„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir endurreisn WOW nauðsyn annars „verður hér einfaldlega einokun aftur næstu tuttugu ár“

„Ef okkur tekst ekki að grípa þetta tæki­færi núna verður hér ein­fald­lega ein­okun aftur næstu tutt­ugu ár,“ sagði Skúli Mogensen fyrr­ver­andi eig­andi WOW air á Startup Iceland í morgun.

Segir endurreisn WOW nauðsyn annars „verður hér einfaldlega einokun aftur næstu tuttugu ár“

„Það er mik­ill mis­skiln­ingur þegar Icelandair talar um að far­miða­verð WOW air hafi verið ósjálf­bært. Það er ekki satt. Þeir hafa ósjálf­bæra kostn­að­ar­liði. Það er vanda­málið og það er vegna þess að þeir hafa verið einir á mark­aði í nán­ast 70 ár.“

Skúli virð­ist stað­ráð­inn í að end­ur­reisa WOW og sagði verð­lagn­ingu vera stærsti ákvarð­ana­lið­ur­inn þegar við­skipta­vinir bóka flug. „Far­sæl­ustu flug­fé­lög heims eru þau sem hafa lægsta grunn­verðið.”

Hann vildi meina að WOW air hafi gert þetta vel og sagði nýtt flug­fé­lag getað leikið það eftir. „Í sam­an­burði við Icelandair gætum við selt mið­ana okkur 20-40% lægri en þeir á hverjum degi enn samt komið út í gróða,” sagði hann.

Skúli virð­ist stefna að því að end­ur­reisa hið fallna flug­fé­lag WOW air. Skúli kynnti ítar­legar hug­myndir sínar að því hvernig hið end­ur­reista flug­fé­lag myndi líta út en sagði þó ekki hreint út að til stæði að end­ur­reisa flug­fé­lagið. Það hefur hann þó sagt áður.

Einfaldari þjónusta og minna sætapláss

Hann nefndi að mik­il­vægt væri að þekkja mark­að­inn. Fæstir væru yfir 180 cm á hæð og í fínu lagi að fylla flug­vélar af sætum. „Kostn­að­ur­inn er sá sami.” Flestir far­þegar myndu velja lágt verð fram yfir þæg­indi.  Hann sagði stærstu mis­tök WOW hafa legið í þessu. Þeir hafi gert mis­tök með að bæta við prem­ium þjón­ustu­leiðum og breið­ari sætum. „Ef þú greiðir 69 doll­ara fyrir mið­ann þá er það sem þú færð,“ sagði Skúli. „Þú mátt alveg greiða 690 doll­ara fyrir flug­mið­ann en þá get­urðu flogið með ein­hverjum öðrum.“

Skúli sagði það nauð­syn­legt að sækja starfs­krafta erlendis. „Eina leiðin til þess að fá þetta til að virka er að vera með réttu blönd­una. Við þurfum að vera með blöndu af áhöfnum, flug­mönnum og tölvu­deild. Sumt af starfs­fólk­inu á Íslandi. Sumt erlendis.“ Þá sagði hann Ísland vera of dýrt. „Við getum ekki verið sam­keppn­is­hæf sam­an­borið við WIZZ air og Ryan Air. Þetta er stað­reynd,“ sagði Skúli.

Líkti bransanum við bíó

Kvik­mynda­hús græða ekki á miða­söl­unni heldur sölu á poppi og kóki.” Skúli sagði sala á flug­miðum ættu að vera eins. Með því yrði öllum gert kleift að fljúga. „Hluti af mark­að­setn­ing­unni okkar var að við myndum greiða þér fyrir að fljúga.” Hann vitn­aði síðan í Michael O´Leary, for­stjóra Ryan Air sem sagði að flug­ferðir verða ókeypis í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins