„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erfiður tengdasonur

Erfiður tengdasonur

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Dóttir mín var kornung þegar hún fór að vera með manni sem okkur foreldrum hennar leist illa á. Við reyndum að skipta okkur sem minnst af sambandinu og vonuðum að hún sæi sjálf hvern mann hann hefði að geyma.

Lilja var 17 ára, að verða 18, þegar hún kynnt­ist Jóa og það liðu nokkrar vikur þar til við hittum hann í fyrsta skipti. Hann var nýorð­inn tví­tugur, bráð­mynd­ar­legur en bauð samt ekki af sér góðan þokka. Við hjónin vorum vin­gjarn­leg við hann en átt­uðum okkur fljótt á því að mjög erfitt var að halda uppi sam­ræðum við hann. Hann hélt varla þræði og virt­ist ekki hafa áhuga á neinu nema lík­ams­rækt og bílum. Hann var ekki í fastri vinnu þrátt fyrir að hafa hætt í skóla strax eftir skyldu­námið. Við komumst að því að hann vann svarta vinnu af og til en var á ein­hvers konar bótum. Hann bjó hjá for­eldrum sínum í íbúð á vegum borg­ar­innar og var af þriðju kyn­slóð fólks sem var haldið uppi af borg­inni. Mér fannst furðu­legt að alheil­brigður maður væri ekki í skóla eða fastri vinnu en Lilju fannst snið­ugt að hann ynni svart. Við reyndum að segja henni hversu rangt það væri að láta aðra um að borga fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu, gatna­kerfið og annað slíkt en það fór inn um annað eyrað hjá Lilju og út um hitt. Hún var alveg blind á þennan strák. Einnig var hún hrifin af for­eldrum hans sem hún sagði vera svo frjáls­lynda. Ekki síst í upp­eld­is­málum því þeir nöldr­uðu ekk­ert þótt börnin þeirra á ung­lings­aldri fengju sér í glas, heldur drykkju bara með þeim. Ég sá að Lilja var með stjörnur í aug­unum yfir þessum „draumafor­eldrum“ kærastans.

Í öngum okkar

Jói var mikið hjá okkur fyrstu mán­uð­ina og Lilja vildi að hann fengi að flytja til okkar. Við pabbi hennar vorum ekki til í það. Við áttum ekki von á því að hún flytti þá heim til Jóa, okkur brá þegar hún fór en von­uðum að hún kæmi fljót­lega heim aftur. Ég er sann­ar­lega ekki snobbuð en þetta var mikið vand­ræða­fólk sem mig lang­aði ekk­ert til að tengj­ast. Við hjónin vorum þó viss um að ef við gengjum of langt í að vara dóttur okkar við Jóa gæti það haft öfug áhrif og við myndum missa hana frá okkur. Við von­uðum bara að hún sæi sjálf hvaða mann hann hefði að geyma en ástin er blind.

„Ég er sann­ar­lega ekki snobbuð en þetta var mikið vand­ræða­fólk sem mig lang­aði ekk­ert til að tengj­ast.“

Lilja flutti aftur heim nokkrum vikum seinna en það var vegna þess að Jói var settur í fang­elsi og lát­inn afplána dóm fyrir ofbeldi. „Fyrir eitt­hvað sem var alls ekki honum að kenna,“ full­yrti Lilja og bætti því við að hinn mað­ur­inn hefði átt upp­tökin. Í blöð­unum var talað um til­efn­is­lausa árás en það sagði Lilja vera rugl.

Við vorum í öngum okkar og ekki bara yfir vali Lilju á kærasta, heldur einnig yfir því að sonur okkar á ung­lings­aldri leit mikið upp til Jóa, fannst hann algjör töffari og vildi líkj­ast honum sem mest. Strax eftir skól­ann um vorið ákváðum við að senda hann til for­eldra minna sem búa fyrir vestan. Við von­uðum að dreng­ur­inn sæi að sér. Sem betur fer gekk það eftir, hann breytt­ist við að fara að vinna með afa sínum og hitta gamla vini en við fjöl­skyldan höfðum búið á Vest­fjörðum um nokk­urra ára skeið á æsku­stöðvum mínum. Um haustið hóf hann nám í mennta­skóla og hrifn­ingin á Jóa virt­ist hafa minnkað heil­mikið. Hann skemmti sér annað slagið með skóla­fé­lögum en ekk­ert meira en það.

Yndislegur ömmustrákur

Lilja og Jói leigðu sér litla íbúð skömmu eftir að hann losn­aði úr fang­els­inu. Hún tók sér hlé frá námi og fór að vinna. Algjör synd því hún átti ekki langt í að verða stúd­ent. Hún var reyndar orðin svo­lítið leið í skól­anum áður en hún kynnt­ist Jóa en ætl­aði að reyna að klára stúd­ent­inn og ákveða svo fram­haldið. Gott og vel, hugs­uðum við, hún er sjálf­ráða og heldur bara áfram námi ef áhug­inn kviknar aftur.

Lilja fékk starf í tísku­vöru­verslun og fannst það ein­stak­lega skemmti­legt. Í kjöl­farið fékk hún mik­inn áhuga á tísku og fata­hönnun.

Svo gerð­ist það sem við for­eldrar hennar ótt­uð­umst svo mjög. Lilja varð ófrísk og þar með tengd þessum manni og fólk­inu hans út ævina í gegnum barnið.

Lilja var frekar veik á með­göng­unni og flutti til okkar þegar hún og Jói misstu leigu­í­búð­ina. Jói kom mikið til hennar og mér létti við að sjá að hann virt­ist bera nokkra umhyggju fyrir Lilju. Hann bjó nán­ast alveg hjá okkur mán­uð­ina áður en barnið fædd­ist en eftir fæð­ing­una ætl­uðu þau að finna sér aðra íbúð.

Ynd­is­legur drengur kom í heim­inn á til­settum tíma. Ég var við­stödd ásamt Jóa en fæð­ingin tók lengri tíma en hann hafði þol­in­mæði fyrir. Undir það síð­asta var hann mikið í sím­anum frammi og skrapp oft út til að reykja.

Jói ent­ist ekki lengi í föð­ur­hlut­verk­inu og eftir nokkrar erf­iðar and­vökunætur með grát­andi ung­barni kaus hann að sofa heima hjá for­eldrum sínum. Lilja var frekar sár en sagð­ist skilja hann vel, þetta hlyti að vera erfitt fyrir hann. Hún átt­aði sig ekki á því að þetta væri einnig erfitt fyrir hana sjálfa, og ekki stakk hún af. Mig lang­aði að segja margt en ég stillti mig. Lilja rauk svo fljótt í vörn fyrir kærast­ann og það kom í veg fyrir að hún sæi sjálf hvernig hann væri.

Loksins

Auðvitað kom að því að Lilja gæf­ist upp á Jóa. Hún full­orðn­að­ist hratt eftir að hún eign­að­ist dreng­inn og fór að sjá Jóa í nýju ljósi. Hann vildi að þau héldu áfram sama lífi og áður en Lilja var ekki til í það.

Samband Lilju og Jóa logn­að­ist út af hægt og rólega án nokk­urra láta. Lilja reyndi að fá Jóa til að hitta son­inn reglu­lega en það gekk illa. Jói vildi koma þegar honum sjálfum hent­aði og það var nán­ast aldrei. Stundum svaf dreng­ur­inn þegar Jói kom og var ekki enn vakn­aður þegar hann fór en Jóa virt­ist vera sama.

„Jói vildi koma þegar honum sjálfum hent­aði og það var nán­ast aldrei.“

Við hjónin vorum von­góð um að hann hyrfi alveg úr lífi okkar en það var lík­lega of gott til að vera satt.

Lilja bjó hjá okkur með litla ömmugullið mitt í rúm tvö ár. Hún var byrjuð í námi aftur, reyndar utan­skóla, vann í versl­un­inni og fór að búa með frænku sinni sem átti líka ungt barn. Jói kom stöku sinnum í heim­sókn til þeirra og son­ur­inn var voða hrif­inn af föður sínum. Fyrir kom að Jói fór í bíltúr með dreng­inn en þá þurfti Lilja að lána honum barna­bíl­stól­inn því Jóa fannst óþarfi að kaupa slíkan stól sjálfur. Ég var fegin því að hann fór aldrei fram á að dreng­ur­inn gisti hjá honum því hann bjó á óreglu­heim­il­inu hjá for­eldrum sínum.

Ofsóknir

Um svipað leyti og Lilja fór að búa ein með syn­inum breytt­ist Jói, bæði í fram­komu og útliti. Hann fór dag­lega í rækt­ina og blés út. Lilja sagði mér að hann væri líka kom­inn á kaf í stera og það gerði hann hálf­klikk­aðan í skap­inu. Ég hitti hann eitt kvöldið heima hjá dóttur minni og dótt­ur­syni og dauð­brá þegar ég sá breyt­ing­una á honum. Hann var alltaf sæmi­lega kurt­eis við mig og það hafði svo sem ekk­ert breyst en hann tal­aði ekki um neitt annað en eigin árangur í lík­ams­rækt.

Lilja og Jói höfðu átt sín ást­ar­sam­bönd með öðrum eftir að þau hættu saman en þegar Lilja fór að búa með manni fór það illa í Jóa. Ég er ekk­ert viss um að hann hafi verið hrif­inn af henni en það var eins og honum fynd­ist hann eiga hana. Hann vildi að minnsta kosti stjórna henni og hún hafði alltaf tiplað á tánum í kringum hann til að styggja hann ekki. Hún hafði séð hann brjál­aðan í skap­inu og reyndi að koma í veg fyrir að hann missti stjórn á sér í návist barns­ins.

Jói hafði, sem betur fer, ekki vit á því að reyna að stjórna Lilju í gegnum son­inn en lík­lega hefði hann seint fengið for­ræðið yfir honum. Maður veit þó aldrei.

Lilja reyndi frá upp­hafi að gera sam­skipti feðganna reglu­leg en Jói vildi bara koma í heim­sókn til drengs­ins og hennar þegar honum sjálfum þókn­að­ist, það breytt­ist ekk­ert. Sam­bandið við dreng­inn var þó lítið þegar Jói var með kær­ustu en yfir­leitt ent­ist það aldrei lengi og þá var Jói mættur aftur – iðu­lega undir áhrifum ein­hverra efna. Lilja sætti sig við heim­sókn­irnar því hún ótt­að­ist að ann­ars vildi Jói fara eitt­hvað með dreng­inn og það gekk ekki. Hún gætti þess þó að Jói yrði ekki var við það, þá hefði hann eflaust tekið barnið með valdi með sér út ef sá gáll­inn hefði verið á honum.

Gunni, kærast­inn hennar Lilju, var á sjónum á þessum tíma og Lilja reyndi að sjá til þess að Jói kæmi í heim­sókn þegar hann væri úti á sjó en það tókst ekki alltaf. Gunni var ekk­ert voða­lega hrif­inn af því að fá þennan háværa stera­bolta inn á heim­ilið en sagði þó lítið. Þetta var faðir barns­ins.

Eftir því sem neysla Jóa jókst varð hann erf­ið­ari og hann fór að hóta Lilju. Hann vildi að hún los­aði sig við sjóar­ann, eins og hann kall­aði Gunna, hann vildi ekki hafa hann nálægt barn­inu. Hann hringdi og hót­aði og mætti líka stundum að heim­ili Lilju og reyndi að kom­ast inn. Lög­reglan mætti reglu­lega en nágrann­arnir hringdu oftar en Lilja eða Gunni vegna lát­anna í Jóa.

Friður

Þetta voru ömur­legar ofsóknir sem stóðu í nokkra mán­uði og þá aðal­lega um helgar. Gunni hætti á sjónum því honum leist ekki á ástandið. Lög­reglan stóð sig mjög vel við að fjar­lægja Jóa en Lilja hik­aði við að kæra barns­föður sinn, hún ótt­að­ist að þá yrði hann öllu verri. Hún hefði þó gert það ef ofsókn­irnar hefðu haldið áfram.

Jóa var stungið í stein­inn nokkrum mán­uðum seinna fyrir ýmis brot og þá datt allt í dúna­logn. Jói róað­ist mikið í fang­els­inu og hafði lík­lega ekki sama aðgang að fíkni­efnum og áður. Hann hringdi nokkrum sinnum í son­inn sem hélt að pabb­inn væri að vinna úti á landi. Það tókst nán­ast alveg að hlífa drengnum við þessu öllu saman því sá stutti flutti hrein­lega til okkar hjón­anna um helgar á meðan á mestu lát­unum stóð.

Gunni hefur staðið þétt við bakið á Lilju, þau eru búin að gifta sig og fjöl­skyldan hefur stækkað. Jói er að mestu hættur öllu rugli, orð­inn fjöl­skyldu­maður sjálfur og áhug­inn á Lilju og syn­inum hefur minnkað mikið, þó ekki nógu mikið til að hann leyfi Gunna að ætt­leiða dreng­inn.

Kærasta og barns­móðir Jóa er ágæt kona og sér til þess að dreng­ur­inn fái jóla- og afmæl­is­gjafir frá föður sínum. Föð­ur­af­inn og -amman hafa nákvæm­lega engan áhuga á honum.

Gunni hefur reynst stráknum eins og besti faðir og allt gengur fjöl­skyld­unni í hag­inn. Þetta tíma­bil sem Jói var í lífi okkar er orðið eins og fjar­læg martröð en batn­andi manni er best að lifa, svo að kannski á Jói eftir að verða góður faðir síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd
Fólk

Skiptir mestu máli að fá skap­andi hug­myndir og hrinda þeim í fram­kvæmd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri. Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún...
„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Fólk

„Lækn­ir­inn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjöru­tíu og fimm ára afmæl­is­dag­inn“

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda...
„Aðalmálið að njóta lífsins og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur“
Innlent

„Aðal­málið að njóta lífs­ins og vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur“

Hrafn Val­dís­ar­son missti móður sína á svip­legan hátt þegar hann var nítján ára gam­all. Þau mæðginin höfðu alla tíð verið náin og miklir vinir og áfallið var mikið. Móðir hans, Valdís Gunn­ars­dóttir, var um ára­bil ein vin­sælasta útvarps­kona lands­ins. Hún var þekkt fyrir að tala mikið um ást­ina og kær­leik­ann og var stundum kölluð róm­an­tís­kasta kona Íslands. „En mamma var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu