„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég ætlaði aldrei að bindast öðrum manni ástarböndum“

„Ég ætlaði aldrei að bindast öðrum manni ástarböndum“

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég elskaði manninn minn heitt og hélt að við yrðum saman alla tíð, í gegnum súrt og sætt, sorgir og gleði. Á erfiðum tíma í lífi okkar brást hann og ég var svo sár að ég ætlaði aldrei að bindast öðrum manni ástarböndum.

Við Jonni kynnt­umst í Háskól­anum. Hann var ekki beint sætur en bjó yfir afar miklum per­sónu­töfrum. Ég hafði sann­ar­lega tekið eftir honum, eins og flestar stelp­urnar sem sátu tíma með honum. Hann hafði greini­lega tekið eftir mér líka. Í fyrstu „vís­inda­ferð“ vetr­ar­ins fórum við að spjalla saman og eitt leiddi af öðru. Við vorum enn í námi þegar við giftum okkur og skömmu eftir útskrift eign­uð­umst við strák­inn okkar. Ári síðar fórum við til útlanda í fram­halds­nám. Íslend­inga­fé­lagið var nokkuð virkt og við kynnt­umst mörgum löndum okkar. Skemmt­ana­líf var mikið, meira en ég átti von á og mér lík­aði, en ég hvatti Jonna til að hanga ekki heima yfir mér og barn­inu, heldur drífa sig út. Við vorum vissu­lega mjög önnum kafin í nám­inu en Jonna þótti betra en mér að slaka á í góðra vina hópi.

Árið sem við komum heim hélt Jonni fram hjá mér en ég fyr­ir­gaf honum. Hann var mjög drukk­inn þegar það gerð­ist og var svo iðr­andi þegar hann sagði mér frá því að ég gat ekki annað en fyr­ir­gefið honum. Ég vissi að hann væri vin­sæll hjá konum en mig grun­aði samt aldrei að nokkuð svona gæti gerst. Ein vin­kona mín ytra sagði að Jonni hafði lag á því að láta konum finn­ast þær svo fal­legar, hann horfði ein­hvern veg­inn þannig á þær að þær fengju á til­finn­ing­una að þær væru æðis­legar. Hún sagði það vera hluta af per­sónu­töfrum hans en hefði aldrei litið á fram­komu hans við sig sem við­reynslu. Þetta var rétt lýs­ing á honum og eitt af því sem ég kol­féll fyrir þegar ég kynnt­ist honum. Mér fannst ég fal­leg­asta mann­eskja á jarð­ríki þegar hann horfði á mig. Ég hafði ekki áttað mig almenni­lega á því að hann gerði þetta við allar konur.

Það sem eftir lifði dvalar okkar ytra fór Jonni ekki út að skemmta sér án mín. Við fórum þó í sam­eig­in­legt kveðjupartí með fleiri Íslend­ingum sem voru á heim­leið en konan sem Jonni svaf hjá mætti ekki. Mig grunar að hann hafi beðið hana um að halda sig fjarri. Ég var ann­ars við­búin því að hitta hana en mik­ill var léttir minn þegar hún lét ekki sjá sig.

Áfall

Þegar heim var komið fórum við í þennan venju­lega pakka, finna íbúð, vinnu og leik­skóla­pláss fyrir son­inn. Það gekk allt vonum framar, enda höfðum við byrjað að und­ir­búa flutn­ing­ana nokkrum mán­uðum áður og for­eldrar okkar hjálpað mikið til.

Rúmum mán­uði eftir að sonur okkar byrj­aði á leik­skól­anum fékk ég upp­hring­ingu og var sagt að hann væri veikur. Ekki grun­aði mig að hann ætti ekki aft­ur­kvæmt þangað. Það sem virt­ist vera slapp­leiki reynd­ist alvar­legur sjúk­dómur. Læknar sögðu að hann myndi þurfa að glíma við hann lengi og mögu­lega yrði hann aldrei samur. Ég vil ekki lýsa veik­ind­unum nánar á þessum vett­vangi en áfallið var gíf­ur­lega mikið. Svo mikið að ég missti fóstur. Mig hafði grunað að ég gæti verið ófrísk en átti eftir að fá það stað­fest. Ég varð ótrú­lega sár út í Jonna þegar hann sagði að þetta hefði verið fyrir bestu, það hlyti að vera hræði­legt álag að vera með mjög veikt barn og einnig ung­barn. Þetta var auð­vitað rétt hjá honum en ekki það sem ég þurfti að heyra akkúrat á þessum tíma. Yfir­leitt var ég jarð­bundn­ari aðil­inn í hjóna­band­inu en þarna var ég yfir mig þreytt, sorg­mædd og svart­sýn.

Aðal­læknir sonar míns ráð­lagði okkur Jonna að leita okkur hjálpar og benti á sál­fræði­ráð­gjöf og fleiri mögu­leika. Við fundum fínan sál­fræð­ing, konu sem var á svip­uðum aldri og við, og fórum að hitta hana reglu­lega. Stundum saman, stundum sitt í hvoru lagi.

Mér fannst gott að fara ein til sál­fræð­ings­ins og gat þá talað óheft um til­finn­ingar mínar. Ég sagði henni frá sárs­auk­anum yfir því hvernig Jonni tók fóst­ur­miss­inum og að það sem gerð­ist úti, eða fram­hjá­haldið, hefði rifj­ast upp. Mér lík­aði sér­lega vel við þessa konu og fannst gott að geta grátið hjá henni því ég gerði það ekki ann­ars staðar. Mér leið alltaf betur eftir tím­ana hjá henni.

Ástfanginn af annarri

Ég hætti að vinna tíma­bundið til að sinna syni mínum, bæði á sjúkra­hús­inu og svo eftir að hann var kom­inn heim. Andleg líðan mín var orðin miklu betri og það þakk­aði ég meðal ann­ars sál­fræð­ingnum. Jonni virt­ist líka mjög ánægður með hana og sagð­ist vilja halda áfram hjá henni eftir að ég var hætt. Hann væri svo lok­aður en þess­ari konu gengi vel að fá hann til að tala. Mér leist vel á það. Jonni vann mikið en þegar hann var heima á kvöldin og um helgar reyndi hann mikið að fá mig til að gera eitt­hvað fyrir sjálfa mig, fara út með vin­konum mínum, heim­sækja for­eldra mína eða bara gera eitt­hvað skemmti­legt. Ég gerði það nokkrum sinnum en fannst alltaf erfitt að vera lengi í burtu frá drengnum svo ég fór í mesta lagi í bíó með vin­kon­unum. Hjóna­lífið var samt ekki upp á sitt besta, ég var algjör­lega orku­laus, allt sem ég átti til að gefa fór í dreng­inn. Jonni kvart­aði ekki, heldur var hann mjög skiln­ings­ríkur.

Tæpu ári seinna fengum við góðar fréttir frá læknum barns­ins og sólin fór að skína á ný. Hann myndi eiga í veik­ind­unum allt sitt líf en vissar lífs­hættu­legar auka­verk­anir sem við vorum vöruð við, væru ekki lengur fyrir hendi.

Það var mitt í þeirri gleði sem Jonni ákvað að segja mér að hann vildi skilnað. Hann væri ást­fang­inn … af sál­fræð­ingnum okkar. Ég skil ekki enn hvernig mér tókst að halda ró minni, ég var brjáluð innra með mér, ekki síst þegar ég rifj­aði upp öll skiptin sem ég hafði grátið yfir Jonna hjá þess­ari konu. Mér hafði þótt vænt um hana og treyst henni algjör­lega. Jonni var hættur í með­ferð hjá henni en sagð­ist hafa rek­ist á hana þegar hann fór á pöbb með vinum sínum. Hann pakk­aði niður nokkrum flíkum og snyrti­dóti sínu og sagð­ist hafa sam­band við mig eftir nokkra daga.

Batnandi konu …

Skiln­að­ur­inn gekk ótrú­lega vel fyrir sig, ég var nán­ast dofin og Jonni vildi allt fyrir mig gera. Hann var með svo mikið sam­visku­bit að hann vildi að ég héldi íbúð­inni og sagð­ist ætla að borga þrefalt með­lag með barn­inu.

Doðinn hélst lengi en ég ein­beitti mér að barn­inu mínu og þannig hélt ég geð­heils­unni í sæmi­legu lagi. Ég held líka að áfallið sem ég varð fyrir vegna veik­inda drengs­ins hafi verið svo mikið að það hafi dregið úr hinu.

Jonni gift­ist kon­unni og mér skilst að þau séu ham­ingju­söm. Við sýnum hvort öðru fyllstu kurt­eisi barns­ins okkar vegna.

Þegar sonur minn var sex ára byrj­aði hann í skól­anum og elskaði að vera þar frá fyrstu stundu. Þá fyrst gat ég farið að vinna fulla vinnu. Helg­arnar og auka­dag­arnir sem dreng­ur­inn var hjá pabba sínum voru kær­komin hvíld og hjálp­uðu mér við að púsla mér saman.

Besta vin­kona mín sýndi mér mik­inn stuðn­ing og ég verð henni eilíf­lega þakk­lát fyrir það. Sama hversu illa mér leið tókst henni alltaf að hressa mig við. Hún reyndi ekki að rífa mig upp með neinni hörku, eins og sumir telja bestu aðferð­ina, heldur hafði hún lag á því að ná því besta fram hjá mér. Góðsemi hennar hafði svo miklu betri áhrif á mig en hálf­gerðar skammir frá mömmu sem sagði að ég yrði nú að taka mig saman í and­lit­inu, ég mætti vera fegin að hafa losnað við þennan svik­ara, ég yrði að hætta að gráta og allt í þeim dúr. Ég varð bara enn sorg­mædd­ari og fór að forð­ast mömmu þegar mér leið sem verst. Það tekur sinn tíma að syrgja og vin­kona mín átt­aði sig á því. Henni tókst alltaf að fá mig til að hlæja og fyll­ast hug­rekki. Hún fór að hvetja mig óspart til að finna mér nýjan mann en ég hristi bara haus­inn, ekk­ert var mér fjær skapi. Hún minnti mig á að til væru fjöl­margir dásam­legir menn, eins og mað­ur­inn hennar, bróðir minn, pabbi og fleiri. Það væri ein­hver góður þarna úti sem biði eftir að hitta mig.

Sannspá vinkona

Vinkona mín reynd­ist sann­spá. Hún og mað­ur­inn hennar drifu mig í skipu­lagða göngu­ferð um óbyggðir ásamt fullri rútu af skemmti­legu fólki. Þarna leynd­ist hann Leifur minn sem er eig­in­maður minn í dag. Við smullum ótrú­lega vel saman, það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Hann er gjör­ó­líkur mínum fyrr­ver­andi, bæði útlits­lega og hið innra. Við fórum okkur þó rólega til að byrja með, hitt­umst svo sífellt oftar og svo varð ekk­ert aftur snúið. Hann er átta árum eldri en ég, ekk­ill og á tvö upp­komin börn. Við ferð­umst mikið, bæði innan- og utan­lands. Leifur er ein­stak­lega góður við son minn og þeir eru góðir vinir. Sárindi mín út í Jonna hurfu smám saman en ég hef samt afskap­lega lít­inn áhuga á því að vera í miklum sam­skiptum við hann og kon­una hans, fyrrum sál­fræð­ing­inn minn. Við Jonni verðum samt alltaf tengd í gegnum son okkar og drengs­ins vegna mun ég aldrei sýna þeim hjónum neinn fjand­skap. Til hvers? Lífið er allt of stutt til að velta sér upp úr leið­indum for­tíðar og fest­ast þar. Ég kýs frekar að horfa fram á veg­inn og hlakka til þess að verja líf­inu með Leifi og syni mínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd
Fólk

Skiptir mestu máli að fá skap­andi hug­myndir og hrinda þeim í fram­kvæmd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri. Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún...
„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Fólk

„Lækn­ir­inn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjöru­tíu og fimm ára afmæl­is­dag­inn“

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda...
„Aðalmálið að njóta lífsins og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur“
Innlent

„Aðal­málið að njóta lífs­ins og vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur“

Hrafn Val­dís­ar­son missti móður sína á svip­legan hátt þegar hann var nítján ára gam­all. Þau mæðginin höfðu alla tíð verið náin og miklir vinir og áfallið var mikið. Móðir hans, Valdís Gunn­ars­dóttir, var um ára­bil ein vin­sælasta útvarps­kona lands­ins. Hún var þekkt fyrir að tala mikið um ást­ina og kær­leik­ann og var stundum kölluð róm­an­tís­kasta kona Íslands. „En mamma var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu