„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Spyr hvort „gjörspillt” forsætisnefnd „samtryggingar karlaklíkunnar” sætti sig við kurteist kynþáttahatur

“Ég segi bara nei takk við þessu áliti,“ sagði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, í Sprengisandi í dag vegna álits for­sætis­nefndar um ummæli sem Þór­hildur lét falla í kjöl­far upp­lýs­inga um akst­urs­greiðslur til Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Spyr hvort „gjörspillt” forsætisnefnd „samtryggingar karlaklíkunnar” sætti sig við kurteist kynþáttahatur
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata. Mynd / Aldís Páls­dóttir.

„Það er ekk­ert inn­tak í því, það stenst ekki skoðun þegar kemur að siða­regl­unum sjálfum eða þegar for­sætis­nefnd sendi ein­hver til­mæli um að það mætti ekki skoða sann­leiks­gildi ummæl­anna minna heldur ætti bara að skoða hvernig ummælin voru sett fram,” sagði Þór­hildur Sunna enn fremur. „Í stað­inn fyrir að rann­saka fylli­lega til dæmis akst­urs­greiðslur til Ásmundar Frið­riks­sonar að þá festa þeir sig í orð­heng­ils­hætti í mínum ummælum.” Þing­konan segir for­sætis­nefnd gjör­spillta. „Mér finnst Alþingi í fyrsta lagi hafa sett gríð­ar­lega niður í þessu máli.”

Þór­hildur Sunna lét ummælin um Ásmund, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, falla í Silfrinu á RÚV í febr­úar 2018. Þar sagði hún að rök­studdur grunur væri um að Ásmundur hefði dregið sér fé í tengslum við end­ur­greiðslur sem hann þáði frá þing­inu. Greiðsl­urnar voru á grund­velli akst­urs­dag­bókar hans. „Þeir taka undir álit siða­nefndar að vegna þess að ég not­aði orðin rök­studdur grunur að þá gefi það í skyn að þau orð hafi verið látin falla í æsingi frekar en að þau byggi á mál­efna­legum rökum,” sagði Þór­hildur Sunna

„Ég afþakka þessa gild­is­dóma á mína fram­setn­ingu. Ég skil ekki hvaða leið­bein­ingar ég á að taka úr þessu. Hefði ég átt að setja þetta ein­hvern­veg­inn öðru­vísi fram og þá hvernig? Þeir færa engin rök fyrir því hvernig ég hefði átt að setja fram þessa skoðun mína. Þeir neita að skoða hvort að eitt­hvað var í því sem ég var að segja.”

Í áliti for­sætis­nefndar segir að til­gangur siða­regln­anna sé ekki að tak­marka tján­ing­ar­frelsi þing­manna. Það geti þó haft þýð­ingu hvernig tján­ingu er komið á fram­færi og við hvaða aðstæður. Skorður sem siða­regl­urnar setji lúti þannig ekki að efni tján­ingar heldur að ytra bún­ingi hennar, til að mynda um hátt­vísi og aðferð. Þá sagði Frétta­blaðið að for­sætis­nefnd telji siða­regl­urnar ekki gera ráð fyrir því að nefndi leggi mat á sann­leiks­gildi ummæla sem koma til skoð­unar vegna siða­reglna.

“Ég segi bara nei takk við þessu áliti. Það er ekk­ert inn­tak í því, það stenst ekki skoðun þegar kemur að siða­regl­unum sjálfum eða þegar for­sætis­nefnd sendi ein­hver til­mæli um að það mætti ekki skoða sann­leiks­gildi ummæl­anna minna heldur ætti bara að skoða hvernig ummælin voru sett fram.” 

Sama forsætisnefnd og klúðraði málsmeðferð Klaustursmálsins

„Ég skil ekki hvernig for­sætis­nefnd, sem vísar frá stað­festu til­viki um kyn­ferð­is­lega áreitni þing­manns gagn­vart blaða­manni, sem vísar frá kvörtun vegna óhóf­legra akst­urs­greiðslna Ásmundar Frið­riks­sonar, sem vísar frá kvörtun vegna ítrek­aðra ummæla vegna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um að það sé bara alvana­legt að karl­kyns þing­menn tali jafn ógeðs­lega um sam­þing­konur sínar, konur, fatl­aða og sam­kyn­hneigða og þeir félagar á Klaust­ur­bar gerðu,” sagði Sunna og bætti við: „Það sé bara ósköp venju­legt að allir karl­kyns þing­menn á þingi tali bara svona, að þetta sé bara ósköp venju­leg hegðun þing­manna, þar með graf­andi enn frekar undan öryggi okkar þing­kvenn­anna um leið og við snúum við baki við öllum körlunum á þingi að þá talið þið svona um okkur. Þetta hefur hann ítrekað sagt og þessu vísar for­sætis­nefnd frá.”

„Þetta er sama for­sætis­nefnd og klúðr­aði að öllu leiti allri málsmel­ferð í Klaust­urs­mál­inu en kýs að hengja sig í ein­hvern orð­tæk­is­hátt og gild­is­dóma um hvernig ég tjái mig en ekki um hvað ég segi, eða hvort að það sé satt eða logið,” sagði Sunna. „Lítur fram hjá öllum rökum um tján­ing­ar­frelsi þing­manna og mínum skyldum til þess að tjá mig um atburði líð­andi stundar. Til þess einmitt að vinna gegn spill­ingu og vinna fyrir því að það gildi rétt­ar­ríki á Íslandi. Ég kalla þá for­sætis­nefnd gjör­spillta af sam­trygg­ingu karlaklíkunnar sem neitar að taka afstöðu til nokk­urs nema bara mína fram­komu, ungrar konu í stjórn­ar­and­stöðu sem að móðg­aði mið­arla karl.“

„Ef að ég er kurteis kynþáttahatari, er ég þá ekki siðabrjótur?”

Sunna sagði rök­stuðn­ing siða­nefndar ekki vera í sam­ræmi við siða­regl­urnar. „Í þess­ari grein, sem að ég er talin hafa brotið, þar er talað um að end­ur­tekin van­virð­andi fram­koma vegna kyn­þáttar eða kyn­ferðis til dæmis eða vegna fötl­unar get ég talið siða­reglu­brot. Undir það falli þetta vernd­ar­á­kvæði um virð­ingu alþing­is­þegn.” útskýrði hún. „Ákveði þing­maður að gera lítið úr minni­hluta­hópum að þá geti hann talist hafa brotið á þessu ákvæði.” 

„Ef við skoðum þetta bara rök­rétt, hvernig á for­sætis­nefnd að geta kom­ist að nið­ur­stöðum að það sé siða­reglu­brot ef það má aldrei skoða hvort það er satt eða logið, hvort það sé inni­haldið heldur bara fram­setn­ing­una? Ef að ég er kurt­eis kyn­þátta­hat­ari, er ég þá ekki siða­brjótur? Ef að það þókn­ast gild­is­mati for­sætis­nefndar.”

Neitaði að hafa ofrukkað þingið í fyrstu en skil­aði svo pen­ingum

„Þeir þurfa ekki endi­lega að kom­ast að ein­hverri nákvæmri nið­ur­stöðu um hvort að Ásmundur Frið­riks­son hafi svikið út fé. Þeir þurfa bara skoða aðeins sam­hengi umræð­unnar á þessum tíma, þau gögn sem fyrir lágu og þá geta þeir gefið sér að það er full­kom­lega rétt­mætt að segja. Sér­stak­lega á þessum tíma­punkti að það er rök­studdur grunur að hefja rann­sókn á því, hvort að Ásmundur Frið­riks­son hafi svikið út fé. Ég var ekk­ert ein um þessa skoðun.”

„Ásmundur sjálfur hafði verið í Kast­ljós­þætti tíu dögum fyrir þennan þátt og þar hafi hann geng­ist við því að hafa rukkað þingið fyrir sína próf­körs­bar­áttu, hann hafi geng­ist við því að hafa brotið reglur að eftir 15 þús­und km skuli taka bíla­leigu­bíl, hann hafi í fyrstu neitað og bara þver­neitað að hann hafi rukkað þingið fyrir akstur með töku­fólk á vegum ÍNN en þurfti svo að játa það eftir þátt­inn vegna þess að hann átt­aði sig á því að hann myndi lík­lega ekki kom­ast upp með það eftir að hann var beð­inn um að sýna akst­urs­bæk­urnar til að stað­festa þessa neitun sína.” 

„Hann skilar svo þessum pen­ingum og það er ein­hvern­veg­inn gefið mér að sekt að hann hafi skilað pen­ing­unum sem hann tók og hafði neitað fyrir að hafa tekið í upp­hafi og margir telja óeðli­legar.”

Rökstuddur grunur felur ekki í sér sekt

Þór­hildur Sunna birti Facebook færslu síð­ast lið­inn febr­úar þar sem hún segir að við­mæl­endur þátt­ar­ins hefðu verið beðnir um að ræða spill­ingu innan hins opin­bera. Með færsl­unni fylgir við­talið við hana í Silfrinu. „Þetta eina skipti það sem ég tal­aði um að það væri rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­riks­son hefði dregið að sér almannafé þá hefði ég átt að segja hefði svikið út almennafé. Þetta er í eina skiptið í öllum þessum þætti.” sagði Þór­hildur Sunna og bætti við: „Ég held að siða­nefnd og for­sætis­nefnd hafi ekki einu sinni haft fyrir því að horfa á [þátt­inn]. Þá höfðu þeir séð að ég er ekki að segja að þessir ein­stak­lingar eru sekir.”

Um miðjan maí síð­ast lið­inn komst siða­nefnd að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hefði brotið siða­reglur með ummælum sínum um Ásmund. Nið­ur­staða siða­nefndar var sú að hug­takið „rök­studdur grunur” hefði sér­tæka lög­fræði­lega mein­ingu og vegna stöðu Þór­hildar Sunnu hefði almenn­ingur mögu­lega haldið að hún hefði aðgang að meiri gögnum en almenn­ingur.

„Rök­studdur grunur þýðir bara að það eru ein­hver gögn til, ein­hver efni, ein­hverjar stað­reyndir sem vísa til þess og sem að varpa grun að ákveðið athæfi hafa átt sér stað. Það felur ekki í sér sekt.” Þór­hildur Sunna benti fjöl­miðlum á að fá skil­grein­ingu á orða­til­tæk­inu hjá lög­fræð­ingi. „Ein­hverja lög­fræð­inga sem eru ekki þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vin­sam­leg­ast.”

Akstursbækur Ásmundar höfðu verið í umræðunni

„Ég var ekki ein um þessa skoðun á þessum tíma. Jón Þór Ólafsson, sér­fræð­ingur í vegs­rétti, var nýbú­inn að vera í ítar­legu við­tali þar sem hann fór yfir það rök­rétt, lið fyrir lið, hvernig rangar skrán­ingar í akst­urs­bækur gætu talist fjár­svik.” Þór­hildur Sunna bendir á leið­ara sem rit­sjóri Kjarn­arns skrif­aði stuttu fyrir þátt­inn umrædda: „Þórður Snær Júl­í­us­son skrif­aði leið­ara í Kjarnann sex dögum fyrir þennan þátt þar sem hann tal­aði um að það væri rök­studdur grunur til að hefja rann­sókn á því hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði svikið út fé.”

„Það eina sem hefur breyst í minni afstöðu er það að ég er orðin ennþá sterk­ari í þeirri trú minni og þeim skila­boðum sem ég var að koma á fram­færi: Það gildir eitt sett af reglum um elít­una í þessu þjóð­fé­lagi og annað um almenn­ing.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins