„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigga Dögg er alvön samfélagsfárviðri: „Ég var kannski ekki alveg orðin sjóuð, þegar ég var kærð“

Sigga Dögg er alvön samfélagsfárviðri: „Ég var kannski ekki alveg orðin sjóuð, þegar ég var kærð“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Sú umræða fór af stað eftir að Sigga Dögg hafði sótt nám­skeið um fyr­ir­bæri sem kall­ast „bre­ath play“ og deilt upp­lýs­ingum af nám­skeið­inu sem henni þótti bæði áhuga­verðar og mik­il­vægar, á Instagram-síðu sinni. Hún sagði ung­linga oft spyrja um kyrk­ingar í kyn­fræðslu; eitt af fjöl­mörgum atriðum sem spurt er um á nám­skeiðum hennar og hún stígur inn í með krökk­unum á grund­velli sam­þykkis og fræðslu.

Það fár­viðri sem fór í hönd í kjöl­far þessa náði ákveðnum hápunkti í Kast­ljós­þætti þar sem Sigga Dögg mætti Hönnu Björgu Vil­hjálm­sóttur, sem sak­aði hana um að kenna börnum kyrk­ingar og normalísera ofbeld­is­hegðun.

Sigga Dögg er ekki ókunn því að lenda í þeyti­vindu sam­fé­lags­um­ræð­unnar og gott betur. Starf hennar sem kyn­fræð­ingur og þátt­taka í sam­fé­lags­um­ræð­unni því tengdu kemur henni oft á milli tann­anna á fólki og í fyr­ir­sagnir fjöl­miðla, enda virð­ist kyn­fræðsla enn vera eitt­hvað sem við sem sam­fé­lag eigum erfitt með að ræða, þó árangur hafi náðst á ýmsum sviðum. 

Blaða­maður hittir Siggu Dögg á heim­ili hennar í Hlíðunum. Á móti honum tekur lít­ill hundur sem geltir ákaft, dálítið ljóns­legur. Sigga Dögg útskýrir að hund­ur­inn sé hinn ljúfasti en að hann láti alltaf heyra dug­lega í sér þegar gesti ber að garði. Það reyn­ist rétt, því sá stutti er orð­inn sall­ar­ó­legur eftir nokkrar vand­legar strokur um eyrun. Þegar sest er við borð­stofu­borðið í fal­legri og nota­legri íbúð­inni býður Sigga Dögg blaða­manni upp á hnetu­blöndu, súkkulaði­húð­aðar pip­ar­köku­kúlur og te í múmín­bolla með galdra­karl­inum á – einmitt upp­á­halds bolla blaða­manns um þessar mundir. Konan hlýtur að vera skyggn.

Talið berst strax að fjöl­miðla­fári og sam­fé­lags­um­ræð­unni.

„Ég hef verið kærð, ég hef verið í alls konar við­tölum og ég held að í þessu sé bara ótrú­lega dýr­mætt að vera Pollý­anna. Ekki Pollý­anna á þann hátt að maður taki ekki mark á ein­hverju, heldur bara að maður haldi áfram. Ég hef fengið ýmsar fyr­ir­sagnir um mig þar sem ég hugsa: „Já, ég skil hvað þið eruð að gera þarna. Þetta hentar ykkur, þetta þjónar ykkur. Þið þurfið að selja aug­lýs­ingar, ykkur vantar meiri traffík. Þetta keyrir traffík­ina.“ Ég hef mjög sjaldan sett mig upp á móti fyr­ir­sögnum. Ég hef starfað hjá fjöl­miðli og veit alveg hvað er í gangi. Þannig að ég er svona að reyna að fjar­lægja mig frá því og taka því ekki per­sónu­lega.“

Kynfæramyndir og kæra

„Ég var kannski ekki alveg orðin sjóuð, þegar ég var kærð árið 2014.“

Hún segir rann­sókn­ar­lög­reglu­mann hafa hringt í sig, þegar hún var að sækja börnin sín á leik­skól­ann. Hann hafi sagt að þeim bæri skylda til þess að rann­saka málið og að þetta varð­aði hags­muni barna.

„Þér er gefið að sök að hafa berað þig fyrir framan börnin. Að þú hafir bara girt niður um þig og sýnt þig,“ sagði hann. Ég man að ég hugs­aði að ég ætl­aði alltaf að muna eftir því að biðja um að það væri full­orð­inn aðili við­staddur fræðsl­una mína. Af því að ég gerði það í þetta skipti. Ég var farin að hugsa þetta nefni­lega: „Hvað ef það kemur upp ein­hver mis­skiln­ingur í kyn­fræðslu, eða eitt­hvað? Einhver heyrði eitt­hvað eða skildi eitt­hvað öðru­vísi.“ Þá er það örygg­is­vent­ill fyrir mig sem og skól­ann og krakk­ana, að það sé annar full­orð­inn þarna, ótengdur mér. Þarna voru þessir full­orðnu þrír eða fjórir. Svo það var nátt­úru­lega bara tekin skýrsla af þeim og þau sögðu frá því að þetta hafi ekki verið svona.

Þessi kæra var byggð á sögu­sögn. Hún var lögð fram af fólki sem var ekki við­statt.

Ástæðan fyrir því að ég er að rifja þetta upp núna er að mér finnst svo áhuga­vert að aftur er ég stödd í máli þar sem ég er að verja eða svara fyrir eitt­hvað þar sem fólk hefur ekki fyrstu handar þekk­ingu.“

Þegar Sigga Dögg var kærð árið 2014, hafði hún verið með kyn­fræðslu fyrir ferm­ing­ar­börn, að beiðni prests­ins þeirra.

„Eins og þá, þegar fólk spurði: „Guð, gerði hún þetta?“

„Nei, hún sýndi ljós­myndir af kyn­færum.“

„Ha?“

 „Já.“

„Má það ekki? Var það eina sem hún gerði? Voru þetta ljós­myndir, bara uppi á glæru? Þurftu krakk­arnir að koma og gera eitt­hvað? Ó, ókei.“

Ég ætla ekki að segja að þetta sé stormur í vatns­glasi, vegna þess að þetta opn­aði ótrú­lega nauð­syn­legt sam­tal. Á þeim tíma fjall­aði það um hvert hlut­verk kirkj­unnar væri gagn­vart ung­lingum, gagn­vart kyn­fræðsl­unni, sem og hlut­verk kirkj­unnar gagn­vart kyn­lífi. Allt í einu var bara haldið, að mér skilst, sér­stakt kirkju­þing og þau bara tók­ust á. Þannig að þetta opn­aði sam­tal þar.

Svo núna heyri ég að það sé ein­hver fem­inísk styrj­öld í ein­hverjum hópum. Ég stend utan við marga svona hópa af því að mér finnst oft erfitt að fylgj­ast með þeim, því ég hef séð alls konar for­dæm­ingu og tek það stundum svo­lítið í hjartað. Finnst ég þurfa að verja og svara. Það er ekk­ert endi­lega per­sónu­lega gagn­vart mér heldur bara gagn­vart ein­hverri umræðu. Ég hef fundið að þetta tekur á mig. Ég get ekki svona Facebook-rimmur. Ég er ekki svona snögg að skrifa og þetta er oft svo grimmt. Ég hugsa bara að þetta myndi taka of mikið af mér. Núna er ég að heyra frá vin­konum mínum sem eru kannski mikið í þess­ari umræðu og þekkja þennan heim betur, að það sé bara allt í ljósum logum.

Ég upp­lifi að oft eru þessar athuga­semdir og þessi rimma sem fer af stað, sem verður bara að ein­hverju svart­nætti – hún verður oft svo­lítil þöggun.“

„Ef þér finnst þetta, getur þú þá kallað þig móður?“

Sigga Dögg man eftir atviki þar sem hún hafði lesið frétt um rann­sókn meist­ara­nema, sem henni þótti áhuga­verð. Hún deildi frétt­inni á Facebook-síðu sinni með texta á þá leið að þarna væri um virki­lega áhuga­vert mál­efni að ræða. Að þetta væri eitt­hvað sem hún myndi sjálf eftir að hafa skoðað í sínu eigin námi, en sárasjaldan átt í sam­tölum um.

„Ég skrif­aði líka eitt­hvað um að það væri áhuga­vert hvar maður bæri kennsl á móral­isma. Við tökum sið­fræði sér­stak­lega í kyn­fræð­inni – það er sér áfangi í að bera kennsl á móral­isma og læra að aðgreina og vinna með. Kenn­ar­inn minn vann með Móður Teresu í Kalkútta. Hann sagði okkur frá því hvernig þau voru að bjarga börnum af rusla­haugum á morgn­ana, hvernig hún vann og hvernig var að vinna með henni. Og við vorum öll liggur við bara: Holy man! Tímarnir hans voru tvö­faldir, í lok dags, og ég held að tím­inn hafi verið búinn klukkan sjö, en við vorum aldrei komin heim fyrr en að ganga níu. Af því við hleyptum honum bara ekki út úr skóla­stof­unni. Segðu okkur meir, þú mikli meist­ari! Og ég held að ég hafi aldrei setið svona tíma; hann sá alltaf nýtt sjón­ar­horn á öllu. Hann var alltaf að hvetja okkur til að vera gagn­rýnin, en ótrú­lega mann­leg. Við vorum látin rök­ræða, svona mor­fís-style, ógeðs­lega sið­ferð­is­lega erfið mál­efni. Við vorum alltaf látin máta með og á móti, og hann mætti öllum rökum af svo miklum kær­leika og yfir­vegun. Sá alltaf sjón­ar­horn allra. Við vorum bara búin á því eftir þessa tíma, af því að maður hugs­aði bara: „Við verðum að kom­ast á þennan stað.““

Sigga Dögg hugsar sig um og finnur aftur sög­una sem hún hafði byrjað á.

„Ég sem­sagt deili þess­ari frétt og innan tveggja athuga­semda er spurt hvort ég beiti börnin mín ofbeldi og sé slæm móðir. Hvernig fór þetta þangað? Þetta var eitt­hvað í lík­ingu við: „Ef þér finnst þetta, getur þú þá kallað þig móður og beitir þú börnin þín ofbeldi?“ Það kom ein­hver svona hótun: „Ef þú tekur ekki þennan þráð út þá til­kynni ég þig.“ Þetta er til dæmis einn svona Facebook-not­andi sem ég hef séð í mörgum þessum hópum; svona virkur í athuga­semdum. Ég hugs­aði bara að ég gæti þetta ekki. Ég ætla ekki að láta ráð­ast á mína per­sónu og taka ekki mál­efna­legt sam­tal um eitt­hvað, heldur fara beint í það hvernig ég er sem móðir, sem tengd­ist mál­inu ekki neitt. Þetta er ekki vett­vangur fyrir mig.

Ég held að ég hafi skrifað til baka að ég gæti ekki staðið í þessu.“

„Þetta snýst ekki um að þora eða geta – þetta er ómál­efna­legt“

Sigga Dögg seg­ist hafa verið að opna sýn­ingu á sama tíma. Hún hafi staðið í sýn­ing­ar­rým­inu og séð sím­ann byrja að loga. Hún segir við­kom­andi hafa reynt að egna hana.

„„Já, þorð­irðu ekki að svara? Geturðu ekki svarað?“ Ég sagði bara að ég tæki ekki þátt í þessu. Þetta snýst ekk­ert um að þora eða geta – þetta er ómál­efna­legt. Svo bara lok­aði ég á athuga­semdir.

Ef maður neitar að fara þangað er maður gerður að ein­hverri bleyðu. Aumingja. Það finnst mér líka til marks um hvað við erum komin stutt í svona bully-umræðu. Af því að þetta er líka hjá full­orðnu fólki. Ég fæ bara svona Handmaid’s tale til­finn­ingu. Upp­haf­lega planið er gott en svo fer það ein­hvern veg­inn út um þúfur, í ein­hverja átt sem þú hefur ekki lengur stjórn á. Af því að fólk fer að hengja ótrú­lega margt á einn hlut.

Þetta er svo­lítið eins og „hel­vítis fokk­ing fokk“ – mót­mælin á Aust­ur­velli. „Heyrðu, erum við að mót­mæla? Ég mæti! Ég er bara með í þessu og ég er bara reið. Ég veit ekki alveg út í hvað, hvern eða afhverju, en ég ætla að vera með í þessu partíi.“

Ég held líka að reiðin sé rosa orku­gjafi en hún er pínu svona eins og bensín; hún klár­ast. Hún brennur upp og mengar. Þetta er ekki vatnið. Þetta er ekki end­ur­nýj­an­legi orku­gjaf­inn. Og það eru bara rosa­lega margir að keyra á bens­íni. Hvort sem það er bíll­inn þeirra eða kropp­ur­inn. Mig langar bara ekk­ert að vera bens­ín­bíll. Mig langar bara að vera raf­magns­bíll – helst að labba.“

Kýlin eru bara sprengd

Hvað finnst Siggu Dögg um það að umræðan virð­ist alltaf springa svona í loft upp? Að það verði gjarnan til þessar fylk­ingar og pólarís­er­ing?

„Ég held að þetta sé bara fas­inn sem við erum í sem sam­fé­lag, út af metoo og öllu þessu. Kýlin eru þarna og þau eru bara sprengd. Þannig fjar­lægjum við bólur. Þetta hlýtur að vera okkar lær­dóms­fasi núna; að til að taka á stóru mál­unum, eða litlu öngum stóru mál­anna, þá þurfum við svo­lítið að fara og springa vel og dug­lega, leyfa öllu að flæða út og sjá svo hver staðan sé.

Ég var einu sinni með inn­vortis blæð­ingu og lækn­ir­inn sagði þetta: „Við vitum ekk­ert hvað við erum að díla við, fyrr en við förum inn í þig. Þá kemur margt í ljós.“

Þetta er pínu það. Við erum í svo miklu upp­gjöri og þetta er alltaf þannig að unga og eldri kyn­slóðin tekst á. Ég er mjög tæp á að telj­ast sem unga kyn­slóðin. Ég er að verða fer­tug sko, ég er eitís-krakki. Það er alveg svona stretching it að hafa mig sem ungu kyn­slóð­ina, því ég myndi segja að það væru krakkar sem eru núna í háskól­anum. Það er í raun­inni unga kyn­slóðin, sem er þessi mil­leni­als og er með­vituð um jörð­ina. Ég ólst ekk­ert upp við neitt rosa­lega umhverf­is­með­vit­und.

Ef við horfum á kyn­slóð­ina fyrir ofan mig, þá er það kyn­slóð sem elst upp við ákveðna vel­megun. Hún elst upp við kaup­mátt, að fara til útlanda. Kannski svona fyrsta kyn­slóðin sem er ekki amma og afi sem passa, heldur amma og afi sem djamma og eru í golfi. Það er allt í einu þannig að sex­tíu er nýja fimm­tíu. Það er svo margt breytt á einni kyn­slóð. Þannig að eins og ég upp­lifi það, þá er kyn­slóð for­eldra minna mjög ólík kyn­slóð for­eldra sinna og svo finn ég að mín kyn­slóð og hvernig við til dæmis erum í upp­eldi, er allt öðru­vísi en kyn­slóðin fyrir ofan mig að miklu leyti, sem ól upp mína kyn­slóð. Þannig að þetta eru rosa átök á mjög skömmum tíma; í hug­mynda­fræði, þanka­gangi og nálgun. Alveg eins og mín kyn­slóð pirrar sig á tví­tugum krökkum: „Guð, þau eru svo mikil snjó­korn“ og „þau eru svo kvíðin þessi elsku blóm.“ Maður heyrir þetta – það eru alltaf kyn­slóða­á­tök. Það hefur alltaf verið og mun alltaf verða. Það kemur mér ekki á óvart að það birt­ist líka hér. Eðlilega birt­ist það hér.

„Þau eru meira á brems­unni en fyrri kyn­slóðir“

Það er til töl­fræði um það að mín kyn­slóð og kannski fólk sem er fimm, sex árum eldri en ég, er með frekar háan með­al­fjölda ból­fé­laga. Svo var aldur við fyrstu sam­farir skoð­aður.

Þegar þetta var síðan skoðað aftur hafði aldur við fyrstu sam­farir farið upp á við. Þannig að ung­lingar í dag eru eldri þegar þau stunda fyrst sam­farir en þau voru fyrir 20 til 30 árum síðan. Það er bara þró­unin í vest­rænum heimi; aldur við fyrstu sam­farir fer upp á við, sem er bara jákvætt.

Þegar ég er að kenna, eins og uppi í HR, eða í fram­halds­skólum, þá finnur maður að það er allt önnur stemn­ing í tengslum við kyn­líf. Mér finnst eins og fólk sem vinnur ekki við þetta tali um að unga kyn­slóðin sé svo klám­vædd, sé bara í ein­hverju eins og kyrk­ingum og bara sof­andi hjá úti um allt. Þegar raunin er sú, og við höfum banda­ríska og evr­ópska töl­fræði um það, að ungt fólk í dag á færri ból­fé­laga heldur en eldri kyn­slóðin, er með meiri kvíða fyrir því að sofa hjá og stundar minna kyn­líf en eldri kyn­slóðir, meðal ann­ars út af ótta við ofbeldi. Ótta við það að verða fyrir ofbeldi. Þetta er svo­lítið áhuga­vert. Við ætlum þeim að vera svo klám­vædd og sjúk en þau eru meira á brems­unni en fyrri kyn­slóðir.“

Enn með tabú málefni á listanum

„Á sama tíma kemur líka inn í þetta að það er búið að auka aðgengi að fræðslu fyrir þessa ald­urs­hópa og við leggjum svo gíf­ur­lega áherslu á sjálfs­fróun í fræðslu. Að kyn­lífið byrji hjá þér, að þú berir ábyrgð á kyn­lífi og ef þig langar í kyn­ferð­is­lega útrás þá ert þú bara fær um að sjá um það sjálfur, í flestum til­vikum. Og við erum nátt­úru­lega ekki einu sinni byrjuð á umræð­unni um fólk með fatl­anir; þeirra kyn­frelsi og kyn­ferð­is­legu rétt­indi. Það er sam­tal sem ég hef einu sinni reynt að opna á Íslandi og það varð allt vit­laust. Hvenær getum við og megum opna það? Ég tók við­tal við Freyju Har­alds­dóttur um einmitt sjálfs­fróun og kyn­líf, og birti það í útvarpi. Það var bara þögn.

Ég hlakk­aði svo til; hélt að það yrði allt brjálað eftir þetta við­tal og að við myndum tala um svo mikið. Nei. Það var ekki múkk sem heyrð­ist. Ég hef aldrei upp­lifað svona mikla þögn. Þannig að ég er ennþá með tabú mál­efni sem eru bara hérna á list­anum mínum. Hvenær erum við til­búin fyrir þetta sam­tal?“

En hvers vegna ætli sam­fé­lagið sé ekki til­búið fyrir sam­talið?

„Ég hef svo­lítið verið með henni Emblu, sem er með Tabú-sam­tökin með Freyju. Hún er búin að vera að taka diplómuna í kyn­fræði í Háskóla Íslands. Ég veit að þetta er hennar bar­áttu­mál og hún mun fara meira inn á þetta svið.

Embla kom einmitt í þátt­inn minn, Alls­konar kyn­líf, og tal­aði um sig sem kyn­veru, sagði frá því hvernig hefur verið komið fram við hana og gert ráð fyrir því að hún sé engin kyn­vera. Þegar hún kom út úr skápnum var við­mótið þannig að þetta væri til­gangs­laust. Bara eitt­hvað svona „krúttið þitt þarna“. Hún sagði einmitt að það væri erfitt að finna rými fyrir þetta af því að þarna stígum við inn í annað tabú, sem er að sumt fólk með ákveðnar fatl­anir þarf aðstoð. Svo er ég hluti af kyn­fræð­inga­heim­inum sem er bara eitt­hvað: „Let’s go maður! Við leysum það – það er nú ekki vanda­mál.““

„Frændi minn lenti í bílslysi“

Sigga Dögg sækir ýmis nám­skeið víðs­vegar um heim­inn og segir að til að mynda sé finnskt sam­fé­lag mjög fram­ar­lega í umræðu um kyn­líf fatl­aðs fólks, sem og umræðu um aðstoð og úrræði því tengdu.

„Það er líka talað um þetta í Ástralíu, þar sem ég lærði. Svo kem ég hingað heim og það er bara: „Hvað ertu að segja?“  Umræðan er svo ógeðs­lega pólaríseruð. „Hver á að taka þetta að sér? Hver hefur áhuga á þessu? Nei.“ Það að vera kyn­vera er tryggt í mann­rétt­inda­sátt­mál­anum. Við erum búin að sam­þykkja hann. Þetta er hluti af mann­rétt­ind­unum okkar.“

Allt í einu er eins og renni upp ljós fyrir Siggu Dögg.

„Já, það var rimman! Það var rimman á Facebook! Það var þetta. Ég sagði eitt­hvað í lík­ingu við: „Jess, loks­ins þorir ein­hver. Nú er sam­talið að fara af stað.“ Út af þessum meist­ara­nema. Hún var að rann­saka eitt­hvað allt annað en kom svo með ein­hverja litla athuga­semd um þetta. Og ég var bara: „Jess, loks­ins! Ein­hverjir fleiri að fara að tala um þetta.“ Og þá var ég bara ofbeld­is­full móðir.

„eng­inn sem ég elska má fara í bíl.“

Það verða svo miklar til­finn­ingar og það er svo mik­ill ótti. Ég held að það stafi af því að það er svo mikið óunnið tráma og reynsla. Ég held að mikið af þessu komi frá góðum stað, komi frá þessum stað: „Mig langar að vernda. Mig langar ekki að neinn lendi í því sem ég hef lent í.“ En ég held að aðferða­fræðin sé kannski ekki alveg sú gagn­leg­asta. Þetta er bara pínu eins og að segja: „Frændi minn lenti í bílslysi, ég ætla aldrei upp í bíl og eng­inn sem ég elska má fara í bíl.“

Mér finnst þetta svo magnað, af því að ég held að við séum svo rosa­lega mörg sem höfum lent í ofbeldi og miðað við það sem við skil­greinum sem ofbeldi og sam­þykk­is­leysi – og ef það er ekki sam­þykki þá er það ofbeldi – þá á ég mjög erfitt með að finna fólk á mínu reki sem á ekki alla­vega eina sögu um sam­þykk­is­leysi. Bara mjög erfitt. Af því að þetta er eitt­hvað svona: „Ó, skiptir það máli? Ó, já. Bíddu, sam­þykki.“ Af því að við erum enn að vinda ofan af því að þögn sé sama og sam­þykki.

Maður getur nýtt sínar eigin upp­lif­anir og reynslu, en þær mega ekki blinda manni sýn. Maður þarf að leyfa sér að vinna úr þeim svo maður sé ekki bara í þessu reiði­hjóli.“

Enginn að finna upp hjólið

„Við sjáum þetta í öllum sam­tölum. Við sjáum þetta í póli­tík, við sjáum þetta núna aldeilis í bólu­setn­ing­ar­um­ræð­unni; það er þessi rosa­lega pólarís­er­ing og ein­hver ótti við nýjan heim. Ég upp­lifi að það sé svona hálf­gerð upp­gjöf hjá yngri kyn­slóð­inni. Ekki börn­unum mínum, heldur kyn­slóð­inni þar fyrir ofan. Þau eru kvíðin út af lofts­lags­vand­anum; lofts­lagskvíði er raun­veru­legur og þau eru bara: „Heyrðu eigum við ekki bara að sleppa þessu öllu saman? Til hvers? Það er allt að fara til hel­vítis.“ En svo finnst mér ógeðs­lega mik­ill kraftur í mörgum grunn­skólakrökkum og ég hlakka rosa­lega til að sjá þá kyn­slóð, kyn­slóð barn­anna minna, vaxa úr grasi af því að þessi börn eru því­líkar neglur!

Að mæta þeim í skól­anum – hvernig þau oft svara og hvernig þau standa með sér og með hvert öðru. Vá, hvað það er mikið búið að breyt­ast frá því að ég var í grunn­skóla. Sumt er eins jú, við getum unnið með það, það er ekki spes – en svo er margt sem er bara: sjitt hvað við erum komin langt. Djöfull eru þetta spenn­andi tímar að vera til. Það finnst mér ógeðs­lega skemmti­legt. Ég hef líka massíva von, þótt við séum að takast á núna. Ég skil alveg að þegar þú ert í bar­áttu þá telur þú þig auð­vitað vera að berj­ast fyrir því sem er rétt. Það er bara þannig. Það er ekki hægt að segja: „nei, þú ert vit­laus,“ eða „þú skilur ekki“ eða „þitt er rangt“. Frá hvaða stað kemur þetta og hvað viltu gera með þetta? Tökum bara sam­tal; það eru til vís­indi, það eru til rann­sóknir, það eru til nið­ur­stöður, það eru til sér­fræð­ingar. Getum við bara farið af yfir­vegun yfir þessi mál, skoðað, vegið og metið og kom­ist að nið­ur­stöðu? Af því að við erum ekki að finna upp hjólið þarna. Í þessu er eng­inn að finna upp hjólið. Því meira sem maður gar­far í þessum fræðum, því meira kemst maður að því að það er þver­fræði­leg þekk­ing til á sviði kyn­fræði. Af því að það eru læknar, mann­fræð­ingar, sið­fræð­ingar, kynja­fræð­ingar, sál­fræð­ingar og geð­læknar – allar stéttir koma við í kyn­fræð­inni á ein­hverjum tíma­punkti. Það er ótrú­lega magnað.

Það er til svo mik­ill haf­sjór af alls­konar þekk­ingu. Ég hef verið leið­bein­andi uppi í HR, LHÍ og HÍ, í svona loka­verk­efnum. Þetta er eitt sem kyn­fræðin gerir; þar eru krakk­arnir kannski að gera verk­efni og það er spurt: „Hversu oft stundar þú kyn­líf?“. Svo fá þau mig sem leið­bein­anda, greyin, og ég fer beint í: „Hvað seg­irðu um kyn­líf? Ætlarðu ekk­ert að skil­greina það?“ Og þau svara: „Það vita allir hvað kyn­líf er.“ Nei, nei, nei.

Þannig að ég er alltaf að láta þau gera í sviga fyrir aftan: „Með kyn­lífi er átt við…“ Svo er tungu­málið líka oft svo kynjað. Þetta er svo mikil þjálfun í að grípa þetta allt og það er það sem kyn­fræðin leggur gíf­ur­lega áherslu á. Hún er í raun­inni mjög lítið í kynjapóli­tík. Hún fer meira í stað­al­mynd­irnar, eins og kynja­fræðin gerir líka. En svo erum við bara í sex­inu og öllum mögu­legum sam­setn­ingum. Við erum alltaf bara að fjalla um ein­stak­linga. Mér finnst miklu skemmti­legra að leika með það þegar við berum kennsl á stað­al­mynd­irnar, setjum þær til hliðar og segjum svo: „Hvað ef þú færð að vera bara mann­eskja, ekki með allar þessar hug­myndir um hvað þú átt að gera og hvernig þú átt að vera, hvernig liti það út?“

Dom, sub og switch

Sigga Dögg nefnir annað til sög­unnar, sem hún segir ekki hafa komið upp í nýlegu fjaðrafoki og umræðu varð­andi BDSM. Hún segir það ef til vill til marks um það hversu tak­mörkuð þekk­ingin á BDSM sé í raun.

„Það er umræðan um að vera switch. Það eru rosa­lega margar konur sem eru switchar. Það er verið að tala rosa­lega mikið um valda­dýnamík, en þú lærir nán­ast ekk­ert um valda­dýnamík fyrr en þú mætir í BDSM og ferð að setja þig inn í dom, sub og switch. Það er bara masterclass í valda­dýnamík. Að skilja hana og heyra upp­lifun fólks; það finnst mér sjúk­lega áhuga­vert.

Þegar við hugsum um dom og sub, þá er auð­veldasta útskýr­ingin að einn er yfir og hinn er undir. En sá sem er yfir, hann er ekki beint yfir-yfir, af því að sá sem hefur völdin er í raun og veru sá sem er undir. Því þú getur ekki verið yfir nema þú vitir hvað má gera við þann sem er undir og sá sem er undir semur regl­urnar; þetta má, þetta má ekki. Það er svo­lítið á ábyrgð þess sem er yfir að virða það, vita það og fylgj­ast með þeim sem er undir. Fylgjast með svip­brigðum, tékka inn, tékka á líðan, og svo að sá sem er undir noti örygg­is­orðin sín. Þannig að þetta eru sam­skipti á báða bóga, svo það að halda að einn sé yfir og megi bara gera allt – það er alls ekki svo. Að sá sem er undir verði bara að þola hvað sem er – það er alls ekki svo. Svo á sér oft stað rosa­lega fal­legt fyr­ir­bæri sem kall­ast after-care; þá er hlúð að, teng­ing, passað upp á. Þannig að þetta er ekki bara: ég kem, geri við þig og fer. Það er ekki dýnamíkin.

Hjá sumum er þetta mjög skýrt; „Ég er bara yfir, ég fer bara í dom-hlut­verk.“ Aðrir eru bara í sub-hlut­verki. Þar líður þeim vel. Það að vera dom krefst gíf­ur­legrar athygli; þú þarft að fylgj­ast svo vel með ástandi þess sem er sub-inn, til þess að geta lesið í allt og passað upp á, og þú átt svo­lítið að reyna að hafa stjórn á aðstæðum. Þú átt að reyna að gera allt sem í þínu valdi stendur til þess að sub-inum líði vel, af því að þú vilt fara í leik­inn sem var búið að ákveða. Það gerir þetta að mjög áhuga­verðri dýnamík.

Fólki hugn­ast kannski ekki að farið sé í lýs­ingar á því sem fólk er að gera; það finnst þeim óþægi­legt af því að það kannski tengir bara ekk­ert við þetta. Ég skil það mjög vel. Áður en ég kynnti mér BDSM þá skildi ég hvorki upp né niður í þessum heimi. En ég fór og setti mig inn í það og fór í mjög mik­inn lær­dóm þar til þess að skilja. Og BDSM hefur verið því­líkt mikið rann­sakað. Það er til dobía af rann­sóknum, af því að það eru svo margir sem spyrja hvað þetta sé, afhverju þetta sé heill­andi, hvað sé að þessu fólki… þannig að það er mjög áhuga­vert.

„Hvenær viltu gefa eftir vald og hvenær viltu stjórna?“

Svo ertu með fólk sem er switch og það þýðir að þú getur verið bæði dom eða sub, allt eftir kannski aðstæðum eða leik­fé­laga. Þá mát­arðu bæði hlut­verk. Á öllum svona BDSM nám­skeiðum og fræðslu sem ég hef sótt mér, þá er fólk hvatt til þess að máta báðar hliðar, hvort sem maður finnur sig í því eða ekki. Þannig að sama hvort það sé eins og þetta marg­um­rædda bre­ath play nám­skeið eða bind­ingar eða eitt­hvað svo­leiðis – þótt þú seg­ist ekki tengja við að láta binda þig, þá ertu samt beð­inn um að upp­lifa og finna hvernig er að vera hinum megin og þiggja þetta. Hvort sem þú svo leikur þannig með það eða ekki. Mér fannst það mjög áhuga­vert og hafði ekki dottið það í hug.

En svo eru einmitt sumir sem svissa á milli, allt eftir mann­eskj­unni. Þá skiptir ekk­ert máli hvort þú ert kona, karl eða kynsegin, eða hvort þú ert að leika með konu, karli eða kynsegin. Þetta er bara okkar dýnamík og það er svo­lítið okkar að tala um það. Ég hef reyndar hitt fleiri konur sem eru switchar, heldur en karla. Það þarf ekk­ert að þýða neitt. En það finnst mér áhuga­vert. Hvenær viltu, innan gæsalappa, gefa eftir vald og hvenær viltu stjórna?“

Valdaleikir

Þegar blaða­maður veltir fyrir sér hlut­falli karl­manna í dom-hlut­verki ann­ars­vegar og sub-hlut­verki hins­vegar hugsar Sigga Dögg málið en nefnir svo til sög­unnar þjón­ustu sem er í boði víða erlendis.

„Þar get­urðu víða keypt þjón­ustu svo­kall­aðrar dómínu, dom­in­at­rix á ensku. Þá get­urðu keypt þjón­ustu bara eins og við sjáum í sjón­varps­þáttum; þetta hefur verið í Billions og fleiri þáttum. Þar sem menn í streitu­fullum störfum fara og kaupa þjón­ustu dómínu, þar sem þeir vilja þá láta gera ákveðið við sig; sumir kalla þetta að nið­ur­lægja, sumir kalla þetta valda­leiki. Þeir borga fyrir þetta. Það er til. Ég veit ekki til þess að slíkt sé til hérna á Íslandi, að þú getir borgað fyrir dómínu. Þetta myndi telj­ast til kyn­lífs­vinnu, sem er nátt­úru­lega ólög­leg á Íslandi.

„Hæ, nenn­irðu að domma mig á laug­ar­dag­inn?“

Ég hef tekið eftir því innan BDSM sam­fé­lags­ins að það er rosa virkt sam­tal, að ég upp­lifi, að ef þú ert karl­maður og seg­ist vera dom, þá er ekk­ert leikið svo glað­lega með það. Þá er ekk­ert svona: „Hæ, nenn­irðu að domma mig á laug­ar­dag­inn?“ Þetta er meira þannig að við­kom­andi þurfi að eiga í ein­hverju sam­bandi við mann­eskj­una sem hann ætlar að fara inn í þennan leik með. Við þurfum að þekkj­ast, kynn­ast vel og vera með ákveðið traust og ákveð­inn grunn. En þeir kannski koma svo­lítið til dyr­anna þarna: „Þetta er það sem ég fíla, svona er ég, þetta er mín dýnamík; ertu til í þetta eða ekki?“

Sumir kannski upp­lifa að það sé verið að stilla fólki svo­lítið upp, en mér finnst ákveð­inn heið­ar­leiki í því að segja bara: „Ég veit hver ég er, ég þekki mig, svona tjái ég ást­ina mína, svona upp­lifi ég mig í kyn­lífi og ég vil að þú getir tekið upp­lýsta ákvörðun.“ Ekki: „Ef þú elskar mig þá ger­irðu þetta fyrir mig,“ heldur: „Tökum upp­lýsta ákvörðun í byrjun sam­tals­ins.“

Ég man eftir því að vin­kona mín var á Tinder og hún sagði við mig: „Ó mæ god, það er ein­hver gaur hérna að senda mér og hann er strax bara „fílarðu BDSM?“, þú veist, við erum búin að segja fjórar setn­ingar við hvort annað – slak­aðu á! Mér finnst þetta ógeðs­lega gróft.“

Ég sagði bara: „Veistu það, mér finnst þetta ógeðs­lega heið­ar­legt. Ef hann vill bara spjalla við fólk sem fílar BDSM þá er bara flott hjá honum að vinsa þig strax út. Þetta eru þín við­brögð, ég held að þú hafir ekk­ert erindi í að tala við þennan mann.“

Síðan er nátt­úru­lega líka hluti af þess­ari umræðu hvar sé öruggt rými og hvernig eigi að skapa það.“

Afsprengi ofbeldis og nauðgunarmenningar?

En hvað segir Sigga Dögg við þeirri stað­hæf­ingu að sumir vilji meina, í umræð­unni und­an­farið, að BDSM sé afsprengi ofbeldis- og nauðg­un­ar­menn­ingar? Að það sé bein­tengt kynja­mis­rétti?

„BDSM sem form­legt hug­tak, er í raun­inni yngra en iðkunin. Það að þessu hafi verið skeytt saman kemur í raun­inni upp úr bók­menntum – bók eftir Marquis de Sade, sem er ekki frá­bær bók og er í raun bara upp­full af ofbeldi. Ég komst ekki í gegnum hana. Justine heitir þekktasta bókin hans, og svo er The 120 days of Sodom. Hann var sad­isti og er ekki ein­hver til eft­ir­breytni. Oftast er þessi sad­ismi tal­inn koma frá honum, og þessu svo skeytt saman; þessu BDSM-i. En við sjáum til dæmis að bind­ingar, sem er stór hluti af BDSM hjá mörgum, eru bara margra alda gam­alt fyr­ir­bæri og er stór og rík hefð í Japan, til dæmis. Sama með hýð­ingar, fleng­ingar og bara alls­konar valda­leiki. Valda­leikir sem kannski eru und­ir­staða og kjarni BDSM.

„Að láta af stjórn og að stjórna – og að stíga inn í það“

Ég held að ein­hvers konar valda­dýnamík sé bara í eðli manns­ins, ef það er hægt að tala um það. Að gefa og sleppa. Að stjórna og láta af stjórn. Ég held að við séum í eðli okkar flest switch að ein­hverju leyti. Ég held að við höfum öll gott af báðu; þekk­ingu á báðu og að leyfa okkur bæði. Að láta af stjórn og að stjórna – og að stíga inn í það. Við erum þarna að leika með ein­hverja ákveðna grunn­þætti í okkur. Sem leyfir okkur kannski bara að sjá nýjar hliðar á okkur sjálfum. Þá verðum við líka að hafa þekk­ingu á því hvað við erum að leika með, hvað það felur í sér, hvernig við tölum um það eft­irá og hvernig við vinnum úr því sem kemur upp.“

Flestir í bergmálshelli

„Mér finnst það kannski líka ein­kenna þetta mál, að það er nátt­úru­lega svo mikið sam­tals­leysi á öllum víg­stöðvum, hvort sem það er í nánum sam­böndum, for­eldra­sam­tölum, vina­sam­tölum; það er þessi þögn og að halda að þú hugsir eins og ég. Við erum líka mörg hver í svo miklum berg­máls­helli. Ég held að það sé það dýr­mætasta við vinn­una mína. Það er rosa­lega auð­velt á net­inu að vera í berg­máls­helli. Ég hugs­aði það alveg; ég er búin að fá þús­undir skila­boða, það er búið að vera bara í hvert sinn sem ég opna sím­ann. Um leið og ég er búin að svara þá hrynja inn fleiri. Ég hef bara aldrei lent í öðru eins. Og ég hugs­aði: „Rosalega er auð­velt að vera í berg­máls­helli og halda bara; já, ég er best, allir elska mig!“

„Það er svo heil­brigt fyrir mann að mæta ólíkum sjón­ar­miðum“

Ég átta mig alveg á því sam­fé­lagið er stærra og fjöl­breytt­ara. Ég hef sinnt kyn­fræðslu um allt land, farið í alls­konar grunn­skóla og setið inni á kenn­ara­stofum. Ég sit alltaf inni á kenn­ara­stofum og svo bara hlusta ég. Ég hlusta bara á það sem fólkið er að spjalla um og ég spjalla við ein­hvern sem nennir að spjalla við mig; ein­hverja kenn­ara, spyr út í sveit­ar­fé­lagið, spyr út í alls­konar mál­efni. Þar kemst maður svo ógeðs­lega mikið að því að auð­vitað hugsa ekk­ert allir eins og minn litli Facebook-hópur, eða mitt 105 hverfi í Reykja­vík, eða 230 Keflavík, þaðan sem ég er. Það er svo heil­brigt fyrir mann að mæta ólíkum sjón­ar­miðum og hlusta á þau og taka til­lit til þeirra. Hugsa: „Hvað get ég lært af þessu? Af hverju ert þú þarna? En áhuga­vert.“ Og líka bara: „Ég sé þín sjón­ar­mið, ég er ósam­mála þeim, en ég sé þau og ég ætla ekki að berj­ast fyrir því að þú breytir þeim. Þér bara má finn­ast þetta. Það er bara þinn réttur.“

Allir þessir for­eldrar sem maður hefur hitt sem segja: „Ég er bara ósam­mála þessu.“ Það er allt í lagi. Þér má finn­ast það. Þetta er ekk­ert spurn­ing um að vera sam­mála eða ósam­mála í mikið af þessum málum. Eins og það að fræð­ast um lík­amann sinn.“

Hver er besta stellingin?

Sigga Dögg heldur áfram á sömu nótum.

„Við höfum tek­ist á um það hvort það megi fræða um rass­inn og enda­þarmsörvun. Það hefur hart verið tek­ist á um það. Þetta er lík­am­inn minn. Af hverju ætt­irðu ekki að mega fræð­ast um lík­amann þinn? Það fyrir mér er bara alltaf svo galið. Það er eng­inn í ein­hverjum stell­inga­æf­ingum.

„Kynlíf snýst ekki um tækn­ina, bara ekki neitt“

Þetta er svona mega djókur hjá mér með krökk­unum, því þau spyrja stundum: „Hvað, erum við að fara að læra að ríða?“ Svo ég segi: „Já, gott að þið komuð í þægi­legum fötum, af því að þú ert að fara að æfa þig í stell­ingum með sessu­nautnum þínum.“ Sem er ógeðs­lega gaman að segja, því yfir­leitt sitja strák­arnir saman og stelp­urnar saman. Þá kemur alltaf svona panikk og ég segi: „Þegar við erum búin að æfa stell­ingar þá æfum við sleik.“ Þá kemur svona tryll­ingur í bekk­inn og þá segi ég: „Slakiði á! Ég er að djóka, en ég náði athygli ykkar. Eigum við ekki bara að spjalla saman á rólegu nót­unum?“ og þau bara: „Jú!“. Bara til þess að sýna; hey, ég hef húmor fyrir þessu líka og ég veit að þið eruð hrædd og stressuð, ykkur finnst þetta óþægi­legt og vitið ekki hvað er að fara að ger­ast. Allt í einu er verið að fara að opna á eitt­hvað sem þið hafið beðið spennt eftir og þið eruð með alls­konar hug­myndir og eitt­hvað svona. Ég hef sagt við krakk­ana: „Ef ég héldi að þið þyrftuð að læra stell­inga­fræði, ef allar rann­sóknir sýndu að það væri það sem ung­lingar yrðu að læra, þá þyrftum við að kenna það. En kyn­líf snýst ekki um tækn­ina, bara ekki neitt. Þannig að við skulum tala um allt sem skiptir máli.“

Svo koma spurn­ing­arnar: „Hver er samt besta stell­ingin til þess að láta stelpu fá það?“ Ef ég er ein með stráka­hóp, þá kemur þessi spurn­ing alltaf. Alltaf, í tólf ár. „Hver er besta stell­ingin“, „skiptir stærðin máli“ og „hvað á maður að vera lengi“. Þetta er allt sam­fara­miðað; bara typpi inn í píku. Alltaf. Þá er svo geggjað tæki­færi til að tala um fjöl­breyti­leika kyn­lífs, tala um mik­il­vægi full­næg­ingar fyrir kyn­líf; hvað hún er ekki endi­lega mik­il­væg og hver ber ábyrgð á full­næg­ing­unni. Hvað þýðir það að fá full­næg­ingu, hvað ger­ist í kjöl­farið – allt í einu bara opn­ast risa­stórt sam­tal. Nautn mann­eskju sem þú ert með snýst ekki um að sýna hvað þú stendur þig vel, þetta er ekki frammi­stöðu­mál. Þá fer maður líka inn í það að það að vera góður í rúm­inu er að vera í sam­tali, að fá sam­þykki, að spjalla og spyrja, taka við leið­bein­ingum og gefa leið­bein­ingar. Það er að vera góður í bólinu. Þannig verð­urðu geggj­aður elsk­hugi. Að hrósa, vera ein­lægur, vilja mann­eskj­unni vel, passa upp á þinn lík­ama og bera ábyrgð á eigin lík­ama. Þá er spurt: „Já okei, ertu þá að segja að typpið skipti ekk­ert svo miklu máli?“ „Nei, bara eig­in­lega svaka­lega litlu máli. Það er eig­in­lega algjört auka­at­riði í kyn­lífi.“

Það er svo gott að fá þetta tæki­færi, því þau eru búin að hengja allt á að hann þurfi að ná honum upp, hann þurfi að per­forma þetta lengi, þetta hratt, í þess­ari stell­ingu og maður á að fara í fjórar stell­ingar og… ef eng­inn segir við þau: „Nei maður. Það er allt í lagi að vera bara í einni stell­ingu, ef ykkur langar þá í það. Það þarf ekki einu sinni að gera það. Það má líka bara vera eitt­hvað allt annað.“

Þau spyrja: „Í alvör­unni? Gera það ekki allir?“ og ég segi þeim oft: „For­eldrar ykkar, þau eru ekki alltaf að gera það.“ Þegar maður segir þeim að for­eldrar stundi mjög fjöl­breytt kyn­líf eru þau bara: „HA?“ Af því að þau halda bara að allt full­orðið fólk stundi sam­farir. Bara limur í leggöng. Kannski ein­hverjir perrar sem taka í rass. Limur í leggöng er full­orð­ins kyn­líf; for­eldrar fróa sér ekki, for­eldrar stunda ekki munn­mök, for­eldrar bara „gera það“. Maður segir við þau: „Nei, það er ekki þannig. For­eldrar fróa sér.“ Og þau segja: „Ha, af hverju? Þau hafa hvort annað.“ Þau afhjúpa sig svo mikið. Þau eru bara ein stór augu og for­vitni, og þá er svo gaman að mæta og sprengja á kýli og fara inn í hitt og þetta.

Kennarar hafa lent í að fara yfir línuna

„Ég hef oft fengið kenn­ara sem segja við mig að þeir hefðu dáið ef þeir hefðu þurft að standa þarna, þeim hefði þótt þetta svo vand­ræða­legt og verið hrædd við að fara yfir lín­una. En svo hef ég alveg fengið sögur af kenn­urum sem hafa farið vel yfir lín­una og hafa verið látnir fara frá skólum vegna þess hvað þeir fóru langt yfir lín­una. Ég hef tekið við þessum bekkjum, þar sem ég hef farið til skóla­stjór­ans eft­irá og spurt hvað hafi komið fyrir bekk­inn. Því bekk­ur­inn hafði mjög óeðli­lega þekk­ingu, miðað við aldur og þroska.

„Hann hefur ekki fengið neinn stuðn­ing í því hvað hann ætti að kenna“

Þannig að maður hefur séð það og þá hef ég bara hugsað: „Elsku kenn­ari.“ Hann hefur ekki fengið neinn stuðn­ing í því hvað hann ætti að kenna. Hann hefur örugg­lega verið að reyna að gera þetta vel, eins og flestir reyna. Ég hef setið með kenn­ara sem sagði: „Þú ert alltaf að tala um sleipi­efni og ég fylgist með þér á Instagram. Þannig að ég sagði bara við krakk­ana: „Alltaf kókosolíu! Ég nota það og það er best“. Ég sagði að það mætti aldrei nota kókosolíu á kyn­færin, hún er bakt­er­íu­drep­andi, ógeðs­lega vond fyrir pík­una og skemmir smokk­inn. Og kenn­ar­inn bara: „Ertu að djóka? Ég er búinn að segja þetta við svona þrjá árganga.“ Ég sá að kenn­ar­inn var bara miður sín. „Ber ég ábyrgð á ung­linga­þung­unum og kyn­sjúk­dómum og sveppa­sýk­ingum og….“ Ég sagði við hann: „Vilt þú plís hætta að setja kókosolíu á kyn­færin þín og kyn­færi makans þíns? Sleipi­efni er ekki kókos­olía. Ég tek það alltaf skýrt fram. Það heitir sleipi­efni.“

Ef kenn­arar fá engan stuðn­ing, hvar eiga þeir þá að finna efnið?“

„Hef heyrt um að skólum sé bannað að fá mig, því ég þyki svo klám­vædd“

En hafa umræddir kenn­arar þá gengið of langt í kyn­fræðsl­unni? Hversu langt er of langt farið?

„Mjög, mjög langt. Miklu lengra en ég hef nokkurn tíma farið. Þá hefur maður þurft að vinda ofan af því og taka fund með skóla­stjórn­endum, taka kannski sér­staka kyn­fræðslu með krökk­unum, án þess þó nokkurn tíma að kasta kenn­ar­anum undir rút­una. Það er aldrei þannig að maður segi: „Kenn­ar­inn ykkar var bjáni“. Ég hef hins­vegar fengið að heyra það um mig. Ég hef fengið að heyra það að kenn­arar segi krökk­unum að taka ekki neitt mark á þess­ari kell­ingu sem hafi komið þangað með kyn­fræðsl­una. Þetta er ótrú­legt. Ég hef heyrt talað um það á lok­uðum Facebook-hópum að skólum sé bannað að fá mig, af því að ég þyki svo klám­vædd. Þetta er ennþá í gangi sko. Ég var að fá ein svo­leiðis skila­boð, bara opin­ber­lega á Facebook. „Ég hringdi í skóla dóttur minnar til að tryggja að þú færir ekki þangað inn með þína klám­fræðslu.“

Hélt að hann yrði kynferðisbrotamaður af því að hann sá klám

Blaða­maður biður Siggu Dögg um að fara aðeins yfir þetta; hvers vegna sumir segi að hún sé klám­vædd og hver hennar nálgun sé þegar kemur að klámi. Sumir hafi til að mynda gagn­rýnt það að hún ræði klám í kyn­fræðslu og tali yfir höfuð um það sem mögu­leika og hluta af heild­inni.

Sigga Dögg seg­ist fyrir það fyrsta ekki skilja hvað fólk eigi við þegar það segi að hún sé klám­vædd.

„Klám er undir fimm mín­útna sam­tal“

„Þetta er klukku­tíma fræðsla og mig minnir að þetta séu tíu glærur. Klám er ein, af tíu. Klám er undir fimm mín­útna sam­tal. Af því að allar hinar 55 mín­út­urnar fara í sam­þykki, mörk og sam­tal, með allt. Þegar við tölum um pík­una, eða hvað sem er annað; sam­þykki, mörk og sam­tal. Þetta er bara rauði þráð­ur­inn í gegnum allt. Þannig að þú ert bara búinn að vinda ofan af ofboðs­lega miklu, þegar kemur svo að klám­inu.

Ég hef verið með dreng í tíma hjá mér sem fór að gráta, vegna þess að hann hélt að hann yrði kyn­ferð­is­brota­maður af því að hann sá klám. Hann er ekki sá eini. Þannig að umræðan er líka þar. Þeir eru svo hræddir. „Verð ég nauð­gari? Er ég ógeðs­legur? Er ég ofbeld­is­maður? Er ég hættu­legur?“ Þetta er umræða sem þarf að vinda ofan af líka. Þannig að ég hef útskýrt fyrir krökk­unum hvað klám er og hvað það er ekki. Klám er ekki kyn­fræðsla, klám er ekki til að herma eftir, og þetta styðja íslenskar rann­sóknir; að ung­lingar í dag vita þetta. Þau vita að klám er ekki kyn­fræðsla. Mig minnir að Rann­sóknir og grein­ing hafi birt þá töl­fræði. Hvort ég las það líka í ein­hverri nýlegri nema­rann­sókn. Þau ná þessu, þau vita þetta. Þannig að það er búið að hamra þetta vel og dug­lega inn núna í meira en ára­tug; klám er ekki kyn­fræðsla. Ókei.

„Mæli með því að þú stígir til hliðar og virkir ímynd­un­ar­aflið“

Þannig að ég legg svolitla áherslu á að vera ekki að herma eftir ef þú sérð eitt­hvað, ég útskýri fyrir þeim að sumum finn­ist þetta spenn­andi, sumum finn­ist þetta áhuga­vert, sumum finn­ist þetta æsandi og sumum finn­ist þetta fyndið. Að það séu alls­konar ástæður fyrir því að sumir kíki á klám en sumum finnst þetta ógeðs­legt og við eigum alltaf að virða það að ef við sjáum klám og okkur finnst það snið­ugt, þá flössum við því aldrei framan í næsta mann eða pínum aðra til að horfa. Við gerum það aldrei. Og ég útskýri fyrir þeim að ef þú ert að nota klám til að fróa þér til dæmis, til þess að æsa þig fyrir sjálfs­fróun, þá mæli ég alltaf með því að þú stígir aðeins til hliðar, geymir sím­ann eða spjald­tölv­una, og virkir ímynd­un­ar­aflið. Þá tölum við um það, að allir töfr­arnir ger­ast í ímynd­un­ar­afl­inu.

„Það eru aftökur á net­inu, það er bara allt á net­inu“

Ef að þú svo í fram­tíð­inni kýst að stunda kyn­líf með annarri mann­eskju, þá er ímynd­un­ar­aflið það sem þú þarft að nota og svo sam­skiptin við þá mann­eskju. Þú ert aldrei að fara að setja spjald­tölvu við hlið­ina á og segja: „Afsakið, má ég streyma þessu á meðan við erum að gera það?“. Það virkar ekki þannig. Ég segi þeim að þau verði að fatta að þó við horfum á alls­konar efni og sumt til afþrey­ingar, sama hvort okkur geðj­ast það eða ekki, þá þarf að hugsa klám svo­lítið eins. Þetta á ekki að móta hug­mynd­irnar okkar. Það sem mér finnst svo áhuga­vert í þessu sam­hengi er að það er alltaf verið að tala um að ung­lingar á Íslandi eigi met í klá­m­á­horfi. Hvað þýðir það? Af því að við tölum alltaf um að þau byrji ell­efu ára að horfa, að þau séu svo ung þegar þau byrji að horfa. Við erum í tækni­væddum heimi og stundum slys­ast þau inn á það, sem við viljum nátt­úru­lega ekki. Þá þurfum við að vinda ofan af því og ég geri það einmitt í 5. bekk þegar ég er að tala um alls­konar hluti sem eru á net­inu. Það eru aftökur á net­inu, það er bara allt á net­inu. Maður þarf rosa­lega mikið að vernda þau fyrir raun­veru­leik­anum sem er þarna úti, en ekki með því að segja að hann sé ekki til. Heldur með því að segja: „Þú verður að velja að fara ekki þangað og ég ætla að reyna að hjálpa þér.“

„Við þurfum að grípa fyrr inn í“

Hvað ger­ist um ell­efu ára? Þau eru að fara á kyn­þrosk­ann, þau eru for­vitin, þau hafa spurn­ingar. Þetta ætti frekar að sýna okkur hvar kyn­fræðslan þarf að byrja. Ef þau eru að byrja að skoða þetta þarna, þá segir það okkur að það sé komin for­vitni og við vitum það þroska­lega séð og horm­óna­lega séð. Þannig að við þurfum að taka sam­talið fyrr. Við þurfum að grípa fyrr inn í. Ég held að flestir séu sam­mála um það.“

Ofbeldi í lagi en ekki kynferðislegt efni

Sigga Dögg bendir á ákveð­inn tví­skinn­ung sem sé ríkj­andi í vest­rænni menn­ingu.

„Ég til dæmis fór í bíó um dag­inn, á bíó­mynd í stóru bíó­húsi með fullt af fólki í salnum. Ég vissi ekki að þetta væri svona mikil ofbeld­is­mynd. Ég horfði á þegar það var stungið í gegnum auga og sverð tekið hægt út – enda­laust af blóði. Ég horfði á aftöku og ógeðs­legt ofbeldi, allt með fullt af blóði og slíku. Það var nauðg­un­ar­sena í þess­ari mynd og miðað við ofbeldið sem þeir sýna, þá sýna þeir nauðg­un­ina sem svona fjög­urra sek­úndna senu, langt frá og ekk­ert sýnt nema bara að þú veist að hann er að hafa sam­farir við hana. Ég hugs­aði bara: „Vá, sjá­iði móral­ismann?“ Ég hef aldrei séð jafn skýran móral­isma.

Þú leyfir þér ógeðs­lega miklar blóðsút­hell­ingar, menn að pynta menn; berja, kremja, marnir, blóð frá öllum stöðum. En svo má nátt­úru­lega aldrei sýna konu á túr og aldrei sýna kyn­færi – guð hjálpi okkur og forði okkur frá því. Sjáiði móral­ismann? Þetta birt­ist mér svo skýrt í þessu bíó­húsi. Það er fullt af efni sem ég kalla ekki afþr­ey­ingu og hef ekki gaman af en aðrir hafa það. Verði þeim að því. Það er eitt af þessu sem mér finnst við eiga svo erfitt með í þessu sam­tali, þegar kemur að klámi, þá er stefið þannig að þetta séu alltaf karl­menn að meiða konur.“

Klám ekki það sama og klám

„Klám er rosa­lega stór heimur með rosa­lega miklu alls­konar. Við vitum ekki hvað krakk­arnir eru að horfa á sem við erum oft að tala um. Krakkar spyrja stundum að því: „Ég hef séð sumt svona klám og sumt af þessu er svo skrýtið. Fílar fólk þetta?“ Þá fá þau tæki­færi til að spyrja. Fílar fólk þetta? Afhverju gerir fólk þetta? Þá á ekki að for­dæma þessa hegðun, hvort sem það flokk­ist sem kyn­hegðun eða ekki – það er líka svo­lítið undir ein­stak­lingnum komið. Að fá frekar tæki­færi til að útskýra: „Þetta er svo­lítið ódæmi­gert, þetta er svo­lítið óal­gengt, þetta er eitt­hvað sem að, alveg eins og með allt, þá þarftu alltaf að fá sam­þykki, en þetta er ekki eitt­hvað sem margir gera.“ Þá spyrja þau um annað skrýtið sem þau hafa séð á net­inu og þá kemur alltaf eitt­hvað upp.

„Hvað erum við að horfa á og hvað gefur það okkur?“

Þannig að ég er alltaf að reyna að fá þau til að vera ábyrgir neyt­endur; að við séum svo­lítið skyn­söm með hvað við erum að setja ofan í okkur. Hvað erum við að horfa á og hvað gefur það okkur? Þannig að ég er alltaf að segja við þau að ímynd­un­ar­aflið er það dýr­mætasta sem þau eiga og að þar megi þau til dæmis vera með alla karakt­er­ana í Harry Potter; ég segi að þau megi hugsa um kentár­inn, þau megi hugsa um tröllin, þau megi hugsa um Harry og Hermione sem par, þau megi hugsa um Harry og Ron sem par. Ég tek alls­konar svona dæmi og þau eru bara: „Ó mæ god, Harry og Ron, það væri epískt!“ Ég segi: „Leyfið ykkur þetta. Það er dýr­mæt­ara en það sem er á net­inu getur gefið ykkur, af því að það er mikið af drasli þar. Flest af því er bara skrýtið og óþægi­legt. En ekki vera hrædd ef þið sjáið alls­bert fólk að gera eitt­hvað og þið finnið að kyn­færin ykkar fara af stað. Það er ekk­ert til að ótt­ast; það þýðir ekk­ert um ykkur. Það þýðir ekki að þú fílir þetta.“

Ég var með einn strák sem var miður sín af því að hann hélt að hann væri hommi, því hann fékk bóner þegar það voru tveir gaurar saman. Þá fórum við bara að tala um hvað það er að vera hommi, hvað er ekki að vera hommi, allt þetta. Ég sagði: „Þetta er ekk­ert hættu­legt. Líkaminn okkar bregst oft við nekt, það er allt í lagi.“ Svo þetta er sam­tal sem þarf að vinda ofan af.

„Þetta er þarna úti, hvaða mót­vægi viljið þið sjá?“

Svo þegar ég tala við for­eldra þá hef ég einmitt sagt þetta: „Ókei, þetta er þarna úti, hvaða mót­vægi viljið þið sjá?“ Af því að það er mót­vægi í klám­heim­inum, hann er stór. Það eru fem­inískir fram­leið­endur sem eru að reyna að vera með mót­vægi, eru að reyna að skapa betri heim, en ef þið skoðið kyn­hegð­un­ina kann ykkur að þykja hún ógeð­felld eða að hún hugn­ist ykkur ekki. Af því að það að vera fem­inískur klám­fram­leið­andi þýðir ekki að þú bannir enda­þarms­mök. Þannig að ég er líka alltaf í þessu. Hvaða heim viljið þið sjá, eigum við að taka það sam­tal? Mér finnst við oft vera ógeðs­lega for­dæm­andi á kyn­hegðun þegar við erum að tala um klámið og segjum að þetta sé allt ofbeldi. Hvernig veistu það og af hverju? Þannig að ég spyr oft: „Hvað viltu sjá? Viltu fyrst sjá leik­ar­ana segja að þau veiti fullt sam­þykki, að þau séu þarna á sínum for­sendum? Viltu fá við­tal eft­irá og heyra hvernig þeim leið? Af því að það er til.“

Samtalið sem enginn kynfræðingur vill taka

Sigga Dögg seg­ist vilja að við dýpkum þetta sam­tal.

„Við erum komin miklu lengra, eða ættum alla­vega að vera komin miklu lengra. En þetta er sam­talið sem eng­inn kyn­fræð­ingur nennir að fara í í fjöl­miðlum. Þetta er sam­talið sem eng­inn kyn­fræð­ingur nennir að sitja fyrir svörum í, af því að, eins og ég er búin að finna í tólf ár, þá ertu bara „klám­konan“. Það er sagt: „Þú elskar klám, þú styður klám og þú hvetur til kláms“

„Ég hef aldrei bent ung­lingum á klám“

Ég hef aldrei gert það. Ég hef aldrei sagt við ung­ling: „Skelltu spólu í tækið og hafðu gaman.“ Það er ekki það sem ég hef gert. Þegar ég hef verið með full­orðið fólk hef ég talað um hlað­vörp, ég hef talað um bækur og ég hef talað um nokkrar vef­síður sem sýna líka mynd­skeið. Ef fólki hugn­ast þetta þá geti það skoðað það.

Ég hef aldrei bent ung­lingum á klám, mætt með klám – en þau spyrja: „Hvað er upp­á­haldið þitt á Pornhub? Horfir þú á Pornhub?“ Ég hef sagt við þau: „Nei, ég styð ekki við svona. Þetta er líka bara stolið efni og það er bara margt þarna sem mér finnst óþægi­legt að horfa á og skrýtið og ég fíla það ekki. Ég vil bara vita að öllum líði vel og ég vil sjá alls­konar aðra hluti og fal­legt sam­tal. Svo reyndar finnst mér þetta ekk­ert svo skemmti­legt, þannig að ég eyði tím­anum mínum í annað.“ Svo segi ég við þau: „Ímynd­un­ar­aflið mitt er fjórtán sinnum brjál­aðra heldur en nokkuð sem ég gæti fundið á net­inu.“ Og þau bara: „Nei?!“ Og ég svara: „Jú. Bara glimmer, ein­hyrn­ingar, geim­verur og bara alls­ber í kleinu­hringja­búð.“ Og þau bara: „Allsber í kleinu­hringja­búð?! Hvað þýðir það?“ Þá segi ég: „Sjáiði. Það er allt frelsi þar.“

Klámlæsi og kynlífslæsi

„Svo les ég íslenskar bók­menntir og bók­menntir fá rosa­legt frelsi, að sjálf­sögðu. Nema ef þær fjalla um kyn­líf. Við hötum ekki glæpa­sögur hérna á Íslandi, þetta eru best sell­er­arnir okkar ár eftir ár, og þar fer aldeilis ekki lítið fyrir við­bjóði og fólk er nafn­greint. Eins og í bók sem kom út síð­ustu jól, þar var ég alveg að gef­ast upp. Mér fannst þetta svo yfir­gengi­lega mikið ofbeldi. Þessari bók er nátt­úru­lega hampað úti um allt. Geggj­aður best seller, fólk er nafn­greint og því er lýst hvað þetta sé ömur­legt fólk, hverslags ofbeldi og hvernig fólk deyr og svona. Þetta má, en ef þau væru að ríða hvort öðru, guð hjálpi okkur öllum. Þetta er svo áhuga­vert. Hvernig sjá­iði ekki móral­ismann? Hvernig sjá­iði ekki tví­skinn­ung­inn?

Um leið og það er komið kyn­líf inn í bók­mennt­irnar, þá eru þetta sjálf­krafa orðnar ein­hverjar stelpu­bók­menntir; eitt­hvað chick flick. Við erum sem­sagt ann­ars vegar að segja að konur séu ekki fyrir þetta, en samt erum við að segja að konur séu fyrir þetta, af því að við setjum þetta í flokk­inn þeirra. Ég skil ekk­ert. Þannig að tví­skinn­ung­ur­inn er alger.

Ég er svona að reyna að létta af skömm hjá krökkum og reyna að segja við þau að það sé skilj­an­legt að vera for­vit­inn og það sé allt í lagi. Það eru ákveðnir hlutir sem þú þarft að vita og þetta er það sem innan kyn­fræðsl­unnar er kallað klám­læsi og kyn­lífslæsi. Alveg eins og kom fram í þess­ari blessuðu kreppu sem við gengum í gegnum; fjöl­miðla­læsi. Gagn­rýnin hugsun. Það er nátt­úru­lega verk­efni skóla­kerf­is­ins og lífs­ins; gagn­rýnin hugsun. Svo þú endir ekki í berg­máls­helli og haldir að allir séu eins og þú. Að þeir séu skrýtnir ef þeir eru ekki eins og þú. Það er sam­talið sem ég tek með þeim. Og yfir­leitt þegar ég spyr krakk­ana hvort klám sé kyn­fræðsla þá er svarið alltaf á þá leið að þau viti að klám sé ekki kyn­fræðsla og að þau séu búin að heyra þetta svo oft. „Geggjað, þá ætlum við bara að heyra það einu sinni enn!“

„Þau vilja vita raun­veru­legu hlut­ina“

„Það er svo margt sem þarf að taka fyrir í kyn­fræðslu og þegar maður vopnar þau með þekk­ing­unni um kyn­líf, hvað það er og hvað það er ekki, þá fær klámið svo lítið pláss. Mér finnst þau ekk­ert langa að eyða neitt rosa­lega miklum tíma í það. Af því að þau vilja vita raun­veru­legu hlut­ina. Þau vilja vita um þennan sníp og hvernig hann virkar. Hvaðan kemur brundið, klár­ast það og kemur enda­laust? Bara svona alls­konar praktískar spurn­ingar.

Ég hef geymt hverja ein­ustu nafn­lausu spurn­ingu á tólf árum, hverja ein­ustu á hverjum ein­asta fyr­ir­lestri. Af því að ég les reglu­lega í gegnum þær. Þær eru líka að móta og forma mína fræðslu. Þær minna mig á það ef eitt­hvað hefur verið að koma mikið upp, að ég þurfi þá að muna eftir því. Sumt er líka erfitt að segja upp­hátt. Þannig að þá er ég með putt­ann á púls­inum. Þetta eru líka sönn­un­ar­gögn fyrir mig, vegna þess að ég er ekki marg­faldur per­sónu­leiki; ég get ekki skrifað með svona ólíkri rit­hönd. Þetta er líka fyrir mig til þess að geta sýnt fram á hver raun­veru­leik­inn sé. Ég held á honum, hann varð ekki til í hug­anum á mér, ég er ekki kreisí. Ég á sönn­un­ar­gögn. Þetta skrif­uðu íslensku ung­ling­arnir og réttu mér.

„Ég er ekki að gera þetta til þess að verða vin­sælasta kona Íslands“

Ég veit nefni­lega af þess­ari umræðu. Ég veit að það eru ein­hver spjót sem, að því er virð­ist, bíða eftir því að: „Hah, djöf­ull ætla ég að ná henni, nú skal ég hanka hana!“. Þetta er til að kjarna sig, svo maður missi ekki þráð­inn eða missi ekki damp­inn og verði ekki of hræddur. Að hugsa: „Nei, fyrir hvern er ég að gera þetta?“ Ég er ekki að gera þetta til þess að verða vin­sælasta kona Íslands. Ég er ekki að gera þetta til þess að vera skemmti­leg­ust og best. Ég er að gera þetta af því að þetta skiptir máli. Fyrir hverja skiptir þetta máli og hvernig skiptir máli að gera þetta?

Þá er það bara að sökkva sér ofan í fræðin, sökkva sér ofan í vinn­una og vera aldrei haf­inn yfir gagn­rýni. Ég hef fengið alls­konar gagn­rýni og setið með kenn­urum og skóla­stjórum sem hafa sagt: „Heyrðu, ég var pínu ósátt með að þú orð­aðir þetta svona.“ Þá hef ég svarað: „Já, góður punktur. Hvernig hefð­irðu viljað að ég hefði orðað þetta?“ Þá hefur kannski komið: „Þú hefðir getað sagt ef, í stað­inn fyrir þegar.“ Þá hef ég svarað: „Vá, það er frá­bær punktur, takk. Ég mun aldrei segja þegar aftur, ég mun alltaf segja ef.“ Þá er fólk yfir­leitt bara sátt.“

Erum að tala um líkama, lífið og líðan

„En að segja við ung­linga að fara að halda eitt­hvað rangt um klám og ofbeldi, hvaða til­gangi þjónar það? Getum við í stað­inn fók­usað á kyn­líf í raun­heimum með lík­am­anum okkar og svo ef við ætlum að vera með annarri mann­eskju. Getum við farið þangað? Hvernig lítur það út?

Þannig að ég vil bara alltaf draga sam­talið þangað og reyni það eftir fremsta megni. Við erum í kyn­fræðslu, við erum að tala um lík­amann okkar, lífið og hvernig okkur líður. Það að kyn­líf sé val í okkar lífi en ekki skylda eða kvöð og að það segi ekk­ert til um okkur sem mann­eskjur. Segi ekk­ert til um okkur, hvaða áhuga­mál við höfum og hvort við komum vel fram við aðra. Við eigum ekki að láta kyn­líf skil­greina það.

„Ég skil ekki að druslu­skömm falli ekki undir ein­eltis­á­ætlun“

Það er ennþá druslu­skömm, hún lifir góðu lífi og ég skil ekki að druslu­skömm falli ekki undir ein­eltis­á­ætlun. Ég hef oftar en ekki gripið það í skólum; þar sem stelpur hafa verið druslu­skammaðar í tvö til þrjú ár og það er engin ein­eltis­á­ætlun sem fer af stað þar. Ég var með eina í tíunda bekk í hit­tífyrra, fyrir Covid, sem var að segja mér þetta, og ég horfði bara á kennar­ann og spurði: „Eruð þið ekki með ein­eltis­á­ætlun? Er það ekki bara í íslenskum skóla­lögum eða eitt­hvað? Þetta er ekk­ert annað og það á að virkja ein­eltis­á­ætl­un­ina ykkar. Barnið er búið að sitja undir þessu allan þennan tíma.“ Og þar sagði ég við stelpuna: „Þú mátt stunda allt það kyn­líf sem þú vilt, eins og þú vilt, með eins mörgum og þú vilt. Þú mátt líka sleppa því alfarið að stunda kyn­líf.“ Af því að þetta eru alltaf öfgarnar; þú ert annað hvort drusla eða tepra. Þú ert kynköld eða greddu­padda. Þannig að það er svo erfitt stundum að vera til, sér­stak­lega ef þú ert kona, því það eru svo margar reglur. Þá langar mig að gefa þér rými til þess að finna hver þú ert sem mann­eskja, ef við gleymum öllu hinu.

Ég ferð­að­ist um landið með Heimili og skóla, með sér­staka fyr­ir­lestr­a­röð sem fjall­aði um hver þú værir sem mann­eskja, sjálfs­styrk­ingu, sam­bönd og sam­skipti í sam­böndum, til þess að fara einmitt inn á þetta; hvernig spjöllum við saman? Hvernig tökum við við höfnun? Hvernig látum við af alls­konar ofbeld­is­hegðun, í sam­skiptum við vini og svo kæró? Það spannst alveg ótrú­lega mikið og flott sam­tal út frá því. Það var sjúk­lega dýr­mætt.

Þannig að ég myndi segja að ég væri með fæt­urna bara alveg ágæt­lega á jörð­inni, þótt ég sé líka hvat­vís og ögri og segi alls­konar hluti. Þegar ég er með full­orð­ins­fræðslu, þá fer ég ógeðs­lega langt oft. Ég segi: „Jæja, eruði til­búin fyrir svo­lítið óþægi­legt?“ Svo sé ég að það er sjokker­andi og þá segi ég: „Ókei. Nú erum við búin að fara svo­lítið langt. Nú ætlum við aðeins að bakka – og þið sjáið að ég var bara að segja orð. Ykkur þótti þau óþægi­leg. Nú skulum við aðeins skoða það. Hvað var óþægi­legt við þetta? Afhverju er þetta óþægi­legt?“ Þannig að þetta er alltaf þetta sam­tal fram og til baka, og það er ekk­ert hægt að bera saman full­orð­ins- og ung­linga­fræðslu. Eins og hefur kannski aðeins verið slegið saman hérna.“

Misskilningurinn um kyrkingarnar

Þarna kemur Sigga Dögg inn á hinar alræmdu kyrk­ingar og þá stað­reynd að ákveðnir ein­stak­lingar virð­ast hafa mis­skilið málið nokkuð dug­lega. Svo­kallað bre­ath play nám­skeið, sem Sigga Dögg hafði talað um á Instagram-reikn­ingi sínum, var nám­skeið fyrir full­orðna, sem hún sótti sjálf sem gestur. Það var erlendur sér­fræð­ingur sem hafði verið feng­inn til þess að halda nám­skeiðið. Sigga Dögg hélt það sem­sagt ekki sjálf.

„Ég vissi mjög lítið um bre­ath play. Maður hafði heyrt um kyrk­ingar og það var nú einmitt fyr­ir­sögn í DV, þar sem ég var gagn­rýnd fyrir að gagn­rýna kyrk­ingar. Það er vand­lifað í þessum heimi.

„Mér dytti aldrei í hug að segja við ung­linga: Ekki gera það“

En í mínum huga er þetta eitt­hvað sem er hættu­legt, það þarf að passa sig. Ef fólk fílar það, allt í lagi. Mér dytti aldrei í hug að segja við ung­linga: Ekki gera það. En þegar ég hef verið spurð út í það hef ég alltaf lagt gíf­ur­lega áherslu á að þetta sé rosa­lega vanda­samt. Ég var með hóp þar sem við vorum að tala um þetta, og ég sagði: „Ef kyn­líf byggir á sam­tali og sam­þykki, virku sam­þykki, þar sem þarf reglu­lega að fá sam­þykki fyrir öllu sem er verið að gera – ef mann­eskjan getur ekki tjáð sig, þá er sam­þykki ekki til staðar. Ef mann­eskjan er með­vit­und­ar­laus, þá er ekki sam­þykki til staðar. Hvað eruði að gera þegar þið eruð að þrengja að önd­un­ar­vegi?“ Þá fórum við í gegnum það ef þú vildir ekki gera þetta; hvað ef þú vildir ekki fá hönd á háls, hvað ef þú vildir ekki leggja hönd á háls. Fram og til baka í þá dýnamík. Og ég sagði: „Kannski er bara spenn­andi að prófa í smá stund að leggja hönd á háls og sjá hvernig það er. Hvernig líður þér með að vera höndin? Hvernig líður þér með að vera háls­inn? Þá þarf aftur að tékka inn; hvað finnst okkur um þetta? Hvernig líður þér og hvernig líður mér?“ Þannig að við höfum alltaf talað um þetta á svona ótrú­lega mildum og þægi­legum, mjúkum nótum. Aldrei þannig að þetta sé bara: „Heyrðu og svo, einn, tveir og let’s go!“ Þetta er aldrei þannig og hefur aldrei verið þannig. Mun aldrei verða. Ekki heldur fyrir full­orðna. Ég myndi aldrei mæla með því fyrir neinn að vera með neitt sur­prise elem­ent í kyn­lífi. Spurðu, áður en þú gerir.

Á þessu bre­ath play nám­skeiði var farið í alls­konar tækni, það var farið í örygg­is­at­riði, meðal ann­ars eitt sem ég deildi strax á Instagram, sem er upp­hafið að þessu öllu saman. Ég lærði sem­sagt á nám­skeið­inu að það eru tvær æðar á háls­inum og ef þú klemmir þær báðar þá stöðv­arðu blóð­fæði og þar með súr­efn­is­flæði upp til heil­ans. Þegar fólk er að leika sér með kyrk­ingar, þá meina ég til þess að láta líða yfir sig, þá er það að gera þetta. Þetta getur byrjað að valda skaða innan tíu sek­úndna, held ég. Mér fannst ég verða að segja frá þessu.

Ég man eftir þessu, að krakk­arnir voru að gera þetta þegar ég var í grunn­skóla. Ég reyndar gerði þetta ekki, af því að ég var hrædd. En vin­konur mínar gerðu þetta og það var sér­stakur staður á skóla­lóð­inni þar sem krakk­arnir voru að þessu.

Ég hefði nú bara viljað að ein­hverjir sjúkra­liðar eða læknar hefðu gripið inn í umræð­una hér. En mér skilst sem­sagt að ef mann­eskjan rankar ekki við sér innan þess­ara tíu sek­úndna, þá getur það farið að valda súr­efn­is­skorti í heila, sem er mjög hættu­legur. Þá getur verið erfitt að vinna aftur ein­hvern óaft­ur­kræfan skaða.

Ég hugs­aði bara: „Fólk er búið að vera að leika sér með þetta, er fólk að gera þetta þannig að það er kannski að líða yfir það? Kannski er það orðið kikkið.“

Svo ég fór strax um kvöldið, eftir nám­skeiðið, á Instagram og sagði: „Ég verð að segja ykkur! Hérna eru tvær æðar og þið verðið að passa, ef þið eruð að leika ykkur með þetta, að gera þetta ekki svona. Við lærðum þessa tækni; þá get­urðu farið, ef þú vilt, fastar og harðar. Ef ykkur finnst það æsandi. Bara ekki þessar æðar! Þetta er mál sem er búið að vera vin­sælt og í deigl­unni, ég tek þetta oft fyrir í skólum þegar það er spurt um þetta og ég hef útskýrt sam­þykki fyrir krökk­unum.“

Krakk­arnir hafa spurt til dæmis um rass­skell­ingu. Þá tek ég sam­þykk­isum­ræðu með þeim og útfærslan okkar er rass­skell­ing. Þá tökum við þetta alveg frá því að ég er með hugs­un­ina: „mig langar að rass­skella þig“ eða „mig langar að þú rass­skellir mig“ og þá tökum við sam­talið alveg frá A til Ö. Áður en rass­skell­ing á sér stað, í fyrsta sam­tali, þangað til hún er búin – ef það var sam­þykki fyrir rass­skell­ingu. Við tökum þetta alveg fyrir og kryfjum. Við höfum gert það líka með þetta háls­taks­mál. Þá hef ég alltaf verið að leggja gíf­ur­lega áherslu á hvað þetta er hættu­legt og vanda­samt og afhverju sumum þyki þetta æsandi og hvernig það lítur út.

BDSM sam­tökin eru yfir­leitt ekki með fræðslu fyrir ein­stak­linga undir 18 ára. Þannig að hvað áttu að gera við þennan hóp? Tíundi bekkur til fram­halds­skóla.

Svo á þessu bre­ath play nám­skeiði var margt sem ég hugs­aði að ég myndi ekki fræða um. Það var sum tækni þarna sem ég áleit svo hættu­lega að ég hugs­aði: „Ef ég verð ein­hvern tíma spurð út í þetta, þá mun ég bara segja nei. Mér finnst þetta of langt gengið. Ekki gera þetta, þetta er ógeðs­lega hættu­legt.“

„Það hljóm­aði eins og ég væri bara með þetta á glæru fjögur“

Krakkar hafa leikið sér með alls­konar. Það er ástæða fyrir því að það stendur á pokum: Ekki setja yfir haus á barni. Á ákveðnu ald­urs­bili máttu börnin mín ekki sjá poka, þá var hann far­inn á haus­inn á þeim. Hvað er það? Það er form af bre­ath play – og við fáum nátt­úru­lega tauga­á­fall. Ég set hnút á alla poka, af því að ég er svo para­noid yfir þessu. Það var farið fyrir það meðal ann­ars á þessu nám­skeiði og það var talað um alls­konar form af munn­mökum og ég var bara: „Munnmök? Munnmök sem bre­ath play? Vá, hvað það er áhuga­vert. Vá hvað ég hef aldrei hugsað það.“ Þar var til dæmis talað um kon­una sem stjórn­anda.

Ég fer inn á Instagram til þess að segja frá því sem ég hafði verið að læra. Þannig byrjar þetta. Ég sagði þarna: „Vá, hvað það er mikið sem ég vissi ekki, sem ég get miðlað til full­orð­inna.“ Svo sagði ég: „Og það er reyndar ógeðs­lega praktískt að vita þessa nákvæmu útfærslu, af því að það er oft spurt að þessu í kyn­fræðslu, ung­lingar spyrja oft að þessu og mér finnst mjög mik­il­vægt að vita nákvæm­lega þetta upp á skaða­minnkun.“ Ég sagði að við töl­uðum oft um þetta mál og ég kall­aði þetta kyrk­ingar, því þau kalla þetta kyrk­ingar. Þau tala yfir­leitt ekki um háls­tak, þau tala bara um kyrk­ingu. Ég sagði: „Þetta er búið að vera í deigl­unni, ég er búin að þurfa að tala um þetta oft og við höfum bara stigið inn í þetta.“ Eitthvað svona. En það hljóm­aði eins og ég væri bara með þetta sem glæru fjögur.“

Sigga Dögg segir að hún hefði skilið við­brögðin sem hún fékk, ef hún hefði sagt hlut­ina á þennan ýkta hátt sem fólk virt­ist halda að hún hafi gert.

„En þetta var bara: „Nýlega hefur verið meira um spurn­ingar um þetta. Það kemur eitt­hvað inn, eitt­hvað trendar á tiktok, og þá þarf ég að taka það fyrir, þegar þau spyrja.“ Nema það smurð­ist út í að þetta væri í glæru­pakk­anum mínum. Það er bara mjög stutt síðan ég var með kyn­fræðslu fyrir allan tíunda bekk, í nóv­em­ber, á Akureyri. Þar sátu kenn­arar inni í öllum tímum. Ég held að við höfum tekið þetta til­tekna umræðu­efni fyrir í einum fyr­ir­lestri af níu. Þá lékum við sam­þykki og mörk, til þess að sjá hvernig það virk­aði. Þá einmitt sagði ég: „Hvernig leikum við þetta sam­þykki? Við erum ekki að fara að leika sam­farir. Eigum við að leika rass­skell­ingu?“ Þá svar­aði ein­hver: „Já, leikum rass­skell­ingu.“ Þá útskýri ég að ef við ætlum að gera þetta erum við búin að taka rosa­lega langt sam­tal. Svo slæ ég laus­lega í borðið, tek þetta alltaf frá báðum hliðum og hef þetta kyn­laust. Ég segi við krakk­ana að hérna séu það ekki kyn­hlut­verkin sem móti þau.“

Sigga Dögg í Kast­ljósi á dög­unum. Mynd/skjá­skot RÚV

Unglingarnir vita ansi margt

„Yvonne Kristín Ful­bright, sem er doktor í kyn­fræði og er að kenna í HA, HR og mörgum Banda­rískum háskólum, var að skrifa pistil sem birt­ist í Psychology Today, um ástæður þess að kyn­fræð­ingar og kyn­fræðsla verði að taka á þessu, en eng­inn vilji það. Hún birti þetta um helg­ina og hún segir að hún sé strax byrjuð að fá dauða­hót­anir. Þetta er þannig.

Það er eins og ég hefði bara mátt segja: „Þetta er hættu­legt, ekki gera þetta.“ Það hefði verið eina rétta svarið.

„Hvenær hefur það virkað að segja við ung­ling: Ekki gera það, það er hættu­legt?“

Ef þú skoðar stúd­íur af því hvernig ung­lings­hug­ur­inn virkar, ung­lings­heil­inn og þrosk­inn, og ef þú ert bara mann­legur og manst líka sjálfur hvernig það var að vera ung­lingur, hvernig það er að ala upp ung­ling. Ef þú stígur aðeins til baka og lítur á þetta. Hvenær í mann­kyns­sög­unni hefur það virkað að segja við ung­ling: Ekki gera það, það er hættu­legt? Þú þarft ekki að vera sér­stakur þroska­sál­fræð­ingur til þess að átta þig á því.

Þegar ég hef útskýrt sam­þykki fyrir þeim og útskýrt það þegar maður ætlar að stunda kyn­líf með annarri mann­eskju, þá hafa þau talað um að þetta sé ógeðs­lega flókið. Ég svara því að já, þetta sé ógeðs­lega flókið. Það er stað­reynd máls­ins. Ég segi þeim að það sé bara ótrú­lega margt sem spili þarna inn í og að þess vegna fari flest fólk í sam­band, vegna þess að þar skap­ist traust og fólki líði vel saman. Þá er auð­veld­ara að vera til dæmis alls­ber og skoða lík­ama hvors ann­ars og allt þetta. Þess vegna fer þetta oft í þann far­veg. Þannig erum við sem mann­verur. Við erum ekki bara enda­laust í nafn­lausu kyn­lífi, af því að okkur langar líka í nánd og vænt­um­þykj­una, og okkur langar líka til að ein­hver þekki okkur. Ég segi þeim að þannig séum við flest, sem viljum stunda kyn­líf með öðru fólki. Á ein­hverjum tíma­punkti langar okkur í eitt­hvað aðeins meira. Þau bara: „Já, einmitt.“

Við tölum líka um að kyn­líf sé kannski bara leið­in­legt. Það er líka til. Hvaða hlut­verki gegnir sjálfs­fróun í okkar lífi? Alltaf að taka það af þeim að þetta sé pressa eða kvöð. Að þú sannir aldrei ást þína með kyn­lífi. Það er rosa­lega algengt að það sé spurt um það. Að það sé verið að pressa á, í gagn­kynja og sam­kynja sam­böndum. Pressa á að ef þú sért hrif­inn af mér þá stund­irðu kyn­líf með mér. Við tökum það gjör­sam­lega fyrir. Hvernig lítur það út? Afhverju ætti það að virka þannig? Þau eru orðin svo klár. Þau hafa orð eins og suðað sam­þykki og kúgun. Þau hafa orð sem ég hafði ekki. Þekkingu á hug­tökum sem voru ekki til. Ef ég veit ekki eitt­hvað þá grilla þau mig alveg. Þannig að ég segi stundum: „Nennið þið að kenna mér þetta? Þið vitið greini­lega ógeðs­lega mikið um þetta.“ Og þau eru líka alveg til í að deila þekk­ingu sinni. Eins og á hinsegin sam­fé­lag­inu og svona.

Ég er ógeðs­lega ströng með alls­konar. Það eru engir for­dómar, engin hat­urs­orð­ræða; þar er ég sjúk­lega hörð. Margir kenn­arar hafa hrósað mér fyrir það, því þau hafa kannski verið í vand­ræðum með ein­hverja hópa. Það er ekk­ert svona í boði hjá mér.“

Gaman að sinna kynfræðslu fyrir fimmta og sjötta bekk

Algeng­ast er að Sigga Dögg sinni kyn­fræðslu fyrir átt­unda til tíunda bekk – ung­linga­deild. Yngstu börnin sem hún sinnir kyn­fræðslu fyrir eru í fimmta bekk.

„Það er ógeðs­lega gaman að vera með kyn­fræðslu fyrir fimmta og sjötta bekk. Þau eru mestu krútt í heimi. Þar fer nátt­úru­lega rosa mik­ill tími í kyn­færin og það hvernig við tölum hvert við annað af virð­ingu og kurt­eisi. Svo eru blæð­ingar nátt­úru­lega svaka­lega fyr­ir­ferða­miklar. En það er mjög sætt, þau eru ógeðs­lega sæt. Mestu rass­göt í heimi. Það er alveg svaka­lega gaman að fara inn í fimmta og sjötta bekk, því þau eru bara: „Ég fann sko einu sinni hjá mömmu, svona titr­ara!“ og „Eru ömmur að gera það líka?“. Þau bara spyrja að öllu. „En að fara svona í sleik?“

Ung­ling­arnir nefni­lega gefa ekki alltaf jafn mikið færi á sér. Tíundi bekkur heldur spil­unum oft svo­lítið þétt að sér. En þessi yngstu, ó mæ gad.“

Úti­dyra­hurðin skellist og elsta dóttir Siggu Daggar kemur heim. Hún heilsar, nælir sér í eina súkkulaði­húð­aða pip­ar­köku­kúlu og segir mömmu sinni að hún hafi farið í fata­sund í skól­anum. Aðspurð segir hún að sér hafi þótt það skemmti­legt.

Þegar blaða­maður spyr hvað sé jákvæð­ast við yngstu kyn­slóð­ina þegar kemur að heimi kyn­fræðsl­unnar og hvað það sé sem ef til vill þurfi að vinna mest í, segir Sigga Dögg eftir stutta umhugsun að það aðgengi sem krakkar hafi að upp­lýs­ingum, til dæmis í gegnum sam­fé­lags­miðla, sé í raun tví­eggja sverð.

„Allt í einu eru bara mikið af okkar fær­ustu sér­fræð­ingum á öllum sam­fé­lags­miðlum og þau geta bara sent þeim skila­boð. Ég man bara þegar ég var ung­lingur; ef ég hefði getað sent Páli Óskari, Dr. Love, skila­boð – ég hefði spammað mann­inn. Ég hefði setið fyrir honum. Ég man bara hvernig það var að vera á þessum aldri og ein­hvern veg­inn upp­lifa að þú hefðir engan. Svo varstu bara með ein­hvern guð þarna úti. Einhvern vita; eitt­hvað ljós. Við sátum þarna í kringum þetta útvarps­tæki og reyndum að finna allar bækur á bóka­safn­inu sem við gátum fundið.

Krakk­arnir í dag, það er magnað að þau bara leyfa sér… þau senda mér bara spurn­ingar, þau eru ekk­ert að pæla í því að ég sé ein­hver kell­ing úti í bæ. Áður en þú komst var ég til dæmis að svara svona spurn­ingu: „Heyrðu við kæró vorum að gera það í gær og held­urðu að ég sé ólétt? Við vorum sko í sturtu.“ Ég svar­aði bara: „Já, sko, sturta veitir enga vörn, vatn er ekki verja.“ Svo sagði hún að það hefði komið blóð, spurði hvað það gæti verið. Ég sagði að það gæti hafa komið rifa og spurði hvort þau hefðu notað sleipi­efni. Þá sagði hún: „Nei, reyndar ekki, á maður líka að nota það í sturtu? Ókei.“ Þetta sam­tal. Við bara lifum á tímum sem er alveg stór­kost­legt að vera hluti af, en á sama tíma hryggir það mig ótrú­lega mikið að það hafi ekki meira breyst. Af því að ég hélt að ég væri að fara að koma inn í kyn­fræðslu og fá ógeðs­lega erf­iðar spurn­ingar, eins og þetta með kyrk­inga­málið. Ég hélt að út af aðgengi ungs fólks í dag yrðu þetta mjög erf­iðar spurn­ingar. Að það væri eins gott að vera und­ir­búin. Svo var þetta bara algjör­lega grunn­ur­inn.“

Heil unglingadeild aldrei búin að fá kynfræðslu

„Ég hef oft verið með kyn­fræðslu fyrir eldri borg­ara og þá fer ég þangað með kyn­fræðslu ung­linga og segi: „Jæja, nú setj­umst við á skóla­bekk. Þetta er það sem þið hefðuð átt að læra fyrir 60 til 70 árum síðan.“ Þau trúa því ekki að það geti verið að unga fólkið í dag sé með sömu spurn­ingar og þau. Það er það sem flestir klikka á nefni­lega. Þroska­ferli manns­ins er ekki þannig að við séum bara allt í einu þrír metrar á hæð. Við erum ennþá í sama þroska­ferli og við höfum verið. Ef við leyfum okkur aldrei að stíga inn í sam­talið, þá breyt­ist nátt­úru­lega ekki neitt. Þá förum við í gegnum þetta bara: „Er vont að fá brjóst? Afhverju er annað brjóstið stærra en hitt? Ég er svo hrædd við blæð­ingar.“ Ég heyri ennþá hjá stelpum í dag að þær séu svo hræddar við blæð­ingar. „Er það vont? Hvaðan blæðir? Afhverju getur maður ekki haldið í sér? Pissar maður blóð­inu?“ Hvað í hel­vít­inu erum við búin að vera að gera síðan ég var í grunn­skóla?

Maður verður pínu reiður. Þetta er mjög slá­andi. Þær segja: „Skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn kom í einn klukku­tíma í sjötta bekk.“ Ég byrj­aði sjálf í átt­unda bekk. Klukku­tími í sjötta bekk hefði verið alltof snemmt fyrir mig. Fyrir vin­konu mína sem byrj­aði í fimmta bekk hefði það verið of seint.

„Stjórn­sýslan borgar konum ekki fyrir að hitt­ast og ræða um kyn­fræðslu“

Já, ég verð alveg reið. Nú er ég búin að vera í þessu í tólf ár. Já, ég hefði alveg verið til í að sjá meiri breyt­ingu. Ég er enda­laust kölluð fyrir ein­hver ráðu­neyti, í ein­hverja skýrslu­gerð og fundi. Fæ ekki krónu greitt fyrir það – aldrei. Stjórn­sýslan borgar konum ekki fyrir að hitt­ast og ræða um kyn­fræðslu. Það er stað­reynd. For­sæt­is­ráðu­neytið, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið, heil­brigð­is­ráðu­neytið, vel­ferð­ar­ráðu­neytið… ekk­ert.

Ef ég væri lög­fræð­ingur, eða ef ég væri að gera úttekt á því hvort það ætti að setja nýja glugga á vest­ur­hlið ein­hverrar bygg­ingar, þá væri þetta öðru­vísi. Þetta sýnir mér bara að þau bera massíva van­virð­ingu fyrir mínu starfi og störfum fleiri. Þau eru að frið­þægja, þetta er PR-stunt. „Svona, nú erum við að tala um kyn­fræðsl­una, sussususs.“ Og hvað? Svo bara er ég í skólum þar sem heil ung­linga­deild er aldrei búin að fá kyn­fræðslu af því að kenn­ar­inn sem sá um þetta hætti. Æ, það gleymd­ist. Skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn var veikur vik­una sem það átti að vera. Þannig að það var bara ekk­ert sett aftur á dag­skrá. Þetta hef ég heyrt á hverju ein­asta ári um allt land í fleirum en einum skóla, trekk í trekk. Þá verður maður ógeðs­lega frústrer­aður og brjál­aður. Þá er heldur ekki í boði að gef­ast upp.

Ég fæ klukku­tíma en spyr stundum til dæmis hvort það megi seinka skóla­bílnum, hvort við getum tekið auka hálf­tíma. Ég segi alltaf við þessa krakka: „Þið megið alltaf senda mér. Þið megið það alltaf, alltaf, alltaf.“ Út af þessu, meðal ann­ars. Svo þau séu ekki ein. Ég veit hvað það er frústrer­andi að bíða eftir þessu. Nú er ég að hitta nem­endur sem voru kannski hjá mér 2012, í tíunda bekk eða fram­halds­skóla. Þetta er bara orðið full­orðið fólk í dag. Fólk sem er komið í sitt líf, kannski búið með háskól­ann og komið í vinnu, kannski orðið læknar. Þau segja mér að ég hafi verið eini fyr­ir­lest­ur­inn sem þau fengu. Það er ógeðs­lega leið­in­legt. Vegna þess að það er vilji hjá mörgum kenn­urum, það er vilji hjá skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ingum, það er vilji hjá náms­ráð­gjöfum.

Deilan snýst um það hvar á að setja þetta inn, hver á að sinna þessu og hvað á að kenna. Fyrir mér eru þetta nátt­úru­lega allt mjög yfir­stíg­an­legir þrösk­uldar.“

Aðspurð segir Sigga Dögg að hún myndi sjálf vilja að kyn­fræðsla yrði sér kúrs.

„Ég er pínu frek þarna, vegna þess að ég myndi bæði vilja hafa þetta sem sér kúrs í ung­linga­deild og líka fléttað inn í önnur fög fyrr. Þannig að þetta verði eðli­legri sam­fella, þannig að þegar þú kemur í þetta sem sér kúrs, þá ertu svo­lítið vel und­ir­bú­inn. Þá er búið að fara í gegnum mikið og margt, þannig að það er hægt að fara á dýpt­ina.“

Klámsmiðja

Sigga Dögg víkur aftur að umræð­unni um klámið.

„Það er fyndið, vegna þess að við töl­uðum um klámið áðan, að í einum fram­halds­skóla var ég beðin um vinnu­smiðju um klám. Ég hélt vinnu­smiðju með starfs­fólki, sem var skikkað í þessa vinnu­smiðju með nem­endum, um að greina klám og að búa til full­komna klám­mynd. Þau voru látin vinna í hópum og þetta var magnað starf. Að heyra hvernig þau tók­ust á, hvernig þau rök­ræddu, nið­ur­stöð­urnar sem þau komust að. Þar var starfs­fólk að vinna með nem­endum. Þetta voru allt 18 plús, þannig að þetta voru eldri nemar. Þetta var á svona þema­dögum. Það var alveg magnað hvað kom út úr þessu. Þarna áttum við bara sam­tal, það var eng­inn í hrópum og köllum. Þau voru að takast á um stell­ingar: „Má þessi stell­ing vera í klámi?“

„Já, afhverju ætti það ekki að mega?“

„Já, þegar ég pæli í því. En má þetta?“

Og þetta var allt yfir í: „Eru kon­urnar með stutt eða sítt hár?“ Ég stóð bara á kant­inum, fór með spurn­ingar á milli hópanna og skoð­aði hvernig gekk. Þetta var magnað og ég væri bara til í þetta oftar. Þetta sam­tal. Þetta yfir­veg­aða, rólega, pælum-skoðum-greinum, sam­tal. Það var eig­in­lega alveg stór­kost­legt.“

Viljinn víða og mótstaðan víða

„Viljinn er víða og mót­staðan er víða. Hver á að kenna kenn­urum þetta? Hver á að styðja við kenn­ara? Hvernig á að grípa nem­endur? Þetta er rosa­lega stórt sam­tal sem verður ekki leyst á einni nóttu en ætti að vera fyrir löngu leyst, hefði ég haldið. Miðað við hversu oft við erum að tala um þetta. Hversu mörg svona við­töl fer maður í?

Það eru allir sam­mála þar, allir eru sam­mála um að þetta eigi að vera.

Eða – það eru reyndar ekki alveg allir sam­mála um að þetta eigi að vera í skóla­kerf­inu. Það eru alveg ennþá þær raddir að þetta sé eitt­hvað sem við fundum bara út úr á sínum tíma. Ég hef heyrt það, að fólk hafi bara fundið út úr þessu. „Einhvern veg­inn fundum við út úr þessu, af hverju þarf að kenna þetta?“

„Við erum að sjá núna hvar stopp­ar­arnir eru“

Aug­ljós­lega sjáum við í dag að það þarf að kenna þetta. Það er ástæðan fyrir því að við erum í þessu skíta­mixi sem við erum í, af því að þetta var ekki kennt. Svo er annað í þessu; það er stopp­ari þarna. Við erum að sjá núna hvar stopp­ar­arnir eru. Þeir eru kannski svo­lítið að koma fram núna, sem er nátt­úru­lega mjög gagn­legt.“

Ætlaði aldrei að vera ein í þessu

Sigga Dögg veltir fyrir sér orð­ræðu sem henni finnst hún hafa heyrt um sjálfa sig í tengslum við kyn­fræðslu og hags­muni.

„Það varð líka ein­hver mis­skiln­ingur fannst mér um það að ég stæði í vegi fyrir kyn­fræðslu. Eins og ég yrði hrædd um að ég yrði atvinnu­laus ef kenn­arar tækju við þessu. Sem var aldrei mitt biss­ness­módel. Mín hug­mynda­fræði var aldrei að vera kyn­fræðsla Íslands. Mín hug­mynd var bara að styðja við, vera hluti af. Vera með í lið­inu. Ég ætl­aði ekki að vera bara ein í lið­inu.

„Það yrðu færri glað­ari en ég að koma þessu í góðan, fal­legan far­veg“

Mér finnst það svo­lítið stór mis­skiln­ingur, að ég hefði við­skipta­hags­muna að gæta, að halda þessu svona. Ég hef engan áhuga á því. Minnst. Ég held að það yrðu færri glað­ari en ég að koma þessu í góðan, fal­legan far­veg. Þá væri ég alveg til í að vera bara að styðja við kenn­ara eða að koma til dæmis einu sinni inn sem upp­brot. Ég er bara algjör­lega til í þetta og ótt­ast enga við­skipta­hags­muni þar. Mér finnst svo­lítið leið­in­legt að þessu hafi verið stillt þannig upp, eins og þetta sé ein­hver eig­in­hags­muna­varsla. Ég geri bara aðra hluti sem ég fæ tekjur af líka, þetta átti bara að vera með, ekki: „Ef þú kemur ekki þá fáum við enga kyn­fræðslu.“

„Maður þarf bara að muna að kjarna sig, í svona sam­tali. Þetta er miklu stærra en bara ég,“ segir Sigga Dögg að lokum, um þá hörðu umræðu sem hefur átt sér stað und­an­farið. „Hvernig getum við nýtt þetta tæki­færi til þess að koma ein­hverju áleiðis? Getum við nýtt þetta til góðs?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins