„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rannsakaði pólitískt grín á Íslandi: „Viðmælendur mínir voru allir sammála því að allt grín er pólitískt“

„Ég hef alltaf haft rosa­lega gaman að gríni og hvernig það getur verið notað á ýmsan hátt,” segir Fanndís Birna Loga­dóttir um loka­verk­efn sitt í stjórn­mála­fræði. Fanndís rann­sak­aði póli­tískt grín og áhrif þess. Í verk­efnipnu skoð­aði hún Ára­mótaskaupið og Spaug­stof­una sér­stak­lega.

Rannsakaði pólitískt grín á Íslandi: „Viðmælendur mínir voru allir sammála því að allt grín er pólitískt“
|Ára­mótaskaup 1994: Skjáskot af atrið­inu umdeilda|Fréttin sem birt­ist í Morg­un­blað­inu |

„Ég var sér­stak­lega að skoða hvernig grín gat haft áhrif á stjórn­mál og hegðun stjórn­n­mála­manna.” Hún tekur það fram að hún stefni sjálf ekki út í stjórn­mál. „Báðir þættir hafa mikla sögu” segir Fanndís en fyrsta sería Spaug­stof­unnar kom út árið 1986. Ára­mótaskaupið var sett á lagg­irnar 1966 og er meðal vin­sæl­ustu sjón­varps­þátta á Íslandi með meira en 90% upp­safnað áhorf á hverju ári. „Þetta fyr­ir­finnst ekki í öðrum löndum.”

Allt grín er pólitískt

Fanndís bendir á að margir halda að póli­tík snú­ist bara um flokkapóli­tík. Það sé hins vegar ekki satt. „Pólitík er í raun­inni allt sem við gerum.” Hún segir það að sleppa gríni sé líka póli­tískt. „Við­mæl­endur mínir voru allir sam­mála því að allt grín er póli­tískt.” Fanney tók við­tal við fimm ein­stak­linga fyrir rit­gerð­ina sína. Ari Eldjárn, Venný Sara Knúts­dóttir og Edda Björg­vins voru við­mæl­endur hennar úr Ára­mótaskaup­inu. „Svo tal­aði ég við Karl Ágúst [Úlfson] og Örn Árnason frá Spaug­stof­unni.”

„Ég ætl­aði fyrst að fara í aðra átt, hvort að það mætti gera grín að stjón­málum” segir Fanndís. Hún spurði við­mæl­endur hvort það væri eitt­hvað sem mætti ekki. „Flest voru þau sam­mála um að það væri ekk­ert sem má ekki gera grín að, þú verðir bara að finna rétta pól­inn á því.”

Grínið snertir stundum viðkvæma punkta

Ára­mótaskaup 1994: Skjáskot af atrið­inu umdeilda

Áður fyrr var staðan þó önnur en í tíð Vigdísar Finn­boga­dóttur var bannað að gera grín að for­seta­emb­ætt­inu. „Það mátti ekki einu sinni sýna hana í Spaug­stof­unni og Ára­mótaskaup­inu” segir Fanndís og bætir við; „Þegar Ólafur Ragnar kemur þá breyt­ist það. Það er kannski vegna þess að hann var stjórn­mála­maður áður.” Hún rifjar upp við­talið sitt við Eddu um Skaupið ´94; „Þá sýndu þeir atriði þar sem Vigdís er að panta pítsu á Bessa­staði og það varð bara allt vit­laust. Leik­stjór­inn sjálfur fékk sím­tal frá Vigdísi.”

Atriðið má sjá hér.

Fanndís segir Ára­mótaskaupið vera ákveð­inn spé­speg­ill. „Það er verið að gera upp árið. Algjör­lega fárán­legt að ætl­ast til þess að póli­tísk mál­efni séu ekki tekin fyrir þar.”

Spaugstofan kærð fyrir guðlast

Skjáskot úr Páska­þætti Spaug­stof­unnar 1997

Trú var annað mál­efni sem Fanndís skoð­aði í tengslum við grín og nefnir að Spaug­stofan var kærð fyrir guð­last árið 1997. Páska­þáttur sem var sýndur um vorið sama ár braut gegn 125. grein almennra hegn­ing­ar­laga um guð­last:

Hver, sem opin­ber­lega dregur dár að eða smánar trú­ar­kenn­ingar eða guðs­dýrkun lög­legs trú­ar­bragða­fé­lags, sem er hér á landi, skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 3 mán­uðum. Mál skal ekki höfða, nema að fyr­ir­lagi sak­sókn­ara.

Ólafur Skúlason, þáver­andi biskup lýsti yfir óánægju sinni í Morg­un­blað­inu 2. apríl 1997. „Þetta var hvorki fyndið né við­eig­andi, og allra síst á þessum tíma, laug­ar­dag fyrir páska, að gera gys að kvöld­mál­tíð­inni, þegar vitað er að ferm­ing­ar­börnin eru að horfa.“ Karl Ágúst Spaug­stofu­maður kom skoðun sinni á fram­færi í blað­inu. „Við höfum ekki annað en gott af því að hver og einn skoði hug sinn í þessum málum og mín skoðun er sú að guð hafi húmor og fyrir mitt leyti er ég sáttur við þátt­inn,“

Fréttin Morg­un­blaðs­ins 2. apríl 1997

Spaug­stofu­menn voru yfir­heyrðir hver af öðrum af Rík­is­sak­sókn­ara fyrir þátt­inn líkt og RÚV greindi frá. Rann­sóknin stóð yfir tæpa fimm mán­uði en í ágúst 1997 ákvað sak­sókn­ari að fella niður kæruna. Grein almennra hegn­ing­ar­laga um guð­last var afnumin í maí 2015.

„Ég spurði þá hvort það væri eitt­hvað sem þau sæju eftir eða hefðuð viljað gera betur,” segir Fanndís. Svarið var ein­falt, það er alltaf hægt að gera betur þau hefðu alltaf gert sitt besta. Hún nefnir að grín­inu fylgir stórt og erfitt hlut­verk. „Margir sem hafa per­sónu­legar skoð­anir. Þetta eru bara mann­eskjur sem eru að skrifa til dæmis Skaupið, með eigin skoð­anir og til­finn­ingu fyrir hvað megi og hvað megi ekki,” segir hún og bætir við; „það er erfitt að gera öllum til geðs.”

Gríninu fylgir ákveðin hlutverk

„Ég skoð­aði líka kyn­hneigð og kyn­ferð­is­of­beldi. Fólk er byrjað að taka það fyrir í þessu ljósi.” Hún tekur það fram að ofbeldi er að sjálf­sögðu ekk­ert grín en það fylgi því ákveðin losun að taka þessa hluti fyrir. „Grínið hjálpar okkur að kom­ast í gegnum hlut­ina.” Aðspurð hvort henni finn­ist vett­vang­ur­inn vera frjáls­legri segir hún hann bara vera öðru­vísi. „Mörg mál­efni sem má snerta á núna. Grínistar hafa líka fundið leiðir til að gera grín að hlutum sem áður var ekki gert grín að,” segir Fanndís og bætir við að hlut­verk grínista hafi breyst mikið.

„Flest sem ég tal­aði við hafa alltaf sagt að grínið hafi til­gang.” Grínistar nota til dæmis uppi­stand sem ákveð­inn vett­vang til að skýra mál­efni líð­andi stundar. „Þeir nota grínið til að útskýra flókið mál­efni fyrir almenn­ingi. Mál sem að krefj­ast kannski að þú þekkir sög­una, ná að kjarna það ágæt­lega svo fólk viti hvað er í gangi.” Spaug­stofan og Ára­mótaskaupið hafi orðið póli­tísk­ari fyrir vikið, sér­stak­lega í kringum hrunið.

„Maður þarf að skilja hvað hefur átt sér stað. Skilja hvað er verið að grín­ast með,” segir Fanndís og bætir við að margt í Spaug­stof­unni og Skaupinu hafi hún ekki skilið. „Ég hafði ekki upp­lifað það sjálf, ég þekkti ekki aðstæð­urnar.” Hún nefnir að grínið í eðli sínu eld­ist ekki vel. „En það á kannski ekki að gera það.”

Grínið er alltaf að breytast

„Ég held að það sé ótrú­lega erfitt að vera grínisti. Fólk mun alltaf hafa eitt­hvað að segja um grínið sem þú gerir,” segir Fanndís og bætir við að sam­fé­lagið sé orðið almennt umburð­ar­lynd­ara. Þá skiptir líka máli að taka réttan pól á mál­efn­inu. „Þú mátt gera grín að öllu ef þú finnur rétta pól­inn.”

Það vakti athygli Fann­dísar hversu mikil rit­skoðun var áður fyrr. „Fólk er komið með mikið þykk­ari skráp. Grínið er stans­laust að þró­ast með sam­fé­lag­inu,” segir hún og finnst áhuga­vert að skoða hvernig grínið getur orðið. Það sé þó erfitt að spá fyrir um það.

Fanndís kemur aðeins inn á íslenskan húmor og líkir honum við Klovn og Office. „Húmorinn er svo­lítið vand­ræða­legur.” Íslend­ingar hlægi að vand­ræða­legum aðstæðum. „Ég myndi segja að þetta væri ein­kenn­andi fyrir íslenskan húmor,” segir hún og kemur inn á smæð Íslands. „Það þekkja allir alla í gegnum einn eða tvo liði. Við erum bara svo­lítið skrítin.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Áramótaskaupið

Siðfræðingur um Hemma Gunn í Skaupinu: „Þarna vakna ótal spurningar“
InnlentÁramótaskaupið

Sið­fræð­ingur um Hemma Gunn í Skaupinu: „Þarna vakna ótal spurn­ingar“

Sið­fræð­ingur segir að verk­efnið framundan varð­andi gervi­greind­ina, sé að sam­fé­lagið komi sér saman um sið­ferði­leg við­mið um hvernig við ætlum að lifa með þess­ari nýju tækni. Segir inn­koma Hemma Gunn í Skaupinu hafa í raun verið virð­ing­ar­vott. Henry Alex­ander Henrys­son, sið­fræð­ingur og doktor í heims­speki, sagð­ist hafa búist við því strax að atriðið í Ára­mótaskaup­inu þar sem Hermann Gunn­ars­son birt­ist...
Helmingi lesenda fannst áramótaskaupið gott: „Mér fannst þetta djöfullega gott stuff“
Menning

Helmingi les­enda fannst ára­mótaskaupið gott: „Mér fannst þetta djöf­ul­lega gott stuff“

Hin árlega umræða um Ára­mótaskaupið á sam­fé­lags­miðlum í fullum gangi og virð­ist það hafa hitt í mark hjá um það bil helm­ingi þjóðar ef marka má nið­ur­stöðu könn­unnar sem Mannlíf gerði. Leik­stjórar voru Benedikt Valsson og Fannar Sveins­son þetta árið. Hand­rits­höf­undar voru Benedikt Valsson, Júlíana Sara Gunn­ars­dóttir, Karen Björg Eyfjörð Þor­steins­dóttir, Sverrir Þór Sverr­is­son og Þor­steinn Guð­munds­son. Að venju hafa...
„Ég grenjaði úr hlátri“
InnlentÁramótaskaupið

„Ég grenj­aði úr hlátri“

Berglind Guð­munds­dóttir, eig­andi Gulur, rauður, grænn & salt, gift­ist sjá­flri sér á ferða­lagi um Ítalíu síð­ast­liðið sumar. Hún sagði frá gjörn­ingnum í við­tali við Vikuna í sept­em­ber og seinna í Íslandi í dag í við­tali við Völu Matt. Brúðkaup Berg­lindar og við­talið við Völu Matt var tekið fyrir í Ára­mótaskaup­inu á þriðju­dag­inn. Berglind átti ekki von á að hún kæmi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins