„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Algjörlega óskiljanlegt“

Neyt­enda­sam­tökin fá tugi mála á borð til sín viku­lega vegna smá­lána­fyr­ir­tækja þar sem Almenn inn­heimta sér um inn­heimtu. Vaxta­kostn­aður lán­anna er ekki í sam­ræmi við íslensk lög og inn­heimtu­fyr­ir­tækið hefur ekki svarað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum Neyt­enda­sam­tak­anna.

„Algjörlega óskiljanlegt“
Mynd/Pixabay

Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna, segir í sam­tali við Mannlíf að smá­lána­fyr­ir­tækin skýli sér á bak við erlenda starf­semi í Danmörku en það breyti engu í laga­legu til­liti. „Við höfum sent fyr­ir­spurnir á eft­ir­lits­stofn­anir í Danmörku og á þeim svörum sem við höfum fengið má skilja að þær telji að málin heyri ekki undir sig,“ útskýrir hún. Í skýrslu sem starfs­hópur á vegum Atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins skil­aði af sér í febr­úar kemur skýrt fram að þeim sem lána í íslenskum krónum til íslenskra lán­taka beri að lúta íslenskum lögum.

Bryn­hildur segir að það sé vissu­lega jákvætt að hér á landi sé lög­bundið hámark á vexti ólíkt Danmörku þar sem svo er ekki. Það þurfi hins vegar að vera hægt að fram­fylgja þessum lögum. „Okkur finnst þessi ólög­mæta starf­semi hafa fengið að við­gang­ast allt of lengi Þessum mik­il­vægu lögum verður að vera hægt að fram­fylgja en reynslan sýnir okkur að það er ekki raunin. Þrátt fyrir ótal úrskurði eft­ir­lits­stofn­ana og nið­ur­stöðu dóm­stóla um ólög­mæti lán­anna heldur starf­semin bara áfram. Það er óásætt­an­legt. Neyt­endur eiga að geta treyst því að ólög­mæt starf­semi á neyt­enda­mark­aði sé stöðvuð og stjórn­völd hverju sinni verða að tryggja að það sé gert.

Við sjáum alveg ömur­leg mál þar sem fólk í við­kvæmri stöðu tekur smá­lán í örvænt­ingu. Oft er um að ræða ungt fólk, fólk sem er á leigu­mark­aði, hefur misst vinn­una eða er á örorku­bótum.

Bryn­hildur segir aðspurð að á borð sam­tak­anna komi hræði­leg mál þar sem smá­lánin spili stórt hlut­verk. „Við sjáum alveg ömur­leg mál þar sem fólk í við­kvæmri stöðu tekur smá­lán í örvænt­ingu. Oft er um að ræða ungt fólk, fólk sem er á leigu­mark­aði, hefur misst vinn­una eða er á örorku­bótum. Lántakan vindur upp á sig þegar fólk þarf jafn­vel að taka annað lán til að borga af fyrri lánum því vaxta­kostn­aður er nátt­úr­lega í veld­is­vexti. Þannig að við fáum erfið mál sem við tökum inn á okkur og við erum hrein­lega að verða brjáluð á að horfa upp á fram­göngu þess­ara fyr­ir­tækja og inn­heimtu­að­il­ans sem kom­ast upp með þetta.“

Þá bendir hún á að sam­tökin hafi sér­stak­lega skoðað hvort heim­ilt sé taka út af reikn­ingnum eða kortum lán­tak­enda fyrir skuld­inni en hingað til hafi svör verið óljós og hver vísað á annan. „Þessi skuld­færslu­mál eru bara enn einn angi smá­lánaf­arg­ans­ins. Fólk hefur lent í því að um leið og það fær útborgað eru launin skuld­færð. Í einu dæmi sem við vitum um átti við­kom­andi ekki fyrir leig­unni. Við eigum enn eftir að sjá að fyrir þessum skuld­færslum sé skýr skuld­færslu­heim­ild. Við höfum auk þess kallað eftir því að Fjár­mála­eft­ir­litið skoði þessar skuld­færslur.“

Að sama skapi er erfitt að fá sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um skuld­ina þegar hún er komin í inn­heimtu, hver sé upp­haf­lega skuldin, hvað sé búið að greiða inn á hana og svo fram­vegis. Þá er ólög­legi vaxta­kostn­að­ur­inn gjarnan inni­fal­inn í höf­uð­stóli.

Er vilj­andi verið að gera ferlið eins óskýrt og mögu­legt er fyrir lán­tak­and­ann?

„Já, það er til­finn­ingin. En ég veit s.s. ekki hvar í ferl­inu smá­lána­fyr­ir­tækin enda og hvar Almenn inn­heimta tekur við en inn­heimtu­fyr­ir­tækið vísar flestum fyr­ir­spurnum á smá­lána­fyr­ir­tækið sem er komið með danskt net­fang. Þetta er algjör­lega óskilj­an­legt, að fyr­ir­tæki sem er með ólög­lega vöru á íslenskum neyt­enda­mark­aði fái að halda úti starf­semi eins og ekk­ert sé,“ segir Bryn­hildur og bætir við að vissu­lega hafi þó eitt­hvað verið gert. „Neyt­enda­stofa hefur úrskurðað um ólög­mætan vaxta­kostnað og lagt dag­sektir á fyr­ir­tækin. Tvö dóms­mál hafa stað­fest þá nið­ur­stöðu en nú hafa smá­lána­fyr­ir­tækin áfrýjað seinna mál­inu, lík­lega til að kaupa sér tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlíf 23. tbl 2019

Hljóðrituðu alla plötuna upp á nýtt
Menning

Hljóð­rit­uðu alla plöt­una upp á nýtt

Nú á dög­unum kom út önnur breið­skífa svart­málms-hljóm­sveit­ar­innar Mis­þyrm­ingar, Algleymi. Platan hefur fengið ein­róma lof gagn­rýnenda og lenti meðal ann­ars í 11. sæti World Albums-lista Bill­bo­ard. Þykir Algleymi vera stórt stökk upp frá síð­ustu plötu hljóm­sveit­ar­innar, Söngvum elds og óreiðu (2015), en sveitin, sem hefur verið starfs­rækt frá 2014, hefur notið vel­gengni frá útgáfu hennar.
Hæfni er grunnur að gæðum
Skoðun

Aðsend skoðun

Hæfni er grunnur að gæðum

Skoðun Höfundar /Sveinn Aðal­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Hæfn­iset­urs og Fræðslu­mið­stöðvar atvinnu­lífs­ins og María Guð­munds­dóttir, for­maður Hæfn­iset­urs og fræðslu­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Hæfn­isetur ferða­þjón­ust­unnar var sett á stofn árið 2017 á grund­velli skýrslu Stjórn­stöðvar ferða­mála sem stjórn­völd og Samtök ferða­þjón­ust­unnar ýttu úr vör um hæfni í ferða­þjón­ustu. Mark­miðið er að auka fram­leiðni og gæði í ferða­þjón­ustu sem og starfs­á­nægju og fag­mennsku starfs­fólks, einkum fram­línu­starfs­manna...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins