„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bjarni Benediktsson fundar með páfa

Vel virð­ist hafa farið með Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Frans páfa í morgun. Bjarni er staddur á fundi Vís­inda­aka­demíu Páfa­garðs vegna nýstofn­aðs alþjóð­legs vett­vangs ráð­herra, CAPE .

Bjarni Benediktsson fundar með páfa
Bjarni Bene­dikts­son og Frans páfi í Vatík­an­inu 27. maí 2019.

Frans páfi ávarp­aði fund­inn en í máli hans kom fram að aðgerða­leysi á heims­vísu vekti furðu. Fyrir ein­ungis tveimur vikum hefði koltví­sýr­ingur í and­rúms­lofti mælst meiri en nokkru sinni fyrr, eða 415 ppm og afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga væru ljósar um heim allan. „Við sjáum hita­bylgjur, þurrka, skóg­ar­elda, flóð og aðrar veð­ur­fræði­legar ham­farir, hækk­andi yfir­borð sjávar, sjúk­dóma og önnur vanda­mál sem eru alvar­legur fyr­ir­boði um enn verri hluti, ef við bregð­umst ekki við og gerum það af alvöru,” sagði páfi. Í lok ræðu sinnar sagð­ist Frans páfi vona að ráð­herr­arnir nýttu umboð sitt til að kom­ast að sam­komu­lagi um áætlun sem byggð­ist á nýj­ustu upp­lýs­ingum lofts­lags­vís­ind­anna, hreinni orku og ekki síst sið­fræði mann­legrar virð­ingar.

„Við ætlum að leggja okkar af mörkum til að mæta lofts­lags­vand­anum,“ sagði Bjarni á fund­inum í Vatík­an­inu í dag. CAPE, vett­vangnum er ætlað að hvetja til aðgerða í lofts­lags­málum í krafti reglu­verks og ákvarð­ana á sviði rík­is­fjár­mála og fjár­mála­mark­aða.

Í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að Bjarni hafi á fund­inum lagt áherslu á að Ísland hafa verið leið­andi í orku­skiptum, með því að nýta hreinar auð­lindir til hús­hit­unar og raf­orku­fram­leiðslu. Ætlunin væri að taka enn frek­ari skref, með orku­skiptum í sam­göngum og upp­bygg­ingu inn­viða fyrir raf­bíla, enda hefði rík­is­stjórnin sett sér mark­mið um kolefna­hlut­leysi árið 2040. Jafn­framt gæti fram­lag Íslands falið í sér útflutn­ing á þekk­ingu á nýt­ingu fall­orku og jarð­hita, sem og áfram­hald­andi rann­sóknir og þróun, meðal ann­ars á nið­ur­dæl­ingu koltví­sýr­ings.

Ráð­herr­arnir ræddu leiðir til að draga úr losun, bæði tækni­lega og með skatta­legum hvötum, sem og aðgerðir til að binda kolefni, en á fund­inum kom fram að með upp­græðslu og nátt­úru­legum aðferðum til bind­ingar, mætti draga úr kolefni í and­rúms­loft­inu um 30% fram til árs­ins 2030. Til umræðu var einnig útgáfa grænna skulda­bréfa og hvernig breyta mætti fjár­fest­ing­ar­stefnu opin­berra sjóða, með áherslu á græn verk­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins