tíma­ritið Good Housekeeping fjall­aði nýverið um heit­ustu förð­un­ar­trendin í sumar en segja þau að allt muni snú­ast um nátt­úru­legt og ljóm­andi útlit. Tískugúrúar tíma­rits­ins ræddu við Nick Lujan, hjá Kevyn Aucoin Beauty, og fræga förð­un­ar­fræð­ing­inn Ariel Tejada sem fræddu les­endur um tísk­una í sumar en förð­unin þarf alls ekki að vera flókin eða taka langan tíma. Kinna­litur Kinna­lit­ur­inn er kom­inn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu