Sérstaklega er ástandið alvarlegt í Bandaríkjunum. Þar hafa tæplega 500 þúsund manns dáið úr of stórum skammti á sex árum, og ekkert bendir til þess að vandinn sé að minnka. Þrátt fyrir að umfangsmiklar aðgerðir lögreglu og yfirvalda – í hinu eilífa stríði gegn fíkniefnum – þá virðist ekkert benda til þess að vandinn sé að minnka.
Og það sem verst er: hann er að teygja sig vítt og breitt, meðal annars til Íslands. Sambærileg þróun hefur verið á Íslandi, þó tölurnar séu ekki eins ískyggilegar hér á landi og á verstu svæðunum í Bandaríkjunum. En í fyrra dóu 30 ungmenni úr of stórum skammti lyfja. Eftir sitja fjölskyldur með brostið hjarta og margar spurningar.
Fjallað er um málið í nýjasta tölublaði Mannlífs og á vef Kjarnans.




















Athugasemdir