Einar deilir Facebook-færslu manns að nafni Daher Dahli. Dahli segir að starfsfólk ísraelska flugfélagsins El Al hafi sett þá Matthías, Einar og Klemens í sitthvora röðina aftast í vélinni, þannig að þeir sátu ekki við hlið hvors annars. Í færslu Dahli kemur fram að þetta hafi verið leið starfsfólks El Al til að „refsa“ Hatara fyrir að veifa fána Palestínu á Eurovision.
Einar deilir færslunni með myllumerkinu #coolkidssitintheback, eða „svölu krakkarnir sitja aftast“.
Sjá einnig: Hatarar veifuðu fána Palestínu í stigagjöf Eurovision




















Athugasemdir