„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ekki sjálfstætt markmið að lifa af

Ekkert bendir til þess að draga muni úr átök­unum á milli þeirra afla sem takast nú á um sál Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ef ekki tekst að slíðra sverðin fyrir næsta lands­fund, sem er áætl­aður í byrjun næsta árs, verður óum­flýj­an­legt að þar komi til upp­gjörs. Átökin birt­ast meðal ann­ars í skrifum flokks­for­yst­unnar og þeirra sem gagrýna flokk­inn opin­ber­lega.

Ekki sjálfstætt markmið að lifa af

Síðustu árin hefur flokks­for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins legið undir stans­lausri gagn­rýni ann­ars vegar frá þeim sem telja flokk­inn of íhalds­saman og hins vegar frá þeim sem telja hann ekki nægi­lega íhalds­saman. Davíð Oddson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sem hefur sögu­lega ætíð gengið í takt með Sjálf­stæð­is­flokknum, hefur til að mynda gagn­rýnt for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rit­stjórn­ar­skrifum og síð­ustu ár virð­ist stjórn­mála­leg sam­leið hans vera fyrst og fremst með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni og þeim flokkum sem hann stýrir hverju sinni. Inntak þeirrar hug­mynda­fræði er tor­tryggni gagn­vart alþjóða­sam­starfi grund­völluð á full­veld­is­rökum, þjóð­ern­is­kennd, gagn­rýni á kerf­i­s­væð­ingu stjórn­mála og krafa um að völd verði í auknum mæli færð aftur til kjör­inna stjórn­mála­manna og and­staða við aukið frjáls­lyndi í lögum lands­ins sem hefur það mark­mið að auka rétt­indi afmark­aðra hópa. Davíð er ekki einn um að hafa þessa skoðun. Hann er þvert á móti birt­ing­ar­mynd hóps manna innan flokks­ins sem telur hann hafa villst veru­lega af leið í sinni póli­tík.

Grein Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra á 90 ára afmæli Sjálf­stæð­is­flokks­ins í maí, sem birt­ist í Frétta­blað­inu, fjall­aði meðal ann­ars um hvert flokk­ur­inn stefnir. „Til fram­tíðar er það í okkar höndum hvernig fylgið þró­ast. Við getum náð fyrri styrk en við megum ekki gefa okkur í eina mín­útu að við eigum ein­hvern til­tek­inn stuðn­ing vís­an.“

Bjarni fjall­aði bæði um meinta íhalds­semi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og svar­aði gagn­rýni á skort hans á alþjóða­hyggju í grein sinni. Þar kom skýrt fram að Bjarni sjálfur telur flokk­inn ekki aft­ur­halds- eða kyrr­stöðu­flokk eins og sumir gagn­rýnendur hans sem gengu til liðs við Viðreisn telja hann vera. „Stjórn­mála­flokkur sem er á flótta undan sam­tíð­inni, hræð­ist breyt­ingar, forð­ast nýja hugsun og hleypur undan áskor­unum fram­tíð­ar­innar, mun visna upp. Slíkur stjórn­mála­flokkur hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aldrei verið. Þvert á móti. […] Afstaða okkar sjálf­stæð­is­manna til alþjóð­legrar sam­vinnu hefur alltaf verið skýr og ein­örð. Við höfum staðið vörð um full­veldið og nýtt þá mögu­leika sem sjálf­stæðið gefur okkur í alþjóð­legu sam­starfi.“

Í því umróti breyt­inga sem stjórn­mála­lands­lagið hefur upp­lifað und­an­far­inn ára­tug skipti miklu máli að „þeir flokkar sem eiga djúpar rætur í sögu þjóðar og breiðan hóp fylg­is­manna standi í fæt­urna, en feyk­ist ekki undan í örvænt­ing­ar­fullri leit að vin­sældum.“

Ljóst er þó að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur frammi fyrir áskorun við að ná til yngri kjós­enda. Samkvæmt gögnum frá MMR eru ein­ungis 19,9 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn undir þrí­tugu. Eini flokk­ur­inn sem er með lægra hlut­fall kjós­enda í þeim ald­urs­flokki er Mið­flokk­ur­inn, en 18,5 pró­sent kjós­enda hans eru 18-29 ára.

Hægt er að lesa um málið í frétta­skýr­ingu Kjarnans á kjarn­inn.is og í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlíf 24. tbl 2019

Vísindi, vopn gegn lýðskrumi
Skoðun

Aðsend skoðun

Vísindi, vopn gegn lýð­skrumi

Skoðun Eftir / Jóhönnu Vigdísi Guð­munds­dóttur Lýðskrum (e.pop­u­l­ism) vísar til þeirrar til­hneig­ingar stjórn­mála­manna nútím­ans að skipta íbúum þjóðar í tvo eins­leita hópa, ann­ars vegar spillta valda­klíku og hins vegar sak­lausan almenn­ing, and­stæðar fylk­ingar þar sem almenn­ingi er talin trú um að hann þurfi að rísa gegn valda­klíkunni. Valda­klík­una skil­greina þessir stjórn­mála­menn oft sem sam­an­safn mennta­manna, blaða­manna og fjár­mála­fólks. Þessir lýð­skrumarar...
Skiptar skoðanir um formannsslag
Innlent

Skiptar skoð­anir um for­manns­slag

Bjarni Bene­dikts­son náði þeim áfanga að hafa verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í ára­tug fyrr á þessu ári. Í sögu flokks­ins hafa ein­ungis tveir for­menn setið lengur, Ólafur Thors, sem var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 1934 til 1961, og Davíð Oddsson, sem var for­maður hans frá 1991 til 2005. Í ljósi þess sem gengið hefur á í stjórn­málum síð­ast­lið­inn ára­tug má það telj­ast póli­tískt afrek.
Eldum úr uppskerunni
Mannlífið

Eldum úr upp­sker­unni

Eitt það besta í heim­inum er nýupp­tekið og brak­andi ferskt græn­meti. Nýjar íslenskar kart­öflur eru komnar í versl­anir og mikið til af fersku góðu græn­meti á þessum árs­tíma. Við brugðum á leik í til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans og lékum okkur með hrá­efnið, stílis­er­ing­una og mynda­tök­una og útkoman bara alveg ljóm­andi en græn­met­is­flat­baka er góð leið til að nýta allt þetta góða græn­meti. Við hvetjum alla til að ger­ast til­rauna­fólk í eld­hús­inu þegar kemur að því að útbúa rétti úr upp­sker­unni.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins