„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“

Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
Margrét Esther Erlu­dóttir

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í gögnum: „Hún labbar á veggi, hún talar við sjálfa sig…“ Þetta sýnir að barnið hefur ekki fengið ástúð eða umhyggju. Ég þurfti að reyna að kom­ast út úr þessu án þess að vera mikið sködduð en ég er það.“

„Ég var sett á BUGL þriggja ára út af aðstæðum heima fyrir,“ segir Margrét Esther Erlu­dóttir í við­tali við Hildi Maríu Sæv­ars­dóttur. Margrét segir að aðstæður á heim­il­inu hafi verið sorg­legar.

Margrét var tæp­lega fimm ára þegar móðir hennar lést. „Þegar móðir mín dó fór elsti bróðir minn til ömmu sinnar og afa og fékk að búa þar og ég og bróðir minn, Ingólfur, fórum á Dalbraut og vorum þar. Síðan þurftum við að fara í sveit og þar fengum við að vera í skóla. Við vorum líka hjá svo góðu fólki.“ Þar leið henni vel. „Fólk var svo gott við okkur. Svo vorum við úti að leika okkur og þá kom faðir minn og hann rændi okkur án þess að nokkur vissi af. Þá var ég send aftur á Dalbraut en bróðir minn var sendur heim til pabba síns.“

Æska mín var bara svo brotin.

Hún segir að hún hafi þrisvar sinnum tekið fyrsta bekk. „Æska mín var bara svo brotin.“

Margrét talar um rót­leysið. Skort á ástúð og umhyggju. Hún segir að rúm­lega 30 konur hafi á þessum tíma farið inn á heim­ilið, sumar á vegum Barna­vernd­ar­nefndar.

„Það vorur nokkrar konur mjög ynd­is­legar,“ segir Margrét og nefnir þrjár þeirra. Guðfinnu Ingi­mar­dóttur. „Hún var ofboðs­leg góð.“ Svo var það Bára. „Virki­lega ynd­is­leg per­sóna.“ Og þá var það Kristín.

Hún seg­ist hafa reynt allt til að vera þæg. „En það gekk mjög sjaldan.“

Svo tóku við fleiri fóst­ur­heim­ili úti á landi og nefnir hún sveitabæ á Norð­ur­landi þar sem voru fleiri börn í fóstri og segir hún að þar hafi hún verið beitt ofbeldi og að sá tími og það ofbeldi valdi sér sárs­auka enn þann dag í dag.

Ég var barin dags dag­lega.

„Hvað ríkið, Barna­vernd, vildi eyði­leggja fólk. Börn. Þar var ég lamin. Ég var barin dags dag­lega. Ég sá á eftir skóla­bílnum á hverjum ein­asta morgni. Ég fékk enga kennslu á þeim bæ. Ég fékk smá að skrifa og lesa. Það var það eina sem ég fékk umfram allar þessar bar­smíðar. Það var eng­inn að bjarga börn­unum.“ Margrét segir að allar tennur í einni stúlkunni sem var í fóstri á bænum á sínum tíma hafi verið eyði­lagðar þar sem hún hafi verið lamin svo illa.

„Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í gögnum: „Hún labbar á veggi, hún talar við sjálfa sig…“ Þetta sýnir að barnið hefur ekki fengið ástúð eða umhyggju. Ég þurfti að reyna að kom­ast út úr þessu án þess að vera mikið sködduð en ég er það.“

Nauðgað

Margrét segir að sonur hjón­anna á bænum hafi nauðgað sér. „Ég var ekki há í loft­inu, 12 – 13 ára gömul. Það var mikil drykkja á heim­il­inu og ég þurfti að sjá um að þrífa það. Svo nauðg­aði bónd­inn mér. Það var maður sem bjarg­aði mér,“ segir hún en það var maður úr sveit­inni. „Hann reyndi að gera allt til að fólk vissi hvað væri að ger­ast á bænum.“

Þar vorum við lamin með hesta­svipum og nagla­spýtum, sér­stak­lega ég.

Félags­ráð­gjafi hitti Margréti og hjónin einn dag­inn og voru þau spurð hvort þau hafi lamið hana. „Nei, við gáfum henni bara kinn­hest,“ segir hún að sagt hafi verið. „Það var miklu meira heldur en það,“ segir hún og bætir við að hún hafi verið lamin meira eftir þennan fund. „Ég var tekin og barin. Þau settu okkur á sperru einn dag­inn; hann tók okkur og setti á okkur bönd. Þar vorum við lamin með hesta­svipum og nagla­spýtum, sér­stak­lega ég. Ég pass­aði upp á að krakk­arnir myndu ekki þjást fyrir þetta. Engan veg­inn.“

Hún segir að þau hafi þrjú ætlað að strjúka en að það hafi ekki tek­ist.

Dvölin á þessum sveitabæ lauk árið 1986. Margrét fór suður og flutti þá á heim­ili og hóf nám við Öskju­hlíð­ar­skóla sem kall­ast Kletta­skóli í dag. Þar var hún í tvo vetur. „Þaðan fór ég í Iðn­skól­ann í Reykja­vík að læra fata­hönnun. Ég útskrif­að­ist úr því.“

Hún fór svo á enn eitt heim­ilið og segir hún að þar hafi verið mjög erfitt að vera. „Það var rosa­legt,“ segir hún og nefnir að einu sinni hafi verið sparkað í hana svo hún féll niður 12 tröppur og að maður hafi lagt hendur á hana og læst hana inni í sól­ar­hring.

„Ég var í skól­anum og reyndi að hlúa að sjálfri mér sem gekk erfð­lega. Ég fór þaðan 1991 þremur eða fjórum vikum eftir að skóla­systir mín var drepin á heim­il­inu. Hún var stungin 18 sinnum.“

Afþakkaði bætur

Margrét seg­ist í dag vera að berj­ast fyrir sínu máli út af því mis­rétti sem hún varð fyrir frá þriggja ára til 21 árs. Hún segir að sér hafi nýlega verið boðnar bætur, sann­girn­is­bætur, en að hún hafi afþakkað þær á þeim for­sendum að hún gæti ekki sótt um bætur á þeim for­sendum að bær­inn, þar sem hún var beitt ofbeldi, var ekki sett inn í. „Þannig að ég afþakk­aði það og ég og lög­mað­ur­inn minn erum að berj­ast fyrir því að rétt­læt­inu verði náð. Og ég er ekk­ert á leið­inni að gef­ast neitt upp.

Ég er þannig per­sóna að ég ætla ekk­ert að láta undan. Rétt­læt­inu skal vera náð,“ segir hún og nefnir unga fólkið sem var í fóstri á sama tíma og þau sem á eftir komu.

Margrét hitti lög­fræð­ing­inn sinn nýlega. „Hann vill fara með þetta beint fyrir dóm og hann segir að þetta eigi sér enga hlið­stæðu; þessi rök fyrir sann­girn­is­bótum. Eins og ég sagði við hann þá er ég til­búin að ganga eins langt og hægt er og hann ætlar að gera það líka. Honum finnst hræði­legt að ríkið skuli virki­lega neita að greiða.“

Sýnið fram á að þetta sé stað­reynd og satt.

Margrét segir að Barna­verndir Reykja­víkur og Kópavogs ættu að skamm­ast sín. „Sýnið fram á að þetta sé stað­reynd og satt. Ég ætla virki­lega að halda áfram og hjálpa þessum börnum. Sann­leik­ur­inn verður að koma í ljós. Þetta er svo mikil ósvífni fyrir þessi börn. Ég hef aldrei fengið ást og umhyggju og börnin mín fengu alla skóla­göngu en það fékk ég ekki. Ég var besti vinur þeirra og sýndi að mann­eskja eins og ég sem lenti í þessum hremm­ingum gat komið börn­unum mínum til manns. Það finnst mér vera stór­kost­legt að ég skuli geta það með enga aðstoð, enga móður, engan föður og engan að móður- eða föð­ur­megin. Ég stóð algjör­lega ein og held því áfram ásamt mann­inum mínum, Ragnari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Margir báðu Hönnu Rún afsökunar á eineltinu: „Ég er löngu hætt að taka inn á mig svona baktal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margir báðu Hönnu Rún afsök­unar á ein­elt­inu: „Ég er löngu hætt að taka inn á mig svona bak­tal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Þá hrúg­uð­ust inn heilu rit­gerð­irnar frá alls konar fólki sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins