„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lögfræðingur í vinnurétti segir kæru Orkunnar okkar „ógeðslega fyndin“ misskilningur á EES tilskipun

Full­trúar Orkunnar okkar hafa kært fund­ar­stjórn for­seta til Vinnu­eft­ir­lits­ins. Dagný Ósk Ara­dóttir Pind, lög­fræð­ingur hjá BSRB segir þing­menn ekki vera hefð­bundna starfs­menn. „Þingmenn eru sér­stak­lega und­an­skildir starfs­manna­lögum.“

Lögfræðingur í vinnurétti segir kæru Orkunnar okkar „ógeðslega fyndin“ misskilningur á EES tilskipun
Styrmir Gunn­ars­son

„Þetta eru Evr­ópu­reglur sem þeir eru að vísa í. Regl­urnar er búið að inn­leiða í íslensk lög, kölluð vinnu­vernd­ar­lögin“ segir Dagný og bætir við: „Lög um aðbúnað, holl­ustu og öryggi á vinnu­stöðum. Þetta kemur upp úr Evr­óputil­skipun sem var fyrst inn­leitt í kjara­samn­inga og svo inn í þessi lög.“

Dagný furðar sig á orða­lagi til­kynn­ing­ar­innar, sem segir að það sé mik­il­vægt að starfs­menn og sér­stak­lega alþing­is­menn fái hvíld­ar­tíma. „Það er alveg á hreinu að starfs­menn alþingis falla undir þessar reglur. Mann­eskja sem til dæmis situr við hlið for­seta alþingis er almennur starfs­maður“ segir hún og bætir við að vinnu­tíma þess ein­stak­lings eigi að skipu­leggja í sam­ræmi við vinnu­vernd­ar­lög. „Þingmenn sjálfir falla ekki þarna undir.“

Yfirlýsing Orkunnar okkar ekki í samræmi við lögin

„Nú hagar svo til að nefnda- og þing­fundir á Alþingi hafa staðið yfir nán­ast sam­fellt sól­ar­hringum saman“ segir í yfir­lýs­ingu Orkunnar okkar. „Fundað er á víxl í nefndum og í þing­inu, hvíld­ar­laust. Störf Alþingis eru um þessar mundir í and­stöðu við Lög um aðbúnað, holl­ustu­hætti og öryggi á vinnu­stöðum, einkum IX kafla lag­anna um hvíld­ar­tíma, frí­daga og hámarks­vinnu­tíma. Lög­boð­inn 11 klst. hvíld­ar­tími er óra­fjarri því að vera virtur.”

Í 52. gr. a. í IX kafla segir: „Ákvæði þessa kafla gilda ekki um æðstu stjórn­endur eða aðra þá sem ráða vinnu­tíma sínum sjálfir.“ Lögin í heild má sjá hér. Þess má til gam­ans geta að ákvæði um hvíld­ar­tíma eru inn­leið­ing á EES til­skipun líkt og Þriðji orku­pakk­inn. Þar líkur því sem líkt er með þessum tveimur málum sem eru afar ólík að efn­is­inni­haldi. Dagný segir vinnu­brögðin „ógeðs­lega fyndin“; „Þeir eru að taka lög­gjöf frá hræði­lega Evr­ópu­sam­band­inu og nota það sér í hag.“

Sjá einnig: Orkan okkar vill inn­grip lög­reglu eða Vinnu­eft­ir­lits í störf þings­ins svo Mið­flokk­ur­inn fái nægan svefn

Þingmenn ekki hefðbundnir starfsmenn

Í Evr­ópu­reglum kemur fram að skil­grein­ing á vinnu­veit­anda og starfs­manni eigi að vera til staðar. „Það er ein­hver sem verður að vera í ráðn­inga­sam­bandi, undir stjórn ein­hvers ann­ars. Það gildir ekki um þing­menn“ segir Dagný. „Hjá hverjum vinna þeir? Þeir eru ekki í hefð­bundnu ráðn­inga­sam­bandi.“

Dagný vekur athygli á upp­setn­ingu kærunnar, en full­trúar Orkunnar kærðu fund­ar­stjórn for­seta til Vinnu­eft­ir­lits­ins. „Ég er ekki viss um að for­seti þings­ins sé atvinnu­rek­andi, ef út í það er farið“ segir hún. „Þetta er ekki hefð­bund­inn vinnu­staður. Hver er þá atvinnu­rek­and­inn? Það er ekki Stein­grímur J. Sig­fús­son.“

Vinnueftirlitið hefur ekkert með kæruna að gera

„Hvað á [Vinnu­eft­ir­litið] að gera, eiga þeir að loka þing­inu? Ég er ekk­ert viss um að það sé hægt að kæra svona hluti til eft­ir­lits­ins“ segir Dagný og ýjar að því aðferðir Orkunnar okkar séu kjána­legar. „Vinnu­eft­ir­litið hefur ekk­ert með þetta að gera. Þeir hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd lag­anna en það eru engin úrræði.“ Hún segir þá geta beitt dag­sektum eða lokað vinnu­stöðum „Slíkt ger­ist endrum og eins. Það er í til­fellum þar sem vinnu­staðir eru taldir hættu­legir“ bætir hún við. Í þeim til­vikum er yfir­leitt um leyf­is­skort eða heilsu­spill­andi efni á vinnu­stað að ræða.

Haraldur Ólafsson og Birgir Stein­gríms­son afhentu Hönnu Sigríði Gunn­steins­dóttur for­stjóra Vinnu­eft­ir­lits­ins kæruna fyrir hönd Orkunnar okkar. „Við tökum þetta sem almenna ábend­ingu um van­búnað á vinnu­stað, en þá varðar það starfs­menn alþingis en ekki þing­menn­ina sem slíka“ segir Hanna. „Um störf þings­ins gilda lög um þing­sköp.“

Fyrrverandi ráðherrar á bak við kæruna

Jóhann Páll Jóhanns­son, blaða­maður hjá Stund­inni, gerir grín að kærunni í færslu á Facebook síðu sinni. „[Þau eru] farin að krefj­ast þess að lög­regla stöðvi starf­semi íslenska lög­gjaf­ar­þings­ins, að því er virð­ist af ótta við að Alþingi nýti full­veld­is­rétt Íslands á hátt sem sam­tök­unum líkar ekki“ segir í færsl­unni. Hann bendir á að fyrr­ver­andi ráð­herrar, þing­menn og stjórn­mála­leið­togar eru meðal stofn­enda hóps­ins Orkan okkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pólitík

Bjarni Ben tætir í sig hælisleitendur: „Það er ekki hægt að réttlæta þetta lengur“
Innlentpólitík

Bjarni Ben tætir í sig hæl­is­leit­endur: „Það er ekki hægt að rétt­læta þetta lengur“

Í við­tali í hlað­varpi hjá fjöl­miðla­mann­inum Sölva Tryggva­syni fer Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, hörðum orðum um hæl­is­leit­endur á Íslandi og er ósáttur með þá gagn­rýni sem rík­is­stjórn hans hefur fengið en telja sumir að hún hafi sýnt mann­vonsku og jafn­vel alið á útlend­inga­hatri. „Varðandi hæl­is­leit­enda­málin, þá hefur heim­ur­inn breyst mikið á skömmum tíma og straumur flótta­manna hefur auk­ist gríð­ar­lega. Það...
Hildur vandar Degi ekki orlofskveðjurnar: „Eðlilegt að fólk rísi upp á afturlappirnar“
Innlentpólitík

Hildur vandar Degi ekki orlofs­kveðj­urnar: „Eðlilegt að fólk rísi upp á aft­ur­lapp­irnar“

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, seg­ist líta á orlofs­mál Dags B. Egg­erts­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra Reykja­víkur, mjög alvar­legum augum en Dagur fékk 9,7 millj­ónir króna greiddar vegna orlofs við starfs­lok sem borg­ar­stjóri. Þar er um að ræða sam­kvæmt upp­lýs­ingum borg­ar­rit­ara, upp­safnað sum­ar­frí að hluta í 10 ára borg­ar­stjóra­tíð hans. Hún taldi eðli­legt að kalla eftir upp­lýs­ingum með hvaða hætti upp­gjörum...
Ragnar gagnrýnir ummæli Bjarna Ben: „Mjög ógeðfellt og ósanngjarnt“
Innlentpólitík

Ragnar gagn­rýnir ummæli Bjarna Ben: „Mjög ógeð­fellt og ósann­gjarnt“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er ekki sáttur við Bjarna Bene­dikts­sonar. Í gær­kvöldi var Bjarni Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gestur í Silfrinu á RÚV til að ræða helstu mál­efni líð­andi stundar á Íslandi. Meðal þeirra hluta sem ræddir voru má nefna Grinda­vík og kjara­samn­inga og taldi Bjarni að verka­lýðs­fé­lög lands­ins gætu þurft að taka til­lit til ástands­ins í Grinda­vík...
Mótmælir mótmælunum – Vill herða reglur og auka landamæraeftirlit: „Þessar dapurlegu tjaldbúðir“
Innlentpólitík

Mótmælir mót­mæl­unum – Vill herða reglur og auka landamæra­eft­ir­lit: „Þessar dap­ur­legu tjald­búðir“

„Það er hörm­ung að sjá tjald­búðir við Aust­ur­völl sem nú hafa staðið þar síðan 27. des­em­ber síð­stlið­inn. Það er óboð­legt með öllu að Reykja­vík­ur­borg hafi gefið leyfi fyrir tjald­búð­unum á þessum helga stað milli stytt­unnar af Jóni Sig­urðs­syni og Alþingis,“ svo ritar Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra Íslands í nýrri færslu sem hann birti á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook í kvöld. Bjarni virð­ist vera...
Gísli grét þegar hann viðurkenndi brot sitt fyrir Hönnu Birnu: „Það er ég sem gerði þetta“
Innlent

Gísli grét þegar hann við­ur­kenndi brot sitt fyrir Hönnu Birnu: „Það er ég sem gerði þetta“

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir er komin aftur á sjón­ar­sviðið eftir að hafa haldið sig úr sviðs­ljós­inu árum saman. Í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Eftirmál ræðir Hanna Birna um leka­málið alræmda en það varð á end­anum til þess að hún þurfti að segja af sér ráð­herra­emb­ætti og Gísli Freyr Val­dórs­son, þáver­andi aðstoð­ar­maður hennar, var dæmdur í skil­orðs­bundið átta mán­aða fang­elsi. Í hlað­varp­inu ræðir...
Nýr fjármálaráðherra kynntur á morgun – Svandís mögulega færð til
Innlentpólitík

Nýr fjár­mála­ráð­herra kynntur á morgun – Svandís mögu­lega færð til

Boðað hefur verið til blaða­manna­fundar. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa boðað til blaða­manna­fundar kl. 11:00 í fyrra­málið. Má gera ráð fyrir að þar verði til­kynntar breyt­ingar á rík­is­stjórn­inni í kjöl­far þess að Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér sem fjár­mála­ráð­herra í eftir að Umboðs­maður Alþingis skil­aði áliti um að Bjarni hafi verið óhæfur til að sjá um sölu Íslands­banka. Fund­ur­inn fer fram í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins