„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Varaborgarfulltrúi Miðflokksins líkir tafagjöldum við Berlínarmúr: „Hér þarf að reisa múr“

„Nú skal nýr múr rísa í Reykja­vík, það gengur ekki að að íbúar aust­ur­borg­ar­innar séu að þvæl­ast inn á Latté­svæði borg­ar­innar lengur gjald­frítt, hvað þá fólk af lands­byggð­inni!” skrifar Baldur Borg­þórs­son, vara­borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, í skoð­anapistli á Frétta­tím­anum.

Varaborgarfulltrúi Miðflokksins líkir tafagjöldum við Berlínarmúr: „Hér þarf að reisa múr“
Baldur Borg­þórs­son

„Hér þarf að reisa múr og stöðva þessa þróun.“ Í pistl­inum er Baldur að bera saman Berlín­ar­múr­inn og umræð­una um tafagjöld í Reykja­vík. Tafagjöld geta verið sett á veg­ar­kafla eða svæði sem eru sér­stak­lega við­kvæm fyrir umferð eða þar sem tafir eru algengar. Gjöldin eiga að vera hvatar fyrir öku­menn til að velja sér aðrar leiðir eða nota aðra sam­göngu­máta en einka­bíl. Sem dæmi er hægt að leggja tafagjöld á sér­stakar teg­undir öku­tækja eða á ákveðnum tíma sól­ar­hrings.

„Senni­legt þykir að Sig­ur­borg Ósk og kump­ánar hennar í meiri­hluta borg­ar­innar með borg­ar­stjóra fremstan í flokki hygg­ist reisa tollamúr strax. Steypan kemur síðar.“ Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir er for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­vík­ur­borgar. „Ég ætla að leyfa mér að koma með þá hug­mynd að fyrsta hlið hins nýja múrs verði stað­sett í brekkunni ofan við Hlemm, sem borg­ar­stjóri sjálfur kallar: Fyrstu brekk­una upp í Breið­holt“ skrifar Baldur og bætir við: „Hliðið fái nafnið Checkpoint Sig­ur­borg.“

„Und­ir­rit­uðum finnst rétt að taka fram að engin umræða hefur verið um þetta und­ar­lega mál á fundum Skipu­lags og sam­göngu­ráðs, þar sem und­ir­rit­aður situr sem áheyrn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins.“ Sigurður Ingi Jóhanns­son, sveit­ar­stjórnar- og sam­göngu­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp á Alþingi og er það nú til umfjöll­unar í umhverfis- og sam­göngu­nefnd þings­ins. Verðir frum­varpið sam­þykkt munu sveit­ar­fé­lög og Vega­gerðin hafa heim­ild til að tak­marka eða banna umferð á til­teknum vegi eða svæði þegar mengun fer yfir heilsu­vernd­ar­mörk. Bannið myndi þá standa yfir tak­mark­aðan tíma.

„Þetta útspil kemur þó ekki á óvart og er vissu­lega í anda þeirrar tolla/skatta og for­ræð­is­hyggju­stefnu sem meiri­hlut­inn hefur staðið fyrir” skrifar Baldur. Hann nefnir að minni­stæð orð komi upp í hug­ann vegna ann­ars umdeilds máls: „Okkur er alveg sama hvað fólk vill, við ætlum að gera þetta.” Baldur tekur ekki fram hver sagði þessi orð eða við hvaða til­efni.

Hann endar skoð­anapistil­inn á hvatn­ingu til kjós­enda: „Það verður aldrei of oft brýnt hversu miklu máli skiptir að setja Xið sitt á réttan stað í kjör­klef­anum.” Baldur lokar pistl­inum með „Mit Freundliche Grüße” eða „með bestu kveðjum.”

Berlín­ar­múr­inn skildi að Vestur og Austur-Berlín eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina. Bygging múrs­ins hófst árið 1961 og var 167,8 km langur. Hann var tákn um skipt­ingu Þýska­lands og Kalda stríðið. Vegna erf­iðra lífs­kjara reyndi fólk að yfir­gefa aust­ur­hlut­ann og setj­ast að í vest­ur­hlut­anum í von um betri lífs­kjör. Tals­verður fjöldi fólks reyndi að flýja yfir múr­inn. Talið er að tæp­lega 140 manns hafi látið lífið í þeim til­raunum. Múrinn féll árið 1989.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“
Innlentborgarstjórn

Össur hrósar við­brögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítra­tali af Einari“

Össur Skarp­héð­ins­son skýtur létt á Einar Þor­steins­son í nýrri Facebook-færslu en hrósar Þórdísi Lóu Þór­halls­dótttur sem hann kallar „alvöru­stjórn­mála­mann“. Líf­fræð­ing­ur­inn og fyrr­ver­andi ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar, Össur Skarp­héð­inn óskar nýjum borg­ar­stjóra til ham­ingju með nýja starfið, í nýrri Facebook-færslu en notar einnig tæki­færið til þess að skjóta nett á Einar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, sem Össur segir að „fýlan“ hafi lekið af „í...
Kryddpíurnar í borginni byrjaðar að skrifa sáttmála: „Þetta eru auðvitað bara lykiláhersluatriði“
Innlent

Kryddp­í­urnar í borg­inni byrj­aðar að skrifa sátt­mála: „Þetta eru auð­vitað bara lyk­ilá­herslu­at­riði“

Oddviti Pírata í Reykja­vík­ur­borg, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, segir að meiri­hluta­við­ræður gangi vel á milli þeirra fimm stjór­mála­flokka sem rætt hafa saman und­an­farið en þær hafa haldið áfram í dag. Dóra segir að fundað hafi verið til 18 í dag en haldið verður áfram á morgun. Segist hún í sam­tali við RÚV vona að það dragi til tíð­inda á allra næstu...
Sanna útilokar ekki borgarstjórastólinn: „Bara eitt skref í einu“
Innlent

Sanna úti­lokar ekki borg­ar­stjóra­stól­inn: „Bara eitt skref í einu“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist taka eitt skref í einu en úti­loki ekki borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú þegar Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri kom öllum að óvörum og sleit meiri­hluta­sam­starfi sínu í borg­ar­stjórn, eru ýmsar þreif­ingar í gangi meðal flokk­anna í borg­inni. Nokkuð ólík­legt verður að telj­ast að Fram­sókn­ar­flokkur Einars verði í næsta meiri­hluta, eftir að Inga Sæland lýsti því yfir að Flokkur fólks­ins hefði...
Framsókn biði afhroð í borginni ef kosið yrði í dag – Sanna talin standa sig best
Innlent

Framsókn biði afhroð í borg­inni ef kosið yrði í dag – Sanna talin standa sig best

Algjört afhroð biði Fram­sókn­ar­flokk­ins í Reykja­vík kosið yrði í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inum í dag, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Sam­fylk­ingin fengi flest atkvæði sam­kvæmt sömu könnun. RÚV segir frá nið­ur­stöðu nýrrar könn­unar Maskínu á fylgi flokk­anna í Reykja­vík­ur­borg en Framsókn, sem var sig­ur­veg­ari síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga, mælist nú með 14 pró­sent minna fylgi en í síð­ustu kosn­ingum eða ein­ungis fjögur pró­sent. Könnun Maskínu fór...
Dagur B. vill finna lausn á vanda bræðranna: „Kjötborg lengi lifi!“
Innlentborgarstjórn

Dagur B. vill finna lausn á vanda bræðr­anna: „Kjötborg lengi lifi!“

Dagur B. Egg­erts­son vill finna lausn fyrir bræð­urna í Kjötborg en Reykja­vík­ur­borg hefur nú ákveðið að hefja gjald­töku í hverfi versl­un­ar­innar. Borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Dagur B. Egg­erts­son segir að fjöl­margir hafi heyrt í honum og bent á að lausn þurfi að finn­ast fyrir bræð­urna í Kjötborg í Vest­ur­bænum vegna þeirrar gjald­töku sem borgin hefur ákveðið að leggja á bíla­stæði í hverf­inu...
Stefnir í harðan slag hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjavík: Ragnhildur hjólar í Hildi
Innlentborgarstjórn

Stefnir í harðan slag hjá Sjálf­stæð­is­mönnum í Reykja­vík: Ragn­hildur hjólar í Hildi

Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar að gefa kost á sér í odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor. Frétta­blaðið greinir frá þessu. Þannig mun Ragn­hildur fara fram á móti Hildi Björns­dóttur, borg­ar­full­trúa, en hún gaf kost á sér í odd­vita­sætið í des­em­ber. Hildur hefur notið nokk­urra vin­sælda sem borg­ar­stjóra­efni þvert á flokka. Átök hafa þó kraumað í Sjálf­stæð­is­flokknum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins