„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Klassískar kvikmyndir fyrir alla fjölskylduna

Alþjóð­leg barna­kvik­mynda­há­tíð stendur nú yfir í Bíó Paradís. Að sögn Arons Víglunds­sonar dag­skrár­stjóra kennir ýmissa grasa á hátíð­inni en í for­grunni verða sígildar perlur sem öll fjöl­skyldan getur haft gaman af.

Klassískar kvikmyndir fyrir alla fjölskylduna
||
Aron Víglunds­son.

„Það má segja að nostal­gía ein­kenni hátíð­ina í ár, bæði hvað varðar inn­lendar og erlendar myndir, þar sem við ætlum að sýna myndir sem eru fyrir löngu orðnar sígildar. For­eldrar geta því farið með börn­unum sínum í bíó og end­ur­upp­lifað myndir sem þeir höfðu gaman af í æsku. Það verður eitt­hvað fyrir alla,“ segir Aron, en í bíó­inu verður fjöl­breytt úrval kvik­mynda í fullri lengd ásamt vel völdum stutt- og heim­ilda­myndum.

Þetta er í sjötta sinn sem Alþjóð­leg barna­kvik­mynda­há­tíð er haldin en hún var opnuð í gær­kvöldi með sýn­ingu á hinni sígildu Benjamín dúfu frá árinu 1995.

„Helstu aðstand­endur mynd­ar­innar voru við­staddir, leik­arar og höf­und­ur­inn Friðrik Erlings­son en þeir hafa ekki komið saman í nokkra ára­tugi. Auk þess hefur myndin sjálf ekki sést sést í bíó í tugi ára en þetta er end­ur­bætt staf­ræn útgáfa sem hefur lengi verið í burð­ar­liðnum og því má kannski segja að þetta sé seinni frum­sýn­ing mynd­ar­innar á Íslandi,“ segir Aron kím­inn.

Alls kyns skemmtilegir viðburðir

Fjöldi ann­arra áhuga­verðra mynda verður til sýnis eins og áður sagði. Glæný staf­ræna útgáfa af Ronju ræn­ingja­dóttur með íslensku tali, The Never­End­ing Story, Ghost­busters og Dark Crystal úr smiðju Jims Henson, skap­ara Prúðu­leik­ar­anna. Auk þess sem boðið verður upp á alls konar við­burði tengda mynd­unum.

„Til dæmis verður nám­skeið í slím­gerð fyrir sýn­ing­una á Ghost­busters núna á sunnu­dag, af því að í mynd­inni kemur slím tals­vert við sögu. Borg­ar­leik­húsið verður með leik­list­ar­spjall í til­efni af sýn­ingu á mynd­inni Matt­hildi en leik­rit byggt á sama verki er sýnt í leik­hús­inu. Og svo verður skraut­skrift­ar­nám­skeið í tengslum við sýn­ingar á japönskum fjöl­skyldu­myndum. Sem sagt alls konar skemmti­leg­heit,“ segir Aron.

Til dæmis verður nám­skeið í slím­gerð fyrir sýn­ing­una á Ghost­busters núna á sunnu­dag

Hann bætir við að mikið sé lagt upp úr því að hafa dag­skránna á hátíð­inni sem veg­leg­asta enda sé mik­il­vægt að glæða áhuga barna á kvik­myndum og menn­ingu.

„Já, það skiptir ótrú­legu máli að auka fram­boðið af góðum myndum fyrir börn og færa þeim bæði fjöl­breytt og áhuga­vert efni víðs­vegar að úr heim­inum. Þessi hátíð er frá­bært tæki­færi til þess og fyrir kyn­slóð­irnar til að koma saman og eiga góða stund,“ segir hann og getur þess að aðeins 1.000 krónur kosti inn á hátíðin sem stendur yfir til 14. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins