„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Barátta 21. aldarinnar

Barátta 21. aldarinnar
Halldóra Mogensen|

Skoðun
Eftir / Halldóru Mogensen

Þegar 1. maí varð að bar­áttu­degi verka­lýðs­ins fyrir rúmri öld síðan var það til að berj­ast fyrir átta klukku­stunda vinnu­degi. Sá áfangi náð­ist hér á landi með lögum Alþingis árið 1972. Verkefni verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar munu halda áfram að vera mik­il­væg til að standa vörð um hag almenn­ings og er 1. maí dagur til að fagna árangri og sam­stöðu hennar en einnig að und­ir­búa okkur fyrir verk­efnin fram undan. Við þurfum að huga að hlut­verki og fram­tíð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í breyttum heimi.

Vinnu­mark­aður fram­tíð­ar­innar verður ekki eins og sá sem við höfum þekkt. Það eru tals­verðar líkur á því að hlut­deild lág­launa­starfa, hluta­starfa og tíma­bund­inna starfa muni aukast á kostnað hefð­bund­inna starfa. Þeirri þróun fylgir óhjá­kvæmi­lega efna­hags­legt óör­yggi og skertur kaup­máttur. Hver verður geta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til að knýja fram betri kjör í heimi vax­andi hnatt­væð­ingar og tækni­fram­fara?

Sjálf­virkni­væð­ing starfa fer ört vax­andi með þeim hugs­an­legu afleið­ingum að um helm­ingur allra starfa sem við þekkjum í dag tap­ist á næstu 10-20 árum. Þegar við horfum upp á slíkar grund­vall­ar­breyt­ingar á vinnu­mark­að­inum verðum við að vera til­búin að leita rót­tækra lausna. Að tryggja öllum borg­urum skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu eða það sem við köllum borg­ara­laun, býður upp á þann mögu­leika að vald­efla verka­lýð­inn á ein­stak­lings­grund­velli. Upptaka borg­ara­launa myndi fela í sér end­ur­skoðun samn­ings­ins á milli vinnu­veit­anda og starfs­manns. Hún myndi fela í sér vald­efl­ingu starfs­manns­ins og auka sjálf­stæði hans frá vinnu­veit­and­anum, gefa honum mögu­leik­ann til að vera eigin vinnu­veit­andi, eigin yfir­maður. Borg­ara­laun gætu leitt af sér nýja öld nýsköp­unar og frum­kvöðla­starfs þar sem allir eru frjálsir til að stefna að þeim mark­miðum sem þeir kjósa.

Stærsti sigur verka­lýðs­hreyf­ingar fram­tíð­ar­innar gæti verið sá að tryggja þessa grunninn­komu í formi borg­ara­launa fyrir alla. Þannig komum við í veg fyrir að helsti ágóði tækni­fram­fara haldi áfram að safn­ast á hendur fjár­magns­eig­enda en fari þess í stað í að auka frí­tíma og lífs­gæði almenn­ings.

Nú eru liðin 47 ár síðan að við fengum átta klukku­stunda vinnu­dag á Íslandi og fram­leiðni hefur auk­ist mikið á þessum tíma en vinnu­tími fólks hefur ekki minnkað í sam­ræmi við það. Ef eitt­hvað er, þá eru margir að vinna mun meira bara til að ná endum saman. Við ættum að vera að vinna minna, ekki meira. Verka­lýðs­bar­átta fram­tíðar á því ekki að snú­ast um að tryggja öllum störf heldur frekar að nýta tækn­ina til að tryggja öllum efna­hags­legt frelsi. Tryggja rétt­láta og sjálf­bæra dreif­ingu valds. Baráttan þarf að snú­ast um vald­efl­ingu og frelsi.

Borg­ara­laun fela í sér grund­vall­ar­breyt­ingu á hug­mynda­fræði. Í stað þess að þurfa að fá laun­aða vinnu á for­sendum fjár­magns­eig­enda færðu fjár­hags­legt frelsi til að blómstra. Vinna við það sem þú vilt vinna við, rækta and­ann, vini og fjöl­skyldu, eða gera nákvæm­lega sem þér sýn­ist við þinn tíma. Þetta er bar­átta 21. ald­ar­innar.

Höfundur er þinga­maður Pírata og for­maður Vel­ferð­ar­nefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins