Meðlimir Hatara héldu uppi fána Palestínu í beinni útsendingu Eurovision í gær.
„Þessi gjörningur þeirra var eitthvað sem RÚV hafði ekki hugmynd um,“ sagði Gísli Marteinn í þættinum. Hann sagði RÚV ekki hafa vitað af aðgerðinni. Hins vegar hafi RÚV ítrekað rætt við Hatara um að ekki mætti vera með pólitísk skilaboð á keppninni. Hann sagði RÚV ekki geta stutt það að reglur keppnina séu brotnar.
Gísli Marteinn segir að meðlimir Hatara hafi séð málið þannig að það sé pólitískt í sjálfu sér að halda keppnina í Ísrael. „Ég fékk auðvitað svolítinn sting í magan þegar ég sá þetta palestínska flagg eins og aðrir,“ sagði Gísli Marteinn.




















Athugasemdir