„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hlustaði ekki á viðvaranirnar

Hlustaði ekki á viðvaranirnar
Andleg heilsa er gríð­ar­lega mik­il­væg og hentar mörgum að fá sál­fræði­að­stoð gegnum netið

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Fyrir fjöldamörgum árum féll ég fyrir afar sjarmerandi manni og lét sem vind um eyru þjóta viðvaranir vina minna sem sögðu hann siðblindan lygara.

Ég er ósköp venju­leg kona sem vill öllum vel og læt mig varða ef öðrum líður illa eða þurfa hjálp. Svo lenti ég sjálf í algjöru rugli sem kom öllum á óvart.

Ég var ein með þriggja ára gamlan son og var að ljúka háskóla­námi þegar ég kynnt­ist Jóni. Á þeim tíma, 1984, var ég hrifin af strák á mínum aldri og leit ekki við Jóni sem var tíu árum eldri en ég. Hann lét mig þó ekki í friði, tal­aði um að ég væri svo fal­leg og góð, sendi mér enda­laust blóm og ilm­vötn og var svo sjar­mer­andi að á end­anum tókst honum að bræða mig.

Þegar sam­band okkar var orðið opin­bert fékk ég nokkrar við­var­anir um að Jón væri sið­blindur glæpa­maður sem svif­ist einskis. Hann væri bæði svik­ari og lyg­ari. Mér fannst leið­in­legt að heyra þetta og lagði engan trúnað á þessi orð. Jón var búinn að heilla for­eldra mína og bestu vin­ina á þessum tíma og ég var yfir mig ást­fangin. Ég man að hann sat eina kvöld­stund með pabba þar sem hann lýsti veru sinni í MA og fyrsta árinu sínu í lækn­is­fræði. Síðar kom í ljós að þetta var meira og minna til­bún­ingur. Jón var alltaf hrókur alls fagn­aðar og heill­aði fólk með alls konar reynslu­sögum og gull­hömrum.

Mér fannst ég vera á góðum stað í líf­inu og það tók mig langan tíma að átta mig á því hvaða mann Jón hafði að geyma. Eftir tíu ára hjóna­band hafði ég þó upp­lifað margt erfitt en þá áttum við tvö börn og ég vildi halda fjöl­skyld­unni saman. Jón átti þrjú börn fyrir. Hann hafði átt fjöl­skyldu sem hann hafði slitið öllu sam­bandi við vegna þess hvað hún var ómögu­leg í alla staði. Líf hans, að hans sögn, hafði verið þrauta­ganga og hann var sá bjarg­vættur sem hélt hlut­unum í lagi.

Það sem heill­aði mig lengi vel við Jón var mælska hans, lof­orð um trúnað og bestu vin­áttu og ham­ingju. Við áttum alltaf að treysta hvort öðru og takast saman á við þær hindr­anir sem á vegi okkar kynnu að verða.

Við giftum okkur árið 1988, fjórum árum eftir að við kynnt­umst. Í brúð­kaup­inu hélt hann ræðu og lof­aði mér trún­aði og tryggð. Alls urðu árin okkar saman tutt­ugu og sjö. Allan þann tíma átti hann erfitt með að segja satt og rétt frá.

Lækningaferðir til Taílands

Jón sagði mér að hann væri höfuð ætt­ar­innar en fjöl­skylda hans sam­an­stæði af grimmu og óvægnu fólki sem hann vildi sem minnst sam­band hafa við. Ég trúði honum og því voru sam­skiptin við fólkið hans nán­ast engin til að byrja með en með tím­anum breytt­ist það, sem betur fer.

Hann var prins­inn minn sem redd­aði öllu fyrir alla og ég hlust­aði ekki á við­vör­un­ar­bjöllur þrátt fyrir að hafa enda­laust orðið vitni að því að Jón minn segði sömu sög­una mis­mun­andi mörgum sinnum í ólíkum hópum. Minnið var ekki betra en það að sagan breytt­ist alltaf eitt­hvað og stundum sner­ist hún við. Í byrjun reyndi ég að leið­rétta hann en þá sagði hann: „Er ég að segja sög­una eða þú?“ Hann hlust­aði ekki á rök mín og nennti í raun aldrei að rök­ræða hlut­ina. Gestir okkar reyndu líka að leið­rétta hann en án árang­urs. Að lokum gáfust þeir upp og litu hver á annan því mann­inum var ekki við­bjarg­andi. En ég sat föst í aðstæð­unum og leið sífellt verr með það.

Við bjuggum í sætu ein­býl­is­húsi í Graf­ar­vogi sem var örugg­asti staður minn í líf­inu. Hlutverk mitt var að hugsa vel um það og fjöl­skyld­una sem ég elskaði og svo vann ég að auki fulla vinnu sem kenn­ari. Þarna bjuggum við í tutt­ugu og fimm ár.

Árið 2002 fór Jón að sýna á sér sífellt verri hliðar. Hann beitti mig and­legu og lík­am­legu ofbeldi sem næstu árin bjuggu til sár á sál­inni.

Ég fékk aldrei að sjá banka­reikn­ing­inn hans öll okkar ár og aldrei við­ur­kenndi hann mis­tök eða gat rætt um hlut­ina. Ég sat með­virk undir því á meðan hann bull­aði í fólki með ein­hverjum rang­hug­myndum. Ef ég reyndi að ræða málin við hann þegar við komum heim sagði hann: „Hættu þessu bulli, kerl­ing,“ og fór út.

Hann fór að vera meira að heiman en áður, fór í vinn­una á öllum tímum og mikið til útlanda … í lækn­inga­skyni. Hann hafði verið með asma og fékk stundum lungna­bólgu en einn dag­inn tjáði hann mér að hann væri kom­inn með lungna­krabba­mein. Þegar ég spurði um nafn lækn­is­ins hans gat hann ómögu­lega munað það. Hann fór tvisvar til þrisvar á ári til Taílands í lækn­inga­skyni í um 15 ár og auð­vitað bauðst mér ekki að fara með.

Einn dag­inn lagð­ist Jón inn á sjúkra­hús með lungna­bólgu. Eftir þá legu tjáði hann mér að krabb­inn hefði dreift sér og hann yrði að fara aftur til Taílands til að láta hreinsa lungun. Ég hafði upp á lækn­inum sem með­höndl­aði hann og spurði út í veik­indi hans. Lækn­ir­inn sagði hissa: „Hann var með lungna­bólgu, hann er ekki með krabba­mein.“

Ég var enn með­virk á þessum tíma en búin að fá nóg af lyg­unum sem ég hafði lifað í síð­ustu tutt­ugu og fimm árin. Börnin sáu í gegnum hann og lygar hans. Hann kveikti stundum neista í brjósti þeirra til að fram­kvæma eitt­hvað skemmti­legt en svo dofn­aði sá draumur og hvarf vegna þess að hann stóð yfir­leitt aldrei við það sem hann lof­aði.

Þurfti að finna sjálfan sig

Ég held að Jón hafi haldið fram hjá mér meira og minna frá 1995. Ýmsar vís­bend­ingar úr umhverf­inu bentu til þess og ég fékk líka við­var­anir. Dóttir okkar sagði mér að hún fyndi stundum ilm­vatns­lykt af honum þegar hann kæmi heim frá því að sýna íbúðir á kvöldin. En það þýddi ekki að segja neitt við hann. Hann laug bara.

Að ósk Jóns var ég skráð fyrir hús­inu. Hann var mik­ill brask­ari og rak nokkur fyr­ir­tæki sem gengu mis­vel. Hann setti okkur fjöl­skyldu­með­lim­ina sem stjórn­ar­menn og ábyrgð­ar­menn í þessum fyr­ir­tækjum. Ég átt­aði mig ekki á hætt­unni af því.

Eitt kvöldið kom hann seint heim, blíð­máll og með blóm­vönd með­ferðis. Hann bað mig um að skrifa undir veð­leyfi í hús­inu. Hann þyrfti mikið á pen­ingum að halda og allt myndi redd­ast. Eldri sonur minn var í heim­sókn og bað mig að skrifa alls ekki undir. Sjálfur hafði hann skrifað undir fyrir hann nýlega og vinir hans sögðu honum að hann gæti misst íbúð­ina ef stjúpi hans stæði ekki við sitt.

Mér fannst mér ekki stætt á því að neita svo að ég skrif­aði undir og ekki svo löngu síðar stóð ég á göt­unni með 19 ára son minn með mér. Eldri sonur minn missti sína íbúð hálfu ári síðar vegna svika stjúpa síns.

Skömmu áður en við lentum á göt­unni sagði Jón mér yfir kvöld­matnum að hann þyrfti að finna sjálfan sig. Hann væri búinn að hreiðra um sig í íbúð í Breið­holti og ætl­aði að leita þar að sínum innra manni. Raunin var sú að þarna var hann að ganga út frá fjöl­skyld­unni og flytja til kon­unnar sem hann hafði haldið við í fimm ár. Nú var hann búinn að ganga út frá tveimur fjöl­skyldum, ískaldur og án sam­visku. Hann skildi líka við börnin sín sem grétu heima og var hent út í djúpu laug­ina fyr­ir­vara­laust.

Þessi síð­ustu svik hans voru mér mikið áfall og segja má að ég hafi verið týnd í tvö ár á eftir. Vanlíðan mín staf­aði ekki af sökn­uði, heldur féllust mér nán­ast hendur yfir þessu yfir­grips­mikla verk­efni sem beið mín, þessum mikla skaða sem hann hafði valdið fjöl­skyldu sinni. Ég var þó aðal­lega reið, ösku­reið yfir því að hafa látið hafa mig að fífli í svona mörg ár.

Eftir að hafa setið með­virkni­nám­skeið sem ég dreif mig á eftir áfallið, varð ég með­vituð um að ég get ekki bjargað heim­inum og þrifið upp skít sem aðrir hafa búið til.

Það bætti ekki ástandið að ég hafði miklar áhyggjur af yngri syni mínum sem var far­inn að reykja gras. Þeir sem segja að slíkt sé hættu­laust eru kjánar. Besti vinur hans og neyslu­fé­lagi svipti sig lífi og sonur minn sökk enn dýpra í kjöl­farið. Ég missti ekki úr vinnu vegna svika Jóns og missis heim­il­is­ins en ég var óvinnu­fær í þrjá mán­uði vegna sonar míns, svo nærri mér tók ég ástand hans. Allt er þó á upp­leið núna og ég er komin á svo miklu betri stað í líf­inu þótt ég sé enn að borga skuld­irnar hans Jóns. Ég er loks búin að fyr­ir­gefa sjálfri mér blind­una og er farin að kenna við annan skóla þar sem mér líður mjög vel. Ég er þakk­lát fyrir góða for­eldra og vini, og líka fyrir sjálfa mig sem ég ætla að halda áfram að rækta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd
Fólk

Skiptir mestu máli að fá skap­andi hug­myndir og hrinda þeim í fram­kvæmd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri. Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún...
„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Fólk

„Lækn­ir­inn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjöru­tíu og fimm ára afmæl­is­dag­inn“

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda...
„Aðalmálið að njóta lífsins og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur“
Innlent

„Aðal­málið að njóta lífs­ins og vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur“

Hrafn Val­dís­ar­son missti móður sína á svip­legan hátt þegar hann var nítján ára gam­all. Þau mæðginin höfðu alla tíð verið náin og miklir vinir og áfallið var mikið. Móðir hans, Valdís Gunn­ars­dóttir, var um ára­bil ein vin­sælasta útvarps­kona lands­ins. Hún var þekkt fyrir að tala mikið um ást­ina og kær­leik­ann og var stundum kölluð róm­an­tís­kasta kona Íslands. „En mamma var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu