„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dulið ofbeldi

Dulið ofbeldi

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Fyrir nokkrum árum var ég beðin að hjálpa 12 ára bróðurdóttur minni sem stríddi við mikla vanlíðan, ekki síst í skólanum. Eftir að við fundum í sameiningu rót vandans breyttist allt til hins betra.

Frænka mín bjó ein með pabba sínum og tveimur yngri systk­inum. Þegar pabbi hennar þurfti að taka vinnut­arnir, sem gerð­ist stundum, kom þessi ynd­is­lega og hæfi­leik­a­ríka frænka mín og dvaldi hjá mér. Systkini hennar fóru til ömmu þeirra og afa.

Ári áður hafði ég hjálpað henni, að beiðni bróður míns, að breyta við­horfi sínu gagn­vart nám­inu. Þar sem henni leið svo illa í skól­anum fannst henni allt náms­efnið leið­in­legt og þar af leið­andi gekk henni mjög illa. Það tók hátt í ár að fá hana til að hugsa að þetta væri ekki leið­in­legt, heldur mis­mun­andi skemmti­legar þrautir. Ein­kunnir hennar hækk­uðu mikið í kjöl­farið og henni fannst lítið að fá 8, hún var oft­ast með 8,5 til 10 í ein­kunn.

Ríkar stelpur, fátækar stelpur

Þrátt fyrir aukna vel­gengni í námi var van­líð­anin enn til staðar og bróðir minn var ráða­laus. Því leit­aði hann til mín aftur og bað mig um að aðstoða hana í gegnum þetta erf­iða tíma­bil. Hún var þá byrjuð í átt­unda bekk.

Við hitt­umst oft þennan vetur og hún tal­aði mikið um hvað henni liði illa í skól­anum. Hún átti samt mjög erfitt með að koma orðum að því hvað væri svona erfitt og mér fannst aldrei næg ástæða til þess að hún skipti um skóla en það þráði hún heit­ast af öllu.

Í sam­tölum okkar kom þó ýmis­legt í ljós. Stelp­urnar í bekknum hennar voru frá mis­mun­andi heim­ilum og frænka mín hélt að þær sem áttu ríku for­eld­rana, eins og hún orð­aði það, hefðu sjálf­sagðan rétt á því að ráða öllu.

Það tók mig tíma að leið­rétta það að þótt þær ættu allt til alls og væru flottar í tauinu, með flottar töskur og rán­dýra síma hefðu þær ekki meiri rétt á nokkru en aðrir. Allir væru jafnir og hefðu sama rétt. Mér virt­ist á þessu að skrít­inn mórall ríkti innan bekkj­ar­ins.

Bróðir minn barð­ist í bökkum en börnin voru aldrei svöng og alltaf sóma­sam­lega til fara, ekki í merkja­fötum þó. En hann hafði ekki efni á að borga skóla­mál­tíðir fyrir þau svo þau komu með nesti í skól­ann sem hefði auð­vitað átt að vera allt í lagi en var stór hluti vand­ans hjá frænku minni. Hún upp­lifði sig fátæka, útundan og alveg glat­aða þar sem hún var eina barnið í bekknum sem ekki var í skólamatnum.

Veturinn sem frænka mín var í átt­unda bekk ákvað ég að borga sjálf fyrir skóla­mál­tíðir hennar og það breytti miklu fyrir líðan hennar.

Ég hafði reynt að berj­ast með bróður mínum fyrir því að hann fengi styrk fyrir mál­tíð­unum en án árang­urs, bær­inn þurfti að fara að lögum og reglum og við­mið­un­ar­upp­hæðin var ótrú­lega lág á meðan ekk­ert til­lit var tekið til skulda, það var bara horft á það sem hann fékk útborgað. Hins vegar, ef hann hefði verið til­kynntur til barna­verndar og málið orðið að barna­vernd­ar­máli, hefði þetta verið greitt fyrir öll börnin ásamt tóm­stundum en það var engin ástæða til að til­kynna neitt, allt gekk vel nema pen­inga­málin. Samt er ekki hægt að segja að börn­unum hafi liðið vel með að vera ekki í skóla­mat og vera án þess að stunda tóm­stundir. Þau fóru aldrei í bíó með pabba eða í aðra afþr­ey­ingu, það var aldrei afgangur.

Trúði því að hún væri ömurleg

Þessi vetur gekk alveg ágæt­lega til að byrja með en van­líð­anin hvarf aldrei hjá frænku minni. Hún fór ekki ofan af því að sér liði illa í skól­anum og eina lausnin sem hún sá var að skipta um skóla.

Hún sagði að einn dag­inn væru flestar stelp­urnar hinar almenni­leg­ustu en þann næsta voru þær leið­in­legar við hana og vildu ekk­ert með hana hafa. Þær settu út á allt sem hún sagði og gerði og hún tók mark á því og trúði því að hún væri ömur­leg. Þrátt fyrir að sumir kenn­ar­arnir yrðu vitni að þessu gerðu þeir aldrei athuga­semdir og heldur ekki þær stelpur sem ekki tóku þátt, eng­inn tók upp hansk­ann fyrir hana. Hún fékk skrítin svip­brigði og augn­gotur sem henni fannst verst og þjáð­ist yfir því.

Einn dag­inn þegar við ræddum van­líðan hennar bað ég hana um að reyna að lýsa þessu betur fyrir mér því ég velti fyrir mér hvað gerð­ist á góðu dög­unum hennar. Þá loks fékk ég skýr­ing­una sem ég þurfti. Hún sagði að þegar hún sæti hjá stelp­unum eins og í mat­ar­tímum og í frí­mín­útum, segði ekki orð og léti ekk­ert í sér heyra fengi hún frið. Ef hún hló fékk hún athuga­semdir frá þeim um að hlátur hennar væri asna­legur eða hávær. Ef hún reyndi að taka þátt í sam­ræð­unum, setti ein­hver upp svip eða sagði henni hrein­lega að þegja. Hún vog­aði sér einu sinni að segja að ein­hver frægur, sem barst í tal hjá þeim, væri skyldur sér og svo aftur seinna varð­andi þekkta söng­konu sem er líka skyld henni. Það var nóg til að hneyksla þennan leið­in­lega stelpna­hóp og hún fékk að heyra að það væru nú bara allir skyldir henni.

Á þessum tíma byrj­uðu strák­arnir að veita henni meiri athygli og það virt­ist fara illa í stelpu­hóp­inn, enda fannst þeim hún ekki hafa rétt á neinu, bara þær.

Komu af fjöllum

Þetta varð til þess að ég pant­aði við­tal hjá skóla­stjór­anum og fór með frænku minni á hans fund. Á fund­inum var einnig einn af kenn­ur­unum hennar. Þau komu alveg af fjöllum þegar þau heyrðu þetta og héldu að þetta gæti nú varla verið rétt.

Þau spurðu hvers vegna ekki hefði verið búið að tala um þetta áður og voru hissa þegar ég sagði að það hefði oft verið talað við umsjón­ar­kennar­ann hennar þegar hún var á mið­stig­inu en það hefði aldrei borið árangur. Mér fannst sá kenn­ari raunar nota sömu taktík og sumar stelp­urnar og reyna að halda henni niðri. Henni mátti ekki finn­ast neitt, hvorki fyndið né sorg­legt. Hún mátti ekki einu sinni hlæja án þess að sett væri út á það. Ef þetta væri ekki ein­elti þá væri ekk­ert ein­elti, sagði ég.

Á fund­inum var ákveðið að frænka mín skipti um skóla. Það tók nokkra daga og þeir dagar voru not­aðir í að reyna að laga það sem fram kom á fund­inum. Það gekk ekki betur en svo að það virk­aði eins og að stelp­urnar héldu að þær hefðu hefðu fengið skot­leyfi á frænku mína. Þær ásök­uðu hana um að vera að ljúga upp á þær, þær legðu hana ekk­ert í ein­elti, hún væri algjör lyg­ari. Þær tvær stelpur sem voru stundum í sam­bandi við hana hættu alveg að vilja tala við hana og hún var algjör­lega útskúfuð.

Í nýja skól­anum hóf frænka mín nýtt og ham­ingju­ríkt líf. Hún eign­að­ist strax vin­konur og hafði þekkt eina stelpuna áður og það mjög vel. Sú stelpa var ástæðan fyrir því að hún valdi þennan skóla sem var mjög langt frá heim­ili hennar.

Strák­arnir í nýja skól­anum slóg­ust um félags­skap hennar og góð vin­átta á milli hennar og margra þeirra mynd­að­ist. Þetta voru bara vinir hennar, hún var alls ekki til­búin til að fara á fast.

Þessari vin­konu sem hún þekkti áður datt í hug einn dag­inn að úti­loka frænku mína og byrj­aði á að búa til lyga­sögur um hana. Sem betur fer sagði frænka mín mér strax frá því, hringdi grát­andi í mig og fannst allt vera hrunið, nú væri ein­eltið að byrja aftur og hún væri bara ömur­leg og einskis virði. Ég hringdi í kennar­ann hennar sem tók strax á mál­unum. Þetta er ynd­is­leg kona með mikla reynslu og hún var ekki lengi að stoppa þetta. Í ljós kom að þessi stúlka lét stjórn­ast af afbrýði­semi út í vin­sældir frænku minnar. Frænka mín ákvað að fyr­ir­gefa vin­kon­unni en ég ráð­lagði henni samt að segja henni ekki hvað sem væri og alls ekki hvaða strák hún væri skotin í.

 Nýi skól­inn frá­bær

Þessi tæpu þrjú ár í nýja skól­anum voru ynd­is­leg. Frænka mín fann sig vel innan hóps­ins og það allir voru vinir, ekki bara stráka­hópar og stelpu­hópar eins og í hinum skól­anum. Enginn var meiri eða minni en hinir þrátt fyrir mis­mun­andi stöðu for­eldr­anna og allir höfðu sama rétt á að vera til. Ein­kunnir hennar héldu áfram að vera háar og hún var alltaf jafn­vin­sæl.

Í dag er frænka mín á þriðja ári í fram­halds­skóla og stendur sig vel. Hún fékk góða vinnu með skól­anum og í stað þess að eyða öllu í föt og sæl­gæti heimt­aði hún að fá að borga skóla­mál­tíð­irnar fyrir yngri systk­ini sín og býður þeim reglu­lega í bíó, keilu eða á skauta einu sinni í mán­uði.

Í dag er pabbi hennar kom­inn í betra starf, hann vinnur minna en fær hærri laun. Honum tókst að nurla saman fyrir tóm­stundum fyrir yngri börnin vegna mik­ils þrýst­ings frá frænku minni.

Krakk­arnir í hinum skól­anum fóru að líta frænku mína öðrum augum þegar þau sáu hversu vin­sæl hún var í nýja skól­anum og sumar stelp­urnar fóru að reyna að nálg­ast hana. Frænka mín er ekki lang­rækin, hún tók þeim vel en með fyr­ir­vara og sam­skiptin gengu oft­ast vel. Ef frænku minni fannst eitt­hvað slæmt vera að fara í gang lét hún sig hverfa og kom þeim ekki upp á neitt. Hún hefur lært mikið á þessu og lætur engan kúga sig lengur. Hún er afskap­lega heil­steypt, dug­leg og fal­leg að utan sem innan. Ég skamm­að­ist mín um tíma fyrir að hafa ekki gripið fyrr í taumana, ég hlust­aði ekki nógu vel og hélt að frænka mín ætti mik­inn þátt í þessu, að hún byði bara upp á þetta án þess að átta sig á því sjálf. Í raun var hún mjög óheppin með bekkj­ar­systur sem of margar kunnu ekki þá góðu reglu að far­sæl­ast sé að koma fram við aðra eins og maður vill láta koma fram við sig.

Með þess­ari frá­sögn minni vil ég alls ekki setja út á kenn­ara eða annað starfs­fólk í skólum en finnst samt að það þurfi að finna betri leið til að upp­ræta svona kúgun og hljóð­laust ein­elti eins og frænka mín lenti í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynsla

Skiptir mestu máli að fá skapandi hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd
Fólk

Skiptir mestu máli að fá skap­andi hug­myndir og hrinda þeim í fram­kvæmd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri. Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún...
„Læknirinn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjörutíu og fimm ára afmælisdaginn“
Fólk

„Lækn­ir­inn sagði að ég væri heppin ef ég lifði til að halda upp á fjöru­tíu og fimm ára afmæl­is­dag­inn“

Ana Marcovic ólst upp Serbíu en flutti til Íslands sem ung­lingur, lærði véla­verk­fræði og síðan hátækni­verk­fræði við Háskóla Íslands og var farin að reka sitt eigið tækni­teikn­un­ar­fyr­ir­tæki þegar hún greind­ist með liða­gigt og síðar vefja­gigt sem ollu því að hún varð nán­ast ófær um að hreyfa sig. Ana var ekki á því að gef­ast upp fyrir sjúk­dómunum, tók að stunda...
„Aðalmálið að njóta lífsins og vera þakklátur fyrir það sem maður hefur“
Innlent

„Aðal­málið að njóta lífs­ins og vera þakk­látur fyrir það sem maður hefur“

Hrafn Val­dís­ar­son missti móður sína á svip­legan hátt þegar hann var nítján ára gam­all. Þau mæðginin höfðu alla tíð verið náin og miklir vinir og áfallið var mikið. Móðir hans, Valdís Gunn­ars­dóttir, var um ára­bil ein vin­sælasta útvarps­kona lands­ins. Hún var þekkt fyrir að tala mikið um ást­ina og kær­leik­ann og var stundum kölluð róm­an­tís­kasta kona Íslands. „En mamma var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu