„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Of mikið af hinu góða?

Kynlíf er eðli­legur, heil­brigður og skemmti­legur hluti af lífi hinna full­orðnu. Og það að lað­ast kyn­ferð­is­lega að maka sínum og ná vel saman með honum í rúm­inu skiptir auð­vitað máli í sam­bandi. En þarfir fólks geta verið mis­jafnar og það sem einum finnst nóg finnst kannski öðrum of lítið. Er hægt að stunda of mikið kyn­líf? Er eitt­hvað sem telst eðli­legur fjöldi þegar kemur að skipt­unum sem það er gert?

Of mikið af hinu góða?

„Hversu oft er of oft?“ spurði vin­kona mín þar sem við biðum eftir matnum okkar á veit­inga­stað fyrir stuttu. Nú er hún búin að vera í sam­bandi í rúm tvö ár eftir að hafa verið ein­hleyp í langan tíma og finnst kærast­inn í aðeins of miklu stuði. Fyrir kyn­líf.

„Hann vill stunda kyn­líf á hverju kvöldi. Hverju ein­asta kvöldi,“ sagði hún með þungri áherslu. „Er það bara eðli­legt? Eftir rúm­lega tveggja ára sam­band? Ég meina, þetta var auð­vitað æðis­legt til að byrja með en núna væri ég stundum, ókei, reyndar oft, til í að fara bara að sofa án þess að þú veist … Gera það …“ Hún hall­aði sér svo fram á borðið þar sem hún hvísl­aði: „Og hann vill alltaf að ég sé að strjúka honum og gæla við hann … Þú veist … Þarna niðri. Jafnvel bara þegar við erum að horfa á frétt­irnar.“

„Hann vill stunda kyn­líf á hverju kvöldi. Hverju ein­asta kvöldi.“

Leiksigur í rúminu

Nú veit ég að vin­kona mín hefur ekki verið svona ham­ingju­söm eins og hún er núna í langan, langan tíma. Ég sá það hins vegar á henni og heyrði að þetta enda­lausa kyn­lífs­brölt kærastans væri að trufla hana.

„Geturðu ekki ein­fald­lega sagt að þú sért ekki í stuði? Og að þig langi til að horfa á frétt­irnar í róleg­heitum?“ spurði ég.

„Nei, ég legg ekki í þann slag,“ svar­aði vin­kona mín. „Ég er búin að reyna að ræða þetta við hann, að ég sé ekki til í svona mikið kyn­líf, en hann varð bara dálítið fúll og hélt að ég væri búin að missa allan áhuga á sér. Þetta varð eig­in­lega stór­mál og lá næstum við sam­bands­slitum. Hann kastaði því meira að segja fram hvort við ættum þá ekki bara að slíta þessu fyrst ég hefði engan áhuga á sér. En málið snýst nátt­úr­lega ekk­ert um það. Mér þætti bara fínt að gera þetta svona einu sinni til tvisvar í viku. Ekki á hverju ein­asta kvöldi. Og stundum á dag­inn líka reyndar.“ Hún leit á mig og þagn­aði um stund áður en hún dæsti og sagði: „Þetta er bara of mikið af hinu góða. Skilurðu mig?“

Vinkona mín sagði svo að hún þætt­ist oft sofa þegar kærast­inn kæmi inn í rúm á eftir sér, í þeirri veiku von að hún fengi að sofa í friði frekar en að lenda í rök­ræðum og koma leið­indum af stað. Ég full­viss­aði hana nú reyndar um að hún væri svo sann­ar­lega ekki sú eina sem hefði gerst sek um það. Í hinum ýmsu sauma­klúbbum og vin­kvenna­hópum hefur sú umræða margoft komið upp hvernig hefur reynt á leik­list­ar­hæfi­leik­ana þegar þær hafa þóst sofa. Ég hef sjálf sýnt leik­sigur í þessum efnum; með til­heyr­andi þykjustu­hrotum og allt.

Má bjóða þér múffu?

Ég verð að við­ur­kenna að ég gat ekki svarað því hversu oft í viku gæti talist eðli­legt að stunda kyn­líf í sam­bandi en ég sagði vin­konu minni þó hvað mér þætti um við­horf kærastans. En það er nú efni í annan pistil. Svo stakk ég reyndar líka upp á því að hún gæfi honum svo­kall­aða múffu sem hægt er að kaupa í versl­unum sem selja hjálp­ar­tæki ást­ar­lífs­ins. En mér fannst þetta hins vegar áhuga­verð pæl­ing: Hversu oft er of oft?

Fjöl­margar erlendar rann­sóknir hafa verið gerðar á því hversu oft pör eða hjón stunda saman kyn­líf. Nið­ur­stöður rann­sóknar sem gerð var á tíunda ára­tugnum sýndu fram á að 40% hjón­anna sem tóku þátt í rann­sókn­inni stund­uðu kyn­líf tvisvar til þrisvar í viku. Skipt­unum fækk­aði eftir því sem aldur hjón­anna hækk­aði og lengra var liðið á hjóna­bandið.

Nið­ur­stöður ann­arrar rann­sóknar, sem gerð var árið 2015, sýndu fram á að hjón voru ánægð­ari eftir því sem þau stund­uðu kyn­líf oftar en þó sögð­ust flestir þátt­tak­enda ekki vilja stunda það oftar en einu sinni í viku. Sem mér finnst dálítið merki­legt og ef til vill gefa vís­bend­ingu um að þátt­tak­endum hafi fund­ist eitt skipti í viku nóg til að halda hjóna­band­inu góðu.

Sál­fræð­ing­ur­inn Dr. Barry McCarthy, sem hefur meðal ann­ars skrifað um kyn­líf í para­sam­böndum, segir að það sé heil­brigt að stunda kyn­líf með maka sínum einu sinni til tvisvar í viku. Hann segir það eðli­legt að fólk stundi kyn­líf oftar þegar það er að kynn­ast og getur ekki hætt að hugsa um hinn aðil­ann. Og kyn­lífið auk­ist jafn­vel fyrst eftir að fólk byrji að búa saman en það sé þó bara tíma­bundið ástand. Það sé eðli­legt að kyn­lífið minnki eftir því sem lengra líði á sam­bandið.

Kynlíf – ekki kvöð

Auðvitað er kyn­hvötin mis­jöfn hjá mann­fólk­inu eins og svo margt annað. Önnur vin­kona mín sagði mér til dæmis að hún hefði verið í sam­bandi með manni sem hún taldi að hefði örugg­lega verið kyn­lífs­fík­ill. Og sér hefði þótt það geggjað. Hann var reyndar líka mjög upp­á­tækja­samur í kyn­líf­inu sem henni fannst sér­lega skemmti­legt. En hver veit; sam­bandið stóð ekki nema í nokkra mán­uði og henni fannst þetta gaman á meðan á því stóð. Kannski hefði hún orðið þreytt á öllu þessu kyn­lífi til lengdar, kannski ekki.

En kyn­líf ætti í það minnsta ekki að vera kvöð. Fólk ætti að stunda það af því að það langar, ekki af því að því finnst það neyð­ast til þess. Sálmeð­ferð­ar­fræð­ing­ur­inn Ian Kerner segir að það að stunda kyn­líf af miklum móð þurfi ekki að þýða að það sé of mikið af hinu góða, svo lengi sem báðir aðilar njóti þess. Sé það hins vegar svo að annar aðil­inn fái meira út úr kyn­líf­inu geti kyn­lífið breyst í kvöð fyrir hinn.

Það má segja nei

Mýfluga á það til að verða að úlf­alda og þess vegna er það með kyn­lífið eins og flest annað í sam­böndum; það þarf að ræða. Komast að því hvað hinn aðil­inn vill. Hvað hann vill ekki. Og taka til­lit. Ekki neyða hann til að gera það sem hann ekki langar. Allir hafa rétt á að segja nei. Líka maki manns. Og það er engin ástæða til að taka því per­sónu­lega þótt maki manns segi af og til „nei, ég vil gjarnan fara bara að sofa.“

Kynlíf getur svo sann­ar­lega verið skemmti­legt; það getur bætt og kætt og látið manni líða vel. En ef það gerir ekk­ert fyrir mann og lætur manni ekki líða vel þá er ólík­legt að áhrif þess séu jákvæð. Þá er betra að sleppa því. Og það er gott að hafa í huga að þegar kemur að kyn­lífi skipta gæðin en ekki magnið máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynlíf

Samfélagsmiðlaherferð gegn kynsjúkdómum – Lekandasmit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár
Innlent

Sam­fé­lags­miðla­her­ferð gegn kyn­sjúk­dómum – Lek­anda­smit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár

Ástráður – kyn­fræðslu­fé­lag lækna­nema hófu sam­fé­lags­miðla­her­ferð um kyn­sjúk­dóma í dag, í sam­starfi við Sótt­varn­ar­svið Embættis land­læknis. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Ástráði – kyn­fræðslu­fé­lagi lækna­nema, er helsta mark­mið félags­ins með sam­fé­lags­miðla­her­ferð­inni, sem ber nafnið Trúnó með Ástráði, vera þá að vekja athygli á fjölgun lek­anda­smita í sam­fé­lag­inu og ná tökum á útbreiðslu þeirra. Sjötíu pró­sent auk­ing varð á slíkum smitum milli áranna...
Dóttir Heidi Klum fann kynlífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“
Menning

Dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“

Eldri dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstækja­skúffu mömmu sinnar og sýndi vinum sínum. Ofur­fyr­ir­sætan Heidi Klum við­ur­kenndi í við­tali nýlega að eldri dóttir hennar, Leni Klum, sem hún á með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, söngv­ar­anum Seal, hafi eitt sinn fundið kyn­lífstækja­safn hennar, fyrir til­viljun, eða eins og Heidi orðar það: „Hún fann kyn­lífs­skáp­inn minn.“ Þrátt fyrir að atvikið hafi átt sér stað...
Britney lýsir kynlífi hennar og Farrell við „götubardaga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“
Menning

Britney lýsir kyn­lífi hennar og Farrell við „götu­bar­daga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“

Britney Spears líkir kyn­lífi sínu með Colin Farrell við „götu­bar­daga“, í nýrri ævi­sögu, sem beðið er með óþreyju en bókin heitir The Woman in Me. Hin 41 ára poppprinsessa, átti tveggja vikna ást­ar­æv­in­týri með írska stór­leik­ar­anum Colin Farrell árið 2003, stuttu eftir að hún hætti með Justin Tim­berlake. Britney hitti Colin í gegnum vin sinn en hún sagði að þau...
„Tantrafræðin lýsa kynlífi sem einni af grunnþörfum mannsins“
Innlentkynlíf

„Tantra­fræðin lýsa kyn­lífi sem einni af grunn­þörfum manns­ins“

„Kynorkan knýr okkur áfram, ýtir undir lang­anir og gerir okkur for­vitin um heim­inn. Kynorkan kveikir í okkur og fær okkur til að upp­götva nýjar hliðar á til­ver­unni, sér­stak­lega ef þær lofa nautn og vellíðan. Ef þessi orka er í ójafn­vægi getur það fram­kallað allskyns fíkn, lang­anir eða sjúk­dóma sem geta dregið okkur til dauða.“ Blaða­maður Mannlífs ræddi við Serafim Arnar...
Hvað myndi breytast hjá þér ef þú hlustaðir á hvað kynhvötin þín hefur raunverulega að segja?
Innlentkynlíf

Hvað myndi breyt­ast hjá þér ef þú hlust­aðir á hvað kyn­hvötin þín hefur raun­veru­lega að segja?

„Ég ákvað að rann­saka and­lega hlið kyn­lífs svo ég gæti kafað dýpra ofan þessa unaðstengdu kennslu,“ segir Birna M. Gustafs­son, kyn­fræð­ingur hjá Losta, í sam­tali við Mannlíf. Birna fer yfir ýmiss konar tækni tengda kyn­lífi, en segir að lyk­il­at­riðið sé að njóta sín. „Það getur verið erfitt að ein­beita sér að unaði þegar hug­ur­inn vill vera ann­ars staðar – stundum...
Sigga Dögg telur ýmislegt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valdadýnamík“
Innlent

Sigga Dögg telur ýmis­legt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valda­dýnamík“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, var í ein­lægu og opin­skáu helg­ar­við­tali Mannlífs um liðna helgi. Sigga Dögg hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Í við­tal­inu fer hún um víðan völl; ræðir þeyti­vindu sam­fé­lags­miðla, berg­máls­hella og fræðir blaða­mann um hluti tengda kyn­fræðslu, BDSM og það hvernig hún nálg­ast...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu