Hefð er fyrir því að forsætisráðherra flytji hátíðisræðu í morgunathöfn á Austurvelli í tilefni lýðveldis Íslendinga. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fer með ræðuna í ár en ekki Bjarni, eins og kom fram í færslu á Facebook síðu Jæja.
Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins fer fram 17. júní ár hvert á Austurvelli. Dagskráin hefst 09:45 með samhljómi kirkjuklukkna í Reykjavík. Guðsþjónusta í Dómkirkjunni fer fram kl 10:00 og er messunni útvarpað á RÚV. Eftir messuna leggur forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Minnisvarðinn stendur á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið. Þá fer Katrín með hátíðisræðu forsætisráðherra og fjallkonan flytur ávarp.
Lúðrasveitin Svanur stýrir skrúðgöngu frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu og hefst ganga 11:40. Hamrahlíðarkórinn, í stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, og Svanur flytja alla tónlist í morgunathöfninni.


























Athugasemdir