„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Krónprinsinn í Sádí Arabíu sagður bera ábyrgð á morðinu á Kashoggi

Rök­studdur grunur er um að Mohamed bin Salman, krón­prins­inn í Sádí Arabíu, sé ábyrgur fyrir morð­inu á blaða­mann­inum Jamal Kashoggi. Mælst er til þess að hert verði á við­skipta­þving­unum gegn prins­inum þangað til hann stendur fyrir máli sínu.

Krónprinsinn í Sádí Arabíu sagður bera ábyrgð á morðinu á Kashoggi
Jamal Khas­hoggi.

Þetta er nið­ur­staða 100 blað­síðna skýrslu Agnesar Callamard, sendi­full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna. Stjórn­völd í Sádí Arabíu fengu skýrsl­una áður en hún var birt en ekk­ert hefur heyrst frá kon­ungs­rík­inu um efni hennar. Þau neit­uðu fyrst allri aðild að mál­inu en við­ur­kenndu síðar að morðið hafi verið framið án vit­neskju krón­prins­ins.

Jamal Kashoggi sást síð­ast ganga inn í sendi­ráð Sádí Arabíu í Istanbúl en þaðan kom hann aldrei aftur. Talið er að hann hafi verið myrtur á grimmi­legan hátt og lík hans bútað í sundur. Lík­ams­leifar hans eru enn ófundnar. Böndin beindust strax að krón­prins­inum og mönnum í hans innsta hring enda var Kashoggi ötull gagn­rýn­andi stjórn­valda í Sádí Arabíu.

Callamard hefur rann­sakað hvarf Kashoggis und­an­farna sex mán­uði og eru nið­ur­staða hennar sú að sterkar vís­bend­ingar séu um að bin Salman beri beina ábyrgð á morð­inu á Kashoggi. Um hreina og þaul­skipu­lagða aftöku hafi verið að ræða. Kallað er eftir form­legri rann­sókn á ódæð­inu og að ríki heims sam­ein­ist um að beita æðstu ráða­menn í Sádí Arabíu við­skipta­þving­unum. Slíkar þving­anir feli meðal ann­ars í fryst­ingu eigna krón­prins­ins erlendis.

Málið gæti orðið Donald Trump, Banda­ríkja­for­seta, erfitt en hann hefur lagt ríka áherslu á að rækta sam­starfið við stjórn­völd í Sádí Arabíu. Ráðgjafi hans og tengda­sonur, Jared Kushner, er sömu­leiðis sagður eiga í trún­að­ar­sam­bandi við bin Salman. Trump hefur fram til þessa verið ófá­an­legur til að saka krón­prins­inn um verkn­að­inn, þvert á álykt­anir hans eigin leyni­þjón­ustu.

Stjórn­völd í Sádí Arabíu til­kynntu um að 11 ónefndir emb­ætt­is­menn hafi verið ákærðir fyrir morðið og er kraf­ist dauða­refs­ingar yfir þeim. Réttað er yfir þeim fyrir luktum dyrum. Callamard segir í skýrslu sinni að rétt­ar­höldin full­nægi ekki alþjóð­legum stöðlum og skorar á stjórn­völd í Sádí Arabíu að stöðva þau og vinna þess í stað með SÞ að rann­sókn máls­ins. Ólíklegt er að það ger­ist enda neit­uðu Sádar að vinna með Callamard að rann­sókn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins