„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ísland í 20. sæti í mælingu á samkeppnishæfni

Ísland hoppar upp um fjögur sæti milli ára í sam­keppn­is­hæfni­út­tekt IMD sem kynnt var á fundi Við­skipta­ráðs og Íslands­banka í morgun. Ísland er nú í 20. sæti af þeim 63 ríkjum sem úttektin nær til. Ísland lækk­aði um fjögur sæti í fyrra.

Ísland í 20. sæti í mælingu á samkeppnishæfni

„Í fyrra var nið­ur­staðan nokkur von­brigði þar sem Ísland hafði skriðið upp list­ann fjögur árin þar á undan. Það má því segja að vonir hafi glæðst á ný,“ segir í til­kynn­ingu Við­skipta­ráðs.

Á fundi Við­skipta­ráðs og Íslands­banka í morgun kom fram að Ísland hækk­aði í öllum meg­in­þáttum úttekt­ar­innar en er þó enn alls staðar undir með­al­tali hinna Norð­ur­land­anna. „Þegar kemur að efna­hags­legri frammi­stöðu fer Ísland upp um þrjú sæti í það 54. að þessu sinni. Meiri hag­vöxtur en í öðrum ríkjum skýrir þá þróun að miklu leyti. Skil­virkni hins opin­bera eykst einnig milli ára og fer Ísland þar upp um eitt sæti og ræður þar miklu jákvæð­ara mat stjórn­enda á stofna­naum­gjörð. Skil­virkni atvinnu­lífs­ins batnar milli ára og situr Ísland nú í 19. sæti, þökk sé m.a. auk­inni fram­leiðni og bættum stjórn­ar­háttum. Loks hækkar Ísland um fjögur sæti og upp í það 13. í sam­fé­lags­legum innviðum þar sem margir ólíkir þættir spila saman.“

Við­skipta­ráð segir að aukin sam­keppn­is­hæfni náist með stefnu­mótun atvinnu­lífs og stjórn­valda og get­unni takast á við áskor­anir, hlúa að styrk­leika og bæta úr veik­leikum. „Umbætur í skatta­málum, end­ur­skoðun stuðn­ings­kerfis nýsköp­unar, lækkun vaxta og bætt við­skipta­tengsl við umheim­inn eru á meðal þess sem myndi stuðla að auk­inni sam­keppn­is­hæfni.“

Breyt­ingar og órói í alþjóða­stjórn­málum og -við­skiptum lita nið­ur­stöð­urnar í ár. Banda­ríkin, sem trón­uðu á toppi list­ans í fyrra falla um tvö sæti og víkja fyrir Singapúr sem kemst aftur á topp­inn. Hong Kong stendur í stað í öðru sæti en Sviss fer upp um eitt sæti og endar í því fjórða. Holland lækkar um tvö sæti úr fjórða í það sjötta.

Ísland stendur Norð­ur­lönd­unum enn nokkuð að baki og má þar meðal ann­ars telja smæð hag­kerf­is­ins, stofn­anir og tækni­inn­viða meðal áhrifa­þátta. Danmörk er enn efst af Norð­ur­lönd­unum og lækkar um tvö sæti (8. sæti), Svíþjóð er næst og stendur í stað (9. sæti). Noregur fellur um þrjú sæti (11. sæti). Finnland fer upp um eitt sæti, úr 16. í 15. og sem fyrr segir er Ísland neðst af Norð­ur­lönd­unum í 20. sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins