„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ný kynslóð verðlaunahafa á Íslensku tónlistarverðlaununum

GDRN, Víkingur Heiðar, Auður, Karl Olgeirs­son, Valdimar, Jónas Sig og JóiPé og Króli fengu flest verð­laun þegar Íslensku tón­list­ar­verð­launin fyrir tón­list­ar­árið 2018 voru veitt í Hörpu í gær­kvöldi. Jón Ásgeirs­son fékk sér­stök heið­ursverð­laun á athöfn­inni og boðið var upp á fjöl­breytt skemmti­at­riði úr ýmsum áttum.

Ný kynslóð verðlaunahafa á Íslensku tónlistarverðlaununum
GDRN – Guðrún Ýr Eyfjörð var að gefa út nýtt lag

Fjöl­breytni og fag­mennska var í fyr­ir­rúmi á glæsi­legri verð­launa­há­tíð tón­list­ar­geirans þegar íslensku tón­list­ar­verð­launin voru afhent í Silf­ur­bergi Hörpu í gær­kvöldi. Það má með sanni segja að bjartar vonir síð­ustu ára séu til­búnar að stimpla sig inn og gott betur því á sviði stóð ný kyn­slóð verð­launa­hafa á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum sem átti stóran þátt í að setja sinn svip á kvöldið og gera það eft­ir­minni­legt. Und­an­farið hefur mikið verið rætt um að kyn­slóð­ar­skipti séu að eiga sér stað í íslensku tón­list­ar­lífi og ekki verður undan því hlaupið að leiða hug­ann að því þegar litið er til verð­launa­hafa kvölds­ins.

GDRN hlaut verð­laun fyrir mynd­band árs­ins við lagið, Lætur mig, en mynd­band­inu er leik­stýrt af Ágústi Elí Ásgeirs­syni

Tón­list­ar­konan GDRN, eða Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir eins og hún heitir fullu nafni hlaut fern verð­laun á hátíð­inni og má segja að þetta hafi verið kvöldið hennar. Plata GDRN, Hvað ef, var valin popp­plata árs­ins en hér er á ferð­inni ein­stak­lega fram­bæri­leg frumraun þar sem allt smellur saman, frá­bærar laga­smíðar og áhuga­verðir textar.

Lagið, Lætur mig, sem hún syngur með Flóna og samið með ra:tio var valið popp­lag árs­ins og Guðrún Ýr var kosin söng­kona árs­ins í flokki popp, rokk, raf- og hiphopptón­listar. Að end­ingu fékk GDRN verð­laun fyrir mynd­band árs­ins við lagið, Lætur mig, en mynd­band­inu er leik­stýrt af Ágústi Elí Ásgeirs­syni. Frábær upp­skera hjá vax­andi lista­konu.

Auður hlaut flestar til­nefn­ingar í ár eða alls átta tals­ins.

Auðunn Lúth­ers­son (Auður) er búinn að stimpla sig ræki­lega inn og átti hreint út sagt frá­bært ár í fyrra og upp­skar eftir því á verð­launa­af­hend­ingu kvölds­ins. Plata hans, Afsak­anir, var valin plata árs­ins í raf­tón­list auk þess sem Auður var val­inn laga­höf­undur árs­ins 2018 en platan þykir afar heil­steypt verk sem ein­kenn­ist af sterkum laga­smíðum og nær óað­finn­an­legri upp­töku­stjórn og hljóð­blöndun. Þess má geta að Auður hlaut flestar til­nefn­ingar í ár eða alls átta tals­ins en hann hlaut jafn­framt tvenn verð­laun á Íslensku tón­list­ar­verð­launum árið 2017.

Í heild­ina voru um 37 verð­laun afhent á verð­launa­af­hend­ing­unni en þess fyrir utan voru verð­launin fyrir plötu­umslag árs­ins afhent sér­stak­lega í þætt­inum Menn­ing­unni á RÚV kvöldið áður. Hér verður tæpt á öllu því helsta og neðar í til­kynn­ing­unni má finna heild­ar­upp­taln­ingu allra verð­launa­hafa.

JóaPé & Króli unnu plata árs­ins 2018 í Rapp og hipphopp.

Plata árs­ins 2018 í Rapp og hiphopp var að þessu sinni skífan, Afsakið hlé, með JóaPé & Króla. Þeir félag­arnir áttu líka lag árs­ins í flokki rapptón­listar en þar var lagið, Í átt að tungl­inu, sem bar af í ár að mati dóm­nefndar og ekki má betur sjá en að JóiPé & Króli eru komnir til að vera.

Í flokki sígildrar og sam­tímatón­listar var það Víkingur Heiðar Ólafsson sem fór heim með verð­launa­grip­inn fyrir plötu árs­ins fyrir hljóð­ritun á hljóm­borðs­tón­list eftir Johann Sebast­ian Bach. Óhætt er að full­yrða að Víkingur geri tón­list þessa mikla meist­ara barokks­ins frá­bær skil en Víkingur Heiðar var einnig val­inn tón­list­ar­flytj­andi árs­ins úr röðum ein­stak­linga en á liðnu ári hélt hann frá­bæra útgáfu­tón­leika til þess að fagna útgáfu plötu með tón­list Johann Sebast­i­ans Bach auk þess sem hann frum­flutti nýjan píanó­konsert Hauks Tóm­as­sonar.

Spectra eftir Önnu Þor­valds­dóttur var valið tón­verk árs­ins í sígildri og sam­tímatón­list en hljóð­heimur þess og línur eru hvort tveggja í senn seið­andi en jafn­framt ögrandi tón­vefur að mati dóm­nefndar.

Strokkvar­tett­inn Siggi var val­inn tón­list­ar­flytj­andi árs­ins úr röðum hópa en kvar­tett­inn hefur frá upp­hafi verið í fremstu röð kamm­er­hópa og unnið ötul­lega að nýsköpun í tón­list­ar­lífi hér á land. Söngvari árs­ins var val­inn Oddur Arnþór Jónsson fyrir burð­ar­hlut­verk í óper­unni Brothers eftir Daníel Bjarna­son þar sem hann túlk­aði hlut­verk Michael stór­kost­lega í eft­ir­minni­legri upp­færslu, bæði hvað varðar leik og söng. Söngkona árs­ins er Hallveig Rún­ars­dóttir sem blómstr­aði í verk­efnum sínum á liðnu ári og hefur ein­stakt lag á að snerta hjörtu áheyr­enda. Hún heill­aði áhorf­endur meðal ann­ars með söng sínum í Klassíkin okkar og skemmti ungum sem öldnum í tit­il­hlut­verk­inu í frum­flutn­ingi á óper­unni Gilitrutt eftir Hildig­unni Rún­ars­dóttur.

Óperan Brothers eftir Daníel Bjarna­son í upp­setn­ingu Íslensku Óper­unnar hlaut Íslensku tón­list­ar­verð­launin sem tón­list­ar­við­burður árs­ins í sígildri og sam­tímatón­list. Þessi upp­færsla á magn­þrung­inni óperu þótti stór­feng­leg og vel skipuð frá­bærum lista­mönnum í hverju hlut­verki, bæði innan sviðs og utan. Ein­söngv­arar ásamt og kór Íslensku óper­unnar og Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands undir stjórn tón­skálds­ins Daníels Bjarna­sonar sköp­uðu eina eft­ir­minni­leg­ustu óperu­sýn­ingu sem sett hefur verið upp hér á landi. Tón­list­ar­við­burður árs­ins úr flokki hátíða eru Óperu­dagar í Reykja­vík en með fádæma fram­taks­semi og sterkri list­rænni sýn hafa stjórn­endur Óperu­daga sýnt fram á nýja mögu­leika og hinar fjöl­breytt­ustu birt­ing­ar­myndir óperu­forms­ins, auk þess að fara nýstár­legar leiðir í að ná til og heilla áhorf­endur.

Verðlaun fyrir útgáfu árs­ins í flokki kvik­mynda og leik­hús­tón­listar voru veitt í þriðja sinn og komu í hlut Davíðs Þórs Jóns­sonar fyrir mús­ík­ina við kvik­mynd­ina Kona fer í stríð. Í huga dóm­nefndar er tón­listin við mynd Bene­dikts Erlings­sonar alger­lega órofa hluti af mynd­máli mynd­ar­innar.

Í flokki popp og rokktón­listar átti Valdimar rokk­plötu árs­ins og var einnig val­inn söngv­ari árs­ins.

Í flokki popp og rokktón­listar réð fjöl­breytnin ríkjum í ár en verð­laun skipt­ust á nokkrar hendur. Valdimar átti rokk­plötu árs­ins, en platan Sitt sýn­ist hverjum, þykir afar sterkt verk þar sem að text­arnir spila stóra rullu og hljóð­heim­ur­inn er bæði stór og mik­il­feng­legur. Valdimar Guð­munds­son var val­inn söngv­ari árs­ins fyrir frá­bæra frammi­stöðu sína Sitt sýn­ist hverjum en Valdimar býr yfir ein­stak­lega fal­legri rödd með ótal blæ­brigðum, flauels­mjúk og kraft­mikil í senn. Verð­launin fyrir rokklag árs­ins féllu í skaut Benny Crespo’s Gang fyrir lagið, Another Little Storm en lagið þykir að mati dóm­nefndar gríð­ar­lega vel samið, gríp­andi og vel flutt. Texta­höf­undur árs­ins var Svavar Pétur Eysteins­son sem á nýj­ustu plötu Prins Póló heldur áfram að syngja skemmti­lega texta af barns­legri ein­lægni, í bland við alvar­leika og þráð­beinan sann­leik enda oft­ast gott kaffi þegar Svavar Pétur á í hlut.

Laga­höf­undur árs­ins var eins og fyrr hefur komið fram Auðunn Lúth­ers­son (Auður) og söng­kona árs­ins var valin Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir (GDRN).

Hatari hlaut Íslensku tón­list­ar­verð­launin sem tón­list­ar­flytj­andi árs­ins

Hljóm­sveitin Hatari hlaut Íslensku tón­list­ar­verð­launin sem tón­list­ar­flytj­andi árs­ins og kemur sú nafn­bót eflaust engum á óvart enda er sveitin kraft­mikið list­rænt atriði sem fær alla sem á horfa til þess að staldra við og hlusta (og jafn­vel dansa smá líka).

Aldrei fór ég suður var val­inn tón­list­ar­við­burður árs­ins 2018 en á síð­ustu 15 árum hefur hátíðin fest sig ræki­lega í sessi sem einn af stóru við­burð­unum í íslensku tón­list­ar­lífi. Á Aldrei fór ég suður eiga allar teg­undir íslenskrar dæg­ur­tón­listar sér sama­stað og í fyrra var slegið aðsókn­ar­met en talið er að íbúa­fjöldi Ísa­fjarð­ar­bæjar hafi tvö­fald­ast á meðan á hátíð stóð.

Sólhvörf var valin þjóð­laga­plata árs­ins en þar tekur sveitin Umbra hlust­and­ann í heill­andi ferða­lag þar sem tón­list tengd dimmum vetr­ar­dögum er í for­grunni. Virki­lega vönduð plata þar sem lögin eiga það sam­eig­in­legt að vera fram­úr­skar­andi útsett og flutt. Arnór Dan hlaut verð­laun fyrir lag árs­ins í opnum flokki, en í lag­inu Stone By Stone fetar Arnór Dan nýjar brautir þar sem feg­urð og fram­úr­stefna fá að njóta sín til fulln­ustu í firna­góðri tón­smíð.

Gyða Val­týs­dóttir átti plötur árs­ins í opnum flokk en á Evolution þykir hún sýna gríð­ar­lega sterk höf­und­ar­ein­kenni á sinni fyrstu sóló­plötu með frum­sömdu efni. Þversögn ein­kennir plöt­una en hún er kraft­mikil og sann­fær­andi, en um leið við­kvæmn­is­leg og blíð.

Veit voru verð­laun fyrir upp­töku­stjórn og það var Ómar Guð­jóns­son sem hlaut þau fyrir heil­steypta hljóð­mynd á plötu Jónas Sig, Milda hjartað. Hljóð­heimur Milda hjart­ans, skír­skotar að sumu leyti til flauels­mýktar söngvaskálda átt­unda ára­tug­ar­ins en tekur líka til hrá­leika og kynn­gi­krafts, eins og heyra má í smell­inum „Dansaðu.“ Heild­ar­hljóm­ur­inn er líf­rænn og umlykj­andi og heldur hlust­and­anum föngnum allt til enda segir í umsögn dóm­nefndar.

Milda hjartað hlaut fleiri verð­laun en á þriðju­dag­inn var tekið smá for­skot á sæl­una en þá voru veitt verð­laun fyrir plötu­umslag árs­ins í þætt­inum Menn­ing­unni á RÚV. Verð­launin fyrir plötu­umslag komu í hlut Ámunda Sig­urð­ar­sonar hönn­uðar og Jónatans Grét­ars­sonar ljós­mynd­ara en það var umslagið fyrir plötu Jónasar Sig., Milda hjartað sem bar sigur úr bítum. Sterk ljós­mynd af and­liti höf­undar und­ir­strikar titil plöt­unnar og efni­við­inn vel. Jónas er í senn mildur í fasi og ein­beittur, nákvæm­lega eins og djúpir text­arnir sem fjalla um styrk kær­leik­ans í við­sjár­verðum sam­tím­anum.

Karl Olgeirs­son stóð uppi með tvenn verð­laun, fyrir djas­s­plötu árs­ins og sem laga­höf­undur árs­ins í flokki djass og blús.

Í flokki djass og blús var það Karl Olgeirs­son sem stóð uppi með tvenn verð­laun, fyrir djas­s­plötu árs­ins og sem laga­höf­undur árs­ins. Plata Karls, Mitt bláa hjarta þykir með afbrigðum góð en hún inni­heldur fjórtán nýja djass­söngva. Bæði tón­smíðar og textar eru gríp­andi með hnyttnum skírskot­unum í íslenskan veru­leika en fjöldi söngv­ara og hljóð­færa­leik­ara kemur fram á plöt­unni og er hún kær­komin við­bót í flóru íslenskra djass­söngva. Laga­smíðar plöt­unnar þykja sem fersk vind­hviða inn í tón­list­ar­lífið, fjöl­breytt og aðgengi­leg án þess að gefa nokkurn afslátt af fag­ur­fræði eða inni­haldi.

Bugða eftir Agnar Már Magn­ús­son hlaut verð­laun sem tón­verk árs­ins í djass og blús en þar hlykkj­ast raddir píanós og gít­ars hverjar um aðra í fal­legu og áhuga­verðu sam­tali sem unun er að hlýða á. Tón­list­ar­flytj­andi árs­ins úr hópi ein­stak­linga var Kjartan Valde­mars­son, en Kjartan er einn virkasti og ást­sæl­asti tón­list­ar­maður þjóð­ar­innar. Hann hefur leikið inn á fjöld­ann allan af hljóm­plötum, á tón­leikum og unnið mikið í leik­húsi, útvarpi og sjón­varpi – ýmist sem tón­skáld, útsetj­ari eða hljóð­færa­leik­ari. Tón­list­ar­flytj­andi árs­ins úr flokki stærri sveita og hópa var Stór­sveit Reykja­víkur en starf­semi hennar var með blóm­leg­asta móti á síð­asta ári. Hljóm­sveitin hélt marga fjöl­breytta og metn­að­ar­fulla tón­leika þar sem lögð var áhersla á nýja tón­list, bæði inn­lenda sem erlenda.

Tón­leik­araðir Jazzklúbbsins Múlans var kos­inn tón­list­ar­við­burðir árs­ins 2018. Í fyrra var tuttug­asta og fyrsta starfsár Múlans og var árið að vanda metn­að­ar­fullt og sýndi gott þver­snið af því sem er að ger­ast í íslensku djass­sen­unni. Fjöldi tón­leika voru 43 og fram komu margir af fremstu tón­list­ar­mönnum og -konum lands­ins ásamt nokkrum vel völdum erlendum gestum.

Björtustu vonirnar

Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhann­es­son, veitti þrenn verð­laun á hátíð­inni sem komu í hlut bjartra vona í íslensku tón­list­ar­lífi.

Í flokki sígildrar og sam­tímatón­listar er það Björk Níels­dóttir sem er bjartasta vonin. Björk hefur verið að skapa sér sess sem einn af áhuga­verð­ustu tón­list­ar­mönnum okkar. Hún starfar sem tón­skáld, hljóð­færa­leik­ari og ein­söngv­ari og syngur jafnt þjóð­lagatón­list, sígilda og sam­tímatón­list Hún starfar með kamm­er­hóp­unum Duplum dúó og Stirni ems­emble hér heima auk þess að taka þátt í erlendu sam­starfi. Ein­stak­lega fjöl­hæf og næm lista­kona sem verður afar spenn­andi að fylgj­ast með í fram­tíð­inni.

Í flokki djass og blús er það Daníel Helgason gít­ar­leik­ari sem hlýtur þessa nafn­bót í ár. Daníel Helgason er ein­stak­lega fjöl­hæfur gít­ar­leik­ari og kemur víða við í starfi sínu sem flytj­andi lif­andi tón­listar og í hljóð­verum lands­ins. Hann er einn fárra íslenskra gít­ar­leik­ara sem hefur til­einkað sér kúbanska tres­gít­ar­inn og kafað í stíl­brögð tón­listar Suður Ameríku. Ásamt flytj­anda­starf­inu er Daníel afkasta­mikið tón­skáld og með­limur tríós­ins DÓH sem sendi frá sér plöt­una DÓH á árinu.

Bjartasta vonin í poppi, rokki, rappi og raf­tón­list var til­nefnd af starfs­fólki Rásar 2 eins og und­an­farin ár. Kosning fór fram á vef Rásar 2 en það er Bríet sem hlýtur nafn­bót­ina í ár, bjartasta vonin 2019. Bríet gaf út sína fyrstu smá­skífu árið 2018 og vakti strax mikla athygli enda setur eið­andi rödd Bríetar, næmni hennar og góð túlkun hana í fremstu röð söng­kvenna. Það má búast við því að árið 2019 verði spenn­andi en von er á nýju efni auk þess sem hún er nú þegar farin að þreifa fyrir sér erlendis.

Jón Ásgeirs­son hlýtur heið­ursverð­laun Samtóns í ár. Jón Ásgeirs­son er einna þekkt­astur fyrir söng­tón­list sína; sönglög, kór­verk og óperur.

Heiðursverðlaun

Jón Ásgeirs­son hlýtur heið­ursverð­laun Samtóns í ár en það var mennta og menn­ing­ar­mála­ráð­herra Lilja Alfreðs­dóttir sem afhenti Jóni verð­launin og ekki annað sagt en að Jón Ásgeirs­son sé verð­skuld­aður heið­ursverð­launa­hafi Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna.

Jón Ásgeirs­son er fæddur á Ísafirði 1928 og varð því níræður á síð­asta ári. Jón hefur á langri æfi verið afkasta­mikið tón­skáld, kenn­ari og höf­undur kennslu­bóka í tón­list. Á meðal kamm­er­verka hans má nefna strengja­kvar­tetta, blásara­k­vin­tetta, oktett fyrir blás­ara og Sjö­strengja­ljóð fyrir strengja­sveit. Konsert­arnir eru sex fyrir ýmis hljóð­færi; síð­ast var flautu­konsert hans frum­fluttur á tón­leikum Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands í jan­úar á þessu ári.

Jón Ásgeirs­son er einna þekkt­astur fyrir söng­tón­list sína; sönglög, kór­verk og óperur. Þá samdi Jón ball­ett­inn Blind­is­leik sem sýndur var í Þjóð­leik­hús­inu árið 1979. Ein­söngs­lög Jóns eru um 90 tals­ins. Hæst ber lög hans við ljóð Halldórs Laxness: Maí­stjörn­una, Hjá lygnri móðu og Vor hinsti dagur, þá má nefna söng­laga­flokk­inn Svart­álfa­dans við ljóð Stefáns Harðar Gríms­sonar og hvert manns­barn á Íslandi þekkir kór­lag hans við vísur Vatns­enda-Rósu: Augun mín og augun þín. Á meðal stærri kór­verka Jóns eru Tíminn og vatnið við ljóð Steins Stein­arrs og Á þess­ari rím­lausu skeggöld við sam­nefnt kvæði Jóhann­esar úr Kötlum.

Jón kenndi um ára­bil við Kenn­ara­skóla Íslands, síðar Kenn­ara­há­skóla Íslands. Hann var skip­aður pró­fessor við skól­ann árið 1996, fyrstur allra til þess að gegna slíkri stöðu í list­greinum á Íslandi. Tólf árum síðar, árið 2008, var honum veitt dokt­ors­nafn­bót í heið­urs­skyni fyrir fram­lag hans til tón­list­ar­upp­eldis í skólum lands­ins.

Saga Garð­ars­dóttir var kynnir kvölds­ins í ár. Skemmti­at­riði á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum í ár komu úr ýmsum áttum en áttu það öll sam­eig­in­legt að vera til­nefnd til Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna. Fram komu  á hátíð­inni: Hórmónar, Víkingur Heiðar Ólafsson, GDRN, Auður, Karl Olgeirs­son ásamt Ara Braga Kárasyni og Ragn­heiði Gröndal, Ylja og að lokum var það hljóm­sveitin Valdimar sem stimpl­aði hátíð­ina út.

Alls voru veitt 38 verð­laun fyrir tón­list­ar­árið 2018 en það er Samtónn sem stendur að baki Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum. Að baki Samtón standa FÍH, FHF, STEF, SFS, FTT og Tón­skálda­fé­lag Íslands, Til­gangur Samtóns er að vinna að sam­eig­in­legum hags­munum og styrkja stöðu höf­unda, flytj­enda, fram­leið­enda og ann­arra rétt­hafa að tón­list. Samtónn kemur fram sam­eig­in­lega fyrir hönd íslenskra rétt­hafa og tón­list­ar­fólks.

Stjórn Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna skipa Margrét Eir Hönnu­dóttir, Kristján Freyr Hall­dórs­son og Jóhann Ágúst Jóhanns­son.

Frekari upp­lýs­ingar um Íslensku tón­list­ar­verð­launin má finna á heima­síðu hátíð­ar­innar: www.iston.is

Hér má sjá alla verð­launa­haf­ana Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna fyrir árið 2018:

Opinn Flokkur / Þjóðlagatónlist / Kvikmynda- og leikhústónlist

Útgáfa ársins – Kvikmynda- og leikhústónlist

Davíð Þór Jónsson – Kona fer í stríð

Plata ársins – Opinn flokkur

Gyða Val­týs­dóttir – Evolution

Plata ársins – Þjóðlagatónist

Umbra – Sólhvörf

Lag/tónverk ársins opinn flokkur / Þjóðlagatónlist / Kvikmynda- og leikhústónlist

Lag ársins í opnum flokki

Arnór Dan, Stone by stone

Plötuumslag ársins

Jónas Sig. – Milda hjartað

Hönnun: Ámundi Sig­urðs­son

Ljós­myndir: Jónatan Grét­ars­son

Upp­töku­stjórn árs­ins:

Ómar Guð­jóns­son fyrir Milda hjartað – Jónas Sig

Rokk, popp, raftónlist, rapp og hiphopp

Plata árs­ins – Popp:

GDRN – Hvað ef

Plata árs­ins – Rokk:

Valdimar – Sitt sýn­ist hverjum

Plata árs­ins – Rapp/Hiphopp:

JóiPé & Króli – Afsakið hlé

Plata árs­ins – Raf­tón­list:

Auður – Afsak­anir

Lag árs­ins – Popp:

GDRN – Lætur mig

Lag árs­ins – Rokk:

Benny Crespo’s Gang – Another Little Storm

Lag árs­ins – Rapp/Hiphopp:

JóiPé & Króli – Í átt að tungl­inu

Lagahöfundur ársins

Auðnn Lúth­ers­son (Auður)

Textahöfundur ársins

Svavar Pétur Eysteins­son (Prins Póló)

Söngkona ársins

Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir (GDRN)

Söngvari ársins

Valdimar Guð­munds­son

Tónlistarviðburður ársins

Aldrei fór ég suður

Tónlistarflytjandi ársins

Hatari

Bjartasta von Rásar 2 og Íslensku tónlistarverðlaunanna

Bríet

Tónlistarmyndband ársins 2018 – Albumm.is og Íslensku Tónlistarverðlaunin

GDRN – Lætur mig ft. Floni & ra:tio

Leik­stjóri: Ágúst Elí

Sígild og samtímatónlist

Plata ársins – Sígild og samtímatónlist

Johann Sebast­ian Bach – Víkingur Heiðar Ólafsson

Tónverk ársins – Sígild og samtímatónlist

Spectra – Anna Þorvalds

Tónlistarflytjandi ársins – einstaklingar : Sígild og samtímatónlist

Víkingur Heiðar Ólafsson

Tónlistarflytjandi ársins – hópar : Sígild og samtímatónlist

Strokkvar­tett­inn Siggi

Söngvari árs­ins – Sígild og sam­tímatón­list

Oddur Arnþór Jónsson

Söngkona ársins – Sígild og samtímatónlist

Hallveig Rún­ars­dóttir

Tónlistarviðburður ársins – Tónleikar : Sígild og samtímatónlist

Brothers eftir Daníel Bjarna­son – Íslenska Óperan, Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands ásamt ein­söngv­urum og kór Íslensku óper­unnar

Tónlistarhátíð ársins – hátíðir : Sígild og samtímatónlist

Óperu­dagar í Reykja­vík

Bjartasta Vonin – Sígild og samtímatónlist

Björk Níels­dóttir

Djass og blús

Plata ársins – Djass og blús

Karl Olgeirs­son – Mitt bláa hjarta

Tónverk ársins – Djass og blús

Bugða – Agnar Már Magn­ús­son

Lagahöfundur ársins – Djass og blús

Karl Olgeirs­son

Tónlistarflytjandi ársins – Einstaklingar : Djass og blús

Kjartan Valde­mars­son

Tónlistarflytjandi ársins – Hópar : Djass og blús

Stór­sveit Reykja­víkur

Tónlistarviðburðir ársins – Djass og blús

Tón­leik­araðir Jazzklúbbsins Múlans

Bjartasta vonin – Djass og blús

Daníel Helgason

Heiðursverðlaun og sérstök verðlaun Samtóns og Íslensku tónlistarverðlaunanna

Heiðursverðlaun Samtóns

Jón Ásgeirs­son

Myndir / Íslensku tón­list­ar­verð­launin

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza