„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gagnrýnir „meðvirkni og aðgerðarleysi“ yfirvalda vegna skuldasöfnunar WOW

„Afleið­ingar þess­arar með­virkni og aðgerða­leysis urðu þær að íslensk heim­ili, skatt­borg­arar og líf­eyr­is­þegar urðu fyrir búsifjum sem í sumum til­fellum fólk er enn að glíma við,“ sagði Jón Þór Þor­valds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, um aðdrag­anda falls WOW, í fyr­ir­spurna­tíma Alþingis í gær.

Gagnrýnir „meðvirkni og aðgerðarleysi“ yfirvalda vegna skuldasöfnunar WOW

Þing­mað­ur­inn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála­ráð­herra. „Hefur eða hafði Isavia ohf. heim­ildir til að gefa ein­stökum flug­rek­endum greiðslu­fresti eða sér­kjör á til að mynda lend­ing­ar­gjöldum eða þjón­ustu­gjöldum og þar með sam­keppn­is­for­skot á frjálsum mark­aði Evrópska efna­hags­svæð­is­ins eða með því að inn­heimta ekki þær skuldir sem eru þó almannafé? Ef svo er, hverjar eru þær heim­ildir nákvæm­lega og hvar eiga þær heim­ildir sér stað í lögum eða reglu­gerðum? Hver er til þess bær að veita slíkar heim­ildir?“ spurði þing­mað­ur­inn fjár­mála­ráð­herra.

Að auki spurði hann ráð­herra hvort hann eða aðrir ráð­herrar hafi haft upp­lý­sy­ingar um aðgerðir eða aðgerð­ar­leysi opin­berra eft­ir­lits­að­ila, eins og Sam­göngu­stofu eða rekstr­ar­að­ila eins og Isavia.

„Isavia er hluta­fé­lag sem starfar á við­skipta­legum for­sendum. Það er ekki Isavia sem gefur út rekstr­ar­leyfi flug­fé­laga. Það er ekki skil­yrði fyrir starf­semi flug­fé­lags að Isavia hafi þurft að koma þar að málum. Og það er ekki Isavia sem tekur ákvörðun um að félagið lendi í greiðslu­erf­ið­leikum með skuld­bind­ingar sínar, heldur er Isavia, eins og margir og allir aðrir kröfu­hafar flug­fé­lags­ins sem í hlut á, í við­skiptum við það á við­skipta­legum for­sendum,“ svar­aði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Heim­ildir Isavía sé að finna í rekstr­ar­form­inu. „Mér er ekki kunn­ugt um annað en að ákvarð­anir sem teknar hafa verið af stjórn Isavia byggi á við­skipta­legum for­sendum,“ svar­aði ráð­herra. „Ég vil halda því til haga hér að hag­kerfið allt verður fyrir áhrifum af því að þetta flug­fé­lag hætti starf­semi. En hag­kerfið hefur á sama tíma notið mjög góðs af bæði sam­keppn­inni sem verið hefur í flug­rekstri til lands­ins og síðan af umsvifum félags­ins. Stjórn­völd hafa fylgst mjög vel með, bæði á vett­vangi ráð­herra­nefnda en einnig ráð­herrar á sínu fagsviði eftir því sem efni hafa staðið til, allt frá því að í ljós kom að félagið átti í erf­ið­leikum með að fjár­magna sig í gegnum skulda­bréfa­út­boð síð­ast­liðið haust.“

Jón Þór brást við þessu með ábend­ingu um að ef fyr­ir­tæki sé í rekstri og fái sam­keppn­is­for­skot á þessum for­sendum geti það skaðað önnur fyr­ir­tæki. „Í þessu til­felli þá varð vissu­lega mikið af fólki fyrir búsifjum, starfs­fólk flug­fé­lags­ins, hugs­an­lega skatt­greið­endur (Forseti hringir.) og síð­ast en ekki síst rík­is­sjóður. Til að mynda má nefna að opin­ber gjöld eins og líf­eyr­is­greiðslur höfðu ekki borist síð­ustu mán­uði fyrir fall félags­ins.“

Bjarni sagð­ist ekki í aðstöðu til að fella end­an­legan dóm um það hvort ávalt hafi verið tekin rétt ákvörðun á öllum stigum máls­ins. Hann benti á að Sam­göngu­stofa heyri ekki undir sitt ráðu­neyti og að stjórn Isavía sé með sjálf­stæða stjórn. Fjár­mála­ráðu­neytið er hand­hafi hluta­bréfa í Isavia.

„En það sem ég hef þó séð tel ég að hafi allt verið mál­efna­legt og reist á réttum grunni. Annars vegar hefur Sam­göngu­stofa, eins og ég sé það, sagt sem svo að sú staða sem upp var komin hefði kallað á mjög náið eft­ir­lit með starf­sem­inni. Það var nán­ast andað niður um háls­málið á fjár­mála­stjóra félags­ins og for­stjóra um það nákvæm­lega hver staðan væri á hverjum tíma og það þurfti að vera til staðar trú­verðug áætlun um að vinna bug á því ástandi til að rekstr­ar­leyf­inu væri ekki kippt úr sam­bandi. Það var mats­at­riði á hverjum tíma sem iðu­lega var upp­fært. (Forseti hringir.) Fyrir Isavia var það í raun sama, það þurfti að vera ein­hver áætlun um hvernig ætti að end­ur­greiða þá skuld sem var að byggj­ast upp (Forseti hringir.) og félagið þurfti að taka við­skipta­lega ákvörðun um það hvort menn vildu starfa sam­kvæmt þeirri áætlun eða ekki,“ sagði Fjár­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Isavia

Isavia fær 6,3 milljarða lánaða til viðbótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veruleg“
InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
Færri farþegar um Keflavíkurflugvöll á nýju ári
Innlent

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
Samkomulag WOW og Isavia vegna milljarð króna skuldar stóðst allt fram í febrúar
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins