„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hann, hún eða annað?

Gríð­ar­leg rétt­ar­bót fyrir trans og inter­sex fólk sam­þykkt á Alþingi í gær.

Hann, hún eða annað?

Ein mesta rétt­ar­bót sem snýr að frið­helgi einka­lífs­ins var í gær afgreidd sem lög frá Alþingi, þegar 45 þing­menn sam­þykktu lög um kyn­rænt sjálfs­ræði. Ljóst er að mikil sam­staða var um málið á þing­inu, þar sem þing­menn allra flokka – nema Mið­flokks­ins – veittu mál­inu braut­ar­gengi.

Nýju lögin gera öllum ein­stak­lingum kleift að skil­greina sjálfir kyn sitt, krefj­ast við­ur­kenn­ingar opin­berra og einka­að­ila á kyni sínu, kyn­vit­und og kyntján­ingu. Í lög­unum er líka kveðið á um rétt ein­stak­linga, til þess að krefj­ast þess að vera hvorki skil­greindir sem karlar eða konur – nú geta ein­stak­lingar jafn­framt kraf­ist þess að skrán­ing kyns þeirra sé hlut­laus. Í slíkum til­fellum er kyn við­kom­andi t.d. í vega­bréfum ein­fald­lega skráð sem „X“.
Fram­vegis verða allir einka- og opin­berir aðilar að gefa fólki kost á því að skrá kyn sitt sem X, í kjöl­far opin­berrar breyt­ingar þar um (að loknum skömmum aðlög­un­ar­tíma). Þeir sem óska eftir breyt­ing­unni með form­legum hætti snúa sér til Þjóð­skrár Íslands, sem gerir þá breyt­ingu á kyn­skrán­ingu við­kom­andi í opin­berum skrám. Þeir ein­stak­lingar, sem kjósa að láta leið­rétta kyn sitt eiga þá líka rétt á því að fá end­ur­út­gefin t.d. próf­skír­teini frá skólum, með breyttu nafni sem við­kom­andi fram­kvæmir sam­hliða breyt­ing­unni. Ein­stak­lingar ráða því jafn­framt sjálfir hvort þeir taki eign­ar­falls­end­ingu föður eða móður (sleppi þá -son eða -dóttir í eft­ir­nafn­inu sínu) eða skipti út -son eða -dóttir fyrir end­ing­una -bur.

Það er ljóst að engin leikur sér að því að láta leið­rétta kyn sitt eða breyta skrán­ingu á kyni. Kyn hvers ein­stak­lings er einn helsti skil­grein­ar­þáttur nokk­urs ein­stak­lings á sjálfum sér. Að þurfa að burð­ast með þann böggul, að upp­lifa að manni hafi verið úthlutað röngu kyni í fæð­ingu, er vafa­lítið afar erfitt. Með því að færa fólki þetta frelsi, er því stigið gríð­ar­stórt fram­far­ar­skref og per­sónu­frelsi allra aukið gríð­ar­lega.

Ein­hverjir kunna vafa­lítið að velta því fyrir sér, hvernig þessi laga­breyt­ing snýr að frið­helgi einka­lífs­ins. Jú, eins og fram kemur í grein­ar­gerð frum­varps­ins, sem nú er orðið að lögum, felst í frið­helgi einka­lífs­ins réttur til þess að ráða yfir lífi sínu, lík­am­anum, lífs­háttum og einka­högum. Það, hvort ein­hver kjósi að skil­greina sig sem karl, konu eða eitt­hvað annað, varðar ákkúrat ekki nokkurn annan ein­stak­ling. Nýju lögin stað­festa þetta og loka á að gerðar séu strangar kröfur til ein­stak­linga þess efnis, að þeir hafi gengið í gegnum t.d. lyfja­með­ferð eða „lifað sem“ það kyn sem helst kjósa sér í ein­hvern tíma, áður en orðið getur að breyt­ing­unni. Þessi rétt­indi flútta því afar vel við ákvæði 71. gr. stjórn­ar­skrár­innar um frið­helgi einka­lífs, 8. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu sem fjallar um sama efni, sem og alþjóð­lega mann­rétt­inda­sátt­mála sem Ísland hefur stað­fest að þjóð­ar­rétti og jafn­vel inn­leitt í lög, s.s. samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins.

Það segir sig sjálft, að ein­stak­lingum á að vera heim­ilt að gera allt sem þeir vilja, svo fram­ar­lega sem það hefur ekki nei­kvæð áhrif á þriðja aðila. Þessi nýju lög eru dæmi um rétt­ar­bót sem bætir bara lífs­gæði ein­stak­linga, en hefur ómögu­lega slæm áhrif á nokkurn mann. Því fagna allir góðir og rétt­sýnir menn, konur og annað fólk.

Ómar R. Valdi­mars­son lög­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hinsegin

Einar Þór: „Samkynhneigðir voru kynferðislegir flóttamenn“
Innlenthinsegin

Einar Þór: „Sam­kyn­hneigðir voru kyn­ferð­is­legir flótta­menn“

Einar Þór Jónsson, fyrr­ver­andi for­maður Geð­hjálpar og fram­kvæmda­stjóri HIV-sam­tak­anna, segir að sam­kyn­hneigðir karl­menn hafi verið kyn­ferð­is­legir flótta­menn á 9. ára­tugnum hér á landi. Annað hvort voru þeir til­neyddir til að vera áfram inni í skápnum, flýja land eða taka eigið líf.Einar Þór var í við­tali við Sigmar Guð­munds­son í þætt­inum Okkar á milli og lýsti þar meðal ann­ars því hvernig...
Ráðherrann ekki með homma og lesbíur: „Eins og þessi þáttur hafi verið skrifaður fyrir 20 árum“
Innlenthinsegin

Ráð­herr­ann ekki með homma og les­b­íur: „Eins og þessi þáttur hafi verið skrif­aður fyrir 20 árum“

Hans Orri nokkur saknar þess að sjá ekki hinsegin fólk í sjón­varps­þátta­ser­í­unni vin­sælu Ráð­herr­anum. Honum finnst eins og hand­ritið hafi verið skrifað fyrir 20 árum síðan og skilur ekk­ert í hvers vegna RÚV geri enga kröfu um sýni­leika minni­hluta­hópa í nýju efni stöðv­ar­innar. Daníel Arn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna 78. Daníel Arn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna 78, seg­ist í sam­tali við Mannlíf aðeins hafa...
Eurovisionsöngkona og hinseginsamfélagið í hár saman: „Okkur hefur verið hótað útilokun og ofbeldi“
Innlenthinsegin

Eurovision­söng­kona og hinseg­in­sam­fé­lagið í hár saman: „Okkur hefur verið hótað úti­lokun og ofbeldi“

„Okkur hefur verið hótað marg­vís­legri úti­lokun og ofbeldi. Fjöl­skyldu­með­limir hafa fengið skila­boð þar sem áhyggjum og andúð á mér er lýst og fólki sem hefur stutt við okkar mál­stað er gert upp hat­urs­fullar skoð­anir,“ skrifar Iva Marín Adrichem, akti­vísti og söng­kona í grein á Mannlífi. Hún full­yrðir að skoð­ana­kúgun þrí­fist innan hinsegin sam­fé­lags­ins. Iva, sem er þekkt fyrir þát­töku sína...
„Hinsegin menning“
Skoðun

Aðsend grein

„Hinsegin menn­ing“

Iva Marín Adrichem er söng­kona og aktí­visti: Fátt hefur mér fund­ist fal­legra en að sjá hvað sam­staða með rétt­inda­bar­átta hinsegin fólks var sjálf­sögð í íslensku sam­fé­lagi og að sífellt fleiri virt­ust sam­ein­ast um að fagna fjöl­breyti­leik­anum. Þegar ég heyri talað um að fagna fjöl­breyti­leik­anum í sam­hengi við hinsegin fólk og aðra sem til­heyra minni­hluta­hópum vakna hjá mér alls konar spurn­ingar....
„Lítið annað en níð og jaðrar við hatursorðræðu“
Innlenthinsegin

„Lítið annað en níð og jaðrar við hat­urs­orð­ræðu“

Grein Arnars Sverr­is­sonar sál­fræð­ings, „Kyn­röskun stúlkna. Hin nýja „móð­ur­sýki“, hefur vakið upp reiði innan hinsegin sam­fé­lags­ins á Íslandi. Formaður Trans Íslands segir grein­ina upp­fulla af dylgjum og rang­færslum af verstu gerð en í henni er meðal haldið fram að trans fólk sé brenglað. Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, for­maður Trans Íslands, félags trans og kynsegin fólks á Íslandi, gagn­rýnir skrifin harð­lega....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins