„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Neyð konunnar gekk mér að hjarta

Neyð konunnar gekk mér að hjarta

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Fyrir nokkru var ég á leið heim frá sólarströnd í íslenskri flugvél. Skyndilega heyrðist rödd flugfreyjunnar í kallkerfinu og hún spurði hvort læknir væri um borð. Hjón gáfu sig fram og fljótlega var okkur öllum ljóst að í vélinni var kona haldin ofsahræðslu í alvarlegu kvíðakasti. Hún er greind með alzheimer á byrjunarstigi og var þarna ein á ferð og missti skyndilega allt veruleikaskyn og vissi ekki hvar hún var stödd.

Ég hafði verið í ferð með stórum hópi og við notið okkar til fulls í sól­inni. Um var að ræða fólk sem í mörg ár hafði starfað saman að skemmti­legu áhuga­máli og þessa ferð fórum við til að verð­launa okkur fyrir góðan árangur. Í flug­vél­inni var því mikið skrafað og skegg­rætt og þess vegna farið fram hjá okkur hvernig ótti kon­unnar magn­að­ist eftir því sem leið á flugið. Við vorum hins vegar öll strax til­búin að gera það sem við gátum til að hjálpa til.

Ég frétti síðar að konan hafði verið í fríi með vin­konum sínum á Spáni en hvers vegna þær sendu hana eina heim veit ég ekki. Hins vegar fann ég til djúprar sam­úðar með kon­unni því ég þekki sjúk­dóm­inn sem hún er haldin. Síðustu sex árin sem mað­ur­inn minn lifði missti hann smátt og smátt tökin á líf­inu. Hann var mik­ill athafna­maður, sjálf­stæður og félags­lyndur en sjúk­dóm­ur­inn rændi hann þessum eig­in­leikum.

Þessi tengsla­rof við raun­veru­leik­ann eru algeng á fyrstu stigum.

Undir það síð­asta þorði hann ekki út og fór helst ekki í mat­ar­boð til barn­anna okkar, svo óör­uggur var hann orð­inn. Margir halda að alzheimer-sjúk­lingar viti ekki og skynji ekki sjálfir hvernig komið er fyrir þeim en það er aðeins á loka­stigum sjúk­dóms­ins. Þessi tengsla­rof við raun­veru­leik­ann eru algeng á fyrstu stigum, fólk villist í göt­unni heima hjá sér, er statt úti í búð og veit skyndi­lega ekki hvar það er í heim­inum eða hvað að gera, og það heldur kannski á greiðu og hefur ekki hug­mynd um til hvers hún er notuð.

Missa tengsl við raunveruleikann

Ég vissi þess vegna vel hvað var að koma fyrir kon­una í flug­vél­inni og fann óskap­lega mikið til með henni. Lækn­arnir tveir gerðu sitt besta til að hlúa að henni en að lokum var ákveðið að snúa við og lenda í Dublin. Aftur köll­uðu flug­freyj­urnar eftir hjálp og nú spurðu þær hvort ein­hver um borð væri til­bú­inn að yfir­gefa flug­vél­ina og fylgja kon­unni á sjúkra­hús. Sá hinn sami myndi fá far sér að kostn­að­ar­lausu með flugi næsta dag. Ein úr hópnum mínum bauð sig fram, kona sem unnið hefur sjálf­boða­vinnu víða og sinnt um fólk sem á þarf að halda. Mér leið strax betur þegar ég sá hver hafði stigið fram því ég vissi að konan var í góðum höndum þar.

Þegar þær höfðu kvatt hélt flugið okkar áfram og við lentum í Keflavík, að vísu nokkuð seinna en áætlað hafði verið en ég gat ekki fundið annað en að allir far­þegar væru sáttir.

Þessi saga finnst mér bæði fal­leg og ljót. Viðbrögð starfs­fólks í flug­inu voru til mik­illar fyr­ir­myndar. Allir voru full­kom­lega fum­lausir og héldu ró sinni. Lækn­arnir tveir sýndu strax hversu miklir fag­menn þeir voru. Þetta voru hjón frá Kanada og annað þeirra með sér­grein í hjarta­sjúk­dómum en hitt bækl­un­ar­lækn­ingum. Þau voru ein­stak­lega hlý­leg og ljúf í fram­komu og gættu þess vel að fylgj­ast með lík­am­legu ástandi kon­unnar. Farþegar voru skiln­ings­ríkir og ég fann ekki óþol­in­mæði eða reiði hjá nokkrum manni. En ljót vegna þess að fólk sem haldið er jafn­grimmum og erf­iðum sjúk­dómi og alzheimer er á alls ekki að ferð­ast eitt.

Ég veit að ekki er auð­velt að hugsa um sjúk­ling og lík­lega er það ekki fyrir alla. Maðurinn minn var svo lán­samur að eiga að fjöl­skyldu þar sem ríkir virð­ing og vin­átta. Börnin okkar og aðrir ætt­ingjar sýndu okkur því mik­inn stuðn­ing. Vinir hans voru líka afskap­lega tryggir og góðir og fylktu sér um okkur þegar ljóst var að hann var veikur. Þetta létti okkur vissu­lega lífið og nota­legt að vita að ef á þurfti að halda var hjálpin nær­tæk. Þess vegna get ég ekki annað en velt fyrir mér hvernig mann­eskjur vin­konur kon­unnar í flug­vél­inu eru og hvers vegna hún var þarna ein á ferð.

Hver þarf óvini?

Sú spurn­ing læð­ist óneit­an­lega að mér að þær hafi verið orðnar þreyttar á að bera ábyrgð á henni og því ákveðið að senda hana heim. Engin þeirra sá hins vegar ástæðu til að fylgja henni. Líklega hafa þær ekki viljað eyði­leggja eigin skemmtun. Auðvitað er ég að dæma eitt­hvað sem ég hef ekki fulla vit­neskju um. Kannski lágu góðar ástæður að baki því að konan var ein á ferð. Ég hef velt því fyrir mér en veit ekki alveg hverjar þær ættu að vera. Dettur ekk­ert í hug sem mér finnst skýra þetta fylli­lega. Venju­lega þegar fólk fer saman út er það sam­ferða heim líka.

Sú spurn­ing læð­ist óneit­an­lega að mér að þær hafi verið orðnar þreyttar á að bera ábyrgð á henni.

Flestir kaupa viku-, hálfs­mán­aðar- eða þriggja vikna ferðir og eru allan tím­ann. Setn­ingin, Sá sem á slíka vini þarf ekki óvini, virð­ist eiga við hér. En eins og ég segi er ég hugs­an­lega mjög órétt­lát í garð þess­ara kvenna. Neyð kon­unnar í flug­vélin gekk mér hins vegar að hjarta og ég hef ekki getað gleymt þessu atviki.

Það ásækir mig enn og þess vegna lang­aði mig að koma þess­ari frá­sögn á fram­færi. Bæði til að þakka öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til að hjálpa og sýna kon­unni að hún væri ekki ein í heim­inum og starfs­fólk­inu sem stóð sig svo ein­stak­lega vel. Ég held líka að upp­lýs­ingar og fræðsla um alzheimer-sjúk­dóm­inn gæti nýst vel til að auka skiln­ing fólks á því sem komið getur fyrir. Þetta eru alvar­leg veik­indi og meðan sjúk­lingar með hann geta notið lífs­ins er æski­legt að þeim sé gert það kleift en ekki er hægt að ætl­ast til að það sýni sama sjálf­stæði og áður.

Daginn eftir kom svo vin­kona mín heim frá Dublin. Hún hafði verið með kon­unni á sjúkra­hús­inu í sól­ar­hring. Þar und­ir­gekkst hún ýmsar rann­sóknir og var að þeim loknum send heim. Allan þennan tíma fékk konan hvorki vott né þurrt og einn koll til að sitja á. Vinkona mín sat stóran hluta tím­ans frammi á gangi og gat fengið sér að borða úr sjálf­sala en sjúk­lingnum var fært eitt vatns­glas. Mikið hefur verið rætt og ritað um íslenskt heil­brigð­is­kerfi en ef marka má þessa sögu er víðar pottur brot­inn í þeim efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd
Fólk

Skiptir mestu máli að fá skap­andi hug­myndir og hrinda þeim í fram­kvæmd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri. Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún...
„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Fólk

„Lækn­ir­inn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjöru­tíu og fimm ára afmæl­is­dag­inn“

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda...
„Aðalmálið að njóta lífsins og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur“
Innlent

„Aðal­málið að njóta lífs­ins og vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur“

Hrafn Val­dís­ar­son missti móður sína á svip­legan hátt þegar hann var nítján ára gam­all. Þau mæðginin höfðu alla tíð verið náin og miklir vinir og áfallið var mikið. Móðir hans, Valdís Gunn­ars­dóttir, var um ára­bil ein vin­sælasta útvarps­kona lands­ins. Hún var þekkt fyrir að tala mikið um ást­ina og kær­leik­ann og var stundum kölluð róm­an­tís­kasta kona Íslands. „En mamma var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu