„Fjármál Sviðslistasambands Íslands eru hvorki til rannsóknar hjá embætti ríkisskattstjóra né skattrannsóknarstjóra ríkisins og hafa aldrei verið,“ segir í yfirlýsingu sem stjórn sambandsins sendi frá sér í gær.
Vísir birti viðtal við Ara í síðasta mánuði þar sem gefið er til kynna að sambandið sé til skoðunar hjá ríkisskattstóra. Þar kemur fram tilvitnun úr bréfaskriftum sem fóru á milli Ara og Birnu Hafstein, forseta Sviðslistasambandsins, í vor. „Forseti fullyrti að allt væri unnið í verktakavinnu og um engar „svartar“ greiðslur væri að ræða. Komið hefur í ljós að það stenst ekki – a.m.k. hefur SSÍ ekki skilað launa- og verktakamiðum fyrir árin 2016 og 2017, eins og SSÍ beri að gera,“ segir í bréfi Ara.
Hann hefur sakað Birnu um að vinna gegn hagsmunum Þjóðleikhússins með ósæmilegum og ómaklegum hætti. Hún hafi þá ráðist á hans persónu og starfsemi leikhússins. Málsatvikið var rakið í ítarlegu bréfi sem hann sendi til mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Greint var frá bréfinu í viðtalinu.
„Þannig hafa embættismenn í mennta- og menningarmálaráðuneytinu (bæði 2017 og 2018) og fulltrúar frá samninganefnd ríkisins úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu (2017 og 2018) haft samband við mig óformlega til að segja mér af þessum ummælum. Samkvæmt þeirra frásögnum hefur Birna sagt að alger óstjórn ríki í Þjóðleikhúsinu í kjölfar #Metoo, að þar væri allt í kalda koli og ógnarstjórn gagnvart samstarfsfólki að minni hálfu,“ segir í bréfi Ara.




















Athugasemdir