Nokkrar tilkynningar bárust lögreglu ölvaðan ökumann í kringum sjö í gærkvöldi. Tilkynnt var um rásandi aksturslag og akstur upp á kanta. Lögregla stöðvaði ökumanninn stuttu síðar. Ökumaðurinn reyndist ofurölvi og var vistaður í fangageymslu eftir sýnatöku.
Í Breiðholti var tilkynnt um slys utandyra. Ölvaður sjötugur maður með áverka á höfði var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Vitni sögðu hann hafa dottið á höfuðið.
Tilkynnt um umferðarslys á Meðalfellsvegi á sjötta tímanum í gærkvöldi. Bifreið hafnaði utanvegar í skurði. Ökumaður, sem grunaður er um ölvun við akstur, var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítala með minniháttar áverka.
Í Hlíðunum var tilkynnt um þjófnað úr bifreið í gærkvöldi. Ýmsum smámunum var stolið. Í Grafarvogi var ökumaður stöðvaður á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni sýnatöku. Þá var ökumaður í Kópavogi var stöðvaður á þriðja tímanum í nótt vegna gruns um ölvun við akstur. Hann var látinn laus að lokinni sýnatöku.
Að öðru leiti var gærkvöldið og nóttin með rólegra móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 83 mál voru bókið á milli 17:00 og 05:00.
























Athugasemdir