„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Á þriðja tug þeirra sem töldu sig blekkta af Björgólfi Guðmundssyni hafa látist síðan viðskiptin áttu sér stað

Þriðja tug lán­tak­enda sem hafa staðið í mála­ferlum gegn Björgólfi Guð­munds­syni, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manni Lands­bank­ans, hafa lát­ist frá því að meint brot voru framin. Í mála­ferl­inu er Björgólfur sak­aður um blekk­ingar og svik í garð lán­þega.

Á þriðja tug þeirra sem töldu sig blekkta af Björgólfi Guðmundssyni hafa látist síðan viðskiptin áttu sér stað
Mynd / Rakel Ósk

Stundin fjallar um mála­ferlin í dag. Skömmu fyrir hrun veitti Lands­bank­inn í Lúx­em­borg lán til líf­eyr­is­þega. Lánin voru kölluð „equity rel­e­ase” og voru veitt gegn veðum í fast­eignum lán­þega. Þeir fengu aðeins hluta upp­hæð­ar­innar greitt út en restin var sett í fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­anum. Það átti að skila lán­þegum nægri ávöxtun til að greiða vaxa­kostnað láns­ins. Um hund­rað manns telja sig blekkt og hafa höfðað mál gegn Björgólfi.

Sak­sókn­arar í Frakk­landi hafa nú farið fram á hámarks­refs­ingu yfir Björgólfi, sem er sagður höf­uð­paur­inn í mál­inu. Ef þeir fá sýnu fram­gengt gæti Björgólfur átt von á fimm ára fang­els­is­dóm. Þeir telja eign­irnar hafa verið metnar of hátt og því hafa lán­veit­ingar verið umfram raun­veru­legt virði. Þá hafi fjár­mun­irnir verið not­aðir í annað en lofað var og stjórn­endur hafi gefið rangar upp­lýs­ingar um stöðu bank­ans fyrir hrun.

Það vakti athygli í upp­hafi maí þegar Björgólfur virti fyr­ir­mæli fransks dóm­ara að vettugi og gekk út úr rétt­ar­sal við þing­hald. Björgólfur er einn níu sak­born­inga í mál­inu. RÚV greindi frá. Málið snýr að starf­semi Lands­bank­ans í Lúx­em­borg en bank­inn er sagður hafa blekkt stóran hóp fólks. Stjórn­endur bank­ans eru ákærðir fyrir að hafa blekkt yfir hund­rað manns til að taka veð­lán hjá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg á fölskum for­sendur.

Flest þeirra sem urðu fyrir miklu fjár­hagstjóni eru elli­líf­eyr­is­þegar sem áttu verð­mætar hús­eignir sem þau lögðu að veði fyrir lán­unum. „Þeir fengu hluta láns­upp­hæð­ar­innar greidda út en afgang­inn ætl­aði Lands­bank­inn að fjár­festa þannig að fólkið þyrfti ekki að greiða af lán­inu. Blekk­ing­arnar fælust meðal ann­ars í því að krefj­ast veða fyrir allri láns­upp­hæð­inni þótt bank­inn hafi haldið stærstum hluta hennar eftir. Eftir hrun hóf slita­stjórn Lands­bank­ans í Lúx­em­borg að inn­heimta lánin sem olli mörgum fjár­hags­legum erf­ið­leikum,“ segir í frétt RÚV frá 2017.

Björgólfur var sýkn­aður í ágúst árið 2017 af en þá þegar sögðu tals­menn lán­taka að ætl­unin væri að vinna áfrýjun.

Nú er þing­hald í áfrýjun máls­ins en meðal ráð­gjafa þeirra sem töp­uðu fé er Eva Joly, fyrr­ver­andi ráð­gjafi sér­staks sak­sókn­ara á Íslandi. Að sögn RÚV hefur Joly gjör­breytt stöðu láns­hafa í mál­inu með þekk­ingu sinni á mál­inu. Sér­stakur sak­sókn­ari er emb­ætti sem sett var á fót til að rann­saka og sækja til saka aðila sem grunur var á að hefðu brotið af sér í aðdrag­anda banka­hruns­ins.

Í frétt RÚV er því þá lýst hvernig Björgólfur og verj­endur hans löbbuðu út úr rétt­ar­sal þegar dóm­ari hafn­aði beiðni þeirra um tíu mín­útna hlé. Í sam­tali við RÚV segir Joly að hún hafi aldrei orðið vitni eða heyrt af því að lög­fræð­ingar virtu orð dóm­ara að vettugi Lög­mönnum Björg­ólfs var til­kynnti að fram­ferði þeirra gæti haft afleið­ingar og hafi verið til­kynnt til þar til gerðra yfir­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins