„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristján vann áfangasigur gegn Björgólfi í Hæstarétti

Hæsti­réttur Íslands ómerkti í morgun tvo dóma í málum sem félög Krist­jáns Lofts­sonar höfð­uðu gegn Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni. Bæði hér­aðs­dómur og Lands­réttur höfðu áður vísað mál­unum frá dómi. Málin varða hluta­bréfa­kaup í Lands­banka Íslands upp á rúmar 600 millj­ónir króna.

Kristján vann áfangasigur gegn Björgólfi í Hæstarétti
Þegar fót­spor Árna og Róberts komu í ljós hafði Björgólfur Thor þetta að segja: „Hinir ljós­fælnu gammar og leppar þeirra kæra sig koll­ótta þótt almennir hlut­hafar séu blekktir og trú­verð­ug­leika líf­eyr­is­sjóða stefnt í voða. Lægra verður varla lagst.“

Félög Krist­jáns, Vogun hf. og Fisk­veiði­hluta­fé­lagið Venus hf., keyptu hluta­bréf í Lands­bank­anum fyrir sam­tals 610 millj­ónir króna á árunum fyrir hrun. Hluta­bréfin urðu verð­laus við fall Lands­bank­ans á haust­mán­uðum 2008.

Kristján vill meina að þegar bréfin voru keypti hafi Björgólfur Thor með sak­næmum hætti haldið frá honum og öðrum mark­aðs­að­ilum upp­lýs­ingum um að Samson eign­ar­halds­fé­lag færi með meiri­hluta atkvæða á hlut­hafa­fundum í Lands­bankan Íslands og að bank­inn hafi stundað umfangs­miklar lán­veit­ingar til félaga sem voru undir stjórn Björg­ólfs. Þess vegna hafi Lands­bank­inn í raun átt að telj­ast sem dótt­ur­fé­lag Samsons og því verið skylt að gera öðrum hlut­höfum yfir­tökutil­boð í hluta­bréf þeirra.

Bæði hér­aðs­dómur og Lands­réttur vís­uðu mál­inu frá dómi á þeim grund­velli að krafa félaga Krist­jáns væru fyrndar þar eð fyrn­ing­ar­frestur væri fjögur ár sam­kvæmt núgild­andi lögum. Fyrir vikið var ekki tekin afstaða til ann­arra þátta máls­ins. Fyrir dómi hélt Kristján því fram að sam­kvæmt eldri fyrn­ing­ar­lögum, sem voru í gildi þegar stofnað var til við­skipt­anna, væru kröf­urnar ófyrndar þegar málið var höfðað.

Hæsti­réttur tók undir það og sendi málið aftur til hér­aðs­dóms. Málið gæti haft víð­tæk­ari afleið­ingar því fari svo að nið­ur­staðan verði Krist­jáni í hag er lík­legt að aðrir hlut­hafar hins fallna Lands­banka muni einnig láta reyna á skaða­bóta­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins