„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Neyðarástand í loftslagsmálum

Írland fylgdi Bret­landi eftir síð­ast­lið­inn þriðju­dag þegar þingið sam­þykkti ein­róma að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna lofts­lags­mála. Þessi tvö lönd eru enn sem komið er þau einu sem hafa sam­þykkt slíka yfir­lýs­ingu. Aðgerðin kemur í kjöl­far mót­mæla­öldu ungs fólks þar sem kallað er eftir aðgerðum ríkja og alþjóða­sam­fé­lags­ins í bar­átt­unni við hlýnj­andi jörð.

Neyðarástand í loftslagsmálum
Mynd / Unsplash

En hvert er inn­tak þess­ara yfir­lýs­inga? Fyrst og fremst eru þær tákn­rænar. Yfir­lýs­ingin er póli­tísk stefnu­yf­ir­lýs­ing. Þær hafa ekki lagt skyldur á herðar stjórn­völdum til að grípa til sér­stakra aðgerða t.d. að draga fremur úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eða tryggja betur líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika jarð­ar­innar sem á undir högg að sækja. Aðilar virð­ast enn­fremur deila um hvað slíkar yfir­lýs­ingar þýða. Hér á landi myndi hins vegar slík yfir­lýs­ing, ef hún yrði sam­þykkt í þings­á­lykt­un­ar­formi með aðgerð­ar­lista eða sem stefnu­mótun, vera bind­andi fyrir íslensk stjórn­völd að fram­kvæma.

Leiðtogi Græna flokks­ins í Írlandi, Eamon Ryan, benti rétti­lega á að slík yfir­lýs­ing þýðir tækni­lega ekki neitt fyrr en aðgerðir fylgja með. Að hans viti þýðir það að stjórn­völd verði að taka óþægi­legar ákvarð­anir, grípa til aðgerða sem þeim langar ekki að fara í.

Leið­togar ýmissa landa að taka við sér í lofts­lags­málum þrátt fyrir að hafa ekki lýst yfir neyð­ar­á­standi. Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, sagði á síð­asta ári að Frakkar muni ekki eiga í samn­inga­við­ræður um milli­landa­við­skipti við lönd sem upp­fylla ekki Par­ís­ar­sátt­mál­ann. Það mun þá eiga við um við­skipti við Banda­ríkin.

Þá hefur hann einnig lagt fram kröfu, í slag­togi við lönd eins og Spán og Holland, um stíf­ari aðgerðir á vett­vangi Evr­ópu­sam­bands­ins við að draga úr losun gróð­ur­hús­loft­teg­unda. Þá hafa hund­ruðir borga sett sér það mark­mið að verða kolefn­is­hlut­lausar árið 2025-2050 t.d. með að banna bíla í mið­borgum, byggja hágæða­al­menn­ings­sam­göngur og flýta fyrir raf­bíla­væð­ingu.

Skilaboð aktí­vista eru hins vegar sú að tíma­línur séu ekki nógu skarpar og það sé ekki verið að gera nóg. Til að koma í veg fyrir eyði­legg­ingu og hörm­ungar á jörð­inni krefst skuld­bind­inga um að end­ur­skoða allt og gera breyt­ingar þar sem þörf er á, einkum við að aðlaga lifn­að­ar­hætti okkar og lifa sjálf­bært.

Þótt slíkar stefnu­yf­ir­lýs­ingar hafi ekki í för með sér beinar aðgerðir eru þær skref í rétta átt. Skref í þá átt að vekja fólk til vit­undar um alvar­leika þeirrar þró­unar í umhverf­is­málum sem nú á sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins