„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Að eiga vaxjakka er eins og að eiga gæludýr“

Margir þekkja Margréti Erlu Maack úr fjöl­miðla­heim­inum en und­an­farin þrjú ár hefur hún starfað sjálf­stætt sem skemmti­kraftur og sem dans­kenn­ari í Kram­hús­inu. Margrét gaf sér tíma til að leyfa okkur að gægj­ast inn í fata­skáp­inn sinn. Óhætt er að full­yrða að þar leyn­ist ýmsar ger­semar.

„Að eiga vaxjakka er eins og að eiga gæludýr“

Tíu ár eru liðin síðan Margrét hætti að ganga í galla­buxum og segir hún það vera bestu ákvörðun sem hún hafi tekið. „Ég var alltaf lítil í mér að finna ekki góð snið utan um rass­inn á mér og fékk alltaf illt í bakið af því að vera í galla­buxum. Ég er meira fyrir það að klæða mig frekar of fínt en kasjúal. Ég elska svart og ég nota mikið af fylgi­hlutum til að djassa upp það sem ég á fyrir. Efst á óska­list­anum eru alltaf nær­föt frá Lonely sem fást í Kven­fata­verslun Kormáks og Skjaldar.“

Ég elska svart og ég nota mikið af fylgi­hlutum til að djassa upp það sem ég á fyrir.

Þessa dag­ana er Margrét í átaki, mjög erf­iðu átaki, að eigin sögn. „Ég setti mér ára­móta­heit um að kaupa ekki föt á árinu 2019. Ég held að þetta muni breyta fata­kaupum hjá mér að eilífu. Ég má þó kaupa mér sokka, nær­föt, sokka­buxur og bún­inga. Á meðan ég er í þessu átaki fæ ég mik­inn inn­blástur úr kvik­myndum og eldri ljós­myndum og myndum.

Ég setti mér ára­móta­heit um að kaupa ekki föt á árinu 2019.

Núna skoða ég mest klass­ísk föt sem detta ekki úr tísku í næsta mán­uði og und­ir­strika hvað mér finnst fal­legt við sjálfa mig. Sú sem kenndi mér allra mest varð­andi ýmis konar stæl­ingar er Ragna Fossberg, frá þeim tíma þegar ég vann hjá RÚV og ég kann henni bestu þakkir fyrir.“

Aðspurð í hvaða búðum hún versli helst nefnir Margrét net­versl­un­ina pinupgirlclothing.com. „Verið þol­in­móð, það þarf að fara vel í gegnum alls konar grín­föt en svo eru þarna algjörar ger­semar inn á milli,“ segir hún.

„Mér finnst ótrú­lega leið­in­legt hversu margar búðir sem mig langar að kaupa mér föt í virð­ast ekki eiga neitt í minni stærð og versla við merki sem fram­leiða ein­fald­lega ekki föt í minni stærð. Eins og þær vilji ekki pen­ing­ana mína.“

Nýjustu kaupin í fataskápnum

„Three piece-kvenjakka­föt frá Walker Slater frá Kven­fata­verslun Kormáks og Skjaldar. Hlý, klæði­leg og hægt að stæla í allar áttir. Mjög ánægð með þessi síð­ustu kaup fyrir átak.“

Uppáhaldsflíkin

„Á síð­asta ári lét ég Svan­hvíti vin­konu mína gera fyrir mig ótrú­legan perlu­kjól fyrir burlesque-ið. Það er ákveðið skref þegar kona hættir að búa til bún­inga með lím­byssu og leitar til fag­fólks. Svanhvít Thea er ótrú­leg lista­kona sem skilur hvernig burlesque-bún­ingar þurfa að virka. Kjóllinn er ótrú­leg völ­und­ar­smíð insprí­er­aður af art deco og hreyf­ist ótrú­lega fal­lega. Ég kom fram í honum á gamlárs­kvöld á Slipper Room í New York og fólk tryllt­ist yfir honum. Tryllt­ist.“

Uppáhaldsfylgihluturinn

„Refa-keip sem ég keypti í Mauerpark í Berlín fyrir fimm árum. Passar við allt og svo er hann svona krútti­lega rang­eygður, þessi elska. Svo er ég með hring á hverjum degi sem mamma mín fékk í ferm­ing­ar­gjöf frá Auði bestu vin­konu sinni og það er risa­silf­ur­klumpur frá Jens.“

Flíkin með mesta tilfinningalega gildið

„Barbour-vaxjakk­inn. Að eiga vaxjakka er eins og að eiga gælu­dýr. Það verður að vaxa hann tvisvar á ári og þá eigum við jakk­inn fal­lega dúllu­stund saman. Hann verður fal­legri með hverju árinu og mér þykir ótrú­lega vænt um hann.“

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minn stíll

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu