„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ragnar segist krafinn um afsögn úr formannssæti VR vegna ummæla um þriðja orkupakkann

„Ég hef verið úthróp­aður kven­hat­ari, kraf­inn um afsögn úr emb­ætti for­manns VR og þaðan af verra fyrir vikið,“ skrifar Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR , á Facebook , um við­brögðin vegna opin­berrar and­stöðu hans við Þriðja orku­pakk­ann.

Ragnar segist krafinn um afsögn úr formannssæti VR vegna ummæla um þriðja orkupakkann
xx

Ragnar furðar sig á harka­legum við­brögðum vegna þess að hann hafi leyft sér að þakka þing­mönnum Mið­flokks­ins fyrir bar­átt­una gegn orku­pakk­anum. Hann gefur lítið fyrir full­yrð­ingar um að hann sé geng­inn í Mið­flokk­inn.

Formaður VR skýrir and­stöðu sína gegn þriðja orku­pakk­anum sem and­stöðu gegn mark­aðsvæð­ingu grunn­stoða sam­fé­lags­ins. „Af hverju er ég á móti því og hvaða reynslu höfum við á við­líka pökkum í nafni frjálsrar sam­keppni og mark­aðsvæð­ingar, neyt­endum til góða? Nær­tæk­asta dæmið er einka­væð­ing bank­anna sem átti að lækka kostnað, auka sam­keppni og síð­ast en ekki síst vera sam­fé­lag­inu og neyt­endum til góðs.“ skrifar hann og bætir við að hann telji ljóst að annað hafi komið á dag­inn.

Braskað með orku og heilbrigði

„Einka- og mark­aðsvæð­ing grunn­stoða eins og í heil­brigð­is­kerf­inu hefur heldur ekki reynst neyt­endum og sam­fé­lögum vel og er nær­tæk­ast að líta til Banda­ríkj­anna í þeim efnum. Hvernig hefur braskið með HS orku verið og hvað er búið að slíta marga millj­arða út úr því og er ein­hver svo barna­legur að halda því fram að við neyt­endur munum ekki borga brúsan í gegnum arð­sem­is­kröfu nýj­ustu eig­enda?“

Ekki andstæðingur ESB

Ragnar seg­ist sjá marga kosti og ókosti við Evr­ópu­sam­bandið. Andstaða hans við þriðja orku­pakk­ann sé ekki and­staða við ESB. „Þetta þýðir samt ekki að ég sé á móti ESB, sé and­stæð­ingur Evr­ópu­sam­bands­ins. Þvert á móti sé ég marga kosti, en líka galla. Ein­hverjir gætu túlkað þá skoðun, að ég sé ekki ESB and­stæð­ingur, að ég sé geng­inn til liðs við Sam­fylk­ing­una eða Viðreisn þar sem ég er hrifin af hug­myndum um fast­geng­is­stefnu. Ég hef alltaf verið þeirrar skoð­unar að við eigum að byggja upp og hlúa að land­bún­aði og þá sér­stak­lega ylrækt. Nota ork­una okkar í að auka sjálf­bærni sem bæði skilur eftir sig minna kolefn­is­spor, fjölgar störfum og hefur jákvæð áhrif á við­skipta­jöfnuð.“

Óánægður en líka ánægður með íslensk stjórnmál

Formaður VR rekur stuðn­ing sinn við ein­staka flokka. „Þau ykkar sem hafið lesið þetta langt og eru þess full­viss um að ég sé orðin fram­sókn­ar­maður, haldið ykkur fast! Ég er nefni­lega líka þeirrar skoð­unar að við þurfum að end­ur­skoða vernd­ar­tolla á mat­vöru og lækka launa­tengd gjöld og jað­ar­skatta á ein­stak­linga og fyr­ir­tækin sem gerir mig að ein­hvers­konar Sjálf­stæð­is­manni en ég hef verið skráður í flokk­inn frá unga aldri sem og alla aðra flokka sem hægt er að skrá sig í.

Ég er umhverf­is­sinni og í orði gæti ég talist Vinstri grænn. Mér finnst Katrín standa sig vel en stundum illa.

Mér finnst Sólveig Anna í Eflingu alveg frá­bær. Þar fer gler­hörð og sönn bar­áttu­kona fyrir rétt­látar sam­fé­lagi. Ég er sam­mála henni í mörgu, ekki alveg öllu en mjög mörgu og mér finnst Gunnar Smári frá­bær penni og flottur gaur sem hlýtur þá að gera mig að for­hertum sós­í­alista, sem borgar ekki fólki launin sín. Svo er það bar­áttu­konan, fyr­ir­myndin og Píratinn Birgitta Jóns­dóttir sem ég lýt á sem eina af mik­il­væg­ustu stjórn­mála­konum sam­tím­ans. Sem er svo­lítið sér­stakt, í ljósi þess að vera bendl­aður við kven­hatur, að flestar mínar fyr­ir­myndir eru konur.

Eina hat­rið sem ég ber í hjarta eru Hatarar sem mér finnst hrika­lega kraft­mikið, hár­beitt og flott band.

Barátta Flokks Fólksins gegn skerð­ingum í almanna­trygg­inga­kerf­inu gagn­vart öryrkjum og elli­líf­eyr­is­þegum er mér svo hug­leikin að það jaðrar við þrá­hyggju og mér finnst þau standa sig feiki­lega vel í þeim efnum.

Ég er þakk­látur rík­is­stjórn­inni fyrir góða og lausn­a­mið­aða vinnu og að mörgu leiti frá­bært sam­starf við verka­lýðs­hreyf­ing­una í nýaf­stöðnum kjara­samn­ingum. Á móti lýsi ég miklum von­brigðum með sömu rík­is­stjórn yfir því að hafa ekki náð lengra í mörgum mála­flokkum. Ég læt les­endum eftir hvort ég sé skil­yrð­is­laus stuðn­ings­maður rík­is­stjórn­ar­innar eða ekki“

Pólitísk rétttrúnaðarstefna að sundra samfélögum

„Það er vand­lifað í heimi mál­frelsis og frjálsra skoð­ana­skipta svo lengi sem skoð­anir þínar eru „réttar“. Ég tel að póli­tísk rétt­trún­að­ar­stefna, og póli­tískur rétt­trún­aður almennt, sé það sem sundrar sam­fé­lögum. Alveg eins og hver önnur trú­ar­brögð. Við vitum hverju var bjargað eftir hrun og hverju ekki. Ekki bara hér heldur útum allan heim.

Evr­ópu­sam­bandið er ekki full­komið og ekki heldur alslæmt. ESB gefur grænt ljós á til­veru skatta­skjóla og er ekk­ert öðru­vísi en hvert annað stjórn­vald þegar kemur að hags­muna­gæslu fyrir valda­mikla for­rétt­inda­hópa, ESB veitir fyr­ir­tækjum sem selja aðgang að vinnu­afli (Mansal) laga­legt skjól. Afreglu­væddi og mark­aðsvæddi fjár­mála­kerfið og vill gera það sama með aðra inn­viði eins og ork­una,“ skrifar Ragnar en bendir á að þrátt fyrir þetta telji hann sig ekki and­stæð­ing frjálsra við­skipta.

„En samt er ég ekki á móti frelsi í við­skiptum. Ég er ein­fald­lega á móti því að mark­aðs­svæða grunn­þarfir og nauð­synjar sam­fé­laga. Það er ekk­ert athuga­vert við að mark­aðs­svæða hluti sem þú hefur val um að nota eða neyta. En þar með er ekki sagt að ESB sé eitt­hvað hræði­legt bákn sem með öllu móti á að forð­ast. Hefur okkur gengið eitt­hvað betur við að halda utan um eigin auð­lindir frá ágangi þeirra sem vilja ásæl­ast auð­lindir þjóð­ar­innar og halda uppi fjár­stuðn­ingi við flokka­kerfið? Eða draga úr mis­skipt­ingu og tvö­feldni í skatt og rétt­ar­kerfi? Þess vegna er mik­il­vægt að séum hluti af Evr­ópu­sam­starf­inu og beitum okkur á alþjóða­vett­vangi fyrir rétt­lát­ari heimi og í okkar eigin garði þegar breyta á leik­reglum sem algjör óþarfi er að breyta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins