„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mismunandi stefnum íslensku listasenunnar sullað saman

Í annað sinn eftir land­nám Íslands verður lista­há­tíðin Gambri haldin. Við­burð­ur­inn fer fram í einu þekktasta götu­list­ar­gall­eríi heims, Urban Spree – 1700 m² svæði í hjarta Berlín­ar­borgar.

Mismunandi stefnum íslensku listasenunnar sullað saman

Nafn sýn­ing­ar­innar, Gambri, er til­vitnun í brugg­menn­ingu Íslend­inga þar sem geri, sykri og vatni er sullað saman í tunnu og látið gerj­ast. Úr þessu verður til gambri sem er svo eimaður svo úr verður loka­af­urðin, landi. Á sama hátt verður sullað saman mis­mun­andi stefnum íslensku lista­sen­unnar ofan í tunnu Urban Spree-gall­er­ís­ins og hug­vit lista­mann­anna látið gerj­ast í einni alls­herjar lista­há­tíð svo úr verður Gambri II. Þátt­tak­endur Gambra eru yfir 40 tals­ins og verður hátíðin sam­an­sett úr þéttri dag­skrá og verkum á borð við skúlp­t­úra, tón­list, gjörn­inga, hönnun, húð­flúr, mynd- og götu­list.

Upphaf sýn­ing­ar­innar má rekja til árs­ins 2014 á ónefnda skrif­stofu á Lauga­veg­inum. Þar sat lista­mað­ur­inn Narfi með kúlu­penna sem stóð á sér. Hring eftir hring krass­aði hann með penn­anum til að reyna að kalla fram blekið. Smám saman birt­ist blekið úr stífl­uðum penn­anum og rann óhindrað í hringi svo úr varð ein­hvers konar net spírala. Sumir þykkir, aðrir þunnir. Sumir stórir, aðrir smáir. End­ur­tekn­ingin og mynstrin sem birt­ust kveiktu hug­mynd sem hefur síðan þá orðið að stíl­bragði sem hefur tekið á sig mynd í mál­verkum, vegg­verkum og húð­flúrum Narfa.

Árið 2018 urðu svo önnur kafla­skil þegar kúlu­penn­inn end­aði í kjaft­inum á bor­vél. Hraðinn og nákvæmnin í bor­vél­inni gerði það að verkum að mynstrið og blæ­brigðum þess var betur stjórnað af lista­mann­inum en útkoman varð óút­reikn­an­legri. Framlag vél­ar­innar varð stærri partur af verkum Narfa og skil lista­manns og vélar urðu óskýr. Narfi varpar fram spurn­ing­unni hvort vélin sé við­eig­andi tól til list­sköp­unar og hvaða áhrif það hefur á gildi verk­anna. Í gegnum ald­irnar hefur mað­ur­inn notað vélar til þess að létta sér verkin. Er þetta rök­rétt fram­hald?

Lista­há­tíðin hófst á mið­viku­dag­inn síð­asta og stendur til föstu­dags­ins 28. júní. Ef þú ert í Berlín þá mælum við svo sann­ar­lega með að þú leggir leið þína á Gambra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza