„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri. Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún seg­ist hafa ótal aðrar hug­myndir í poka­horn­inu sem munu verða að veru­leika á næstu árum.

„Ég er fædd og upp­alin í Vesturbæ Reykja­víkur,“ segir Erla spurð um bak­grunn sinn og upp­runa. „En flutt­ist svo austur á Nes­kaup­stað þegar ég var fimmtán ára. Pabbi er læknir og fékk stöðu á sjúkra­hús­inu þar og fjöl­skyldan flutti austur. Það var ákveðið sjokk fyrir fimmtán ára ung­ling­inn að flytja á Nes­kaup­stað úr borg­inni. En ég var mjög fljót að aðlag­ast og leið vel fyrir austan, var þar einn vetur en fór svo í Mennta­skól­ann á Akureyri og var þar á vet­urna en fyrir austan á sumrin. Þegar ég var nítján ára hitti ég síðan mann­inn sem er mað­ur­inn minn enn í dag fyrir austan, þannig að þetta var gæfu­spor í lífi mínu þegar upp var staðið.“

Eig­in­mað­ur­inn, Hálfdán Stein­þórs­son, er fæddur og upp­al­inn á Nes­kaup­stað og bjó nán­ast í næsta húsi við Erlu þegar þau kynnt­ust og ekki nóg með það heldur urðu bróðir Erlu og systir hans líka hjón.

„En við höfum alltaf öll verið mjög náin og ef ein­hvern í hópnum vantar nýra þá erum við í mjög góðum málum.“

„Þetta var ást við fyrstu sýn,“ full­yrðir Erla. „Við byrj­uðum strax að vera saman og sex mán­uðum seinna byrj­aði systir hans að vera með bróður mínum og þau eru líka hjón í dag. Þau systk­inin bjuggu hinum megin við göt­una og við sáum bók­staf­lega hvort annað út um eld­hús­glugg­ana heima hjá okkur, þannig að þetta var svo­lítið svona eins og í banda­rískri bíó­mynd. Í dag eigum við fjóra stráka og systk­ini okkar eiga þrjár stelpur á nán­ast alveg sama aldri, við áttum því von á börnum á sama tíma og fólki fannst þetta allt saman dálítið skrítið. En við höfum alltaf öll verið mjög náin og ef ein­hvern í hópnum vantar nýra þá erum við í mjög góðum málum,“ bætir hún við og skelli­hlær.

Erla Björns­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Erla var ekki gömul þegar fyrsti son­ur­inn fædd­ist og sama ár giftu þau Hálfdán sig. Bæði voru þá enn í námi, en hún segir það hafa hentað sér mjög vel að eign­ast dreng­ina sam­hliða nám­inu.

„Ég var tutt­ugu og eins árs þegar við giftum okkur og elsti strák­ur­inn fædd­ist, við vorum ekk­ert að hangsa við hlut­ina,“ segir hún bros­andi. „Svo komu þeir koll af kolli, strák­arnir og sá yngsti er sex ára í dag og sá elsti sextán ára. Tveir þeir elstu komu þegar ég var í BS-námi í sál­fræði og svo fórum við til Dan­merkur þar sem ég tók meist­ara­námið og þegar ég var að klára það kom sá þriðji. Sá yngsti kom svo þegar ég var í dokt­ors­nám­inu og ég var bara nýbúin að eign­ast hann þegar ég varði dokt­ors­rit­gerð­ina. Það hent­aði mér vel að vera í barn­eignum sam­hliða nám­inu og mér þótti gott að vera með lítil börn í námi þar sem ég gat stýrt tíma mínum nokkuð vel.“

„En það var alveg ynd­is­legt að vera þarna með börn og mikil róm­an­tík í því að búa í sveit þótt það hafi oft verið erfitt líka að vera svona langt í burtu frá öllu.“

Dvölin í Mexíkó breytti lífsviðhorfinu

Fjöl­skyldan bjó í Danmörku í tvö ár á meðan hjónin voru bæði í námi og Erla segir þá reynslu hafa verið mik­ils virði, þótt fljót­færnin hafi reyndar orðið til þess að árin urðu aðeins öðru­vísi en þau hefðu ímyndað sér að þau yrðu.

„Ég var í Háskól­anum í Árósum en við bjuggum í litlum bæ tölu­vert fyrir utan borg­ina,“ útskýrir hún. „Við getum bæði verið dálítið hvat­vís þannig að við fundum bara hús á net­inu sem okkur fannst fal­legt og gerðum leigu­samn­ing án þess að sjá það. Þegar við komum út komumst við svo að því að það var mjög afskekkt, engar lestar­ferðir þangað eða neitt. Þetta var hund­rað manna bær og mjög lítið um að vera þar og við vorum ekki beint í háskóla­ára­stuð­inu í Árósum þessi ár. En það var alveg ynd­is­legt að vera þarna með börn og mikil róm­an­tík í því að búa í sveit þótt það hafi oft verið erfitt líka að vera svona langt í burtu frá öllu. Við vorum dálítið ein­angruð þarna.“

Það er oft sagt að fólk fari að læra sál­fræði vegna þess að það eigi sjálft í ein­hverjum erf­ið­leikum and­lega, en Erla segir það alls ekki vera raun­ina í sínu til­felli.

„Ég var hins vegar mjög virkur ung­lingur og býst við að for­eldrar mínir hafi oft svitnað yfir mér,“ segir hún hlæj­andi. „Þau sendu mig sem skiptinema til Mexíkó þegar ég var sautján ára og það var held ég gæfu­sporið mitt, því ég var svo­lít­ill vill­ingur áður en ég fór þangað. Aldrei samt þung­lynd eða kvíðin eða neitt þannig, ég held það hafi bara verið for­vitnin sem rak mig áfram og áhug­inn á fólki. Í Mexíkó var ég í bæ inni í miðju landi, í svona þriggja tíma akst­ursleið frá Mexík­ó­borg, og bjó á afskap­lega kaþ­ólsku heim­ili svo þetta voru svaka­leg við­brigði. Þetta var allt annar heimur, engin þvotta­vél á heim­il­inu, allt þvegið á þvotta­brettum úti í garði, og þetta var svipað því að hafa verið send langt aftur í tím­ann. Samt ótrú­lega skemmti­legt, æðis­leg menn­ing og þessi dvöl kenndi mér mjög mikið. Kannski fyrst og fremst að kunna að meta það sem ég hafði hérna heima. For­eldrar mínir hafa oft sagt að þau hafi aldrei fengið jafn­fal­leg bréf frá mér og þegar ég var í Mexíkó. Ég var mikið að segja þeim hvað þau væru frá­bær og hvað allt væri æðis­legt á Íslandi, ég þurfti fjar­lægð­ina til að sjá það. Auðvitað var þetta líka að mörgu leyti erfitt þótt þetta hafi verið æðis­legt og skemmti­legt og eitt­hvað sem maður býr alltaf að. Að hafa eign­ast góða vini, lært spænsku og eiga allar þessar skemmti­legu minn­ingar.“

Erla Björns­dóttir Mynd / Hallur Karlsson
„Ég er svo for­vitin og mig lang­aði alltaf að vinna með fólk. Ætlaði reyndar í lækn­is­fræði upp­haf­lega og var þá helst að hugsa um geð­lækn­ingar, en þegar ég fór í Háskól­ann og fór að skoða námið sem var í boði sá ég strax að sál­fræðin var eitt­hvað sem heill­aði mig mikið.“

Áhugi á fólki og mannlegri hegðun

Spurð hvers vegna sál­fræðin hafi orðið fyrir val­inu er Erla snögg til svars.

„Ég hef alltaf haft mjög mik­inn áhuga á fólki og mann­legri hegðun,“ útskýrir hún. „Ég er svo for­vitin og mig lang­aði alltaf að vinna með fólk. Ætlaði reyndar í lækn­is­fræði upp­haf­lega og var þá helst að hugsa um geð­lækn­ingar, en þegar ég fór í Háskól­ann að skoða námið sem var í boði sá ég strax að sál­fræðin var eitt­hvað sem heill­aði mig mikið. Ég fann líka strax að ég var algjör­lega á réttri línu þar, fannst þetta ótrú­lega spenn­andi nám. Ég var ekki búin að ákveða í hverju ég ætl­aði að sér­hæfa mig þegar ég byrj­aði, var mikið að velta fyrir mér afbrota­hegðun og tók til dæmis starfs­námið mitt í fang­elsi, en þegar ég fór að vinna loka­verk­efnið í meist­ara­nám­inu fór ég að skrifa um tengsl offitu og þung­lyndis og það var í raun og veru þar sem áhugi minn á svefni kvikn­aði. Þar átt­aði ég mig á því að þeir sem voru í ofþyngd og um leið þung­lyndir áttu það margir sam­eig­in­legt að vera með sjúk­dóm sem heitir kæfisvefn. Ég fór að skoða hvað í því fælist og komst þá að því að þetta fólk var að fá mjög slæman svefn og lít­inn djúpsvefn, þannig að fólkið er í raun alltaf illa hvílt og mér fannst því aug­ljóst að það hlyti að skýra það að ein­hverju leyti að þetta væri sá hópur sem liði hvað verst. Í fram­haldi af því fór ég að pæla meira í svefni og það opn­að­ist fyrir mér alveg nýr heimur. Á þessum tíma voru ekki margir sál­fræð­ingar að sér­hæfa sig á þessu sviði og ég sá að þarna lágu mikil tæki­færi. Ég ætl­aði alltaf í dokt­ors­nám í ein­hverju í tengslum við afbrot en þarna sner­ist vink­ill­inn við og ég ákvað að sér­hæfa mig á þessu sviði.“

Erla tók dokt­ors­prófið við Lækna­deild Háskóla Íslands í sam­starfi við Háskól­ann í Penn­syl­vaniu, þannig að hún þurfti oft að fara þangað til styttri dvalar á meðan hún var í nám­inu.

„Ég tók mitt dokt­ors­próf í líf- og lækna­vís­indum,“ og rann­sak­aði þar tengsl svefn­leysis, kæfisvefns og and­legrar heilsu upp­lýsir Erla. „Þetta var sam­starfs­verk­efni háskól­anna tveggja og Land­spít­al­ans svo ég var mest­megnis hérna heima og útskrif­að­ist úr Lækna­deild­inni hér.“

„Svefn­vanda­mál eru svo svaka­lega algeng. Og það er mjög skert aðgengi að þjón­ustu fyrir þann hóp sem glímir við svefn­leysi. Mjög fáir sál­fræð­ingar eru með þessa sér­hæf­ingu og fólk leitar því gjarnan beint í svefn­lyf til að reyna að ráða bót á vand­anum.“

Erla Björns­dóttir
Mynd / Hallur Karlsson

Vildi auka aðgengi að meðferð við svefnvandamálum

Á meðan Erla var í dokt­ors­nám­inu stofn­aði hún ásamt fleirum fyr­ir­tækið Betri svefn og hún segir ástæð­una fyrir stofnun þess fyrst og fremst hafa verið að eftir því sem hún lærði meira hafi hún séð betur hversu mikil þörf var fyrir að hjálpa fólki með svefn­vanda­mál.

„Svefn­vanda­mál eru svo svaka­lega algeng,“ segir hún. „Og það er mjög skert aðgengi að þjón­ustu fyrir þann hóp sem glímir við svefn­leysi. Mjög fáir sál­fræð­ingar eru með þessa sér­hæf­ingu og fólk leitar því gjarnan beint í svefn­lyf til að reyna að ráða bót á vand­anum. Við höfðum gengið tölu­vert lengi með þessa hug­mynd í mag­anum og sendum hana svo inn í Gul­leggið, sem er frum­kvöðla­keppni, og komumst strax inn í úrslita­hóp­inn þar og þá fóru hjólin að snú­ast. Upp­haf­lega voru það ég og mað­ur­inn minn sem stóðum að þess­ari hug­mynd, hann er með menntun í við­skipta­fræði og lög­fræði og kemur að þessu alveg úr hinni átt­inni, en okkur finnst fátt skemmti­legra en að kasta á milli okkar hug­myndum og skapa eitt­hvað saman. Þegar hug­myndin var að mót­ast kynnt­ist ég tveimur ungum læknum sem ég viðr­aði þessa hug­mynd við. Þeir höfðu líka bak­grunn í for­ritun og við fjögur smullum saman sem teymi og stofn­uðum fyr­ir­tækið. Það end­aði með því að við unnum útflutn­ings­verð­launin og fórum í sam­starf við Íslands­stofu í því sam­hengi. Í fram­hald­inu opn­uðum við líka í Noregi en það ævin­týri gekk reyndar ekki upp, þannig að við erum ekki í Noregi í dag. Við erum hins vegar í Bret­landi og erum að fara að opna í Banda­ríkj­unum í sam­starfi við NOX health, sem er mjög spenn­andi.“

Hvað er það sem þið eruð að gera í Betri svefni? Hvaða þjón­ustu bjóðið þið upp á?

„Upp­haf­lega var hug­myndin að vera með hug­ræna atferl­is­með­ferð við svefn­leysi, sem er sú með­ferð sem Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin mælir með sem fyrsta inn­gripi,“ útskýrir Erla. „Aðgengi að slíkri með­ferð var skert þannig að við vildum bjóða upp á þessa með­ferð sem fjar­með­ferð. Við hönn­uðum kerfi með ákveðna gervi­greind sem fólk fer inn í og skráir svefn­venjur sínar á hverjum ein­asta degi og síðan les kerfið úr svefn­venj­unum og býr til leið­bein­ingar út frá hug­mynda­fræði hug­rænnar atferl­is­með­ferðar. Fólk getur þarna farið í sex vikna sál­fræði­með­ferð í gegnum netið án þess að hitta nokkurn tíma sál­fræð­ing. Þetta var sem sagt upp­haf­lega hug­myndin en síðan hefur þetta auð­vitað þró­ast með árunum og í dag erum við að gera miklu fleira en bara þetta. Við erum mikið með fræðslu fyrir fyr­ir­tæki, skóla og aðra hópa, erum að skima fyrir svefn­vanda innan fyr­ir­tækja og við erum að þróa svefn­vottun sem er ákveð­inn gæða­stimp­ill fyrir fyr­ir­tæki sem eru að huga að þessum málum af því að rann­sóknir sýna að svefn­leysi er mjög dýrt vanda­mál fyrir fyr­ir­æki. Við bjóðum einnig upp á ein­stak­lings­með­ferðir og hóp­með­ferðir við svefn­leysi og erum stöðugt að þróa okkur áfram á þessu sviði.“

Erla Björns­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Skrítið að ekkert sé fjallað um svefn í skólakerfinu

Erla segir þörf­ina á svefn­með­ferðum gríð­ar­lega mikla en það sé þó ekki mjög langt síðan að fólk fór almennt að átta sig á mik­il­vægi svefns fyrir heilsu og vellíðan.

„Ég finn núna síð­ustu árin að fólk er virki­lega að opna augun fyrir mik­il­vægi svefns,“ segir hún. „Mér fannst við svo­lítið vera að tala fyrir daufum eyrum til að byrja með en það hefur breyst. Þar var gjarnan lenskan að fólk stærði sig af því að sofa lítið, jafn­vel tengdi það dugn­aði og atorku, en þetta er sem betur fer að breyt­ast og við erum svo­lítið farin að átta okkur á því hvað svefn­inn er mik­il­vægur. Það tók veru­lega langan tíma og mörgum fannst mjög skrítið í upp­hafi að ég væri að vinna við svefn, en í dag finn ég allt annað við­horf. Það var alltaf fyrst og fremst talað um hreyf­ingu og matar­æði þegar talað var um heilsu­efl­ingu en nú er svefn­inn kom­inn þar inn líka og það er akkúrat það sem við sem störfum á þessu sviði höfum verið að benda á allan þennan tíma. Það er til dæmis stórfurðu­legt hversu lítið er fjallað um mik­il­vægi svefns í skóla­kerf­inu, þar er kennd heim­il­is­fræði og einnig íþróttir en við lærum lítið sem ekk­ert um þriðju grunn­stoð­ina sem er svefn­inn. Við verjum þriðj­ungi ævinnar í hann þannig að mér finnst sér­kenni­legt hvað hann hefur orðið útundan. Við sjáum það á rann­sóknum að börn og ung­lingar á Íslandi sofa of lítið og því er gríð­ar­leg þörf á því að fræða þau um þetta mál­efni. Það er stóra mark­miðið að miðla þekk­ingu til almenn­ings, það hefur alltaf verið mitt mottó sem vís­inda­manns. Stað­reyndin er sú að það tekur nið­ur­stöður vís­inda­rann­sókna oft mörg ár að ber­ast til almenn­ings og það finnst mér vera of langur tími. Mér finnst líka að við vís­inda­menn mættum almennt vera dug­legri að miðla þekk­ingu til almenn­ings en ekki bara að tala hvert við annað um hlut­ina þannig að ég tók strax þann pól í hæð­ina að reyna að miðla minni þekk­ingu og vís­indum áfram, segja helst ekki nei nei ef ég er beðin um að mæta í við­töl og svo fram­vegis. Ég skrif­aði bók um svefn, sem heitir ein­fald­lega Svefn og kom út hjá For­lag­inu 2017, sem ég byrj­aði á í dokt­ors­nám­inu og mark­miðið var að koma frá mér þekk­ingu minni á aðgengi­legu máli fyrir almenn­ing. Ég fann það bara þegar ég byrj­aði sjálf að viða að mér upp­lýs­ingum um svefn að það var mjög lítið til af íslensku efni um hann á manna­máli.“

Erla Björns­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Svefnlaus dögum saman á meðgöngu

Miðað við allt sem Erla kemst yfir að gera vaknar óhjá­kvæmi­lega sú spurn­ing hvort hún sjálf hafi ein­hvern tíma til að sofa.

„Já, já, já, ég sef,“ segir hún skelli­hlæj­andi. „Ég reyni að passa upp á að setja svefn­inn í for­gang, maður verður alveg ómögu­legur ef maður sefur ekki. Ég hef samt auð­vitað upp­lifað and­vökunætur eins og aðrir og gengið í gegnum þannig tíma­bil, sér­stak­lega á með­göngum. Ég lenti í því með alla strák­ana mína að ganga með þá í fjöru­tíu og tvær vikur og þurfa að fara í gang­setn­ingu. Það hefur virkað þannig að eftir fjöru­tíu vikna með­göngu hætti ég bara að sofa og sef ekki dögum saman þannig að það hefur verið mjög erf­iður tími og ég hef jafn­vel verið lögð inn á sjúkra­hús og verið gefin lyf til þess að sofa á þessum tíma­bilum. Ég þekki það því mjög vel að vera svona svaka­lega svefn­laus og skrif­aði meðal ann­ars blogg um þetta þegar ég var ólétt að yngsta syn­inum. Ég fékk mikil við­brögð frá konum sem voru að upp­lifa það sama, þetta er greini­lega horm­óna­tengt og kemur lík­lega fram í mínu til­viki þegar lík­am­inn er til­bú­inn að fæða barnið. Í kjöl­farið hef ég stundum fengið til mín konur á stof­una sem hafa upp­lifað það sama og auð­vitað verður fólk ótta­slegið og líður illa þegar það missir svefn marga daga í röð, eins og ég þekki á eigin skinni eftir þessa reynslu.“

Talandi um við­brögð frá konum, er ein­hver munur á svefn­vanda­málum milli kynja? Er algeng­ara að konur sofi illa eða lítið en karlar?

„Já, það er það nefni­lega,“ segir Erla. „Til dæmis benda rann­sóknir til að konur þurfi að með­al­tali örlítið lengri svefn en karlar. Við göngum í gegnum mörg krefj­andi tíma­bil sem reyna á svefn­inn. Tíða­hring­ur­inn er eitt, það finna margar konur fyrir svefnerf­ið­leikum í kringum tíðir, svo eru það tíða­hvörfin, barn­eign­irnar, brjósta­gjöfin, allar þessar horm­óna­breyt­ingar sem tengj­ast þeim þáttum og hafa áhrif á svefn­inn hjá okkur. Rann­sóknir benda til þess að svefn­leysi sé algeng­ara meðal kvenna, þótt það sé að sjálf­sögðu algengt meðal karla líka. Ástæðan gæti verið horm­ónar, aukin streita eða það að við séum kannski stundum meira í því að ofhugsa hlut­ina. Erum lagstar á kodd­ann og farnar að skipu­leggja barna­af­mæli sem á að vera eftir tvær vikur og svo fram­vegis. Ég er einmitt að skrifa bók núna um konur og svefn og mig langar að fara meira inn á þetta svið því ég held að það sé mjög margt sem við eigum eftir að rann­saka og skoða betur varð­andi konur og svefn.“

Erla Björns­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Seldi vistfólkinu á Grund ljóð

Bókin um svefn­vanda­mál kvenna er ekki eina bókin sem Erla er með í far­vatn­inu, nýlega skrif­aði hún undir samn­ing við bóka­út­gáf­una Sölku um útgáfu á barna­bók um svefn sem kemur út í haust. Er hún að skrifa margar bækur í einu?

„Konur og svefn er bók sem kemur ekki út fyrr en eftir mörg ár, það er mikil vinna að skrifa hana,“ segir Erla. „Barna­bókin er skemmti­legt ævin­týri með fræðsluí­vafi sem ég samdi í fram­haldi af sögu sem við hjónin sögðum yngsta syni okkar um svefn­fiðr­ildi. Hann var mjög áhuga­samur og spurði mikið út í þetta og þá kvikn­aði hug­myndin að gefa þetta út. Það er svo mik­il­vægt að miðla þekk­ingu okkar til barn­anna og þau eru nátt­úr­lega eins og svampar sem taka svo ótrú­lega vel við.“

Spurð hvort skrift­irnar séu eitt­hvað sem hafi blundað í henni lengi segir Erla að hún hafi verið sískrif­andi eig­in­lega síðan hún man eftir sér.

„Mér finnst mjög gaman að skrifa,“ segir hún. „Bæði að miðla þekk­ing­unni en líka að skapa og skilja eitt­hvað eftir mig, það er eitt­hvað sem ég hef ótrú­lega gaman af að gera. Ég hef gefið út dag­bækur sem miða að mark­miða­setn­ingu og jákvæðri sál­fræði og spil sem fær fólk til að líta inn á við og hugsa út fyrir kass­ann. Dag­bæk­urnar og spilið vinn ég með Þóru Hrund Guð­brands­dóttur vin­konu minni undir merkjum Munum útgáfu. Mér finnst fátt skemmti­legra en að fá hug­myndir, hrinda þeim í fram­kvæmd og sjá afrakst­ur­inn. Bækurnar verða alltaf þarna og mér finnst það góð til­finn­ing. Ég var dug­leg að skrifa sem barn og það eru til heilu ljóða­bæk­urnar sem ég samdi á þeim árum, ég meira að segja skrif­aði ljóð og seldi gamla fólk­inu á Grund þau. Ég skrif­aði líka skáld­sögu sem krakki og var með upp­lestur einu sinni í viku á tún­inu á Grund, þannig að þetta byrj­aði mjög snemma og for­eldrar mínir eiga ágætis ljóða­safn eftir mig.“

Ertu enn að skrifa ein­hvern skáld­skap, eða eru vís­indin alveg búin að taka yfir?

„Já, vís­indin eru að mestu búin að taka skrift­irnar yfir,“ við­ur­kennir Erla. „En skáld­skap­ur­inn er samt aldrei langt undan. Barna­bókin er til dæmis skáld­skapur sem mér fannst ótrú­lega skemmti­legt að skrifa og ég held ég eigi eftir að gera meira af því í fram­tíð­inni.“

Erla Björns­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Stærsti svefntengdi viðburður Íslandssögunnar

Talandi um fram­tíð­ina, hvað er fram undan hjá Erlu á næst­unni?

„Við erum að fara að halda stóra ráð­stefnu um svefn í Hörpu núna í októ­ber. Erum að fá Matthew Walker, sem skrif­aði Why We Sleep, til lands­ins. Sú bók hefur breytt heim­inum þegar kemur að svefni. Hann náði augum og eyrum almenn­ings og hann er líka að ná til allra kyn­slóða sem mér finnst mjög flott, hann er að ná unga fólk­inu líka. Walker er orð­inn mjög eft­ir­sóttur fyr­ir­les­ari í kjöl­far bók­ar­innar og við höfum verið lengi að vinna að því að fá hann til lands­ins. Það er loks­ins að ger­ast og við erum svo heppin að hafa dag­sett ráð­stefn­una í októ­ber þannig að COVID-ástandið ætti ekki að breyta neinu um það. Þessi ráð­stefna er fyrir almenn­ing og fyr­ir­tækin í land­inu og verður svaka við­burður. Auk erindis Walkers mun ég frum­flytja erindið mitt um konur og svefn og er á fullu í þeim rann­sóknum núna. Svo verða þarna fleiri frá­bærir fyr­ir­les­arar, Erna Sif Arn­ar­dóttir og Erlingur Sigurður Jóhanns­son og ég hlakka alveg ótrú­lega til að halda þennan við­burð, sem ég held ég geti full­yrt að sé sá stærsti sem hald­inn hefur verið á Íslandi varð­andi svefn fyrir almenn­ing.“

Það er aug­ljóst að það er eng­inn skortur á verk­efnum hjá Erlu, en hvert er lang­tíma­mark­miðið, hvert stefnir hún í fram­tíð­inni?

„Ég er með margar hug­myndir í mag­anum og aðal­mark­mið mitt er að halda áfram að skapa,“ segir hún ákveðin. „Við Þóra Hrund erum að dreifa spil­inu okkar, Út fyrir kass­ann, í búðir þessa dag­ana, við höldum áfram að gefa út og erum með fleiri nýjar vörur á teikni­borð­inu og ég er einnig með hug­myndir að fleiri bókum og öðrum spenn­andi verk­efnum. Fyrst og fremst snýst þetta allt saman þó um að hafa gaman af því sem maður er að gera, vinnan mín er þannig að mér finnst ég aldrei vera að vinna því mér finnst hún oft­ast svo skemmti­leg, þá er maður á réttum stað. Svo ætla ég að njóta lífs­ins með fjöl­skyld­unni, það er auð­vitað það sem lífið snýst um fyrst og fremst.“

Erla Björns­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Förðun: Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Fólk

„Lækn­ir­inn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjöru­tíu og fimm ára afmæl­is­dag­inn“

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda...
„Aðalmálið að njóta lífsins og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur“
Innlent

„Aðal­málið að njóta lífs­ins og vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur“

Hrafn Val­dís­ar­son missti móður sína á svip­legan hátt þegar hann var nítján ára gam­all. Þau mæðginin höfðu alla tíð verið náin og miklir vinir og áfallið var mikið. Móðir hans, Valdís Gunn­ars­dóttir, var um ára­bil ein vin­sælasta útvarps­kona lands­ins. Hún var þekkt fyrir að tala mikið um ást­ina og kær­leik­ann og var stundum kölluð róm­an­tís­kasta kona Íslands. „En mamma var...
Áfengið var búið að taka allt frá okkur
Fólk

Áfengið var búið að taka allt frá okkur

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, hefur lengi barist fyrir því að börn alkó­hólista fái sál­fræði­þjón­ustu á vegum borg­ar­innar, en sú til­laga hefur ekki hlotið hljóm­grunn. Kolbrúnu er þetta hjart­ans mál enda þekkir hún sjálf afleið­ingar þess að alast upp við alkó­hól­isma á sjálfs­mynd og sjálfs­mat barna. Hún seg­ist hafa verið komin á full­orð­insár þegar hún loks fór að trúa því...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu