„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Björgólfur noti hluta af 276 milljarða eignum sínum og greiði miskabætur vegna hrunsins

„Ég skora hér með á auð­mann­inn Björgólf Thor Björg­ólfs­son að nota hluta af auði sínum (276 millj­arðar) til að greiða við­skipta­vinum Lands­bank­ans „miska­bætur“ vegna hruns bank­ans árið 2008!“ skrifar Lilja Mós­es­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður á Facebook.

Björgólfur noti hluta af 276 milljarða eignum sínum og greiði miskabætur vegna hrunsins
Þegar fót­spor Árna og Róberts komu í ljós hafði Björgólfur Thor þetta að segja: „Hinir ljós­fælnu gammar og leppar þeirra kæra sig koll­ótta þótt almennir hlut­hafar séu blekktir og trú­verð­ug­leika líf­eyr­is­sjóða stefnt í voða. Lægra verður varla lagst.“

„Margir skuld­settir við­skipta­vinir bank­ans urðu fyrir ómældu tjóni vegna ásetn­ings eða stór­fellds gáleysis stjórn­enda bank­ans sem enn hefur ekki verið bætt,“ segir Lilja enn fremur.

Sunday Times birtin nýlega lista yfir rík­ustu ein­stak­linga Bret­lands. Þar er Björgólf að finna en auður hans er eins og áður segir met­inn á 276 millj­arða íslenskra króna eða um 1.7 millj­arð punda.

Staða Björg­ólfs er því nokkuð breytt frá því sem var skömmu eftir hrun íslenska banka­kerf­is­ins árið 2008. Við fall Lands­bank­ans voru Björgólfur Thor Björg­ólfs­son og félög tengd honum stærstu skuld­arar bank­ans. Björgólfur Guð­munds­son var þriðji stærsti skuld­ari bank­ans. Samtals námu skuld­bind­ingar þeirra við bank­ann vel yfir 200 millj­örðum króna. Það var meira en sem nam eigin fé Lands­banka­sam­stæð­unnar. Þetta kom fram í Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um fall íslensku bank­anna. Stjórn­ar­for­maður Lands­bank­ans á árunum fyrir hrun var Björgólfur Guð­munds­son, faðir Björg­ólfs Thors.

Við fall banka­kerf­is­ins voru hlut­hafar í Lands­bank­anum rúm­lega 12 þús­und. Gjald­þrot Lands­bank­ans er meðal stærstu gjald­þrota heims. Þannig kemur fram í minn­is­blaði Jared Bibler, rann­sak­anda á verð­bréfa­sviði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, að gjald­þrot Lands­bank­ans sé 25% stærra en gjald­þrot Chrystler bif­reiða­fram­leið­and­ans árið 2009. „Til þess að skilja stærð áfalls­ins hér­lendis er hægt að draga upp mynd af því ef Banda­ríkin eða Bretland hefðu lent í svip­aðri kreppu. Það sem gerð­ist á Íslandi í byrjun októ­ber 2008 hefði jafn­gilt meira en 140 Northern Rock áföllum í Bret­landi. Yfirfært á Banda­ríkin myndi það jafn­gilda því að næstum 300 Lehman Brothers bankar hefðu orðið gjald­þrota sam­tímis,“ segir í minn­is­blað­inu.

Árið 2015 var greint frá því að fyrr­ver­andi hlut­hafar í Lands­bank­anum hafi fengið fyr­ir­tækið Landslög til að und­ir­búa mál­sókn gegn Björgólfi. Í frétta­til­kynn­ingu frá Jó­hann­esi Bjarna Björns­syni, lög­fræð­ingi hjá Lands­lög­um sem send var til fjöl­miðla upp­hafi mál­sókn­ar­innar sagði að­ rann­sókn og gagna­öfl­un hafi leitt til þess að fram séu kom­in „gögn sem gefa sterk­lega til kynna að Björgólf­ur Thor hafi með sak­næm­um hætti komið í veg fyr­ir að hlut­haf­ar fengju upp­lýs­ing­ar um um­fangs­mikl­ar lán­veit­ing­ar tengd­ar hon­um og einnig að hann hafi brotið gegn regl­um um yf­ir­töku­skyldu.“

Í frétta­til­kynn­ingu um máls­sókn­ina seg­ir að í mál­inu verði byggt á því að eft­ir brott­hvarf Magnús­ar Þor­steins­son­ar úr hlut­hafa­hópi Sam­son haustið 2005 hafi „Björgólf­ur Thor með sak­næm­um hætti hindrað að hann yrði tal­inn tengd­ur aðili við bank­ann til þess að koma í veg fyr­ir að upp­lýst yrði um um­fangs­mikl­ar lán­veit­ing­ar tengd­ar hon­um sem voru langt um­fram heim­ild­ir bank­ans að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.“ Málinu hefur ítrekað verið vísað frá dóm­stólum.

Í des­em­ber var Björgólfur sýkn­aður af Lands­rétti vegna 600 milljón kóna bóta­kröfu tveggja fyr­ir­tækja í eigu Krist­jáns Lofts­sonar en krafan var talin fyrnd. Félög Krist­jáns, Vogun HF krafð­ist 366 millj­óna króna og Fisk­veiði­hluta­fé­lagið Venus HF 238 millj­óna. Var það gert á þeim for­sendum að Samson eign­ar­halds­fé­lag var meiri­hluta­eig­andi í Lands­bank­anum fyrir hrun. Félög Krist­jáns höfðu keypt hluta­bréf í bank­anum sem urðu verð­laus við banka­hrun.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu Björg­ólfs og Novator frá júlí 2010 var gerður samn­ingur um skulda­upp­gjör við inn­lenda og erlenda lán­ar­drottna um allar skuldir Novatos og Björg­ólfs. Við­skipta­blaðið greindi frá því að upp­gjörið næmi 1200 millj­örðum íslenskra króna. „Samkvæmt sam­komu­lag­inu munu skuldir verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eftir. Allar eignir Björg­ólfs Thors og Novators liggja til grund­vallar upp­gjör­inu, en á þeim var gerð ítar­leg úttekt og mat af hálfu alþjóð­legs ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækis. Björgólfur Thor verður áfram hlut­hafi í félögum á borð við Actavis, Play, CCP og Verne Holding. Arðurinn af þessum eign­ar­hlutum og verð­mæti, komi til sölu þeirra, munu hins vegar ganga til upp­gjörs skuld­anna, ásamt ýmsum per­sónu­legum eigum hans. Þar á meðal eru hús­eign í Reykja­vík og sum­ar­hús við Þing­velli. Samhliða þessu skulda­upp­gjöri hefur náðst sam­komu­lag um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis.“

Árið 2014 var skulda­upp­gjör­inu lokið. Heild­ar­fjár­hæð greidd til lán­ar­drottna var um 1200 millj­arðar sam­kvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins. Þar af fengu íslenskir bankar og dótt­ur­fé­lag þeirra greidd um 100 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

Segir Margréti leikstjóra ekkert vita um málið: „Þetta er bara sóðaskapur“
InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins