„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heitar teskeiðar og laukur í baráttunni gegn lúsmýi

Einn af fáum leiðum fylgi­kvillum sum­ars­ins eru flugna- og skor­dýra­bitin. Nú þegar ásókn lús­mýs eykst stöðugt hér á landi er vert að kynna sér helstu lausnir til varnar óþæg­indum.

Heitar teskeiðar og laukur í baráttunni gegn lúsmýi

Örfá ár eru síðan fyrsta lús­mýið fannst í Hval­firði en nú hefur það gert vart við sig á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar. Sum­ar­bú­staða­fólk hefur þurft að yfir­gefa bústaði sína víða á Suð­ur­landi vegna ónæðis frá mýinu en stungur þess geta valdið svæsnum ofnæm­is­við­brögðum. Til eru dæmi um fólk sem hefur selt sum­ar­bú­staði sína vegna far­ald­urs­ins svo ljóst er að smá­dýrin valda miklum usla.

Lúsmýið er rúmur milli­metri að stærð og sést vart með berum augum en lík­ist helst frjó­kornum sem virð­ast fjúka um loftið en stekkur á menn og dýr, nær­ist á blóði og skilur svo eftir sig ljót sár. Mýið bítur jafnt utan- sem inn­an­dyra og smýgur inn í fatnað sem og í hár­svörð svo erfitt er að verj­ast bitum. Húðin verður rauð, bólgin og hnúða­kennd en mik­ill kláði fylgir í kjöl­farið. Að öðru leyti ættu bitsár ekki að valda óþæg­indum nema við­kom­andi hafi ofnæmi fyrir skor­dýra­biti.

Lúsmýið er rúmur milli­metri að stærð og sést vart með berum augum.

Hægt er að taka ólyf­seð­ils­skyld ofnæm­is­lyf við óþæg­ind­unum en jafn­framt er gott að bera stera­krem á sárin. Vifta í svefn­her­bergi fælir mýið frá en tvennum sögum fer af því hvort flugna­fæla beri árangur á þessa teg­und bit­dýrs. Ótal hús­ráð er að finna til að var­ast plág­una, meðal ann­ars að skera lauk í sneiðar og raða upp í glugga­syllur, tea tree-olía á jafn­framt að vera árang­urs­rík ásamt B-vítamíni sem raðað er í kringum rúmið, after bit-pennar og flugna­sprey standa jafn­framt fyrir sínu en sjóð­andi heit teskeið sett á sárið á líka að hjálpa.

Fyrst eftir bit er best að láta sárið í friði og til að draga úr bólgu­myndun er gott að kæla með ísmolum í þvotta­stykki. Hægt er að draga úr kláða með stað­deyf­andi kremi. Sé við­kom­andi bit­inn í munn eða kok getur slím­húð bólgnað og stíflað önd­un­ar­veg. Ef útbrot og bólga eykst í stað þess að hjaðna skal alltaf leita læknis.

Flestir verða fyrir skor­dýra­biti að nóttu til og þegar vafi leikur á um hvers kyns bit sé að ræða er gott að athuga hvort fleiri bit finn­ist víðar á lík­am­anum. Flær stinga sem dæmi nokkur bit í senn og þá er hægt að finna bit vítt og breitt um lík­amann. Eins er algengt að vera bit­inn af hópi mýflugna þegar sofið er við opinn glugga. Besta vörn gegn skor­dýra­biti er að vera vel klæddur. Síðar ermar, buxur og skór geta komið í veg fyrir bit.

Sítrónur geta kælt og dregið úr kláða.
  • Hun­angs­fl­ugur, geit­ungar, flær og mý eru algeng­ust skor­dýra á Íslandi en sífellt fleiri bæt­ast í hóp­inn ár hvert.
  • Best er að fjar­lægj­ast býfl­ugur- eða geit­unga með því að ganga hægt í burtu. Varist að slá til flugna því þannig eykst hættan á að þær bregð­ist við með árás.
  • Moskítófl­ugur finn­ast alls staðar í ver­öld­inni, mest þar sem hiti og raki er mik­ill og allra mest í fenjum og mýrum.
  • Nuddið ferskri sítrónu eða epla­ediki á stungu­svæðið, það kælir, sótt­hreinsar og slær á kláða.
  • Smyrjið tann­kremi á sárið og látið þorna í um það bil hálf­tíma.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð ráð

Rökhugsunin virkar ekki sem skyldi þegar fólk er æst
Fólk

Rök­hugs­unin virkar ekki sem skyldi þegar fólk er æst

Sara Dögg Eiríks­dóttir, félags­ráð­gjafi og fjöl­skyldu­fræð­ingur hjá Sam­skipta­stöð­inni, segir ágrein­ing í sam­böndum vera eðli­legan og óhjá­kvæmi­legan. En ágrein­ing­inn þarf að tækla rétt og hún gefur nokkur góð ráð í nýjum pistli sem lesa má hérna. Meðal þess sem Sara mælir með að fólk geri er að æfa sig í að ná ró og stjórn á skap­inu. „Þegar við verðum reið...
Heldur þú heimilinu gangandi á meðan maki þinn gerir ekkert?
Fólk

Heldur þú heim­il­inu gang­andi á meðan maki þinn gerir ekk­ert?

Það getur verið krefj­andi að vera í para­sam­bandi og algengt umkvört­un­ar­efni para eða hjóna er upp­lifun á ójafnri verka­skipt­ingu á heim­il­inu. Íris Eik Ólafs­dóttir fjöl­skyldu­fræð­ingur og sátta­miðl­ari, skrifar um málið í sinn nýjasta pistil. Hún segir fólk oft upp­lifa sig gera allt á meðan mak­inn gerir ekki neitt innan heim­il­is­ins. „Algengt er að parið upp­lifi stöðu sína á afar mis­mun­andi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu