„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erfið árshátíðarferð

Erfið árshátíðarferð

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég fór í árshátíðarferð til útlanda fyrir mörgum árum með samstarfsfólki mínu. Strax í flugvélinni á leiðinni komst ég að því að þetta yrði engin skemmtiferð.

Þeir sem ég þekkti einna best á vinnu­staðnum ætl­uðu ekki í ferð­ina en ég ákvað samt að drífa mig vegna þess að Guðbjörg, hress stelpa sem vann á sömu deild og ég, hvatti mig til að koma og hún ætl­aði að vera með mér í her­bergi á hót­el­inu. Það var aðal­lega hjóna­fólk sem ætl­aði í ferð­ina, enda voru makar vel­komnir með. Ég hafði ekki ferð­ast mikið um ævina og fannst öryggi í því að vera með Guð­björgu en aðal­at­riðið var samt að mér fannst ekki koma til greina að fara ein í skemmti­ferð til útlanda. Ég hafði unnið þarna í tæpt ár og fyr­ir­tækið var það stórt að erf­ið­ara var að kynn­ast fólki en í smærri fyr­ir­tækjum.

Fyr­ir­tækið styrkti okkur um hluta af far­gjald­inu og restin var dregin af laun­unum í nokkra mán­uði, þannig gat ég leyft mér þetta. Ferðin stóð frá föstu­dags­morgni til sunnu­dags­kvölds. Hluti starfs­fólks­ins fór reyndar á laug­ar­dags­morgni og var til mánu­dags­kvölds en ég kaus að fara á föstu­deg­inum. Ég lagði sjálf fyrir mán­að­ar­lega til að geta keypt mér gjald­eyri.

Lífs­bar­áttan var hörð á þessum árum. Ég var ein með tvö börn og langvar­andi veik­indi þess yngra höfðu farið mjög illa með fjár­hag­inn.

Mér fannst ég eiga skilið að gera eitt­hvað fyrir sjálfa mig, svona einu sinni. Ég fékk frænku mína til að vera hjá börn­unum og var því alveg áhyggju­laus.

Áfall í flugvélinni

Ég svaf lítið fyrir til­hlökkun nótt­ina fyrir brott­för. Guðbjörg sótti mig og þegar við komum út á völl tékk­uðum við okkur saman inn. Vegna þess sem gerð­ist skömmu síðar olli það mér furðu að hún hafi setið hjá mér í vél­inni.

Það var heilt ævin­týri að fara í gegnum Frí­höfn­ina fyrir mann­eskju sem ferð­að­ist svona sjaldan. Loks vorum við kölluð út í vél og ævin­týrið hófst fyrir alvöru. Á þessum tíma var bor­inn fram matur í vél­unum og á meðan við borð­uðum tal­aði ég um það skemmti­lega sem við gætum gert í útland­inu. Allt í einu greip Guðbjörg fram í fyrir mér og sagði stirð­lega: „Heyrðu, ég vona að þú verðir ekki fúl en ég verð víst ekk­ert með þér í her­bergi um helg­ina!“ Þarna til­kynnti hún mér að hún hefði ákveðið að verja helg­inni með ungum manni úr fyr­ir­tæk­inu sem hún var nýbyrjuð að vera með.

„Af hverju sagðir þú mér þetta ekki fyrr? Ég get ekki hugsað mér að vera ein alla helg­ina,“ sagði ég miður mín. Guðbjörg reyndi að afsaka sig en ég gat ekki sagt að þetta væri allt í lagi, ég var gráti næst og þetta var ekk­ert allt í lagi.

Það varð lítið um kveðjur á flug­vell­inum þegar á áfanga­stað var komið. Það biðu okkar tvær merktar rútur sem óku okkur á hót­elið. Ég fór í aðra þeirra og Guðbjörg í hina, ég sá að hún sat hlæj­andi og glöð hjá kærast­anum.

Einmana í stórborg

Ég kom ég mér fyrir á her­berg­inu, kveikti á sjón­varp­inu og reyndi ákaft að sjá björtu hlið­arnar við að vera í útlöndum. En ég var sársvekkt og fannst ég hafa verið illi­lega svikin. Mér fannst erfitt að vera ein, þannig hef ég alltaf verið og er enn.

Líklega hefði ég eytt síð­deg­inu og kvöld­inu fyrir framan sjón­varpið ef ég hefði ekki verið svona svöng. Ég vissi að flestir, ef ekki allir, ætl­uðu út að borða. Mér fannst eitt­hvað svo aumk­un­ar­vert að fara ein á veit­inga­stað svo ég ákvað að kaupa mér bara ham­borg­ara. Sem betur fer hafði ég rekið augun í Burger King á leið­inni á hót­elið. Ham­borgar­ann tók ég með mér upp á her­bergi og borð­aði hann þar. Mér leidd­ist svo mikið að ég hringdi kollekt í börnin mín og spjall­aði við þau í smá­stund. Svo grét ég mig í svefn.

Ég var ögn bjart­sýnni næsta morgun og ákvað að kíkja á borg­ina. Ekki þorði ég þó að taka lest eða strætó niður í mið­borg, heldur hélt mig í nágrenn­inu. Þarna var nokkuð af búðum og ég náði að kaupa nokkrar jóla­gjafir, jóla­föt á börnin og fal­legan jakka á sjálfa mig. Það var lán í óláni fyrir mig að hót­elið var vel stað­sett upp á búðir að gera. Föt voru miklu ódýr­ari þarna en heima á Íslandi.

Ég borð­aði síð­bú­inn hádeg­is­verð á ham­borg­ara­staðnum mínum góða, spjall­aði aðeins við hresst starfs­fólkið og hélt rölt­inu áfram. Það var frekar kalt í veðri svo ég dreif mig heim á hótel. Árs­há­tíðin var haldin í sal þar og átti að hefj­ast klukkan sjö, enn voru nokkrir klukku­tímar í það. Mig lang­aði ekk­ert rosa­lega mikið að fara en hugs­aði þó með mér að þarna gæti ég sparað mér mat­ar­kostnað og kannski gæti ég hitt ein­hverja sem væru til í að verja með mér morg­un­deg­inum en brott­för var ekki fyrr en seint kvöldið eftir.

Ég var með þeim fyrstu sem mætti í sal­inn. Okkar beið for­drykkur í boði fyr­ir­tæk­is­ins sem bauð líka upp á mat­inn. Ég bland­aði geði við fólkið sem var mætt, í þeirri von að það byði mér að setj­ast hjá sér en hvert borðið af öðru fyllt­ist af hjóna­fólki og pörum og hvergi virt­ist vera laust pláss fyrir eina mann­eskju. Ég ákvað því að setj­ast sjálf við borð og bíða eftir því að fólk sett­ist hjá mér. Loks komu hjón sem ég kann­að­ist aðeins við, þau unnu bæði með mér en á annarri deild. Ég brosti mínu blíð­asta og reyndi að spjalla við þau. Tvær mið­aldra konur, greini­lega góðar vin­konur, sett­ust líka hjá okkur.

Borð­haldið var ansi pín­legt þótt ég reyndi mitt besta til að hressa upp á það. Hjónin töl­uðu lítið og bara hvort við annað og vin­kon­urnar tvær yrtu ekki á mig heldur, sátu bara með fýlu­svip og kvört­uðu yfir matnum. Leið­in­leg­asta fólkið í fyr­ir­tæk­inu hafði greini­lega sest við borðið hjá mér. Stór­kost­legt! Mér fannst þetta þó ekki fyndið fyrr en löngu síðar.

Ég reyndi að gera það besta úr stöð­unni og hló manna hæst að skemmti­at­rið­unum þótt þau væru frekar ófyndin og þegar farið var að dansa dreif ég mig upp á her­bergi.

Besti vinur Burger King

Ég hringdi aftur kollekt í börnin mín þetta kvöld. Þau urðu voða glöð þegar ég sagði þeim að ég hefði fengið flott jóla­föt á þau og að ég ætl­aði að kaupa jóla­sæl­gætið í Frí­höfn­inni á leið­inni heim. Svo væru ein­hverjir jóla­pakkar líka en þau fengju ekk­ert að vita um þá. Síðan fór ég upp í rúm og horfði á sjón­varpið þar til ég sofn­aði.

Næsta morgun dreif ég mig á kaffi­húsið og hádeg­is­mat­inn borð­aði ég að vanda á Burger King. Starfs­fólkið þar var farið að þekkja mig og heils­aði mér glað­lega.

Kvíða­hnút­ur­inn í mag­anum hafði minnkað aðeins, ég var líka orðin heima­van­ari … og orðin besta vin­kona starfs­fólks­ins á Burger King.

Ég sat hjá indælum hjónum í flug­vél­inni á heim­leið­inni og spjall­aði heil­mikið við þau. Þau voru á bíl og buðu mér far með sér í bæinn sem ég þáði þakk­lát. Við Guðbjörg höfðum talað um á leið­inni út á Leifs­stöð að ég færi sam­ferða henni heim aftur en ég gat ekki hugsað mér að tala við hana.

Einelti á vinnustað?

Guðbjörg var afsak­andi í vinn­unni næsta morgun þegar hún bauð mér góðan dag. Ég lét eins og ég sæi hana ekki og horfði í gegnum hana. Þessi mann­eskja hafði haft nægan tíma til að láta mig vita af breyt­ing­unum svo ég gæti gert aðrar ráð­staf­anir, fundið annan til að vera með á her­bergi eða sleppt því að fara. Mér fannst hún ómerki­leg og hafði engan áhuga á því að þekkja hana. Vinnan okkar skar­að­ist ekki svo ég þurfti ekki að tala við hana.

Nokkru seinna var ég kölluð inn til yfir­manns­ins og mér til undr­unar tjáði hann mér að Guðbjörg hefði sakað mig um ein­elti á vinnu­stað. Ég varð mjög hissa og sagði honum eins og var, ég treysti mér ekki til að tala við hana eftir að hún eyði­lagði fyrir mér árs­há­tíð­ar­ferð­ina. Ég væri ekki nógu fölsk til að geta komið fram við hana eins og ekk­ert hefði ískorist. Ég hefði aldrei lagt nokkra mann­eskju í ein­elti og ég hlyti að ráða því hvort ég tal­aði við fólk eða ekki. Þetta bitn­aði ekki á vinn­unni, ég skil­aði mínu og hún eflaust sínu. Hún hefði ekki einu sinni beðið mig afsök­unar, bara sagt að sér þætti þetta leið­in­legt en … Það ætti ekki að eyði­leggja líf hennar þótt ein mann­eskja af öllum þessum fjölda tal­aði ekki við hana, það væri ekki ein­elti. Yfir­mað­ur­inn reyndi að tala um mik­il­vægi góðs starfsanda og ég tal­aði um orsök og afleið­ingu. Guðbjörg yrði að skilja að hún gæti ekki sært og svikið aðra mann­eskju án þess að eitt­hvað gerð­ist. Ekki tal­aði ég illa um hana við neinn, ekki reifst ég við hana og ásak­aði, ég bara úti­lok­aði hana.

Ekki varð meira úr skömmum, enda var yfir­mað­ur­inn sam­mála mér um að þetta væri ekki ein­elti. Hann sagð­ist þó vona að við sætt­umst og allt yrði gott.

Ég hélt mínu striki og tal­aði ekk­ert við Guð­björgu. Það liðu ein­hverjir mán­uðir í við­bót þangað til hún sagði upp og hætti og mig grunar að þetta hafi átt ein­hvern þátt í því. Daglega var hún minnt á það sem hún gerði, ég var löngu hætt að láta hana pirra mig, hún var bara ekki til í mínum huga. Hún bar sig þó greini­lega upp við sam­starfs­fólkið en ég held að hún hafi fengið litla samúð frá því.

Á meðan ég vann hjá þessu fyr­ir­tæki fór ég á allar árs­há­tíðir, bæði innan- og utan­lands, og skemmti mér kon­ung­lega. Ekkert á borð við það sem gerð­ist í kringum fyrstu árs­há­tíð­ina gerð­ist nokkurn tíma aftur.

Löngu seinna átt­aði ég mig á því að þögn og úti­lokun er miklu verri „hefnd“ en mig hafði órað fyrir. Á meðan maður sýnir við­brögð eru þó ein­hverjar til­finn­ingar í spil­inu, á borð við reiði, sorg, ást eða hatur, en þegar maður úti­lokar fólk getur það ekk­ert gert. Ég skildi þetta fyrir nokkrum árum þegar ég hætti end­an­lega að tala við mann sem ég hafði elskað heitt og gefið ótal tæki­færi þótt hann ætti það ekki skilið. Þegar ég loks lok­aði á hann brást hann mjög illa við, hringdi stöðugt, skrif­aði mér, sendi SMS, ók í sífellu fram hjá heim­ili mínu og allt í þeim dúr. Þögnin og úti­lok­unin fór alveg með hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd
Fólk

Skiptir mestu máli að fá skap­andi hug­myndir og hrinda þeim í fram­kvæmd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri. Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún...
„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Fólk

„Lækn­ir­inn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjöru­tíu og fimm ára afmæl­is­dag­inn“

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda...
„Aðalmálið að njóta lífsins og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur“
Innlent

„Aðal­málið að njóta lífs­ins og vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur“

Hrafn Val­dís­ar­son missti móður sína á svip­legan hátt þegar hann var nítján ára gam­all. Þau mæðginin höfðu alla tíð verið náin og miklir vinir og áfallið var mikið. Móðir hans, Valdís Gunn­ars­dóttir, var um ára­bil ein vin­sælasta útvarps­kona lands­ins. Hún var þekkt fyrir að tala mikið um ást­ina og kær­leik­ann og var stundum kölluð róm­an­tís­kasta kona Íslands. „En mamma var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu