„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigga Dögg telur ýmislegt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valdadýnamík“

Sigga Dögg telur ýmislegt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valdadýnamík“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, var í ein­lægu og opin­skáu helg­ar­við­tali Mannlífs um liðna helgi. 

Sigga Dögg hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Í við­tal­inu fer hún um víðan völl; ræðir þeyti­vindu sam­fé­lags­miðla, berg­máls­hella og fræðir blaða­mann um hluti tengda kyn­fræðslu, BDSM og það hvernig hún nálg­ast börn og ung­linga sem eru upp­fullir af for­vitni og áhuga.

Hér má lesa við­talið í heild sinni.

Sigga Dögg nefnir til sög­unnar atriði sem hún segir ekki hafa komið upp í nýlegu fjaðrafoki og umræðu varð­andi BDSM. Hún segir það ef til vill til marks um það hversu tak­mörkuð þekk­ingin á BDSM sé í raun.

„Það er umræðan um að vera switch. Það eru rosa­lega margar konur sem eru switchar. Það er verið að tala rosa­lega mikið um valda­dýnamík, en þú lærir nán­ast ekk­ert um valda­dýnamík fyrr en þú mætir í BDSM og ferð að setja þig inn í dom, sub og switch. Það er bara masterclass í valda­dýnamík. Að skilja hana og heyra upp­lifun fólks; það finnst mér sjúk­lega áhuga­vert.

Þegar við hugsum um dom og sub, þá er auð­veldasta útskýr­ingin að einn er yfir og hinn er undir. En sá sem er yfir, hann er ekki beint yfir-yfir, af því að sá sem hefur völdin er í raun og veru sá sem er undir. Því þú getur ekki verið yfir nema þú vitir hvað má gera við þann sem er undir og sá sem er undir semur regl­urnar; þetta má, þetta má ekki. Það er svo­lítið á ábyrgð þess sem er yfir að virða það, vita það og fylgj­ast með þeim sem er undir. Fylgjast með svip­brigðum, tékka inn, tékka á líðan, og svo að sá sem er undir noti örygg­is­orðin sín. Þannig að þetta eru sam­skipti á báða bóga, svo það að halda að einn sé yfir og megi bara gera allt – það er alls ekki svo. Að sá sem er undir verði bara að þola hvað sem er – það er alls ekki svo. Svo á sér oft stað rosa­lega fal­legt fyr­ir­bæri sem kall­ast after-care; þá er hlúð að, teng­ing, passað upp á. Þannig að þetta er ekki bara: ég kem, geri við þig og fer. Það er ekki dýnamíkin.

Hjá sumum er þetta mjög skýrt; „Ég er bara yfir, ég fer bara í dom-hlut­verk.“ Aðrir eru bara í sub-hlut­verki. Þar líður þeim vel. Það að vera dom krefst gíf­ur­legrar athygli; þú þarft að fylgj­ast svo vel með ástandi þess sem er sub-inn, til þess að geta lesið í allt og passað upp á, og þú átt svo­lítið að reyna að hafa stjórn á aðstæðum. Þú átt að reyna að gera allt sem í þínu valdi stendur til þess að sub-inum líði vel, af því að þú vilt fara í leik­inn sem var búið að ákveða. Það gerir þetta að mjög áhuga­verðri dýnamík.

Fólki hugn­ast kannski ekki að farið sé í lýs­ingar á því sem fólk er að gera; það finnst þeim óþægi­legt af því að það kannski tengir bara ekk­ert við þetta. Ég skil það mjög vel. Áður en ég kynnti mér BDSM þá skildi ég hvorki upp né niður í þessum heimi. En ég fór og setti mig inn í það og fór í mjög mik­inn lær­dóm þar til þess að skilja. Og BDSM hefur verið því­líkt mikið rann­sakað. Það er til dobía af rann­sóknum, af því að það eru svo margir sem spyrja hvað þetta sé, afhverju þetta sé heill­andi, hvað sé að þessu fólki… þannig að það er mjög áhuga­vert.

„Hvenær viltu gefa eftir vald og hvenær viltu stjórna?“

Svo ertu með fólk sem er switch og það þýðir að þú getur verið bæði dom eða sub, allt eftir kannski aðstæðum eða leik­fé­laga. Þá mát­arðu bæði hlut­verk. Á öllum svona BDSM nám­skeiðum og fræðslu sem ég hef sótt mér, þá er fólk hvatt til þess að máta báðar hliðar, hvort sem maður finnur sig í því eða ekki. Þannig að sama hvort það sé eins og þetta marg­um­rædda bre­ath play nám­skeið eða bind­ingar eða eitt­hvað svo­leiðis – þótt þú seg­ist ekki tengja við að láta binda þig, þá ertu samt beð­inn um að upp­lifa og finna hvernig er að vera hinum megin og þiggja þetta. Hvort sem þú svo leikur þannig með það eða ekki. Mér fannst það mjög áhuga­vert og hafði ekki dottið það í hug.

En svo eru einmitt sumir sem svissa á milli, allt eftir mann­eskj­unni. Þá skiptir ekk­ert máli hvort þú ert kona, karl eða kynsegin, eða hvort þú ert að leika með konu, karli eða kynsegin. Þetta er bara okkar dýnamík og það er svo­lítið okkar að tala um það. Ég hef reyndar hitt fleiri konur sem eru switchar, heldur en karla. Það þarf ekk­ert að þýða neitt. En það finnst mér áhuga­vert. Hvenær viltu, innan gæsalappa, gefa eftir vald og hvenær viltu stjórna?“

Valdaleikir

Þegar blaða­maður veltir fyrir sér hlut­falli karl­manna í dom-hlut­verki ann­ars­vegar og sub-hlut­verki hins­vegar hugsar Sigga Dögg málið en nefnir svo til sög­unnar þjón­ustu sem er í boði víða erlendis.

„Þar get­urðu víða keypt þjón­ustu svo­kall­aðrar dómínu, dom­in­at­rix á ensku. Þá get­urðu keypt þjón­ustu bara eins og við sjáum í sjón­varps­þáttum; þetta hefur verið í Billions og fleiri þáttum. Þar sem menn í streitu­fullum störfum fara og kaupa þjón­ustu dómínu, þar sem þeir vilja þá láta gera ákveðið við sig; sumir kalla þetta að nið­ur­lægja, sumir kalla þetta valda­leiki. Þeir borga fyrir þetta. Það er til. Ég veit ekki til þess að slíkt sé til hérna á Íslandi, að þú getir borgað fyrir dómínu. Þetta myndi telj­ast til kyn­lífs­vinnu, sem er nátt­úru­lega ólög­leg á Íslandi.

„Hæ, nenn­irðu að domma mig á laug­ar­dag­inn?“

Ég hef tekið eftir því innan BDSM sam­fé­lags­ins að það er rosa virkt sam­tal, að ég upp­lifi, að ef þú ert karl­maður og seg­ist vera dom, þá er ekk­ert leikið svo glað­lega með það. Þá er ekk­ert svona: „Hæ, nenn­irðu að domma mig á laug­ar­dag­inn?“ Þetta er meira þannig að við­kom­andi þurfi að eiga í ein­hverju sam­bandi við mann­eskj­una sem hann ætlar að fara inn í þennan leik með. Við þurfum að þekkj­ast, kynn­ast vel og vera með ákveðið traust og ákveð­inn grunn. En þeir kannski koma svo­lítið til dyr­anna þarna: „Þetta er það sem ég fíla, svona er ég, þetta er mín dýnamík; ertu til í þetta eða ekki?“

Sumir kannski upp­lifa að það sé verið að stilla fólki svo­lítið upp, en mér finnst ákveð­inn heið­ar­leiki í því að segja bara: „Ég veit hver ég er, ég þekki mig, svona tjái ég ást­ina mína, svona upp­lifi ég mig í kyn­lífi og ég vil að þú getir tekið upp­lýsta ákvörðun.“ Ekki: „Ef þú elskar mig þá ger­irðu þetta fyrir mig,“ heldur: „Tökum upp­lýsta ákvörðun í byrjun sam­tals­ins.“

Ég man eftir því að vin­kona mín var á Tinder og hún sagði við mig: „Ó mæ god, það er ein­hver gaur hérna að senda mér og hann er strax bara „fílarðu BDSM?“, þú veist, við erum búin að segja fjórar setn­ingar við hvort annað – slak­aðu á! Mér finnst þetta ógeðs­lega gróft.“

Ég sagði bara: „Veistu það, mér finnst þetta ógeðs­lega heið­ar­legt. Ef hann vill bara spjalla við fólk sem fílar BDSM þá er bara flott hjá honum að vinsa þig strax út. Þetta eru þín við­brögð, ég held að þú hafir ekk­ert erindi í að tala við þennan mann.“

Síðan er nátt­úru­lega líka hluti af þess­ari umræðu hvar sé öruggt rými og hvernig eigi að skapa það.“

Afsprengi ofbeldis og nauðgunarmenningar?

En hvað segir Sigga Dögg við þeirri stað­hæf­ingu að sumir vilji meina, í umræð­unni und­an­farið, að BDSM sé afsprengi ofbeldis- og nauðg­un­ar­menn­ingar? Að það sé bein­tengt kynja­mis­rétti?

„BDSM sem form­legt hug­tak, er í raun­inni yngra en iðkunin. Það að þessu hafi verið skeytt saman kemur í raun­inni upp úr bók­menntum – bók eftir Marquis de Sade, sem er ekki frá­bær bók og er í raun bara upp­full af ofbeldi. Ég komst ekki í gegnum hana. Justine heitir þekktasta bókin hans, og svo er The 120 days of Sodom. Hann var sad­isti og er ekki ein­hver til eft­ir­breytni. Oftast er þessi sad­ismi tal­inn koma frá honum, og þessu svo skeytt saman; þessu BDSM-i. En við sjáum til dæmis að bind­ingar, sem er stór hluti af BDSM hjá mörgum, eru bara margra alda gam­alt fyr­ir­bæri og er stór og rík hefð í Japan, til dæmis. Sama með hýð­ingar, fleng­ingar og bara alls­konar valda­leiki. Valda­leikir sem kannski eru und­ir­staða og kjarni BDSM.

„Að láta af stjórn og að stjórna – og að stíga inn í það“

Ég held að ein­hvers konar valda­dýnamík sé bara í eðli manns­ins, ef það er hægt að tala um það. Að gefa og sleppa. Að stjórna og láta af stjórn. Ég held að við séum í eðli okkar flest switch að ein­hverju leyti. Ég held að við höfum öll gott af báðu; þekk­ingu á báðu og að leyfa okkur bæði. Að láta af stjórn og að stjórna – og að stíga inn í það. Við erum þarna að leika með ein­hverja ákveðna grunn­þætti í okkur. Sem leyfir okkur kannski bara að sjá nýjar hliðar á okkur sjálfum. Þá verðum við líka að hafa þekk­ingu á því hvað við erum að leika með, hvað það felur í sér, hvernig við tölum um það eft­irá og hvernig við vinnum úr því sem kemur upp.“

Hér má lesa við­talið við Siggu Dögg í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynfrelsi

„Unglingar horfa á klám og nota á fjölbreyttan hátt, og sumir nota klám til að fræðast um kynlíf“
Innlent

„Ung­lingar horfa á klám og nota á fjöl­breyttan hátt, og sumir nota klám til að fræð­ast um kyn­líf“

Kynís var stofnað af fag­fólki 9. des­em­ber árið 1985 og var til­gang­ur­inn að skapa vett­vang sem gæti eflt sam­starf fag­fólks á þessu sviði. Kynfræði (sexology) er fræði­greinin um kyn­ver­und manns­ins (human sexu­ality). Fræði­menn sem leggja stund á kyn­fræði vilja, líkt og aðrir fræði­menn, auka þekk­ingu og skiln­ing á við­fangs­efni fræði­grein­ar­innar með skipu­lögðum hætti. Útgangs­punktur kyn­fræði er að mað­ur­inn sé kyn­vera....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins