„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rokkaraleg með nútímanlegu ívafi

Ester Ýr Borg Jóns­dóttir segir full­komna svarta kápu vera efst á hennar óska­lista en hún er sann­færð um að sú rétta bíði sín ein­hvers staðar þarna úti. Við fengum að skyggn­ast inn í fata­skáp Esterar Ýrar þar sem kenndi ýmissa grasa.

Rokkaraleg með nútímanlegu ívafi
„Hring­arnir mínir hafa til­finn­inga­leg­asta gildið sem og flestallt skartið mitt.“

Ester lýsir sjálfri sér sem dund­ara sem elskar að verja tíma með sjálfri sér og gera eitt­hvað skap­andi. „Mér finnst gaman að teikna og leika mér að taka myndir. Ég elska líka tón­list og finnst fátt skemmti­legra en að fara á góða tón­leika. Ég er dýra­vinur og líður sjaldn­ast betur en þegar það eru dýr í kringum mig. Þessa dag­ana er ég mikið í and­legum pæl­ingum, lærði nýverið reiki og stunda hug­leiðslu. Næst á dag­skrá verður að læra jóga.“

Aðspurð hvaðan Ester Ýr sæki inn­blástur nefnir hún fyrst Instagram. „Ég er með non bin­ary-fata­stíl svo ég skoða bæði flottar stelpur og stráka á Instagram og sæki inn­blástur frá þeim. Stíllinn minn er blanda af 70’s-90’s, svo­lítið rokk­ara­legt en með nútíma­legu ívafi en ég er mjög hrifin af versl­un­unum Zara og Mango. Mér finnst gaman að rölta milli second hand-versl­ana og finna ein­hverjar ger­semar þar.

„Það er mjög erfitt að velja einn eft­ir­læt­is­hlut en ætli ég verði ekki að segja vestin mín og hatta­safnið mitt.“

Ég elska að kaupa mér föt og vil helst fara í þau strax, einkum og sér í lagi elska ég frakka og kápur, helst ein­hverjar sem eru öðru­vísi. Ég var að rölta um Köben nýverið og rakst á eina skemmti­lega second hand-verslun þar sem ég fann sjúk­lega flotta 70’s-rúskinn­skápu sem ég varð alveg ást­fangin af en ég elska jafn­framt allt sem er köflótt eða rönd­ótt. Furðu­leg­ustu kaupin í fata­skápnum mínum eru hins vegar svo­lítið skemmti­legur fjólu­blár og svartur jakki sem ég fann í Gyllta kett­inum um dag­inn en hann er hann­aður í kjólfata­legu sniði.“

„Ég fann svo sjúk­lega flotta hvíta silki­skyrtu í Zara þegar ég var í Köben sem er með pífum að framan og síðan fann ég alveg eins svarta í Zara í Noregi þannig ég keypti hana líka.“

Þegar talið berst að skylduflík í alla fata­s­kápa vefst svarið ekki fyrir Ester Ýri. „Klárlega rúllu­kraga­bolur, þeir eru algjört „must“. Mér finnst hins vegar lang­leið­in­leg­ast að máta buxur, ég get nefni­lega vippað mér í flestar flíkur án þess að fara í mát­un­ar­klef­ann en þegar maður mátar buxur neyð­ist maður til að fara inn í klefa og þarf þar að auki að klæða sig úr skónum.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minn stíll

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu