„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Líkir Miðflokknum við skítaveður og leiðindi

„Skíta­veður er eins og Mið­flokk­ur­inn. Eyði­leggur stemn­ing­una. Minnir okkur á að lífið er ekki ein­tóm sæla,” skrifar Guð­mundur Stein­gríms­son í skoð­anapistli í Frétta­blað­inu . Tilefnið er veð­ur­spáin fyrir 17. júní. „Á eftir skemmtun koma leið­indi.”

Líkir Miðflokknum við skítaveður og leiðindi

„Ekki veit ég hvort hún ræt­ist, veð­ur­spáin fyrir dag­inn, en það yrði vissu­lega dæmi­gert,” skrifar Guð­mundur og bætir við að spáin hafi hljóðað upp á rign­ingu við gerð pistils­ins. „Auðvitað, hugsar maður. Vita­skuld er alltaf rign­ing á 17. júní. Leið­inda­veður á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn er fastur liður.”

„Þegar hlutir ganga vel og flest er á þokka­legu róli og þjóð­fé­lagið ætti að geta ein­beitt sér að ýmsum upp­byggi­legum störfum mun alltaf verða til eitt­hvað svona afl í til­ver­unni, uppi í Hádeg­is­móum, á þingi eða ann­ars staðar, sem stendur leið­inda­vakt­ina og passar að sátt skap­ist ekki né heldur friður eða góður andi,” skrifar Guð­mundur og bætir við;

„Gott veður í langan tíma er ekki í boði. Það kemur alltaf rign­ing og rok. Það verður alltaf Sig­mundur. Alltaf Davíð.” Líklega á höf­undur við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann Mið­flokks­ins, og Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi rit­sjóra Morg­un­blaðs­ins.

„Að vera Íslend­ingur er að norpa við harð­ræði. Reyna að gera gott úr hlut­unum með setn­ingum eins og: „Veðrið skiptir ekki máli! Það skiptir bara máli hvernig maður klæðir sig!“ Og hlæja svo vand­ræða­lega í kjöl­farið.“ Guð­mundur nefnir mið­aldra menn í kvart­buxum sem kaupa sér kjöt á grillið. „Skjanna­hvítir og æða­berir leggirnir koma upp um eðlið. Á Íslandi er bara sól stundum. Bónda­brúnka er það eina sem er í boði. Sorrí Stína.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins