„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hús íslenskunnar loksins klárað rúmum áratug eftir loforð um fjármagn

Gengið verður að til­boði í bygg­ingu Húss íslensk­unnar sem rísa á við Arn­gríms­götu. Útlit er því fyrir að verk­efnið verði nú loks klárað 14 árum eftir að þingið sam­þykkti bygg­ingu þess.

Hús íslenskunnar loksins klárað rúmum áratug eftir loforð um fjármagn
|Bréf­bátur úr dag­blaði var settur á flot á drullu­polli í grunn­inum að Húsi íslensk­unnar.

Árið 2005 ákvað Alþingi fram­lag til bygg­ingu húss­ins. Nið­ur­staða hönn­un­ar­sam­keppni var kynnt í ágúst árið 2008. Árið 2013 tók þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og nú for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir fyrstu skóflustung­una á lóð­inni við Arn­gríms­götu 5 og var síðar ráð­ist í jarð­vinnu vegna verk­efn­is­ins. „Á árunum 2016-2018 fór síðan fram ítar­leg end­ur­skoðun og rýni á hönnun húss­ins með það fyrir augum að ná fram hag­kvæmni í bygg­ingu og rekstri,“ segir í til­kynn­ingu frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu.

„Það er fagn­að­ar­efni að fram­kvæmdir við Hús íslensk­unnar séu að hefj­ast. Þetta er löngu tíma­bært að verð­ugt hús sé reist til að varð­veita hand­ritin okkar. Þau eru einar merk­ustu ger­semar þjóð­ar­innar og geyma sagna­arf sem ekki aðeins er dýr­mætur fyrir okkur heldur hluti af bók­mennta­sögu heims­ins. Nú er heppi­legur tími fyrir opin­berar fram­kvæmdir í ljósi þess að hag­kerfið er að kólna,“ segir Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Bréf­bátur úr dag­blaði var settur á flot á drullu­polli í grunn­inum að Húsi íslensk­unnar.

Á árs­fundi Árna­stofn­unar árið 2016 tók Illugi Gunn­ars­son, þáver­andi mennta­mála­ráð­herra, af um öll tví­mæli varð­andi bygg­ingu húss­ins. Um 200 manns mættu á fund­inn en að honum loknum gengu gestir að grunni húss­ins sem þá hafði enn ekki risið og fleyttu bréf­bátúr dag­blaði í drullu­polli grunn­s­ins. „Sigl­ingin er tákn um að nú sé kom­inn skriður á þau áform að reisa mynd­ar­legt hús yfir íslenska tungu og dýr­gripi sem skrif­aðir hafa verið á því máli frá upp­hafi ritald,“ segir á vef Árna­stofn­unar frá þeim fundi.

Hús íslensk­unnar mun þjóna fjöl­breyttum til­gangi og verður um leið mjög tákn­ræn bygg­ing fyrir mik­il­vægi tungu­máls­ins fyrir okkur öll,“ segir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Hand­ritin eru í umsjón Stofn­unar Árna Magn­ús­sonar sem hafa mun aðstöðu í hús­inu ásamt Íslensku- og menn­ing­ar­deild Háskóla Íslands. Í bygg­ing­unni verða sér­hönnuð rými fyrir varð­veislu, rann­sóknir og sýn­ingu á skinn­hand­ritum auk vinnu­stofa fyrir kenn­ara og fræði­menn, lesrými, fyr­ir­lestra- og kennslu­salir, bóka­safn og kaffi­hús. Húsið verður á þremur hæðum auk kjall­ara undir hluta þess, heild­ar­flat­ar­mál þess er tæpir 6.500 m2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins